Skip to content
Besta sætið podcast artwork

Besta sætið

by bestasaetid

Besta sætið er hlaðvarp íþróttadeildar Sýnar. Þar er fjallað um allt sem skiptir máli í íþróttaheiminum.

From the show's RSS feed, refreshed Nov 6, 2026. Source feed.

Subscribe Bookmark

Episodes

  1. 9. nóv - Væll í Stjörnumönnum og Man. Utd í fallsæti

    Staðan í ensku úrvalsdeildinni er afar áhugaverð er deildin fer aftur í landsleikjafrí. Man. Utd mun sitja í fallsæti næstu daga á meðan Man. City er í frjálsu falli. Stjörnumenn kvarta yfir að fá ekki að æfa í hádeginu en fá enga vorkunn í Besta sætinu. Handboltalandsliðið fær hrós og NFL-hornið...

  2. Jökull Elísabetarson: Spennandi starf í Kópavogi og Halldór Árna þarf að hafa sig hægan

    Jökull Elísabetarson tók í dag við sem þjálfari karlaliðs Breiðabliks í fótbolta. Jökull þekkir vel til í Kópavogi en hann var leikmaður liðsins sem vann fyrstu titla í sögu þess og varð bikarmeistari 2009 og Íslandsmeistari 2010. Hann þjálfaði þá annan flokk hjá liðinu og hóf sinn þjálfaraferil...

  3. 6. nóv - Jökull í Blika, Tufa í KA og KR með læti í körfunni

    Tíðindi á þjálfaramarkaði í dag. Jökull Elísabetarson tekinn við Blikum og Srdjan Tufegdzic tekur við KA væntanlega í næstu viku. KR vann stórslaginn á Álftanesi í gær og slökkti í ofpeppinu í garð Álftnesinga.

  4. 5. nóv - Ronaldo kveður og getur KR unnið Álftanes?

    Cristiano Ronaldo tilkynnti í dag að hann hefði leikið sinn síðasta landsleik. Ótrúlegur 23 ára landsliðsferill hjá honum. KR sækir Álftanes heim í kvöld en bæði lið eru með fullt hús. Eitthvað þarf undan að láta.

  5. 4. nóv - Skyldusigur í kvöld hjá strákunum okkar og áhugaverð ummæli hjá Arnari Gunnlaugs

    Landslið eru í brennidepli í dag. Strákarnir okkar í handboltalandsliðinu eiga heimaleik í kvöld og svo var Arnar Gunnlaugsson að kynna hópinn hjá fórboltalandsliðinu. Man. Utd vann fótboltaleik og Meistaradeildin rúllar áfram í kvöld.

  6. 3. nóv - Áhugaverð ummæli Teits krufin og vinnur Man. Utd loksins leik?

    Teitur Örlygsson var með áhugaverða yfirlýsingu um lið Álftaness í körfuboltanum fyrir helgi. Álit sem hefur skapað mikla umræðu og umtal. Besta sætið hellir sér í umræðuna. Svo fer Meistaradeildin aftur á fullt í kvöld og pressan er á Man. Utd.

  7. Hólmar Örn Eyjólfsson: Vandræði Vals, bankahrun í West Ham og pabbi sem þjálfari

    Hólmar Örn Eyjólfsson, fráfarandi fyrirliði Vals í fótbolta, hefur lagt knattspyrnuskóna á hilluna eftir langan feril. Hólmar hóf ferilinn hjá HK hér á landi en fór ungur til West Ham á Englandi. Hann átti sín bestu ár í Rosenborg fyrir smá brölt í Ísrael og Búlgaríu áður en hann sneri aftur til...

  8. Andri Lucas Guðjohnsen um frábært gengi sitt hjá Blackburn og landsliðið

    Andri Lucas Guðjohnsen hefur verið að slá í gegn hjá Blackburn enda hefur hann raðað inn mörkum og er næstmarkahæsti leikmaður enski Championship deildarinnar. Hann ræðir Guðjohnsen fárið í Blackburn, drauma fyrir framtíðina og íslenska landsliðið.

  9. 30. okt - Emil vill vera hjá Rúnari og hvað segir mamma hans Magga?

    Emil Atlason er að fara til Fram þar sem hann hittir fyrir sinn gamla þjálfara, Rúnar Kristinsson. Magnús Már má ekki fara til Breiðabliks og spurning hvað mamma hans, Hanna Símonardóttir, segir við því. Man. Utd þarf að sanna sig og stórleikur milli Liverpool og Arsenal.

