Bílar, fólk og ferðir

PODCAST · leisure

Bílar, fólk og ferðir

Rally Palli mun fá góða gesti í heimsókn til að spjalla um alls konar ferðir fólks á bílum, bæði ferðir í óbyggðum, erlendis, áætlanaferðum vöruflutningabílstjóra og hópferðamanna fyrr á tímum. Fyrst og fremst er hlaðvarp þetta sett upp til að heiðra minningu frumkvöðlana og ekki síst til að minna okkur á notagildi bílsins.

  1. 30

    #58 - Ómar Friðþjófsson

    Ómar Friðþjófsson er sögumaður af guðs náð og hér segir talar hann um hvernig ferðamennskan er svo mikilvæg í lífi margra, td frá pabba sínum sem fór 1946 á Dyngjujöklul á sínum Willisjeppa, ástæðum þess er hann sjálfur er svo háður ferðalögum, en megin hluti þáttarins fór í að tala um einstaka "jeppaferð" með góðum félögum, þar sem ekið var m.a. á ís á hinu stóra Mackenzie fljóti, um óbyggðir og á ísilögðu hafi. Enginn fyrr né síðar hefur leikið þetta eftir um óbyggðir Kanada.

  2. 29

    #57 - Hlynur "Sæti" Bragason

    Gleðigjafinn og gæðadrengurinn Hlynur Bragason frá stór Fellabæjarsvæðinu er gestur minn að þessu sinni. Gaf sér tíma í þessari bæjarferð og segir hér sögu sína á góðan og skemmtilegan hátt. Kappinn er alltaf kallaður Hlynur Sæti og ber nafnbótina vel.

  3. 28

    #56 - Halldór Jónsson / Dóri Tjakkur

    Hann Halldór Jónsson, betur þekktur sem Dóri Tjakkur er einn af okkar alreynslumestu ökumönnum þessa lands. Hefur td starfað í 41 ár við að aka gámum um Höfuðborgarsvæðið. "Allir þekkja Dóra og bílinn hans", enda með eindæmum natinn við þrif og hafa allar perur í lagi, svo það sé nú sagt. Klárlega fyrirmynd margra yngi ökumanna í bransanum. Dóri fer hér vel yfir feril sinn í aksri frá unga aldri.

  4. 27

    #55 - Ómar Jóhannsson

    Við Ómar Jóhannsson áttum langt og mikið spjall um allskonar kvisti, þar sem bílar, fólk og ferðir koma við sögu. Síðustu árin hefur hann verið ökumaður hjá Líflandi en lengst af var hann með eigin bíl í rekstri á Sendibílastöðinni Þresti. Óhætt er að segja að Ómar hefur komið víða víð í allskonar akstri og segir hér skilmerkilega frá.

  5. 26

    #54 - Ólafur Þór Erlingsson / Óli Skrjóður

    Ólafur Þór Erlingsson vörubílstjóri á Þrótti er fyrsti gestur ársins 2026. Alltaf kallaður Óli Skrjóður, en það nafn festist á hann á unga aldri á Reykhólum. Óli er lífsglaður að eðlisfari og við förum hér hratt yfir málin en gleymdum örugglega fullt af sögum.

  6. 25

    #53 - Kerlingafjallaferð í júní 1978

    Þáttarstjórnandi les hér stuttar endurminningar sínar um skíðaferð í Kerlingafjöll í júní 1978. Fyrst birt á facebók í desember 2012.

  7. 24

    #52 - James Goodall Alexandersson

    Það er langt síðan þáttarstjórandin bað James Goodall Alexandersson um að koma í þáttinn og segja ma frá akstri sem hann tók að sér fyrir Rauða Krossinn fyrir rúmum 30 árum síðan í stríðinu í fyrrum Júgóslavíu.James sem hefur afar gott orðspor sem ökumaður og i raun algjör ljúflingur, segir hér afar skilmerkilega frá þessu viðburðaríka tímabili í lífi hans.

  8. 23

    #51 - Arngrímur Hermannsson

    Allt áhugafólk um ferðir þekkja frumkvöðullinn Arngrím Hermannson, en hann er gestur þáttarins að þessu sinni. Addi er klárlega einn af okkar allra bestu fjallamönnum og hefur staðið fyrir eða komið að flestum mest krefjandi leiðöngrum um hálendi Íslands. Hér í þessum þætti er td farið vel yfir ferð sem var kölluð, "Yfir jöklanna þrjá" sem farin var fyrst á skíðum árið 1975 og svo aftur sömu leið á jeppum tíu árum síðar.

