433.is podcast artwork

PODCAST · sports

433.is

Hlaðvarpsveita 433.is

Publisher-supplied feed metadata · PodParley refreshed Sep 12, 2026 · Source feed

  1. 264

    Íþróttavikan: Stór helgi á Íslandi og Manchester-slagur

    Helgi Fannar og Hörður Snævar fara yfir fréttir og leiki liðinnar viku, auk þess að hita upp fyrir helgina.

  2. 263

    Íþróttavikan: Víkingur með níu fingur á titlinum og drama á gluggadegi

    Helgi Fannar og Hörður Snævar ræddu það helsta hér heima og erlendis.

  3. 262

    Íþróttavikan: Af hverju geta Chelsea og City selt en Arsenal og United ekki?

    Íslenski, enski og Evrópukeppnin eru á meðal þess sem Helgi Fannar og Hörður Snævar ræða í þætti vikunnar.Þá er farið yfir helstu fréttir liðinnar viku og sitt hvað fleira einnig.

  4. 261

    Íþróttavikan: Þéttur fréttapakki og enski boltinn rúllar loks af stað

    Helgi Fannar og Hörður Snævar gera upp þétta fréttaviku og hita upp fyrir enska boltann, sem hefst í kvöld.

  5. 260

    Íþróttavikan: KR-ingar hóta toppbaráttu og nóg af gluggasögum

    Helgi Fannar og Hörður Snævar gera upp fótboltavikuna hér heima og erlendis

  6. 259

    Íþróttavikan: Dramatík á HM og stórtíðindi af Hlíðarenda

    Helgi Fannar og Hörður Snævar fara yfir það helsta í sumarútgáfu af Íþróttavikunni á 433.is.HM, íslenski boltinn, fréttir vikunnar og miklu fleira í þætti dagsins.

  7. 258

    Íþróttvikan: Furðurlegur leiktími og fjör á HM

    Helgi Fannar og Hörður Snævar gera upp vikuna í sumarútgáfu af Íþróttavikunni.HM, íslenski boltinn og helstu fréttir úr liðinni viku er á meðal umræðuefna þáttarins.

  8. 257

    Íþróttavikan: Veislan vestanhafs rúllar af stað og hátt launaðir leikmenn þurfa að rífa sig í gang

    Helgi Fannar og Hörður Snævar gera upp vikuna á föstudögum í sumar. HM er að rúlla af stað og má búast við fjöri innan vallar sem utan. Þeir ræða þá einnig íslenska boltann, sem og karla- og kvennalandsliðið. ComposeWrite to Helgi Fannar Sigurðsson

  9. 256

    Íþróttavikan: Tíðindi úr Hafnarfirði, þjálfarabreytingar og silly season

    Helgi Fannar og Hörður Snævar gera upp vikuna á föstudögum yfir sumartímann. Sara Björk farin í Hauka, FH gæti farið á gervigras, Freyr Alexandersson látinn fara, félagaskiptafréttir og miklu fleira.

  10. 255

    Íþróttavikan: Viðar Örn fer yfir sviðið

    Viðar Örn Kjartansson er gestur Helga Fannars þessa vikuna. Viðar sneri heim á Selfoss í vetur og tekur slaginn með liðinu í 2. deild í sumar. Hann ræðir þessa endurkomu, kaflaskiptan tíma með KA og kemur inn á sína persónulegu baráttu utan vallar í þættinum, svo fá dæmi séu tekin.ComposeWrite to Helgi Fannar Sigurðsson

  11. 254

    Íþróttavikan: Bjössi Þorfinns og Tommi Steindórs - Gleði í Grindavík og norðurhluta Lundúna

    Íþróttavikan er í boði Lengjunnar!Björn Þorfinnsson, fjölmiðlamaður, skákmeistari og Arsenal-maður, og Tómas Steindórsson, útvarpsstjarna og körfuboltasérfræðingur, mættu til Helga Fannars í Íþróttavikuna.Það er að sjálfsögðu rætt um hina nýkrýndu Englandsmeistara, Arsenal. Félagið og stuðningsmenn hafa beðið í 22 ár frá síðasta titli og því hefur eðlilega verið fagnað dátt víða um heim.Lokaumferðin sem framundan er í ensku úrvalsdeildinni er sömuleiðis skoðuð og þá fær körfuboltinn gott pláss. Grindvíkingar hömpuðu Íslandsmeistaratitlinum á dögunum.Þetta, Besta deildin og alls konar fréttir úr liðinni viku.

