Ykkur hlýtur að vera óhætt að skrifa manni? episode artwork

EPISODE · Mar 15, 2018

Ykkur hlýtur að vera óhætt að skrifa manni?

from R1918

Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári. Snæbjörn Helgi Arnarsson Jack stundar nám í Tækniskólanum og fæst að auki við tónlist. Í þessum þætti les hann úr bréfi Tryggva Þórhallssonar ritstjóra Tímans og síðar forsætisráðherra sem hann skrifar systur sinni og mági, hjónunum Svövu Þórhallsdóttur og Halldóri Vilhjálmssyni sem búsett voru á Hvanneyri. Bréfið er ritað frá Laufási sem var heimili fjölskyldu Tryggva við Laufásveg. Húsið byggðu foreldrar hans, Þórhallur Bjarnarson biskup og Valgerður Jónsdóttir árið 1896. Húsið var nefnt eftir æskuheimili Þórhalls, Laufási við Eyjafjörð og dregur gatan Laufásvegur nafn sitt af þessu húsi. R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV. Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson. Tónlist: Úlfur Eldjárn. Samsetning: Þorgerður E. Sigurðardóttir.

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Mar 15, 2018

Embed this episode

NOW PLAYING

Ykkur hlýtur að vera óhætt að skrifa manni?

0:00 0:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

No similar podcasts found.

Frequently Asked Questions

When was this R1918 episode published?

This episode was published on March 15, 2018.

Can I download this R1918 episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!