EPISODE · Apr 1, 2018
Nú er blessað yndis sólskin
from R1918
Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári. Í þessum þætti les Kristín Ólafsdóttir, fræðslufulltrúi hjá Hjálparstarfi kirkjunnar, úr bréfi Bóthildar Björnsdóttur til Kristrúnar Eyjólfsdóttur húsfreyju í Mosfellssveit. Bóthildur var systir Þórunnar Ástríðar Björnsdóttur ljósmóður sem minnst er á í bréfinu en barnið er Gunnar Steindórsson, sonur Steindórs Björnssonar og Guðrúnar Guðnadóttur sem bjuggu á Grettisgötu 10 eins og Bóthildur. Bóthildur er afasystir barnsins og viðtakandinn Kristrún er amma þess, móðir Steindórs. R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV. Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson. Tónlist: Úlfur Eldjárn. Samsetning: Þorgerður E. Sigurðardóttir.
Embed this episode
NOW PLAYING
Nú er blessað yndis sólskin
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.