EPISODE · May 14, 2018
Tóbaks- og sælgætisbúðir fá enga undanþágu
from R1918
Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári. Sólrún Jensdóttir sagnfræðingur var um árabil skrifstofustjóri í mennta-og menningarmálaráðuneytinu en hefur einnig starfað sem blaðamaður og kennari. Hún hefur búið í Reykjavík frá fæðingu, ef frá eru talin 6 ár við nám og störf í Bretlandi og Bandaríkjunum. Í þessum þætti les hún tilkynningu úr dagblaðinu Vísi sem birtist 4. apríl 1918. R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV. Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson. Tónlist: Úlfur Eldjárn. Samsetning: Þorgerður E. Sigurðardóttir.
Embed this episode
NOW PLAYING
Tóbaks- og sælgætisbúðir fá enga undanþágu
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.