PODCAST · history
Geðveik mamma
by RÚV Hlaðvörp
Hvaða hugmyndir höfum við um geðveikar mömmur? Hvers vegna breytast sum viðhorf en önnur ekki? Þættir um mæður, geðsjúkdóma og sögurnar sem fjölskyldur segja – eða segja ekki. Hera Guðmundsdóttir fléttar saman sögu langömmu sinnar sem send var á Klepp um miðja tuttugustu öldina, eigin reynslu af geðhvörfum og samtímasögur mæðra sem lifa með geðsjúkdómum: Sögur um móðurhlutverkið, skömm og þagnir en líka ást, nánd og nýjar raddir. Dagskrárgerð: Hera Guðmundsdóttir Tæknimaður: Jón Þór Helgason Framleitt af Rás 1 Fyrri þættir og þáttaraðir í þessu safnvarpi: Eldflaugaförin Bein Mundi Ljóslæknirinn Land og sonur Vinur minn Germani Hold Í upphafi var myndin Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Episodes
-
Geðveik mamma 3/3
Hvernig höldum við að geðveikar mæður séu? Í þessum þriðja og síðasta þætti veltir Hera fyrir sér hugmyndum um góðar og slæmar mæður. Hún heldur áfram leitinni að rödd langömmu sinnar og við heyrum fleiri sögur mæðra úr samtímanum: Sögur um fordóma og ótta en líka hreinskilni og von. Geta nýjar...
-
Geðveik mamma 2/3
Hvernig tölum við um veikindi sem við viljum helst ekki tala um? Í þessum þætti skoðar Hera hvernig þagnir, orð og fordómar móta skilning okkar á geðsjúkdómum. Við heyrum sögur annarra geðveikra mæðra og Hera heldur áfram að reyna að fylla í eyðurnar í sögu langömmu sinnar. Hosted on Acast. See...
-
Geðveik mamma 1/3
Líf lítillar fjölskyldu á Akureyri umturnaðist einn daginn þegar ung móðir var send suður – suður á Klepp. Þegar langamma Heru var send suður á Klepp árið 1946 var amma hennar bara fjögurra ára. 80 árum síðar reyna þær í sameiningu að skilja hvað gerðist og hvers vegna enginn talaði um þetta. Í...
-
Í upphafi var myndin 4/4: Kunnugleg kona á bókarkápu
Hver var danska konan sem var um tíma gift þeim sem af mörgum er talinn merkasti myndlistarmaður íslensku þjóðarinnar? Áður en þau fluttu til Íslands hafði hún haslað sér völl sem rithöfundur í Danmörku. Eftir að þau skildu flutti hún frá Íslandi, ferðaðist víða um lönd, varð fyrirmynd þekktrar...
-
Í upphafi var myndin 3/4: Maðurinn með hauskúpuna
Hvernig var hægt að finna út hver var pípureykjandi maðurinn sem geymdi mannabein í herberginu sínu? Sögð er saga af reykvískum strák úr Skólastræti sem menntaðist í læknisfræði og tungumálum og gerðist héraðslæknir í Vestur-Indíum. Viðmælandi í þættinum er Inga Lára Baldvinsdóttir…
more -
Í upphafi var myndin 2/4: Ljósmóðirin og listamennirnir
Hvers vegna fór ung kona úr Vesturbænum, sem starfaði við bókhald hjá heildverslun, skyndilega til Kaupmannahafnar sumarið 1917? Hver urðu örlög hennar og hvers vegna fluttu tveir danskir listamenn til Íslands skömmu eftir seinni heimsstyrjöld? Viðmælandi í þættinum er Ari Karlsson, lögfræðingur....
-
Í upphafi var myndin 1/4: Dæmd í vændishús
Rakin er saga hótelstjóradóttur sem fæddist í Hafnarstrætinu í Reykjavík. Á unglingsárum sigldi hún til Kaupmannahafnar og lenti þar á refilstigum í strætum sem mörgum þóttu býsna vafasöm. Frá Danmörku flakkaði hún til fleiri landa, tókst á við leynilegt verkefni og komst ítrekað í kast við…
more -
Hold 3/3
Í þriðja þættinum af Holdi skoðar Brynhildur nokkrar auglýsingar um offitulausnir og ræðir við sérfræðinga með ólík sjónarhorn, þær Erlu Gerði Sveinsdóttur, sérfræðilækni í offitumeðferð, Töru Margréti Vilhjálmsdóttur félagsráðgjafa og líkamsvirðingarsinna og Elínu Vigdísi Guðmundsdóttur, formann...