  10. 29. okt - Einkennileg yfirlýsing Fylkis og Blikar eru enn að leita

    Yfirlýsing Fylkis frá í gær er félagið tilkynnti að Heimir Guðjónsson væri á förum frá félaginu var einkennileg svo ekki sé meira sagt. Besta sætið fer yfir hana en Heimir er svo að skrifa undir hjá ÍA. Stuðullinn á Magnús Má Einarsson sem næsti þjálfari Blika lækkaði hratt eftir viðtal Vísis í...

  11. 28. okt - Leitin að þjálfara Blika og umhverfissóðar eltir uppi

    Leit Blika að nýjum þjálfara er í hámarki og margir um hituna. Besta sætið fer yfir stöðuna í þjálfaramálunum. Ræðir einnig óvænt tap Arsenal í gær og svo er Orri Steinn orðaður við Everton. Passið ykkur svo ef þið kastið rusli út um gluggann. Besta sætið mun elta ykkur uppi.

  12. 27. okt - Þjálfaramál Blika og Stjörnunnar og hvað með Carrick?

    Stjarnan er búin að tilkynna nýjan þjálfara formlega sem og nýjan yfirmann knattspyrnumála. Blikar eru í þjálfaraleit og standa á tímamótum. Michael Carrick lifði gærdaginn af sem þjálfari Man Utd og mun stýra liðinu um næstu helgi.

  13. Veigar Páll fer yfir lyfjaprófsmálið

    Körfuboltamaðurinn Veigar Páll Alexandersson hefur verið dæmdur í tólf mánaða keppnisbann eftir að hafa fallið á lyfjaprófi síðastliðið vor. Hann spilar því líklega ekkert með Njarðvík á þessari leiktíð í Bónusdeildinni. Veigar tók ADHD-lyf í tengslum við próflestur síðasta vor og það mældist í...

  14. 26. okt - Leikmenn Man. Utd eru vandamálið og hvað gerist eiginlega hjá KA?

    Michael Carrick hefur væntanlega stýrt sínum síðasta leik með Man. Utd. Stuðningsmenn kenna honum ekki um lélegt gengi liðsins. Besta deild karla er búin og KA stendur frammi fyrir stórum spurningum á næstu vikum.

  15. Amin Cosic - Frá Lengjudeild í Meistaradeild á 15 mánuðum

    Amin Cosic varð í vikunni nítjándi Íslendingurinn til að spila í Meistaradeild Evrópu er hann kom inn á sem varamaður með Noregsmeisturum Viking gegn Aston Villa á Villa Park. Aðeins 15 mánuðir eru síðan hann lék með Njarðvík í Lengjudeildinni hér á landi og uppgangur hans verið hreint lygilegur,...

  16. 23. okt - Lyfjamál Veigars, hvort fellur KA eða Þór og jólasöngur

    Besta sætið er komið í hátíðarskap og tók nokkur vel valin jólalög. Lyfjamál Veigars Páls í Njarðvík var útskýrt í þaula, spáð í botnbaráttu Bestu deildar karla og einnig rennt yfir körfuboltann.

  17. 22. okt - Ruglið hjá Man. Utd krufið og er Grindavík búið að ná botninum?

    Það er hver höndin upp á móti hver annarri hjá Man. Utd og frammistaðan gegn Como í gær var hreinasta hörmung. Grindavík og Stjarnan eru í leit að fyrsta sigrinum í körfunni og Aron Sigurðarson þarf að skora um helgina.

  18. 21. okt - Van Dijk í ruglinu, ÍA fær að heyra það og hættið að skrifa á ensku

    Skammarbréf mótanefndar KSÍ til ÍA var stórskemmtilegt en ekki verður aftur spilað á einu sögufrægasta grasi Íslands. Meistaradeildin var frábær og leikmenn sem leggja skóna á hilluna og skrifa það á ensku fá skammir.

  19. 20. okt - Grindjánar pakksaddir, Blikastelpur bestar og bilun í Bakgarðinum

    Ömurleg byrjun á körfuboltavetrinum hjá Íslandsmeisturum Grindavíkur, Breiðablik tók af okkur úrslitaleikinn í Bestu kvenna, ótrúlegt bakgarðshlaup, hræðileg meðferð á Jalen Hurts og Meistaradeildin.

