PODCAST · comedy
Alls ekki á ykkar vörum
by Alls ekki á ykkar vörum
Tveir vitleysingar ræða málefni líðandi stundar og einnig málefni sem eru alls ekki á vörum fólks. Dalvíkingarnir Dóri og Jón Þór drekka bjór og spjalla saman um allt milli himins og jarðar, en aðallega einhverja vitleysu. Hver þáttur er sjálfstæður og því er hægt að byrja á hvaða þætti sem er.
-
27
Þáttur 27
Afmælisþáttur afmælisþáttur afmælisþáttur! Við hér með tilkynnum það, að þessi þáttur er afmælisþáttur! Já, hlustendur góður, þessi þáttur er sannarlega afmælisþáttur! Og hvað þýðir það? Jú, að hlaðvarpsþátturinn Alls ekki á ykkar vörum á afmæli! En hvað þýðir það? Jú, við drukkum freyðivín og svo voru allir hinir hefðbundu dagskrárliðir á sínum stað og vinur okkar Claudio kíkti í heimsókn! Þannig að það var engin breyting frá hefðbundum þætti, nema að það var afmælisþáttur og freyðivín! Missið ekki af tuttugasta og sjöunda þætti af Alls ekki á ykkar vörum!
-
26
Þáttur 26
Þátturinn var að þessu sinni með nokkuð óhefðbundu sniði, þar sem langt var um liði frá síðasta þætti, þá ákváðum við að fjölga efnisatriðum nokkurra dagskrárliða. Í öðrum fréttum, teljum við okkur hafa afgreitt stóra hurða vs hjóla málið í eitt skipti fyrir öll. Jón Þór kom með hugmynd og var með splunkunýja stjörnuspá og allir hefðbundu dagskrárliðirnir voru á sínum stað. Missið ekki af tuttugasta og sjötta þætti Alls ekki á ykkar vörum!
-
25
Þáttur 25
Við tilkynntum að við hefðum loksins staðið við eitthvað af því sem við segjumst ætla að gera í þáttunum! Við ræddum einnig aðeins snjómokstur í borginni, fórum aðeins yfir stríðið í Úkraínu, við kynntum okkur eilítið hugtakið "andarafl", kíktum aðeins í kommentakerfið og allir föstu dagskrárliðirnir voru á sínum stað. Missið ekki af tuttugasta og fimmta þætti af Alls ekki á ykkar vörum!
-
24
Þáttur 24
Við ræddum aðeins um umferðarmenningu á Íslandi og Jón Þór kom með eina af sínum alkunnu snilldar hugmyndum til að bæta hana. Dóri tilkynnti þær sorgarfréttir (eða kannski ekki?) að einn af hans dagskrárliðum yrðu lagðir niður frá og með þessum þætti. Annars voru allir hefðbundu dagskrárliðirnir á sínum stað (fyrir utan þann sem lagður var niður) og Jón Þór kom með alíslenska stjörnuspá sem hlustendur hafa beðið óþreyjufullir eftir! Missið ekki af tuttugasta og fjórða þætti Alls ekki á ykkar vörum!
-
23
Þáttur 23
Við ræddum eilítið stóra kyrkingarmálið, kíktum örsnöggt í kommentakerfið, Jón Þór kom loksins með dagskrárliðinn sem Dóri vissi alveg um hvað væri og treystið okkur, hann stendur undir væntingum! Allir hefðbundnu dagskrárliðirnir voru á sínum stað og einn nýr ördagskrárliður, og jafnvel tveir, litu dagsins ljós. Þetta og ýmislegt fleira í tuttugasta og þriðja þætti Alls ekki á ykkar vörum, missið ekki af honum!
-
22
Þáttur 22
Við ræddum aðeins um þorra auglýsingu Kjarnafæðis, Jón Þór kom með suðlæga stjörnuspá í kjölfar síðasta þáttar, við kynntum okkur konu sem fæddist með tvö leg, kíktum einnig aðeins á fáránlegar lögsóknir og allir föstu dagskrárliðirnir voru á sínum stað. Þetta og margt, margt fleira í tuttugasta og öðrum þætti Alls ekki á ykkar vörum. Missið ekki af honum!
-
21
Þáttur 21
Við ræddum aðeins um fáránlegar lögsóknir fólks, fórum aðeins yfir nýjustu samsæriskenningar QAnon fólks og kíktum eilítið í kommentakerfið, svona aðeins for "old times sake". Jón Þór kynnti til sögunnar splunkunýjan dagskrárlið sem enginn má missa af! Allir aðrir fastir dagskrárliðir voru á sínum stað og valda engum vonbrigðum, ekkert frekar en vanalega. Þetta og ýmislegt fleira í nýjasta þætti Alls ekki á ykkar vörum, missið ekki af honum!
-
20
Þáttur 20
Við ræddum aðeins um nýjustu sóttvarnarráðstafanir, fórum aðeins yfir það hvernig er að vera með micropenis (annar okkar þekkir það vel), Dóri kynnti splunkunýjan dagskrárlið en Jón Þór gerði það ekki. Heimsmetahornið, tómatsósa vikunnar, er þetta frétt, fróðleikshornið og hvar í líkamanum voru á sínum stað. Þetta og margt fleira í tuttugasta þætti Alls ekki á ykkar vörum, missið ekki af honum!
