EPISODE · Jan 27, 2025 · 2H 27M
Tommy Ragnar Wood læknir, lífeðlisfræðingur og sérfræðingur í heilaheilsu og taugalækningum um áhrif lífsstíls á heilaheilsu.
from Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms · host heilsuhladvarp
💡 Hvernig lífsstíll hefur áhrif á heilann með Dr. Tommy Wood - getum við fyrirbyggt heilabilun? Dr. Thomas Ragnar Wood, sérfræðingur í taugavísindum ræðir við okkur hvernig daglegar venjur geta mótað heilsu heilans og jafnvel minnkað líkur á heilabilun um allt að 50%. Dr. Wood kynnir þrjár lykilstoðir heilbrigðrar heilastarfsemi: ✅ Hugræn örvun – Ögraðu heilanum eins og vöðva með því að læra nýja færni, spila hljóðfæri eða dansa. ✅ Líkamleg hreyfing – Rannsóknir sýna að því stærri sem tvíhöfðavöðvarnir (biceps) eru, því minni er hættan á heilabilun. Fjölbreytt hreyfing, sérstaklega æfingar sem sameina samhæfingu, tónlist og félagslega þátttöku, eins og dans, hafa einstaklega jákvæð áhrif á heilastarfsemi. ✅ Rétt næring og endurheimt – Omega-3, B-vítamín og magnesíum styðja heilbrigði heilans, rétt eins og góður svefn sem er lykilatriði í endurnýjun taugakerfisins. Hann ræðir einnig áhrif hómósýsteíns á æðakerfi og vitræna getu, áhrif ketósu og afleiðingar samfélagsmiðla á einbeitingu og hugræna heilsu. Að auki útskýrir hann af hverju styrktarþjálfun og hreyfing skipta sköpum fyrir langtíma heilaheilsu. 📢 Aðgerðir sem þú getur gripið til núna: ✔ Lærðu eitthvað nýtt sem reynir á heilann! ✔ Hreyfðu þig reglulega – sérstaklega með æfingum sem sameina líkams- og hugræna færni. ✔ Borðaðu næringarríkan mat og stjórnaðu streitu. ✔ Tryggðu góðan svefn – þar á sér stað endurheimt heilans. Við erum stoltar af því að kynna heilsuherinn okkar - fyrirtæki sem ætla að koma með okkur í þetta heilsuferðalag - til heilsueflingar! Bíóbú framleiðir lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur Brauð&Co - nota lífrænt korn í ekta súrdeigsbrauð - ekkert ger og engin aukaefni - allt búið til á staðnum Greenfit - býður upp á heilsumælingar og meðferðir - styður fólk til betri heilsu Happy Hydrate - Þinn besti æfingafélagi - einstök blanda af steinefnum og söltum sem hraðar endurheimt og bætir vökvajafnvægi. Hagkaup - býður upp á úrval hreinna ferskra matvæla, lífrænna matvara og bætiefna Húsaskjól - umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist Hreyfing - í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta stöðin sl. fjögur ár samkvæmt Maskínu Saltverk - sjálfbært, hreint, óunnið íslenskt salt - þurrkað með jarðhita og inniheldur frá náttúrunnar hendi öll stein- og snefilefni
Embed this episode
Ready to play
Tommy Ragnar Wood læknir, lífeðlisfræðingur og sérfræðingur í heilaheilsu og taugalækningum um áhrif lífsstíls á heilaheilsu.
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.