EPISODE · Dec 6, 2011 · 1H 15M
Safndiskurinn PartyZone´97: Margeir + Andrés
from PartyZone, Dansþáttur þjóðarinnar · host PartyZone
Party Zone: Margeir + Andrés Útgáfudagur, sumar 1997. Útgefandi Japis/PZ Plötusnúðar: Andrés og Margeir Loksins gáfum við út disk um sumar en þessi kom út rétt eftir verslunarmannhelgina. Útgáfuhátíðin fer eins og hinar þrjár á spjöld sögunnar sem eitt af bestu kvöldum þáttarins og þótt víðar væri leitað. Við ákváðum að halda hana í "gini ljónsins", þ.e. í höfuðvígi hnakkana á þessum tíma, Skuggabarnum á Hótel Borg. Það er skemmst frá því að segja að staðurinn var lagður í rúst á þessu ógleymanlega kvöldi þar sem senan komst í gott og skemmtilegt návígi við hinn almenna borgara. Diskurinn var sumarplata talsvert á undan sinni samtíð þar sem um var að ræða latin/jazz skotna húsblöndu með 70´s fíling. Það var talsvert síðar sem danspoppið fór yfir í þessar pælingar. Tækninni hafði líka fleytt fram (hehe) og var diskurinn tekinn upp í heimahúsi í einni töku sem gefur honum skemmilegt krydd, Margeir og Andrés smellpössuðu í þessa pælingu. Salan á disknum var mjög góð þar sem lög af honum fengu allgóða spilun í útvarpi fram eftir haustinu. Hann á enn heima í spilaranum enda klassík....skoðið bara lagalistann, uppfullur af múmíum. Tracklist: Atmosfear - Dancing in Outer Space Bah Samba - Reach inside Dr Bob Jones & No Tenshun - The More I Get, The more I Want Brand New Heavies - Sometimes Áme Strong - Tout Est Bleu Sixteen Souls - On My Mind Bah Samba - Samba Beats Summer Daze - Samba Magic Corvino Traxx presents Primo Johnny L - This Time Azymuth - Jazz Carnival Roy Davis Jr - Gabrielle Basement Jaxx - Flylife The Knowledge - Until the Day The Heartists - Belo Horizonti Joe Claussell & Kerri Chandler - Escravos de Jo Roy Ayers - Everybody Loves the Sunshine
Embed this episode
NOW PLAYING
Safndiskurinn PartyZone´97: Margeir + Andrés
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.