-
Hold 2/3
Sápan FatOff og megrunarkaramellurnar AYDS eru meðal umfjöllunarefna í öðrum þætti af Holdi. Brynhildur ræðir líka við þær Lindu Guðmundsdóttur og Ósk Gunnlaugsdóttur um reynslu þeirra af þyngdartapslyfjum og - aðgerðum. Ennfremur er fjallað um fitufordóma. ATH að í þættinum er komið inn á…
more -
Hold 1/3
Brynhildur tekur stöðuna á nútíma holdafarsumræðu og segir sögu sína í nokkrum megrunarkúrum. Í framhaldi af því veltir hún fyrir sér hvort hún eigi að nýta sér þær aðferðir sem læknavísindin bjóða upp á í baráttunni við ofþyngd og leitar ráða hjá konu með reynslu. Rætt er við Ragnheiði Bjarman...
-
Vinur minn Germani
Þegar Jón Magni Ólafsson var ungur maður kolféll hann af einhverjum ástæðum, fyrir orgeltónlist og töfrum hennar sem minnti hann á gilin og fossana í sveitinni í Mýrdalnum. Hann hélt sérstaklega upp á plötu sem hann eignaðist 17 ára gamall með Fernando Germani, sem var organisti Péturskirkjunnar…
more -
Land og sonur 3/3: Svo mælir Svarthöfði
Indriði G. Þorsteinsson var ekki aðeins rithöfundur. Hann starfaði lengi sem blaðamaður og ritstjóri og tók virkan þátt í þjóðmálaumræðunni, beitti sér í fyrirtækjarekstri og framleiðslu kvikmynda og var einn helsti skipuleggjandi hátíðarhaldanna í tilefni af 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar 1974....
-
Land og sonur 2/3: Norðan við stríð
Skáldsögur Indriða G. Þorsteinssonar gerast í samfélagi þar sem hið gamla víkur fyrir nýjum vonum og nýjum siðum. Indriða voru þessar miklu breytingar á íslensku þjóðfélagi um miðja 20. öld hugleiknar og hann speglaði þær iðulega í því samfélagi sem hann hafði sjálfur kynnst á yngri árum,...
-
Land og sonur 1/3: Vegir liggja til allra átta
Indriði G. Þorsteinsson hóf feril sinn sem rithöfundur og blaðamaður rétt upp úr tvítugu. Hann sagði frá sveitalífinu sem hann hafði kynnst í Skagafirði og bæjarbragnum á Akureyri í Reykjavík. Æska hans og unglingsár voru mörkuð af sífelldum flutningum, mögnuðum ættingjum, hersetu og nýju lífi...
-
Ljóslæknirinn 1/1: Hinn íslenski Nóbelshafinn
Árið 1903 hlaut Niels Ryberg Finsen Nóbelsverðlaun fyrir rannsóknir sínar á ljósmeðhöndlun við hörundsberklum og öðrum sjúkdómum. Hann var fyrsti danski handhafi Nóbelsverðlaunanna sem þá voru nýtilkomin og vegna sérsviðs síns var hann gjarnan kallaður ljóslæknirinn. Uppruni Finsens teygir sig þó...
-
Mundi: Seinni þáttur
Guðmundur Arnfinnsson var bráðkvaddur bíðandi eftir strætó í Hamraborginni með poka fullan af bókum sem hann hafði keypt í Bónus. Örfáum mínútum áður hafði hann verið í viðtali hjá umsjónarmanni Lestarinnar á Rás 1 sem var að ræða við farþega í strætó. Þessi ótrúlega tilviljun er upphafið að...
-
Mundi: Fyrri þáttur
Umsjónarmenn Lestarinnar vörðu heilum föstudegi í desember 2023 um borð í leið 4, strætó sem keyrir úr Mjódd niður á Hlemm um Breiðholtið. Í þættinum heyrast sögur fólks sem ferðaðist með vagninum þann daginn. Strákur á leið að fá sér drekatattú, venesúelskur söngvari á leið til sálfræðings,...
