EPISODE · Feb 2, 2021 · 1H 6M
Verðmætasta eignin og Farsæl skref í fjármálum - Gunnar Baldvinsson
from Leitin að peningunum · host Umboðsmaður skuldara
Gunnar Baldvinsson er framkvæmdastjóri Almenna lífeyrissjóðsins og var auk þess formaður Landssambands lífeyrissjóða um árabil. Hann hefur skrifað fjölmargar bækur um fjármál einstaklinga sem í dag eru nýttar til kennslu . Nýjasta bók hans Farsæl skref í fjármálum er nýkomin út og er til umræðu í þessum þætti.Gunnar ræðir einnig lífeyrismál og af hverju í eftirlaunum okkar er oft að finna verðmætustu eign okkar. Einnig ræðum við um: Mikilvægi þess að huga að lífeyrismálum sem fyrst. Ungt fólk greiðir í dag um 15,5% af launum sínum í lífeyrissparnað og í sumum tilfellum geti þetta verið of mikið. Þ.e. fólk fái meira í eftirlaun en það fékk í laun! Hann ræðir muninn á lífeyrissjóðakerfinu og almannatryggingarkerfinu.Nauðsyn þess að treysta ekki á almannatryggingakerfið þar sem er fjármagnað með skatttekjum og að í framtíðinni verða sífellt færri vinnandi á móti lífeyrisþegum.Hver er munurinn á söfnunarkerfi eða gegnumstreymiskerfi þegar kemur að lífeyrismálum? Hvaða kerfi höfum við á Íslandi? Hann ræðir um bækur sínar um fjármál. Bækur hans hafa verið þýddar og eru kenndar erlendisHann fjallar um það sem vel er gert þegar kemur fjármálalæsi og hvar við þurfum að gera betur. Mikilvægustu ráðin þegar kemur að fjármálum. Húsnæðislán eiga ekki að vera hærri en þrenn árslaun. Hvað er skuldabréf og hvernig þau virka,. Hvað myndi Gunnar gera við 50 milljónir króna sem hann fengi í hendurnar óvænt.Þetta og margt fleira í þessu áhugaverða viðtali. Umsjón: Gunnar Dofri Ólafsson Þessi þáttur er framleiddur af umboðsmanni skuldara með stuðningi frá félagsmálaráðuneytinu.
Embed this episode
What this episode covers
Gunnar Baldvinsson er framkvæmdastjóri Almenna lífeyrissjóðsins og var auk þess formaður Landssambands lífeyrissjóða um árabil. Hann hefur skrifað fjölmargar bækur um fjármál einstaklinga sem í dag eru nýttar til kennslu . Nýjasta bók hans Farsæl skref í fjármálum er nýkomin út og er til umræðu í þessum þætti. Gunnar ræðir einnig lífeyrismál og af hverju í eftirlaunum okkar er oft að finna verðmætustu eign okkar. Einnig ræðum við um: Mikilvægi þess að huga að lífeyrismálum sem fy...
NOW PLAYING
Verðmætasta eignin og Farsæl skref í fjármálum - Gunnar Baldvinsson
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.