  12. 253

    Íþróttavikan: Lífsnauðsynlegir bikarsigrar og City heldur pressunni á Arsenal

    Helgi Fannar og Hörður Snævar gera upp vikuna og skoða það sem framundan er. Landsliðshópur, Mjólkurbikarinn, enski boltinn og fleira til umræðu.

  13. 252

    Íþróttavikan: Arnar Grétarsson

    Arnar Grétarsson, knattspyrnuþjálfari og frambjóðandi Viðreisnar í Kópavogi, er gestur Helga Fannars í þætti dagsins. Þeir ræða pólitíkina í fyrsta hluta þáttarins áður en farið er í fótboltann, þar sem Arnar ræðir til að mynda síðasta sumar sem þjálfari Fylkis og einnig Bestu deildina sem er í fullum gangi.

  14. 251

    Íþróttavikan: Jói Skúli með Helga og Herði

    Jóhann Skúli Jónsson er gestur Helga Fannars í þættinum og Hörður Snævar er með honum einnig. Þeir félagar ræða Bestu deildina rækilega en fara einnig yfir aðrar íþróttir og kíkja út í heim.

  15. 250

    Íþróttavikan: Leikirnir í Bestu gerðir upp og eru Skytturnar menn eða mýs?

    Helgi Fannar og Hörður Snævar gera upp þriðju umferð Bestu deildar karla og rýna í helgina framundan á Englandi.

  16. 249

    Íþróttavikan: Glódís Perla og Karólína Lea

    Glódís Perla Viggósdóttir og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir eru gestir Helga Fannars í Íþróttavikunni þennan föstudaginn.Eins og flestir vita eru þær tvær af allra fremstu leikmönnum íslenska landsliðsins, sem mætir Evrópumeisturum Englands í undankeppni HM á Laugardalsvelli á morgun.

  17. 248

    Íþróttavikan: Blikinn Kristján og Víkingurinn Tómas fyrir opnunarleikinn

    Þeir Kristján Óli Sigurðsson og Tómas Guðmundsson voru gestir Helga Fannars í þætti vikunnar.Þeir eru fyrrum leikmenn og stuðningsmenn Breiðabliks og Víkings, sem mætast í opnunarleik Bestu deildarinnar á heimavelli síðarnefnda liðsins. Einnig er farið yfir stóru málin úr vikunni.

  18. 247

    Íþróttavikan: Spáin fyrir Bestu deildina

    Íþróttavikan kemur fyrr út í dymbilviku og er með aðeins breyttu sniði. Helgi Fannar og Hörður Snævar opinbera spá 433.is fyrir Bestu deild karla og ræða hvert lið fyrir sig.

  19. 246

    Íþróttavikan: Adam Páls og Jónatan Ingi - Er umræðan um Val á villigötum?

    Adam Ægir Pálsson og Jónatan Ingi Jónsson, leikmenn Vals, eru gestir Helga Fannars í Íþróttavikunni.Þeir félagar ræða komandi tímabil, stöðuna á liðinu og margt fleira. Auk þess er auðvitað farið út í heim.

  20. 245

    Íþróttavikan: Benni Bó og Jóhann Alfreð eru brattir fyrir sumrinu á Hlíðarenda

    Benedikt Bóas Hinriksson og Jóhann Alfreð Kristinsson eru gestir Helga Fannars í Íþróttavikunni þennan föstudaginn.Þeir fara yfir fréttavikuna, ræða komandi fótboltasumar, enska boltann og miklu fleira til.

  21. 244

    Íþróttavikan: Höskuldur Gunnlaugs og Ívar Örn

    Höskuldur Gunnlaugsson og Ívar Örn Árnason, leikmenn Breiðabliks, eru gestir Helga Fannars í þættinum.

