EPISODE · Feb 8, 2026 · 1H 31M
Sprengisandur 08.02.2026 - Viðtöl þáttarins
from Bylgjan · host Bylgjan
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Epstein skjölin Kristján Guy Burgess, alþjóða stjórnmálafræðingur Hvaða ályktanir má draga af Epstein skjölunum, vinfengi Epsteins við valdafólk úr öllum áttum og hver verða áhrifin birtingar þeirra á næstunni. Efnahagsmál Konráð Guðjónsson, hagfræðingur Már Wolfgang Mixa, dósent við HÍ Hver er staðan í efnahagsmálunum, er ástæða til að hafa áhyggjur, vextir áfram háir og verðbólga lætur ekki undan síga. Atvinnuleysi eykst en þó er enn mikill kraftur í vinnumarkaði og einkaneyslu veruleg á sama tíma og opinberir aðilar nota tækifærið til að hækka gjöld. Alþjóðmál/loftslagsmál Geir Guðmundsson verkfræðingur Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Er EST kerfið, meginverkfæri ESB til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda með því að krefja fyrirtæki um greiðslu fyrir útblástur sinn, íslendingum einstaklega óhagstætt. Undanþágur gilda til næstu áramót en viðbúið að gjöld hækki þá verulega - Viðskiptaráð krefst aðgerða af hálfu stjórnvalda en Geir segir þetta kerfi virka eins og það átti að gera. Leikskólamál Halldóra Guðmundsdóttir, leikskólastjóri Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar Bréf 63 leikskólastjóra til Reykjavíkurborgar í síðustu viku með kröfu um tafarlausar umbætur í rekstri leikskóla, vakti mikla athygli. Ástandið er alvarlegt, ekki lengur hægt að vinna undir þessum kringumstæðu segja leikskólastjórar en hvað gerist þá næst?
Embed this episode
NOW PLAYING
Sprengisandur 08.02.2026 - Viðtöl þáttarins
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.