  9. 22

    #50 - Úr dagbók Sigurjóns Jóhannessonar frá Húsavík

    Hann Björn Sigurðsson frá Húsavík sendi mér nokkrar síður úr dagbók Sigurjóns Jóhannessonar, er snýr að ferðalagi Ferðafélags Húsavíkur hingað suður um Kjöl í júlí 1959. Svo var farið haldið heim á leið um Sprengisand, en þá þurfti að aka yfir Hófsvað í Tungná, sem var mikill farartálmi, enda löngu áður en brýr og virkjanir komu á svæðið. Um er að ræða fróðlega, ítarlega og skemmtilega frásögn er lagt var í vaðið sjálft.Hlustendur verða þó að taka viljann fyrir verkið, sum orð eru ansi framandi, auk þess að ekki var auðvelt að lesa þetta inn eftir skönnun.

  10. 21

    #49 - Tvíburarnir Pétur og Eggert

    Þeir Pétur Hoffmann og Eggert Sigurðs Karlssynir eru viðmælendur þáttarins að þessu sinni.  Flestir muna eftir þeim tvíburum að aka rútumseinni árin hjá Norðurleið, en sem ungir menn störfuðu þeir við alls konar akstur bíla og tækja, td hjá Vestfjarðarleið, Ræktunarsambandi Dalamanna, Vegagerðinni,Kaupfélagi Hvammsfjarðar og víðar.  Þessir strákar úr Steingrímsfirðinum hafa engu gleymt.

  11. 20

    #48 - "Banaslys" á Óshlíðinni II

    Eins og talað var um í síðasta þætti, þá var ákveðið að Snorri S Konráðsson bifvélavirkjameistari myndi koma í heimsókn þar sem hann myndi fara vel yfir sín gögn og þær niðurstöður sem voru kynntar í þætti Sigursteins Mássonar um Íslensks Sakamál.Snorri segir í fyrstu örstutt frá sínum bakgrunni í fræðunum og frá reynslu sinni vegna starfa sinna í 14 ár við að rannsaka vettvang og bíla þar sem slys hafa orðið.Seinni hluti þáttarins fer í að ræða þær 4 - 5 sekúntur sem tekur umræddan bíl á Óshlíðinni fara af veginum, niður í fjöruna, auk annara ummerkja sem sjást á myndum frá þessum tíma, sem sanna að umræddur útafakstur var ekki slys.Hér er þáttur sem enginn má láta framhjá sér fara.

  12. 19

    #47 - "Banaslys" á Óshlíðinni I

    Eftir nýlegan sjónvarpsþátt Sigursteins Mássonar um Íslensk Sakamál, þar sem fjallað var ítarlega um útafakstur leigubíls á Óshlíð í september 1973, gerði þáttarstjórnandi örsuttan pistil á facebók sem fékk mikil viðbrögð. Í framhaldi af þeim viðbrögðum þótti einsýnt að saga þess látna yrði að koma enn betur fram, enda allt of mikið af rangfærslum í lögregluskýrslum, auk þess sem að heilbrigð skynsemi kallar á að yfirvöld rannsaki málið allt uppá nýtt. Hér segir Þórólfur Hilbert sögu bróður síns, Kristins H Jóhannesarsonar, auk þess sem við ræðum atburði umræddar nætur.

  13. 18

    #46 - Dætur þáttarstjórnandans

    Í þessum þætti snerust hlutirnir við, er dæturnar Sólveig Steinunn, Rebekka Helga og Auður Margrét tóku yfir stjórn þáttarins. Fóru þær yfir eitt og annað sem sneru að uppeldi og æsku þeirra, þar sem bílar og ferðalög ýmiskonar spiluðu stóran þátt.

  14. 17

    #45 - Hörður Kristjánsson

    Ísfirðingurinn Hörður Kristjánsson er sannur áhugamaður um góðar samgöngur á Íslandi, bara rétt eins og pabbi hans Kristján Jónsson. Kitti á Ítunni eins og hann var alltaf kallaður var svo sannarlega frumkvöðull í vegagerð og bjó til veginn um Óshlíð á árunum 1946 til 1950, auk þess að koma að gerð fyrstu jarðgangna á Íslandi í gegnum Arnarneshamar. Við Hörður ræðum í þessum þætti um samgöngur fyrri ára og stöðuna í dag.

