EPISODE · Jan 11, 2026 · 1H 31M
Sprengisandur 11.01.2026 - Viðtöl þáttarins
from Bylgjan · host Bylgjan
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætti: Loftslagsmál/vísindi og áreiðanleiki þeirra Halldór Björnsson fagstjóri veðurs og loftslags Halldór fer yfir gagnrýni á vísindin sem aukist hefur verulega á síðustu árum, m.a. í loftslagsmálum, tortryggni í garð vísindamanna og hvernig rétt sé að bregðast við slíku. Stjórnmál Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, mennta- og barnamálaráðherra Inga ræðir stjórnmálin, gagnrýni sem Flokkur fólksins hefur orðið fyrir, stöðu sína sem ráðherra og þau mál sem hún ætlar að koma fram í nýju embætti. Alþjóðmál Dagur B. Eggertsson, alþingismaður Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður Rædd verður staða Íslands í alþjóðamálum og áhrif atburðanna í Venesúela á stöðu Grænlands og þar með á stöðu Nató og Íslands í samfélagi þjóðanna, gildi alþjóðalaga og síðast en ekki síst hvort útþenslustefna Bandaríkjanna, Rússlands og Kína sé sú framtíð sem nú blasir við. Málfrelsi, mótun opinberrar umræðu Karen Kjartansdóttir, almannatengill Friðjón R. Friðjónsson, borgarfulltrúi Þau ræða opinbera umræðu þar sem veruleikinn er ekki metinn út frá staðreyndum heldur frásögn valdsins og þann falsfrétta- og gervigreindarheim sem nú hefur orðið ofan á í skoðanamyndun svo víða.
Embed this episode
NOW PLAYING
Sprengisandur 11.01.2026 - Viðtöl þáttarins
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.