EPISODE · Feb 1, 2026 · 1H 32M
Sprengisandur 01.02.2026
from Bylgjan · host Bylgjan
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Stjórnmál Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra og borgarstjóri Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hlaut á dögunum Þakkarviðurkenningu FKA 2026 fyrir ævilangt og áhrifamikið framlag til stöðu kvenna, forystu og samfélagslegrar framþróunar. Hún ræðir þá viðurkenningu og lítur yfir farin veg auk þess að ræða nútímann og þróun í stjórnmálum. Efnahagsmál Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra Nýjar verðbólgutölur vekja ugg hjá landsmönnum. Fjármálaráðherrann er í eldlínunni, viðurkennir að baráttan við verðhækkanir gangi ekki nógu vel, hagkerfið er að stöðvast og atvinnuleysi að aukast. Hvað er til ráða? Fiskeldi í sjó Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS Jóhann Helgi Stefánsson framkvæmdastjóri Landssambands veiðifélaga Eitt umdeildasta mál nútímans varðar eldi á frjóum laxi í fjörðum landsins og áhættu á erfðablöndun við villta laxastofna í íslenskum ám. Þar mætast stálin stinn þegar kemur að vernd eða nýtingu. Fjölmiðlar, falsfréttir og upplýsingaóreiða Jón Gunnar Ólafsson lektor við Háskóla Íslands. Jón hefur langa reynslu af rannsóknum á áhrifum falsfrétta og upplýsingaóreiðu í opinberri umræðu - hvaða áhrif hafa stafrænar breytingar haft á umhverfi stjórnmála, fjömiðlunar og samræðu og þar með lýðræðisins á síðustu árum?
Embed this episode
NOW PLAYING
Sprengisandur 01.02.2026
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.