EPISODE · Aug 7, 2016 · 1H 55M
Lengi lifir...
from Rokkland
...í gömlum glæðum segir máltækið. Hljómsveitin Quarashi kom eins og stormsveipur inn í íslenskt tónlistarlíf fyrir 20 árum síðan. Þetta er mikið notaður frasi og hann er sannur í þessu samhengi, ?Quarashi kom, sá og sigraði. En Quarashi hætti síðan og til minningar um hljómsveitina og feril hennar kom út safnplata árið 2011 sem heitir Quarashi Anthology. En þrátt fyrir að Quarashi hafi þakkað fyrir sig og hvatt fyrir rúmum áratug hafa þessir gaurar sýnt það í verki að lengi lifir í gömlum glæðum og það er oft erfitt að slökkva alveg. Og á meðan það er glóð þarf ekki nema örlítinn andvara til að hleypa upp neistaflugi þannig að úr verður heilmikið bál. Og Quarashi logaði glatt á Þjóðhátíð í Eyjum um síðustu helgi, sveitin spilaði á laugardagskvöldinu fyrir fullum dal af fólki, það eru tónleikar á NASA næsta föstudagskvöld, fyrr í sumar sendi Quarashi frá sér nýtt lag og myndband og það er hugsanlega plata á leiðinni. Þeir eru gestir mínir í Rokklandi í dag þeir Sölvi og Steini úr Quarashi.
What this episode covers

NOW PLAYING
Lengi lifir...
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.