  15. 16

    #44 - Ari Arnórsson

    Ari Arnórsson er sannkallaður frumkvöðull eins og hlustendur þáttarins munu átta sig á eftir hlustun. Ari er heimsmaður, hefur mikla og góða sannfæringu fyrir lífsins gildum. Sem barn bjó hann ásamt foreldrum sínum víða og í 3 löndum og eflaust hefur það haft góð áhrif á hugsanahátt, viljastyrk og þá staðreynd að heimurinn er í raun pínu lítill. Kappinn hefur um nokkurt skeið lagt tíma og metnað í að hanna og koma að framleiðslustigi alíslenskan bíl frá grunni, Eins nálægt lokatakmarkinu og raunin er, segir Ari okkur sögu sína á mjög skilmerkilegan hátt. Henn segir marga sem hafa kynnt sér Ísar verkefnið segja það líklegt til að verða næsta Íslenska ævintýri á borð við Marel, Össur o.fl.

  16. 15

    #43 - Þorgrímur St Árnason - "Toggi Keflavík" Ö-250

    Það hefur staðið lengi til að Þorgrímur St Árnason úr Keflavík kæmi í þáttinn til að segja sína sögu, en Toggi eins og kappinn er ofast kallaður á meðal annara jeppamanna og um leið kenndur við heimabæ sinn Keflavík og bílnúmerið Ö-250. Er einn af þeim fáu sem hafa ekið jeppa sínum heima á hlað á Hornbjargsvita og fengið kaffi hjá Óla komma. Nýverið greinist Toggi með Alzheimer sjúkdóminn, en mætir hér einlægur í viðtalsþátt með kjarkinn að vopni, nú sem áður.

  17. 14

    #42 - Thorsteinn Hjaltason - Dossi

    Flestir þekkja Dossa er hann var kóngurinn í Bláfjöllum, en færri þekkja sögu hans er snýr að bílum og ferðalögum víða um land. Dossi er frábær og var greinilega frumkvöðull í svo mörgu og gaman að fá að heyra sögur frá hans yngri árum.

  18. 13

    #41 - Jóhannes Árnason

    Það var sérlega gaman að fá Jóhannes Árnason í heimsókn fyrr í dag, en hann hefur eiginlega alla sína ævi unnið við akstur bíla ýmiskonar. Jói er góður sögumaður eins og margir kolleka hans úr flutningabílabransanum og segir hér vel frá lífi og starfi sl ára.

  19. 12

    #40 - Harald Teitsson

    Við þekkjum öll gulu hópferðabílana sem eru svo víða hér um borg á ferðinni. Vel merktir TEITUR og hér segir Harald Teitsson sonur Teits Jónassonar sögu pabba síns og fyrirtækisins sem hefur starfað í rúm 60 ár.

  20. 11

    #39 - Einar Indriðason

    Strandamaðurinn Einar Indriðason mætti óvænt í heimsókn og auðvitað stukkum við niður í stúdeóið og tókum upp einn þátt. Einar hefur stundað akstur um langt skeið, ekið vöruflutningabílum og rútum ýmiskonar, þar á meðal eitt sumar með hinum eina sanna Guðmundi Jónassyni fjallabílstjóra. Skemmtilegur þáttur að mati þáttarstjórnanda, sem hefur ekki hlegið jafn mikið í langan tíma.

  21. 10

    #38 - Hilmar Jacobsen

    Fjallagarpurinn og frumherjinn Úlfar Jacobsen hóf snemma rekstur bíla til aksturs um hálendi Íslands.  Var ætíð hrókur alls fagnaðar, með gott skopskyn, frásagnaglaður svo aðrir heilluðust með. Hér segir Hilmar Jacobsen sögu pabba síns og fjölskyldufyrirtækisins og það er ljóst að sjaldan fellur eplið langt frá eikinni.

  22. 9

    #37 - Hallgrímur Lárusson

    Hópferða- og ferðaþjónustufyrirtækið Snæland Grímsson hf er rótgróið og gott fyrirtæki í alla staði. Byggir á langri sögu, formlega frá árinu 1945, en löngu áður voru eigendur þess farnir að vinna við bílarekstur ýmiskonar. Hallgrímur Lárusson annar eigenda fyrirtækisins í dag segir hér sögu þess og rifjar m.a. upp sögu langafa síns, sem var sá 12 hér á landi sem fékk bílpróf.

  23. 8

    #36 - Gunni Vald og Lára

    "Lífið er núna" segja þau hjónin Gunnar Valdimarsson og Lára Kristjánsdóttir, en þau hafa stundað ferðalög og útivist um um langt skeið, þar sem skíði, sleðar, skór og ökutæki eru óspart notuð. Hér segja þau sögu sína frá unga aldri, þar sem hátindur ferðalaga var lengsta jeppaferð Íslandssögunnar sem tók 9 mánuði og ekið var um 54.000 km í leiðangri ásamt vinahjónum um síðustu aldamót, þar sem hughrekki, kjarkur og ævintýramennska dreif ferðalagið áfram.

