EPISODE · May 3, 2026 · 1H 35M
Sprengisandur 03.05.2026 - Viðtöl þáttarins
from Bylgjan · host Bylgjan
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Gervigreind Hafsteinn Einarsson, dósent í tölvunarfræði við Háskóla Íslands Umræðan um Mythos gervigreindarlíkan Anthropic fyrirtækisins var engu lík, líkanið var tekið af markaði af hálfu skapara síns vegna þess að það bjó yfir eiginleikum sem enginn sá fyrir. Hvað er á seyði og hvert stefnir í þessu eina stærsta máli samtímans, gerð gervigreindarlíkana sem eiga sér sjálfstætt líf. Sveitarstjórnarmál, Hafnarfjörður Guðmundur Árni Stefánsson, oddviti Samfylkingu Orri Björnsson, oddviti Sjálfstæðisflokks Oddvitar helstu fylkinga í Hafnarfirði takast á. Helstu mál, ólíkar áherslur, hvernig lítur framtíðin út í þeirra augum, hvað breytist ef Samfylkingin kemst í lykilstöðu? Stjórnmál Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Halla Gunnarsdóttir, formaður VR Halla hvatti til samstöðu verkalýðshreyfingarinnar 1. maí, en Björn taldi félögin tímaskekkju og rétt að leggja þau niður. Undirliggjandi er djúpstæður ágreiningur um uppbyggingu samfélags. Landeyjarhöfn Ása Berglind Hjálmarsdóttir, alþingismaður Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmanneyjum Landeyjahöfn hefur nú verið rekin í 16 ár en enn og aftur sannast hversu erfið starfræksla hennar, hvað er til ráða? Hvað vilja Eyjamenn, hvað getur samgöngunefnd þingsins lagt til? Hvernig verða samgöngur tryggðar til Eyja?
Embed this episode
NOW PLAYING
Sprengisandur 03.05.2026 - Viðtöl þáttarins
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.