  22. 243

    Íþróttavikan: Kjartan Atli og Nablinn fara yfir allt íþróttasviðið

    Kjartan Atli Kjartansson og Andri Már Eggertsson, Nablinn, eru gestir Helga Fannars Sigurðssonar í Íþróttavikunni þennan föstudaginn.Það er farið vítt og breytt um sviðið í þætti dagsins, þar sem fótbolti, handbolti og körfubolti koma við sögu.

  23. 242

    Íþróttavikan: Staðan tekin með Bjössa Hreiðars og Jóa Má þegar 6 vikur eru í þá Bestu

    Sigurbjörn Hreiðarsson og Jóhann Már Helgason eru gestir Helga Fannars Sigurðssonar í Íþróttavikunni þennan föstudaginn.Það eru sléttar sex vikur í að Besta deild karla fari af stað og eftirvæntingin er orðin mikil.Deildin fær sviðið í þætti dagsins, þar sem staðan er tekin á öllum liðunum. Félagaskiptamarkaðurinn, undirbúningstímabil þeirra og miklu fleira er skoðað.Þátturinn er einnig í mynd inni á 433.is.

  24. 241

    Íþróttavikan: Hiti á fréttamannafundi og skjálfti í Norður-London

    Helgi Fannar og Hörður Snævar gera upp þétta fréttaviku, ræða boltann út í heimi og miklu meira.

  25. 240

    Íþróttavikan: Daníel Hafsteinsson - Landslið og Víkingur

    Daníel Hafsteinsson, lykilmaður Íslandsmeistara Víkings, er gestur Helga Fannars í þætti vikunnar.Daníel er í hópi íslenska landsliðsins sem mætir Mexíkó síðar í mánuðinum og eru þau mál rædd í þættinum, auk síðasta tímabils, þess sem framundan er og auðvitað miklu fleira.

  26. 239

    Íþróttavikan: Hjálmar Örn og Helgi Jean (Hæhæ)

    Hjálmar Örn og Helgi Jean, sem halda úti hinu geysivinsæla hlaðvarpi HæHæ, voru gestir Helga Fannars í Íþróttavikunni.

  27. 238

    Íþróttavikan: Ísland í undanúrslitum og augu heimsins eru á Framaranum unga

    Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson og Jóhann Páll Ástvaldsson, íþróttafréttamenn á RÚV, eru gestir Helga Fannars í þættinum.Ísland er komið í undanúrslit á EM karla í handbolta og fær handboltinn sviðið í fyrri hluta þáttar, áður en fótboltinn tekur við.

  28. 237

    Íþróttavikan: Gummi Tóta gerir upp viðburðaríkan atvinnumannaferil og ræðir komandi tíma uppi á Skaga

    Guðmundur Þórarinsson, nýjasti leikmaður ÍA, á sviðið í þætti vikunnar.Guðmundur ræðir skref sitt upp á Akranes og sumarið framundan og fer ítarlega yfir atvinnumannaferilinn, þar sem kappinn upplifði ýmislegt í fjölmörgum löndum.

  29. 236

    Íþróttavikan: Jökull Andrésson og Hörður Snævar

    Jökull Andrésson, nýr markvörður FH, er gestur þáttarins að þessu sinni og situr í setti með Herði Snævari og Helga Fannari. Hann fer yfir félagaskiptin frá Aftureldingu, viðskilnaðinn, fyrstu vikurnar hjá FH og svo miklu meira, auk þess að þeir félagar fara yfir fótboltann almennt og rýna í EM í handbolta sem framundan er.

  30. 235

    Íþróttavikan x Handkastið - Stóri upphitunarþátturinn fyrir EM

    Þeir Arnar Daði og Styrmir Sigurðsson mættu til Helga Fannars og hituðu upp fyrir EM í handbolta.Einnig er farið yfir helstu fréttir vikunnar úr fótboltanum.

  31. 234

    Íþróttavikan: Áramótaþáttur með Kristjáni Óla

    Helgi Fannar og Kristján Óli gera upp íþróttaárið 2025.

  32. 233

    Íþróttavikan: Sævar Þór ræðir sports business og Hörður Snævar gerir upp vikuna

    Þáttur dagsins er að mestu helgaður viðskiptahlið íþróttanna og til að ræða þau mál mætir Sævar Þór Sveinsson, sem heldur úti síðunni Utanvallar.is.Í lok þáttar er Hörður Snævar Jónsson þá á línunni og fer hann yfir helstu fréttir úr vikunni sem er að líð.

