Súlunesmálið - hestastelpan í Garðabæ HEILL ÞÁTTUR episode artwork

EPISODE · Jan 10, 2026 · 2H 21M

Súlunesmálið - hestastelpan í Garðabæ HEILL ÞÁTTUR

from True crime Ísland · host True Crime Ísland

🏛️ Súlunesmálið - eitt stærsta sakamál ársins 2025 Í þessum þætti fer lögfræðingurinn Anna Einarsdóttir einn þáttastjórnandi True Crime Ísland yfir dóm Héraðsdóms Reykjaness í máli nr. S-2201/2025 sem kveðinn var upp 16. desember 2025. Fjallað er um atburðarásina sem átti sér stað aðfaranótt 11. apríl 2025 þegar 28 ára kona varð föður sínum að bana og veittist að móður sinni með alvarlegu ofbeldi á heimili þeirra í Garðabæ. Hvers vegna kerfið greip ekki inn í þrátt fyrir ítrekaðar læknisheimsóknir og grunsemdir heilbrigðisstarfsfólks um heimilisofbeldi vikum fyrir andlátið? Rýnt er í þann veruleika þegar fullorðnir brotaþolar neita að tilkynna ofbeldi eða þiggja aðstoð af ótta við gerandann sem takmarkar getu lögreglu til afskipta. Fjallað er um áhrif hljóðóbeitar (misophonia) á heimilislífið og hvernig dómkvaddir matsmenn mátu sakhæfi ákærðu samkvæmt 15. gr. almennra hegningarlaga.   🎁 Nýársgjöf til hlustenda Í tilefni nýs árs höfum við ákveðið að hafa þennan þátt opinn í fullri lengd fyrir alla hlustendur. Með þessu viljum við sýna vinnubrögð okkar og þá ítarlegu lögfræðilegu rýni sem áskrifendur okkar fá aðgang að í hverri viku. Ef þú vilt nálgast allt safn True Crime Ísland og hlusta á nýja þætti í fullri lengd getur þú gerst áskrifandi á: 👉 tci.kratos.is Við skráningu færð þú þinn eigin einka-RSS hlekk sem opnar fyrir alla okkar þætti í þínu uppáhalds hlaðvarpsforriti (nema Spotify)     True Crime Ísland fjallar um sönn íslensk sakamál sem hafa komið til kasta íslenskra dómstóla. Í hlaðvarpinu er kafað ofan í nýlega dóma og farið yfir mál sem eru til meðferðar hjá héraðsdómstólum, Landsrétti og Hæstarétti hverju sinni. Í hverjum þætti er rýnt í ákærur, rannsókn lögreglu, framburð vitna og rökstuðning dómara til að varpa skýru ljósi á atburðarás og niðurstöður stærstu dómsmála líðandi stundar á Íslandi. True Crime Ísland býður upp á faglega og fræðilega greiningu á alvarlegum afbrotum og því sem efst er á baugi í íslenskum dómssölum. Fylgdu True Crime Ísland á Spotify og öllum öðrum samfélagsmiðlum.       

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Jan 10, 2026

Embed this episode

NOW PLAYING

Súlunesmálið - hestastelpan í Garðabæ HEILL ÞÁTTUR

0:00 2:21:41

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of True crime Ísland?

This episode is 2 hours and 21 minutes long.

When was this True crime Ísland episode published?

This episode was published on January 10, 2026.

Can I download this True crime Ísland episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!