  20. 19. okt - Kane lentur, enski, Besta og Bakgarðurinn

    Af nægu að taka í dag. Þór getur fellt KA, United getur ekkert í enska, Kane lentur og gæti spilað fyrir Grindavík í kvöld og ótrúlegir Bakgarðshlauparar.

  21. 16. okt - Óvænt lausir miðar á HM og fótbolti í fárviðri

    Leikir helgarinnar í Bestu deildunum gætu orðið skrautlegir enda hljómar spáin upp á mikið rok og búið að færa fjölda leikja til. Það gæti ekki dugað til að sleppa við veðurofsann. Bakgarðurinn er einnig í beinni á Vísi og verður áhugavert að sjá okkar bestu bakgarðshlaupara berjast við vindinn....

  22. Arnar Gunnlaugs ræðir agabrot landsliðsmanna

    Aga­brot lands­liðs­manna á dögunum er ekki í fyrsta skipti sem upp hefur komið mál í lands­liðsþjálfaratíð Arnars Gunn­laugs­sonar. Hans fyrstu viðbrögð voru að reka um­rædda leik­menn heim en ljóst sé að skömm þeirra sé nægi­lega mikil refsing. Arnar er sáttur við hvernig tekið hefur verið á...

  23. 15. okt - Arnar Gunnlaugsson opnar sig og hvað er Inga Sæland að spá?

    Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari fer ítarlega yfir agabrot íslenska landsliðsins í viðtali við íþróttadeild Sýnar í dag. Besta sætið fer yfir málið, gerir upp Meistaradeildina og skammar Ingu Sæland fyrir að leyfa ekki atvinnuhnefaleika á Íslandi.

  24. 14. okt - Heimir sagður á leið til ÍA

    Heimir Guðjónsson er sagður vera næsti þjálfari ÍA og svo gerði Lisandro Martinez, leikmaður Man. Utd, allt vitlaust eftir leik gegn Atletico í gær. Stelpurnar okkar afgreiddu svo Króatíu með miklum glæsibrag.

  25. 13. okt - Meistaradeildin, landsleikur, formúla og ballet... já, ballet

    Það er svo sannarlega víða komið við í Besta sætinu í dag. Stelpurnar okkar spila landsleik á eftir og eiga að klára það verkefni. Man. Utd fær risaverkefni í Meistaradeildinni og Hákon Arnar heimsækir Arsenal. Formúlan til Afríku og svo er rætt um balletviðburð ársins.

  26. 12. okt - Áhugalausir Valsmenn og endalaust þrot hjá Man. Utd

    Enski boltinn, Besta deildin, NFL og körfubolti í þætti dagsins.

  27. 9. okt - Agabrot landsliðsmanna og boltinn rúllar á ný

    Agabrot leikmanna karlalandsliðsins hafa verið í fréttum í dag en lítið kemur um málið frá KSÍ. Landsliðsþjálfarinn ætlar ekki að tjá sig strax. Enski boltinn og Besta deildin fara aftur í gang um helgina og því fagna mjög margir.

  28. 8. okt - Upphitun fyrir Bónus karla

    Bónus-deild karla hefst í kvöld. Besta sætið vill mæk á dómarana og enginn virðist vita hvar DeAndre Kane er.

  29. 7. okt - Uppgjör á slökum leik gegn Eistum

    Ísland gerði markalaust jafntefli gegn Eistlandi ytra í gær. Leikurinn var arfaslakur af hálfu íslenska liðsins. Lionel Messi kvaddi svo argentínska landsliðið formlega í gær.

  30. 6. okt - Krefjumst sigurs í Tallin

    Ísland sækir Eistland heim þar sem toppsætið er undir. Sigur er líka mikilvægur upp á að komast á næsta stórmót. Sú staða er vel skoðuð og svo er stutt karaoke horn einnig í þættinum.

  31. 5. okt - Gylfi spilar rifbeinsbrotinn og Heimir stóð í ströngu

    Fókus dagsins er á landsleik Eistlands og Íslands sem fer fram á morgun. Það er krafa á sigur frá Besta sætinu. Heimir Hallgrímsson er farinn í langþráð frí eftir hasar síðustu daga. Bónusdeild karla hefst á fimmtudag og er hitað upp á Sýn Sport í kvöld.