-
19
Þáttur 19
Við félagarnir snúum aftur eftir rúmlega mánaðar pásu með splunkunýjan þátt á glænýju ári! Við ræddum aðeins um daginn og veginn (aðallega daginn samt) og spjölluðum aðeins um nýjustu vendingar í þjóðlífinu. Við tókum smá twist á heimsmetahornið og fyrirsögn vikunnar og tómatsósa vikunnar og fróðleikshornið voru á sínum stað ásamt því að Dóri kynnti splunkunýjan dagskrárlið. Þetta og ýmislegt fleira í nítjánda þætti Alls ekki á ykkar vörum, missið ekki af því! P.S. í lok þáttar er smá aukaefni sem við ákváðum að láta fylgja með og vonum að hlustendur hafi jafn gaman af því og við!
-
18
Þáttur 18
Við fórum aðeins yfir nýjustu vendingar í covid málum, kynntum okkur frásögn konu um "árás" frá eðlufólki og allir okkar föstu dagskrárliðir voru á sínum stað. Missið ekki af átjánda þætti Alls ekki á ykkar vörum!
-
17
Þáttur 17
Við komum aðeins inná deilur Friðriks Ómars og Margrétar Friðriks, ræddum aðeins um hugmyndirnar hans Jóns Þórs og kölluðum eftir áliti hlustenda um ágæti þeirra, fórum stuttlega yfir gamalt flugránsmál, tómatsósa vikunnar, hvar í líkamanum, heimsmetahornið og fróðleikshornið voru á sínum stað, að venju. Þetta og ýmislegt fleira í sautjánda þætti Alls ekki á ykkar vörum, missið ekki af honum!
-
16
Þáttur 16
Jón Þór kom með eina af sínum (mis)gáfulegu hugmyndum, Dóri tók fyrir eina þekktustu tómatsósu í heimi í tómatsósu vikunnar, hvar í líkamanum var á sínum stað, fróðleikshornið var með örlítið breyttu sniði, heimsmetahornið var á sínum stað og það kviknuðu ákveðnar hugmyndir útfrá því sem gætu mögulega dregið dilk á eftir sér. Þetta og ýmislegt fleira í sextánda þætti Alls ekki á ykkar vörum, missið ekki af honum!
-
15
Þáttur 15
Við ræddum aðeins um stóra kattamálið á Akureyri, komum lauslega inná stóra refamálið, Jón Þór var með þema í Hvar í líkamanum og Heimsmetahorninu, tómatsósa vikunnar kom sterk inn á ný og fróðleikshornið var í spaugilegra laginu þessa vikuna. Þetta og ýmislegt fleira í fimmtánda þætti Alls ekki á ykkar vörum, missið ekki af honum!
-
14
Þáttur 14
Við ræddum um þolraunir okkar félaga við útreiðar hér á árum áður, kíktum á nokkra skemmtilega fimmaurabrandara, tómatsósa vikunnar var með talsvert breyttu sniði en heimsmetahornið og hvar í líkamanum voru með hefðbundnu sniði. Þetta og margt fleira í fjórtánda þætti Alls ekki á ykkar vörum, missið ekki af honum!
-
13
Þáttur 13
Jón Þór kynnti til sögunnar nýjan dagskrárlið, við héldum áfram að fjalla um Gústa Jr., við ræddum áfram holdarfar þáttastjórnenda, tómatsósa vikunnar, heimsmetahornið og fróðleikshornið voru á sínum stað. Þetta og margt fleira í þrettánda þætti Alls ekki á ykkar vörum! Missið ekki af honum!
-
12
Þáttur 12
Við fengum styrktaraðila fyrir þáttinn, ræddum aðeins um holdarfar þáttastjórnenda (aðallega Dóra samt), fórum yfir nokkrar skemmtilegar fréttafyrirsagnir, kynntum okkur nokkra margslungna glæpamenn og tómatsósa vikunnar og heimsmetahornið voru á sínum stað. Þetta og margt margt fleira í tólfta þætti Alls ekki á ykkar vörum! Missið ekki af honum!
-
11
Þáttur 11
Jón Þór kom með eina af sínum frábæru hugmyndum, við kynntum styrktaraðila þáttarins, ræddum um stóra Facebook niðurtíma málið og snertum einnig aðeins á stóra rafhlaupahjóla málinu. Fastir liðir eins og tómatsósa vikunnar og heimsmetahornið voru á sínum stað og ýmislegt fleira í ellefta þætti Alls ekki á ykkar vörum.
-
10
Þáttur 10
Í fyrsta þætti eftir rúmlega fjögurra mánaða hlé voru kynntir til leiks tveir splunkunýir og sjóðheitir fastir dagskrárliðir! Við ræddum einnig nýafstaðnar kosningar, fórum yfir nokkrar af heitustu samsæriskenningum líðandi stundar, heimsmetahornið var á sínum og stað og ýmislegt fleira í fyrsta þætti nýrrar seríu af Alls ekki á ykkar vörum! Missið ekki af því!
