EPISODE · Sep 1, 2025 · 1H 24M
Michael Clausen, barna- og ofnæmislæknir um vaxandi ofnæmi, óþol og sjálfsofnæmissjúkdóma á Vesturlöndum - ónæmiskerfið, þarmaflóran, eiturefni og náttúruleysi koma við sögu.
from Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms · host heilsuhladvarp
🎧 Heilsuhlaðvarp Lukku og Jóhönnu Vilhjálms🎧 Í þessum þætti fáum við til okkar Michael Clausen, barna- og ofnæmislækni, sem hefur starfað á Landspítalanum í yfir 25 ár. Hann hefur rannsakað og fylgst með þróun ofnæma og sjálfsofnæmissjúkdóma sem hafa margfaldast í vestrænum heimi síðustu áratugi. Við ræðum meðal annars: hvers vegna ofnæmi og sjálfsofnæmissjúkdómar hafa aukist svo mikið frá 1950 áhrif eiturefna í umhverfinu og yfir 350.000 efna sem hafa bæst í líf okkar á örfáum áratugum ýruefni í matvælum, snyrtivörum og kremum sem rjúfa húð, meltingarveg og lungu of mikið hreinlæti og náttúruleysi í lífsstíl okkar muninn á mjólkuróþoli og mjólkurofnæmi og hvernig greina má einkennin hvernig þarmaflóran og ónæmiskerfið spila saman hvers vegna börn með exem eru líklegri til að fá ofnæmi álsölt í bólusetningum og margt fleira. „Aftur til náttúrunnar“ segir Michael – hann vitnar í Sókrates og Hippókrates, sem bentu á mikilvægi þess að hreyfa sig, borða hollt, rækta sálina og taka ábyrgð á eigin heilsu. Þátturinn er hlaðinn gagnlegum upplýsingum fyrir foreldra, fagfólk og alla sem vilja skilja betur hvernig umhverfið, mataræðið og lífsstíllinn hefur áhrif á ónæmiskerfið og ofnæmi. 🌱 Við erum stoltar af því að kynna Spírunna sem nýjan samstarfsaðila í Heilsuhernum okkar! Spíran er fjölskylduvænn bístróstaður í Garðheimum sem leggur áherslu á hollan og góðan mat – gerðan frá grunni úr gæða hráefnum. Þar fær fjölskyldan að njóta nærandi rétta sem styðja við heilsuna. 💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem ætla að taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur: 🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. 💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu. 🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum. 🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu. 🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist. 🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins fjögur ár í röð samkvæmt Maskínu. 🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins. ✨ Við þökkum öllum samstarfsaðilum kærlega fyrir að vera hluti af Heilsuhernum – á leið til betri heilsu fyrir alla.
Embed this episode
Ready to play
Michael Clausen, barna- og ofnæmislæknir um vaxandi ofnæmi, óþol og sjálfsofnæmissjúkdóma á Vesturlöndum - ónæmiskerfið, þarmaflóran, eiturefni og náttúruleysi koma við sögu.
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.