  32. 2. okt - Arnar stígur varlega til jarðar og spáin í Bónus

    Landsleikur gegn Búlgaríu á morgun og Arnar Gunnlaugsson er varkár í yfirlýsingum. Álftnesingum er spáð deildarmeistaratitlinum í körfu karla og fallið klárast í Bestu kvenna í kvöld.

  33. 1. okt - Ronaldo og frekjukastið stóra

    Cristiano Ronaldo, Man. City og Heimir Hallgrímsson á matseðli dagsins.

  34. 30. sept - Man City og Lúxus í Lúx

    Það var nóg að fara yfir í Besta sætinu þennan miðvikudag. Landsliðið okkar vann góðan sigur á Lúxemborg og svaraði rækilega fyrir slæman leik gegn Eistum um helgina. Manchester City er þá á allra vörum. Á landsliðið að þurfa Gylfa Þór Sigurðsson til að halda liðinu gangandi? Það var í það…

    more
  35. 29. sept - Pressa á Arnari

    Pressa er á Arnari Gunnlaugssyni, landsliðsþjálfara, sem og karlalandsliðinu í fótbolta fyrir útileik við Lúxemborg í dag. U21 árs landsliðið mætir þá Sviss í leik sem þarf að vinnast ef EM vonin á að lifa. Valur Páll Eiríksson, Aron Guðmundsson og Eiríkur Stefán Ásgeirsson fóru yfir sviðið á...

  36. 28. sept - Lélegur landsleikur, Írar öflugir og City í brasi

    Slakur landsleikur Íslands og havarí í kringum Írland, Ísrael og Manchester City bar hæst í Besta sætinu þennan mánudaginn. Valur Páll Eiríksson, Bjarki Sigurðsson og Sindri Sverrisson fóru yfir sviðið í þætti dagsins. Menn voru enn að jafna sig eftir slaka frammistöðu karlalandsliðsins í…

    more
  37. Rúnar Már Sigurjónsson: Sorgin að hætta, flakk um Austur-Evrópu, EM-gleðin og HM höggið

    Sauðkrækingurinn Rúnar Már Sigurjónsson hefur átt viðburðarríkan fótboltaferil sem tekur senn enda. Ferillinn dró hann víða um heim og hann kunni hvað best við sig austan tjaldsins í Rúmeníu og Kasakstan. Rúnar Már neyðist til að hætta vegna þrálátra meiðsla sem hafa áhrif á hans daglega líf og…

    more
  38. 25.sept - Ekkert elsku mamma lengur

    Besta sætið var í landsliðsgír í dag enda spennandi helgi framundan fyrir íslenska karlalandsliðið sem hefur leik í Þjóðadeild UEFA á heimavelli á morgun. Ræddum líka frábæra leiki í Olís deildinni, Þjóðadeild og þau vandræði sem Valur er í. Ákveðin krísa á Hlíðarenda. Það og margt fleira í þætti...

  39. 24. sept - Loksins bolti á innipúkadegi

    Það verður loksins hægt að horfa aftur á fótbolta á skjánum í kvöld og það á fyrsta haustlægðardegi ársins. Andri Broddason átti sérlega erfitt með haustlægðina þegar hann þurfti að labba alla leið út í bíl í morgunsárið á meðan aðrir löbbuðu og hjóluðu í vinnuna. Lægðin hafði sín áhrif á...

  40. 23. sept - Rómantískur Arnar mun alltaf tryggja Aroni met

    Ákvörðun Arons Einars Gunnarssonar um að hætta í íslenska landsliðinu, varnarvandræðin sem landsliðsþjálfarinn virðist ekki vilja horfast í augu við og komandi leikur í Þjóðadeildinni voru til umræðu í Besta sætinu. Þar var einnig farið yfir leikina í Meistaradeild kvenna í fótbolta, þar sem…

    more
  41. 22. sept - Erfið og leiðinleg staða fyrir Heimi að vera í

    Pólitíkin og alþjóðamálin náðu að teygja anga sína í Besta sætið í dag. Ísraelar eru ósáttir með Heimi Hallgrímsson og pressa á Írlandi að landsliðið sniðgangi leiki sína við Ísrael í Þjóðadeildinni. Aron Guðmundsson og Valur Páll Eiríksson með ykkur í dag.

