Skrifaðu nú meira sjálf episode artwork

EPISODE · Mar 5, 2018

Skrifaðu nú meira sjálf

from R1918

Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári. Björg Kristjana Sigurðardóttir stjórnmálafræðingur starfar sem þjónustufulltrúi í Reykjavík. Í þessum þætti les hún úr bréfi Ragnhildar Pétursdóttur til Halldóru Bjarnadóttur. Ragnhildur var þjóðkunn húsfreyja og kvenskörungur og hafði um áratugaskeið mikil afskipti af menningarmálum kvenna. Hún var meðal stofnenda Húsmæðraskóla Reykjavíkur og var í stjórn hans í mörg ár. Einnig var hún formaður Kvenfélagasambands Íslands og Hins íslenska kvenfélags sem og ein af stofnendum Bandalags kvenna í Reykjavík og varamaður í bæjarstjórn Reykjavíkur á árunum 1934-1942. Hún hélt einnig um árabil kúabú í Háteigi sem þá var fyrir utan bæinn. R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV. Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson. Tónlist: Úlfur Eldjárn. Samsetning: Þorgerður E. Sigurðardóttir.

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Mar 5, 2018

Embed this episode

NOW PLAYING

Skrifaðu nú meira sjálf

0:00 0:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

When was this R1918 episode published?

This episode was published on March 5, 2018.

Can I download this R1918 episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!