EPISODE · Apr 6, 2026 · 1H 14M
Viðar Halldórsson prófessor í félagsfræði um félagstöfra sem liggja til grundvallar samfélögum, vellíðan, velsæld og heilsu í víðustu merkingu - erum við að tapa þeim?
from Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms · host heilsuhladvarp
🎙️ Í þessum þætti ræðum við við Viðar Halldórsson, prófessor í félagsfræði, um það sem skiptir kannski meira máli en margt annað í lífinu: félagsleg tengslin okkar — og hvernig þau móta heilsu okkar, líðan, samfélög og sjálft mannlífið. Viðar hefur talað um mikilvægi „félagslegra töfra“ og bent á að samfélagið sé víða að færast í átt að meiri firringu, einmanaleika og veikari tengslum. 💬 Við ræðum meðal annars: ✨ af hverju félagsleg tengsl skipta gríðarlegu máli fyrir lífsgæði, heilsu og samfélagið allt ✨ hvernig við getum ræktað tengslin betur í daglegu lífi ✨ af hverju það skiptir máli að hittast í eigin persónu en ekki lifa bara í samskiptum í gegnum skjái ✨ hvernig mannleg samskipti byggja á ótal litlum þáttum — augnsambandi, nærveru, svipbrigðum, tóni og tengingu — sem tapast að hluta þegar samskipti færast of mikið yfir á skjáinn ✨ af hverju það getur skipt máli að fara út í búð, heilsa fólki, brosa, spjalla og vera hluti af lifandi samfélagi ✨ hvernig snjalltækin geta smám saman tekið okkur úr sambandi — við okkur sjálf, hvert annað, samfélagið og náttúruna ✨ og hvernig of mikil skjávera getur gert okkur dofnari gagnvart lífinu og minna vön raunverulegum samskiptum 🌿 Þetta er þáttur um það sem heldur samfélögum saman — og því sem gerist þegar við hættum að hittast, hlusta, horfa í augu og vera raunverulega til staðar hvert fyrir annað. Viðar hefur einmitt lagt áherslu á að við þurfum að passa betur upp á félagsleg samskipti og rækta nærsamfélagið okkar með markvissari hætti. ❤️ Þessi þáttur er fyrir öll sem vilja skilja betur hvers vegna tengsl, nærvera og mannleg hlýja eru ekki bara „nice to have“ — heldur ein af undirstöðum góðs lífs. ✨💚 Heilsuherinn okkar – fyrirtæki sem taka þátt í þessu heilsuferðalagi með okkur. ✨ Við þökkum þeim kærlega fyrir að vera hluti af þessu ferðalagi – á leið til betri heilsu fyrir alla. 💚 ✨ 🥛 Bíóbú – lífrænar mjólkurvörur sem innihalda meira af góðum fitusýrum en hefðbundnar mjólkurvörur. biobu.is 💧 Happy Hydrate – besti æfingafélaginn, með söltum og steinefnum sem styðja við endurheimt eftir æfingu. happyhydrate.is 🍞 Brauð&Co – ekta súrdeigsbrauð úr lífrænu korni, án gers og aukaefna – ekkert drasl og allt búið til á staðnum. braudogco.is 🌿 Greenfit – heilsumælingar og meðferðir eins og súrefnis- og rauðljósameðferð sem styðja fólk til betri heilsu. greenfit.is 🏡 Húsaskjól – umhverfisvæn fasteignasala sem býður upp á meiri upplýsingar í rauntíma en gengur og gerist. husaskjol.is 🏋️ Hreyfing – í forystu heilsueflingar í áratugi og valin besta líkamsræktarstöð landsins enn eitt árið í röð samkvæmt Maskínu - nú fimm ár í röð. hreyfing.is 🛒 Nettó – heilsudeild Nettó ætlar sér að taka forystu í að vera með bestu heilsudeild landsins. netto.is ⭐ Protis er nýr samstarfsaðili okkar. Protis framleiðir kaldhreinsaða íslenska fiskolíu úr síld sem inniheldur 1900 mg af omega-3 auk astaxanthins. protis.kavita.is
Embed this episode
Ready to play
Viðar Halldórsson prófessor í félagsfræði um félagstöfra sem liggja til grundvallar samfélögum, vellíðan, velsæld og heilsu í víðustu merkingu - erum við að tapa þeim?
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.
Similar Podcasts
No similar podcasts found.