  42. 21. sept - Slagsmál í Vesturbæ og erfið helgi Bjarka

    Valur Páll Eiríksson, Aron Guðmundsson og Bjarki Sigurðsson gerðu upp risastóra íþróttahelgi sem er að baki. Rígur er að myndast í Bakgarðshlaupum, Þróttur komst í Bestu deildina, Víkingur varð Íslandsmeistari og óvænt úrslit á Englandi.

  43. 18. sept - Bikarar í boði og hvað gerir Steindi í Bakgarðshlaupinu?

    Rosaleg helgi í sportinu og nóg að fara yfir. Lengjudeildarúrslit, Víkingur getur orðið meistari í Bestu karla, Bakgarðshlaup með Steinda og enski boltinn.

  44. 17. sept - Man. Utd aftur í ruglinu og léleg mæting á Laugardalsvöll

    Það er enn og aftur krísa hjá Man. Utd. Kunnuglegt stef síðustu ára þrátt fyrir bjartsýni í sumar. Svo ræðir Besta sætið af hverju Íslendingar virðast ekki vilja koma og horfa á sitt lið spila á Laugardalsvelli?

  45. Alfreð Finnbogason: Úr auga stormsins í ævintýri Freys með Rosenborg

    Á rúmu hálfu ári hefur Alfreð Finnbogason barist um í þeytivindu fótboltans sem yfirmaður knattspyrnumála hjá norska stórliðinu Rosenborg. Félagið hefur gengið í gegnum erfiða tíma, ekki eins glæsta og þá sem félagið er þekkt fyrir og það reyndi svo til um leið á leiðtogahæfileika Alfreðs sem býr...

  46. 16. sept - Kjartan Atli ræðir endurkomu sína á Álftanesið og Bestu deildina

    Kjartan Atli Kjartansson er gestur dagsins í Besta sætinu en þar fer hann yfir ástæður þess af hverju hann sé orðinn aðstoðarþjálfari Álftaness. Liðsins sem hann þjálfaði síðustu ár. Einnig ræðir Kjartan um Bestu deildina og nýjan feril í pólitíkinni.

  47. 15. sept. - Víkingar vilja fagna í Vesturbænum

    Víkingar eru með níu putta á Íslandsbikarnum og Blikar mæta í Úlfarsárdalinn í kvöld. Hugsanlega að glíma við bikarþynnku. Óli Óli er meiddur hjá Grindavík sem er búið að fá Pargo og svo er spurning hvort Tottenham nái loksins að skora í kvöld.

  48. Dagný Brynjars: Þriggja barna fótboltakona og sendiherra West Ham

    Dagný Brynjarsdóttir er byrjuð að spila fótbolta á ný, fimm mánuðum eftir að hafa fætt sinn þriðja son. Hún er orðin 35 ára og viðurkennir að hún sé óviss um framhaldið á ferlinum, sem og með landsliðinu, eftir langan og farsælan feril. Hún heldur þó öllu opnu. Í viðtali við Vísi fer Dagný um…

    more
  49. 11. sept - Bikarhelgi og baráttan um Manchester

    Það er pressa á Blikum í úrslitaleik kvöldsins og það kemur nýtt nafn á kvennabikarinn á morgun. Besta deildin heldur áfram eftir skiptingu og baráttan í neðri hlutanum er hörð. Baráttan um Manchester er svo aðalleikurinn í enska þessa helgina.

  50. 10. sept - Getur einhver stöðvað Barcelona?

    Yfirreið yfir Meistaradeildina þar sem Barcelona og PSG líta hrikalega vel út. Man. Utd stígur aftur á stóra sviðið í kvöld. ÍBV fær Kana í handboltanum og umspilið í Lengjunni er galopið.

About this show

Besta sætið er hlaðvarp íþróttadeildar Sýnar. Þar er fjallað um allt sem skiptir máli í íþróttaheiminum.

Hosted by

bestasaetid

Categories

Frequently asked questions

How many episodes does Besta sætið have?

Besta sætið has 100 episodes on PodParley. The most recent episode was published on November 9, 2026.

What is Besta sætið about?

Besta sætið er hlaðvarp íþróttadeildar Sýnar. Þar er fjallað um allt sem skiptir máli í íþróttaheiminum.

How often does Besta sætið release new episodes?

Besta sætið publishes a few times a week, based on its 100 episodes since May 2026.

Who hosts Besta sætið?

Besta sætið is created and hosted by bestasaetid.
Link copied