EPISODE · Jan 9, 2026 · 38 MIN
Kristín Þóra á rauðu ljósi: „Það var engin leið til baka án þess fá faglega aðstoð“
from Fókus · host DV
Leikkonan Kristín Þóra Haraldsdóttir hefur lengi verið þekkt fyrir mikinn metnað, kraft og fjölbreytt hlutverk á sviði og í sjónvarpi. Undanfarin ár hefur hún hins vegar ekki aðeins tekist á við krefjandi verkefni í starfi, heldur einnig farið í gegnum persónulegt ferðalag. Fyrir um sex árum lenti Kristín í kulnun eftir langvarandi álag, sjálfsniðurrif og stöðuga streitu, sem að lokum leiddi til þess að taugakerfið hrundi og líkaminn sagði stopp.Í Fókus, viðtalsþætti DV, opnar Kristín Þóra sig um kulnunina, aðdragandann að henni og það afgerandi augnablik þegar hún áttaði sig á að hún þyrfti að fá faglega aðstoð. Hún ræðir einnig um muninn á heilbrigðum metnaði og sjálfsniðurrifi, hvernig streita getur smám saman tekið yfir lífið og hversu mikilvægt það er að greina á milli kulnunar og annarra andlegra veikinda. Samhliða því fjallar hún um annasamt síðasta ár, ný hlutverk í þáttunum Dönsku konunni á RÚV og Heimaey í Sjónvarpi Símans, sýningu hennar Á rauðu ljósi á stóra sviðinu í Þjóðleikhúsinu sem hefur slegið rækilega í gegn - og hvernig hún tekst í dag á við álag með meiri mýkt, forgangsröðun og stuðningi fjölskyldunnar.
What this episode covers

NOW PLAYING
Kristín Þóra á rauðu ljósi: „Það var engin leið til baka án þess fá faglega aðstoð“
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.