  33. 232

    Íþróttavikan: Stefán Pálsson fer um víðan völl

    Stefán Pálsson, sagnfræðingur og knattspyrnuáhugamaður með meiru, er gestur Helga Fannars í Íþróttavikunni þennan föstudaginn.Mohamed Salah, fjaðrafok í kringum Hlíðarenda og hrun Luton á skömmum tíma. Þetta og fleira í þættinum.

  34. 231

    Íþróttavikan: Steve Dagskrá gerir upp vikuna og Maggi Már fer yfir sviðið

    Það er þétt dagskrá í Íþróttavikunni þennan föstudaginn.Í fyrri hluta þáttar fær Helgi þá Andra Geir Gunnarsson og Vilhjálm Frey Hallsson, þáttastjórnendur hins geysivinsæla hlaðvarps Steve Dagskrá, í heimsókn. Þeir ræða helstu fréttir úr vikunni, leikina í enska boltanum og fleira til.Síðasta hálftímann eða svo er Magnús Már Einarsson, þjálfari karlaliðs Aftureldingar, í setti. Hann fer yfir tímabilið, framhaldið, nýjan samning og margt fleira.

  35. 230

    Íþróttavikan: Halldór Árnason

    Halldór Árnason er gestur Helga Fannars Sigurðssonar í Íþróttavikunni þennan föstudaginn. Halldór ræðir tíma sinn hjá Breiðabliki og endanlokin þar, en fer einnig yfir helstu leiki og fréttir í vikunni.Hörður Snævar Jónsson er þá á línunni í lok þáttar. Hann var staddur á Old Trafford í upphafi vikunnar þegar Manchester United sýndi sína verstu frammistöðu í langan tíma.

  36. 229

    Íþróttavikan: Landsleikirnir gerðir upp með Kjartani Henry og horft til Englands fyrir þétta helgi

    Gestur Helga Fannars Sigurðssonar í þættinum er Kjartan Henry Finnbogason. Karlalandsliðið, Heimir Hallgrímsson, enski boltinn og fleira er á dagskrá.

  37. 228

    Íþróttavikan: Keli og Viktor Unnar gera upp landsleikinn - Fínasta frammistaða en á sunnudaginn er allt undir

    Hrafnkell Freyr Ágústsson og Viktor Unnar Illugason eru gestir Helga Fannars Sigurðssonar í Íþróttavikunni í þetta skiptið.Landsleikurinn gegn Aserbaísjan er ítarlega gerður upp og horft er í komandi leik gegn Úkraínu. Þá er farið í helstu fréttir liðinnar viku.

  38. 227

    Íþróttavikan: Bjarni Helga og Elvar Geir - Landsliðsval og dramatík á bak við tjöldin í íslenska boltanum

    Bjarni Helgason, íþróttablaðamaður á Morgunblaðinu, og Elvar Geir Magnússon, ritstjóri Fótbolta.net, fóru yfir viðburðaríka fréttaviku.

  39. 226

    Íþróttavikan: Rúnar Kristins gerir upp tímabilið og skorar á KSÍ

    Rúnar Kristinsson, þjálfari karlaliðs Fram, er gestur Helga Fannars þessa vikuna. Gerir hann upp tímabilið og horfir fram veginn.Hörður Snævar Jónsson fer þá yfir helstu fréttir vikunnar í síðari hluta þáttarins.

  40. 225

    Íþróttvikan: Edda Sif og Gunni Birgis gera upp þétta fréttaviku - Matti Villa fer yfir ákvörðun sína

    Edda Sif Pálsdóttir og Gunnar Birgisson, íþróttafréttamenn á RÚV, eru gestir Helga Fannars þessa vikuna, sem var ansi þétt er íþróttafréttir varðar.Þá er Matthías Vilhjálmsson í viðtali í síðasta hluta þáttarins, en hann er að leggja skóna á hilluna eftir leik Víkings við Val á morgun.

