Kristinn Johnson hjá Eirbergi 🌿🔴👣  Heilsutæki, loftgæði, jarðtenging/grounding, rauð ljós og berfætluskór episode artwork

EPISODE · May 5, 2026 · 1H 25M

Kristinn Johnson hjá Eirbergi 🌿🔴👣 Heilsutæki, loftgæði, jarðtenging/grounding, rauð ljós og berfætluskór

from Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms · host heilsuhladvarp

Í þessum þætti fáum við til okkar Kristinn Johnson, framkvæmdastjóra Eirbergs, í einstaklega fróðlegt, lifandi og skemmtilegt samtal um heilsu, forvarnir, tækni og tæki sem geta stutt okkur í að hugsa betur um líkamann. 🌿✨ Kristinn er sannkallaður „nörd“ í besta skilningi þess orðs 🤓 — fullur af ástríðu fyrir því sem hann gerir og brennur fyrir því að bjóða fólki lausnir sem geta hjálpað til við að viðhalda heilsu, bæta lífsgæði og styðja við forvarnir áður en vandamál verða alvarleg. Við förum yfir víðan völl og ræðum meðal annars loftmengun, loftgæði og hvað góð lofttæki þurfa að hafa til að gera raunverulegan mun. 🌬️🏡 Hvaða síur skipta máli? Hvað þarf fólk að vita áður en það velur lofttæki? Og hvers vegna getur loftið inni á heimilum og vinnustöðum haft meiri áhrif á heilsuna en margir halda? Við ræðum líka rauð ljós og innrauð ljós 🔴💡 — hvað slík tæki þurfa að uppfylla, hvaða gæði skipta máli og hvers vegna þau hafa vakið mikla athygli í heilsuheiminum. Þá förum við inn á berfótaskó 👣 og hvers vegna hefðbundnir skór eru oft hannaðir á hátt sem fer illa saman við náttúrulega lögun og virkni fótarins. Við ræðum hvaða áhrif það getur haft á líkamsstöðu, hreyfimynstur, jafnvægi og styrk í fótum að skipta yfir í skó sem leyfa fætinum að hreyfast eðlilegar. Við snertum einnig á jarðtengingu, eða earthing 🌍⚡ — hugmyndinni um líkamann sem rafrænt og ljósnæmt kerfi, og hvernig þeir sem aðhyllast decentralized medicine hefur talað um samband líkamans við ljós, rafsegulumhverfi og jörðina. Við ræðum mögulega kosti jarðtengingar og sérstaka berfótaskó með silfurþráðum til að við getum tengt við jörðina í hverju skrefi utanhúss. Að lokum ræðum við kosti og galla berfótaskóa fyrir afreksíþróttafólk, hlaupara og almennt fólk sem vill styrkja fætur, bæta hreyfigetu og tengjast líkamanum betur. 🏃‍♂️👟👣 Þetta er samtal um forvarnir, forvitni, tækni, náttúru og heilsu — og hvernig litlar breytingar í umhverfi okkar geta haft stór áhrif á það hvernig okkur líður. 🌱💛 🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. biobu.is 💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu. happyhydrate.is 🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum. braudogco.is 🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu. greenfit.is 🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist. husaskjol.is 🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins enn eitt árið í röð samkvæmt Maskínu - nú fimm ár í röð. hreyfing.is 🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins. netto.is

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published May 5, 2026

Embed this episode

Ready to play

Kristinn Johnson hjá Eirbergi 🌿🔴👣 Heilsutæki, loftgæði, jarðtenging/grounding, rauð ljós og berfætluskór

0:00 1:25:35

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms?

This episode is 1 hour and 25 minutes long.

When was this Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms episode published?

This episode was published on May 5, 2026.

Can I download this Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!