-
9
Þáttur 9
Við fengum gest í þáttinn í fyrsta sinn, það er engin önnur en Lísa Rún, systir Jóns og barnsmóðir Dóra. Þátturinn var samt sem áður á alveg sömu nótum og venjulega. Við tókum aftur upp mál frá síðasta síðasta þætti um málsókn Stellu Liebeck gegn McDonalds útaf of heitu kaffi, kíktum í kommentakerfið eins og venjulega, ræddum algengar málfræði- og stafsetningarvillur, ræddum gamalt fólk á facebook og heimsmetahornið var á sínum stað. Þetta og margt, margt fleira í níunda þætti Alls ekki á ykkar vörum, missið ekki af honum! P.S. Búið ykkur undir Grýluhlátur frá Lísu!
-
8
Þáttur 8
Áttundi þáttur Alls ekki á ykkar vörum er kominn í loftið! Við ræddum um hæfileika okkar í frisbí golfi (aðallega skort á hæfileikum Dóra samt), heimskulegar lögsóknir fólks á hendur fyrirtækjum, bann Matvæla- og lyfjastofnunar Bandaríkjanna við mentól sígarettum og aukningu í innflutningi smokka hér á landi árið 2020. Við kíktum aðeins í kommentakerfið, heimsmetahornið var á sínum stað og margt fleira í áttunda þætti Alls ekki á ykkar vörum. Missið ekki af honum! P.S. Við vorum loksins með almennilegan búnað við upptökur svo nú heyrast okkar undurfögru raddir ennþá betur!
-
7
Þáttur 7
Við ræddum aðeins um mótmælin sem Herra Hnetusmjör skipulagði, fjölluðum um furðulegt fólk í Bandaríkjunum sem er með óhefðbundið "mataræði" og um feðgin sem vilja giftast, Jón Þór kemur með tillögu að lausn á hungurvanda heimsins, heimsmetahornið er á sínum stað, Dóri kom með skúbb um það þegar hann var í djúpu lauginni 2009 og svo töluðum við um breytingar á hámarkshraða á götum borgarinnar. Þetta og margt fleira í sjöunda þætti Alls ekki á ykkar vörum, missið ekki af honum!
-
6
Þáttur 6
VARÚÐ! LÉLEG HLJÓÐGÆÐI! Við lentum í smá tæknivandræðum sem uppgötvuðust ekki fyrr en við vorum búnir að taka upp en við vildum leyfa hlustendum að fá að ráða hvort þeir vildu hlusta á þáttinn eða ekki. Við tókum meðal annars umræðuna um stóra Onlyfans málið og við komumst að því að Jón Þór er með Onlyfans aðgang og er að hugsa um að fara að selja sitt eigið efni. Við ræddum einnig um foreldrahlutverk Freyju Haralds, heimsmetahornið var á sínum stað, við spáðum aðeins í spilin varðandi flugfélagið Play og að sjálfsögðu tókum við fyrir kommentakerfið. Allt þetta og miklu fleira í sjötta þætti Alls ekki á ykkar vörum. Missið ekki af honum!
-
5
Þáttur 5
Maður í Bretlandi bjó til sjálfbært vistkerfi í glerflösku fyrir 60 árum sem lifir enn, sóttkvíarhótelið og væl um það bar á góma, alls konar umræður um "anti-maskers" pakk og áróður þeirra, þónokkrar mannvitsbrekkur úr kommentakerfunum teknar fyrir og fyrsti styrktaraðili þáttarins kynntur, heimsmetahornið á sínum stað og margt, margt fleira sem bar á góma í fimmta þætti!
-
4
Þáttur 4
Jón Þór gleymdi að fara í buxur, hann kom með hugmynd um fjármögnun á bóluefni við covid19, eru covid próf bara samsæri til að tengja okkur öll við 5G og hvort kom á undan: hænan eða eggið? Við ræddum einnig afkomu Isavia í fyrra og heimsmetahornið er á sínum stað þar sem við ræðum meðal annars um hversu marga ælupoka sá maður sem á heimsmetið í ælupokaeign á. Myndir þú kaupa notaða úlpu fyrir 250 þúsund krónur? Allt þetta og miklu fleira í fjórða þætti Alls ekki á ykkar vörum. Missið ekki af honum!
-
3
Þáttur 3
Er "2 girls 1 cup" menningararfur?
-
2
Þáttur 2
Ert þú með réttan víbríng í röddinni til að geta fengið Covid?
-
1
Þáttur 1
Er líf á mars? Og hverjum er ekki drullu sama?
We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
ABOUT THIS SHOW
Tveir vitleysingar ræða málefni líðandi stundar og einnig málefni sem eru alls ekki á vörum fólks. Dalvíkingarnir Dóri og Jón Þór drekka bjór og spjalla saman um allt milli himins og jarðar, en aðallega einhverja vitleysu. Hver þáttur er sjálfstæður og því er hægt að byrja á hvaða þætti sem er.
HOSTED BY
Alls ekki á ykkar vörum
CATEGORIES
Loading similar podcasts...