  41. 224

    Íþróttavikan: Adda Baldurs í heimsókn og Freysi á línunni frá Bergen

    Ásgerður Stefanía Baldursdóttir er gestur Helga Fannars í fyrri hluta þáttarins. Þar er farið yfir íslensku landsliðin, Bestu deildirnar og fleira til. Í seinni hlutanum er Freyr Alexandersson, þjálfari SK Brann, í ítarlegu viðtali frá Noregi.

  42. 223

    Íþróttavikan: Gylfi Þór ræðir um landsliðið og Íslandsmeistara Víkings

    Gylfi Þór Sigurðsson, besti landsliðsmaður í sögu Íslands, varð Íslandsmeistari með Víking fyrir rúmri viku síðan. Hann segir pressuna sem hann setti á sjálfan sig hafa verið þess virði og að síðustu dagar hafi verið ótrúlega skemmtilegir. Gylfi yfirgaf Val í febrúar með nokkrum látum, hann vildi burt og Víkingar voru reiðubúnir að borga metfé fyrir Gylfa. Hann stendur nú uppi sem Íslandsmeistari og gerir upp tímabilið í ítarlegu viðtali við 433.is.

  43. 222

    Íþróttavikan: Chess After Dark

    Gestir Helga Fannars þessa vikuna eru Birkir Karl Sigurðsson og Leifur Þorsteinsson, stjórnendur hins geysivinsæla hlaðvarps Chess After Dark. Það er hitað upp fyrir mikilvæga leiki íslenska karlalandsliðsins, íslenska boltann, helstu fréttir og margt fleira.

  44. 221

    Íþróttavikan: Tommi Steindórs gerir upp viðburðaríka viku og Arnar Gunnlaugs ræðir val sitt

    Útvarpsmaðurinn Tómas Steindórsson er gestur Helga Fannars. Landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson er á línunni í lok þáttar.

  45. 220

    Íþróttavikan: Þjálfarastöður losna hér og þar - Víkingur getur klárað titilinn í kvöld

    Mánudagsútgáfa af Íþróttavikunni þar sem farið er yfir helgina og horft í vikuna sem framundan er. 

  46. 219

    Íþróttavikan: Spenna á toppi og botni þeirrar Bestu - Sævar Atli á línunni frá Frakklandi

    Helgi Fannar Sigurðsson og Hörður Snævar Jónsson gera upp vikuna og horfa í framhaldið í boltanum. Sævar Atli Magnússon, landsliðsmaður og leikmaður Brann, er þá á línunni og ræðir fyrstu mánuðina í Noregi, Evrópuævintýri og fleira til.

  47. 218

    Íþróttavikan: Jói Skúli

    Jói Skúli gerði upp vikuna og Biggi ÍTF ræddi gul spjöld og leikbönn.

  48. 217

    Íþróttavikan: Guðjón Pétur Lýðsson

    Gestur Helga í þættinum er Guðjón Pétur Lýðsson.

  49. 216

    Íþróttavikan: Kári Árna og Jóhann Páll - landsleikir og fréttir vikunnar

    Gestir Helga Fannars í Íþróttavikunni eru þeir Kári Árnason og Jóhann Páll Ástvaldsson íþróttafréttamaður á RÚV.

  50. 215

    EM kvenna: Bjarni Helga

    Helgi Fannar og Bjarni Helgason á Morgunblaðinu ræða vonbrigði Íslands á EM, framhaldið og framtíð Þorsteins Halldórssonar í þjálfarastólnum

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Hlaðvarpsveita 433.is

HOSTED BY

433.is

CATEGORIES

Frequently Asked Questions

How many episodes does 433.is have?

433.is currently has 50 episodes available on PodParley. New episodes are automatically indexed when they're published to the podcast feed.

What is 433.is about?

Hlaðvarpsveita 433.is

How often does 433.is release new episodes?

433.is has 50 episodes. Check the episode list to see recent publication dates and frequency.

Where can I listen to 433.is?

You can listen to 433.is on PodParley by clicking any episode. We provide an embedded audio player for direct listening, and you can also subscribe via your preferred podcast app using the RSS feed.

Who hosts 433.is?

433.is is created and hosted by 433.is.
URL copied to clipboard!