Spurt og svarað um fjárfestingar - Már Wolfgang Mixa episode artwork

EPISODE · Jan 26, 2021 · 2H

Spurt og svarað um fjárfestingar - Már Wolfgang Mixa

from Leitin að peningunum · host Umboðsmaður skuldara

Már Wolfgang Mixa starfar sem lektor við Háskólann í Reykjavík. Hann hefur langa starfsreynslu af fjárfestingum og stýringu fjármuna í íslensku bankakerfi og erlendis. Már ræðir hér fjárfestingar og gefur góð ráð við ávöxtun peninga.  Þetta viðtal er mjög yfirgripsmikið og nokkuð langt en hér er farið á dýptina þegar kemur að sparnaði og fjárfestingum.Meðal þess sem hér er rætt Er hægt að tímasetja markaðinn varðandi kaup á hlutabréfum? Þegar Már hóf sinn starfsferil í kringum aldamótin, var mikil netbóla á Íslandi auk þess sem Decode Genetics var heitasta fyrirtækið. Hann ræðir um mikilvægi þess að halda stefnu þegar kemur að fjárfestingum og ekki elta umræðuna í samfélaginu. Hún er oft þveröfug við það sem skynsamlegt er að gera.Mikilvægast er að taka aldrei meiri áhættu en maður getur kyngt. Og maður skal aldrei verða ástfanginn af hlutabréfum. Már sýnir dæmi um að hlutabréf geta verið skynsamlegar fjárfestingar á íslenskum hlutabréfamarkaði.  Hvaða ávöxtun hefði  íslenskur fjárfestir fengið eftir Hrunið í október 2008, hefði hann  keypt í Marel, Össur, Actavis og bönkunum þremur árið 2001? Hann fjallar um séreignarsparnaðinn sem er í dag einn mikilvægasti sparnaður okkar allra. Hvort sem upp koma áföll eða við kaup á fyrstu íbúð eða við innborganir á íbúðalán. Skattleysi séreignarsparnaðar við kaup á íbúð eða við innborganir á lán gerir hann að mjög vænlegum kosti. Már fjallar um fjárfestingar erlendis og gefur góð ráð þegar kemur að þeim. Við ræðum um ólíkar áherslur við fjárfestingar eftir aldri. Verðtryggð og óverðtryggð lán fá mikið vægi enda er fasteign fyrir flesta stærsta fjárfestingin á lífsleiðinni.  Auk þess sem við veltum fyrir okkur hvernig fasteignaverð muni þróast. Fjármálalæsi Íslendinga er svo að endingu til umræðu auk þess sem við spyrjum Má um bestu fjárfestingu hans og hans stærstu mistök. Bloggsíða Más https://www.mbl.is/vidskipti/pistlar/marmixa/Umsjón: Gunnar Dofri Ólafsson Þessi þáttur er framleiddur af umboðsmanni skuldara með stuðningi frá félagsmálaráðuneytinu.   

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Jan 26, 2021

Embed this episode

Már Wolfgang Mixa starfar sem lektor við Háskólann í Reykjavík. Hann hefur langa starfsreynslu af fjárfestingum og stýringu fjármuna í íslensku bankakerfi og erlendis. Már ræðir hér fjárfestingar og gefur góð ráð við ávöxtun peninga. Þetta viðtal er mjög yfirgripsmikið og nokkuð langt en hér er farið á dýptina þegar kemur að sparnaði og fjárfestingum. Meðal þess sem hér er rætt Er hægt að tímasetja markaðinn varðandi kaup á hlutabréfum? Þegar Már hóf sinn starfsferil í...

Distinct summary based on available episode metadata or transcript content.

NOW PLAYING

Spurt og svarað um fjárfestingar - Már Wolfgang Mixa

0:00 2:00:30

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Leitin að peningunum?

This episode is 2 hours and 0 minutes long.

When was this Leitin að peningunum episode published?

This episode was published on January 26, 2021.

Can I download this Leitin að peningunum episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!