EPISODE · Dec 23, 2025 · 1H 11M
Tryggvi Hjaltason um föstur, áhrif þeirra á líkamann, heilsu, trú, mátt bænarinnar og kærleik.
from Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms · host heilsuhladvarp
Gestur þáttarins er Tryggvi Hjaltason greinandi, gagnasérfræðingur og áhrifamikil rödd í umræðu um menntakerfið okkar, föstur, lífstíl, heilsu og andlega iðkun. Tryggvi hefur vakið mikla athygli fyrir opna og persónulega umræðu um föstur, áhrif þeirra á líkama og heilsu, og tengsl föstu við trú, bæn og andlega dýpt. Hann hefur sjálfur gengið í gegnum langar föstur og deilt reynslu sinni af bæði líkamlegum breytingum og innri umbreytingu. Í samtali okkar ræðum við hvernig föstur geta verið bæði lífeðlislegt verkfæri til að bæta heilsu og andleg iðkun. Við förum yfir hvaða áhrif föstur geta haft á líkamann en Tryggvi hefur fylgst náið með áhrifum á líkamann með því að mæla fjölmörg gildi í blóðinu - og hann gefur þeim sem hafa áhuga á að prófa að fasta góð ráð. Við komum einnig víða annars staðar við en Tryggvi menntaði sig m.a. í leyniþjónustufræðum í Bandaríkjunum og þjónaði í hernum þar. Hann hefur einnig látið til sín taka í umræðu um menntakerfið - og sérstaklega stöðu drengja í kerfinu en hann vann fyrir stjórnvöld skýrslu um stöðu þeirra og hvernig mætti bæta hana. ✨💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur. ✨ Við þökkum þeim kærlega fyrir að vera hluti af þessu ferðalagi – á leið til betri heilsu fyrir alla. 💚 ✨ 🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. biobu.is 💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu. happyhydrate.is 🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum. braudogco.is 🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu. greenfit.is 🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist. husaskjol.is 🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins enn eitt árið í röð samkvæmt Maskínu - nú fimm ár í röð. hreyfing.is 🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins. netto.is
Embed this episode
Ready to play
Tryggvi Hjaltason um föstur, áhrif þeirra á líkamann, heilsu, trú, mátt bænarinnar og kærleik.
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.