-
Bein 3/3: Um kærleikann í beinunum
Í miðri leit að uppruna lærleggjanna, berast Sigrúnu nýjar upplýsingar um uppruna sinn. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
Bein 2/3: ...nema ekki fyrir mömmu
Allt leitar yfirborðsins. Lærleggirnir una sér ekki í moldu og sögur úr æsku systkinanna af Lækjarbakka brjótast fram. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
-
Bein 1/3: Lærleggurinn verndar okkur...
Hafrún býr á Vestri Loftsstöðum með Sigurði manninum sínum, fimm af sjö börnum þeirra, hundinum Tarfi og lærlegg úr 400 ára gömlum galdramanni. En hvaðan kom þetta bein, þessi saga, og er einhver leið að rannsaka það með tilkomu nútíma tækni? Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more...
-
Aukaþáttur: Tollararnir
Guðrún Hálfdánardóttir ræðir við Brynjólf Karlsson og Jónas Hall sem kynntust þegar þeir voru 12 ára og störfuðu sem tollverðir um árabil. Tónlist: Stolin stef - Gunnar Gunnarsson Speak softly - Haukur Heiðar Ingólfsson Catching Lightning - Alex Mastronardi. Hosted on Acast. See acast.com/privacy...
-
Eldflaugaförin 5. þáttur: Komu aldrei til hafnar
Birgir Þór Helgason var boðaður á fund í höfuðstöðvum bandaríska varnarmálaráðuneytisins haustið 1986 og fenginn til að stýra leiðangri hringinn í kringum jörðina; leynilegum siglingarleiðangri sem tók á annað ár í þeim tilgangi að flytja mikilvægan farm. Þessi farmur kom aldrei til hafnar…
more -
Eldflaugaförin 4. þáttur: Út í óvissuna
Haustið 1986 tók Birgir Þór Helgason vélstjóri að sér verkefni án þess að vita hvað það fól í sér. Næstu misserin sigldi hann, ásamt áhöfn, gömlu smyglskipi heimsálfa á milli. Það var ekki fyrr en seint og um síðir að upplýst var um hver förinni var heitið og hvað biði þeirra þar. Hosted on…
more -
Eldflaugaförin 3. þáttur: Baráttan við Bakkus
Íslenski vélstjórinn Birgir Þór Helgason hefur tekist á við ýmislegt á sinni löngu ævi. Meðal annars leyniför hringinn í kringum jörðina. Baráttan við Bakkus er aldrei langt undan í fjölskyldu Birgis og sú barátta tekur toll sem enginn vill þurfa að greiða. Viðmælendur í þættinum eru Birgir Þór...
-
Eldflaugaförin 2. þáttur: Framtíðin ráðin
Birgir Þór Helgason vélstjóri var boðaður á leynilegan fund haustið 1986. Fund sem markaði upphaf háskafarar um heimsins höf. Birgir hefur reynt ýmislegt um ævina og í þessum þætti heyrum við meðal annars af smygli og sjóskaða. Viðmælendur í þættinum eru Birgir Þór Helgason, Brynjólfur Karlsson…
more -
Eldflaugaförin 1. þáttur: Vandræðabarn frá byrjun
Haustið 1986 var íslenski vélstjórinn Birgir Þór Helgason boðaður á leynilegan fund. Það var upphafið að mikilli háskaför hinum megin á hnettinum. En hver er þessi Birgir? Í þessum þætti fáum við að kynnast bakgrunni hans og hvað gerði hann að þeim manni sem hann er nú. Umsjón: Guðrún...
We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
ABOUT THIS SHOW
Hvaða hugmyndir höfum við um geðveikar mömmur? Hvers vegna breytast sum viðhorf en önnur ekki?
Þættir um mæður, geðsjúkdóma og sögurnar sem fjölskyldur segja – eða segja ekki.
Hera Guðmundsdóttir fléttar saman sögu langömmu sinnar sem send var á Klepp um miðja tuttugustu öldina, eigin reynslu af geðhvörfum og samtímasögur mæðra sem lifa með geðsjúkdómum: Sögur um móðurhlutverkið, skömm og þagnir en líka ást, nánd og nýjar raddir.
Dagskrárgerð: Hera Guðmundsdóttir
Tæknimaður: Jón Þór Helgason
Framleitt af Rás 1
Fyrri þættir og þáttaraðir í þessu safnvarpi:
Eldflaugaförin
Bein
Mundi
Ljóslæknirinn
Land og sonur
Vinur minn Germani
Hold
Í upphafi var myndin
Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
HOSTED BY
RÚV Hlaðvörp
Loading similar podcasts...