EPISODE · Sep 22, 2025 · 2H 48M
Sara Sigmundsdóttir CrossFit íþróttakona um ferilinn, stofnfrumumeðferð, að keppa án krossbands, sálrænt álag í keppnisíþróttum, seiglu, bjartsýni og lífsgleði.
from Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms · host heilsuhladvarp
✨ Viðtal við Söru Sigmunds CrossFit meistara ✨ Í þessum þætti fáum við að heyra ótrúlega sögu Söru Sigmundsdóttur, eins þekktasta crossfit keppanda heims. Sara hefur gengið í gegnum gríðarlega erfiða meiðslasögu en hefur aldrei látið það stöðva sig – hún heldur áfram með ótrúlegri seiglu og járnvilja. Hún segir okkur frá því hvað dró hana fyrst inn í crossfit, hvernig ferillinn hefur þróast og hvernig hún tók stórt skref þegar hún ákvað að hætta að treysta eingöngu á hefðbundna læknavísindi þegar læknir sagði henni að hún þyrfti að hætta í íþróttum, sætta sig við liðskipti innan fárra ára og að hún gæti jafnvel aldrei leikið sér með börnunum sínum. Í stað þess að sætta sig við örlögin valdi Sara aðra leið – hún tvíefldist, fór að rannsaka hvaða aðrir möguleikar væru í boði og fann sína eigin leið til bata. Hún hætti á öllum lyfjum – þar á meðal krabbameinslyfjum sem henni voru ávísuð vegna gigtargreiningar – og hefur ekki lengur greiningu á gigt. Í staðinn tók hún mataræðið í gegn og hefur snúið sér að óhefðbundnum meðferðum, meðal annars stofnfrumumeðferð og blóðmeðferð sem hún sækir nú til Argentínu. Við ræðum einnig um hvernig það er að keppa á hæsta stigi íþrótta án krossbands. Þetta er einstök saga af þrautseigju, hugrekki og því að neita að gefast upp. 🌟 💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem ætla að taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur: 🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. 💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu. 🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum. 🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu. 🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist. 🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins fjögur ár í röð samkvæmt Maskínu. 🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins. 🌱 Spíran er fjölskylduvænn bístróstaður í Garðheimum sem leggur áherslu á hollan og góðan mat – gerðan frá grunni úr gæða hráefnum. Þar fær fjölskyldan að njóta nærandi rétta sem styðja við heilsuna. ✨ Við þökkum öllum samstarfsaðilum kærlega fyrir að vera hluti af Heilsuhernum – á leið til betri heilsu fyrir alla.
Embed this episode
Ready to play
Sara Sigmundsdóttir CrossFit íþróttakona um ferilinn, stofnfrumumeðferð, að keppa án krossbands, sálrænt álag í keppnisíþróttum, seiglu, bjartsýni og lífsgleði.
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.