  24. 7

    #35 - Auðbert Vigfússon

    Auðbert Vigfússson bifreiðastjóri í Vík í Mýrdal er gestur fyrsta þáttar ársins 2024, en akstursferill hans spannar yfir 50 ár. Farsæll alla tíð og rekur í dag ásamt syni sínum flutningafyrirtækið Auðbert og Vigfús Páll ehf sem sinnir ma daglegum flutningum frá borginni austur í Vík og Kirkjubæjarklaustur.

  25. 6

    #34 - Vignir Þór Siggeirsson

    Flutningabílstjórar fyrri ára hafa haft það orð á sér að vera miklir sögumenn og Vignir Þór Siggeirsson er þar engin undantekning á. Í þessum þætti er stiklað á stóru um akstursferil Vignis, auk þess sem kappinn er sérlega minnugur um samtíðamenn sína og ýmiskonar bras rifjað upp.

  26. 5

    #33 - Margeir Á Jónsson

    Margeir Ármann Jónsson bílstjóri frá Grindavík hefur verið í útgerð vörubíla frá 1970. Margeir er einn sá jákvæðasti maður sem hefur komið í þátt minn og bílaflotinn í dag í eigu Jóns & Margeirs ehf er sannarlega einn sá glæsilegasti hér á landi. Kappinn segir hér sögu sína, þar sem í gegn skín bæði metnaður og fagmennska.

  27. 4

    #32 - Hlífar Þorsteinsson

    Norðfirðingurinn Hlífar Þorsteinsson eigandi Austfjarðaleiðar er gestur hlaðvarpsins að þessu sinni. Hann rifjar hér upp sögur að austan, þar sem bílar, fólk og ferðir eru í aðalhlutverki.

  28. 3

    #31 - Aldís Ingimarsdóttir

    Aldís Ingimarsdóttir hefur ferðast um hálendið frá unga aldri og segist fá þaðan kraft og orku. Aldís segir hér sögu sína á góðan hátt og gefur okkur innsýn í ferðamennsku á jeppum í góðra vina hópum, sérstaklega er blásið er til kvennaferðar á vegum Ferðaklúbbsins 4x4.

  29. 2

    #30 - Árni Þór Einarsson

    Árni Þór Einarsson vöruflutningabílsstjóri á Ísafirði er gestur þáttar no 30.    Hér rifjum við upp m.a. er hann einungis 6 ára gamall kom heim til þáttarstjórnandans og spurði hvort hann mætti "koma með".     Ekki svo naujið hvert stæði til að fara, aðalatriðið var að komast upp í svo stóran bíl og njóta.   Árni byrjar því snemma sem "pakkadrengur" og nýttist vel sem slíkur.   Æfistarfið var því fjótt ákveðið. 

  30. 1

    #29 - Bjarni Þorgilsson

    Bjarni Þorgilsson er grúskari, hefur sýnt mikinn metnað í upptekt ýmissa bíla frá unga aldri.   Kappinn segir líka svo skemmtilega frá sínum uppátækjum, bæði í leik og starfi.   Hér er þáttur sem allir eiga eftir að skemmta sér vel við að hlusta.

  31. 0

    #28 - Ólafur Þór Þórðarson (Olli Dodda)

    Gæðadrengurinn Ólafur Þór Þórðarson eða Olli Dodda eins og hann er alltaf kallaður fékk snemma bíladelluna og hefur alla tíð starfað við akstur stórra bíla.   Hann er yngstur viðmælenda minna fram að þessu, rétt tæplega fertugur, en hefur helling frá að segja og gerir það vel í þessum þætti.

  32. -1

    #27 - Ólafur Kr Guðmundsson

    Ólafur Kr Guðmundsson er sennilega flestum kunnur fyrir afskipti sín af umferðaröryggismálum hér á landi.   En færri vita að bakgrunnur hans eru akstursíþróttir, bæði sem keppandi, skipuleggjandi og dómari, þar á meðal í Formula 1.  Í þessum 2ja tíma þætti fer Óli örstutt yfir sögu sína er einkennst af miklum metnaði, þrautsegju og framtíðarsýn.

  33. -2

    #26 - Haraldur Þorsteinsson

    Haraldur Þorsteinsson frá Patreksfirði er gestur þáttarins.   Hann hóf ungur störf við akstur flutningabíla, bæði fyrir vestan og síðar hjá Viggó hf á Neskaupstað.  Hér segir hann sögu sína og um leið sögu allra hinna sem óku og gerðu út flutningabíla í Barðarstrandarsýslu frá upphafi til dagsins í dag.

  34. -3

    #25 - Steinar Ingimundarson

    Í þessum þætti segir frumkvöðulinn Steinar Ingimundarson úr Borgarnesi sögu sína, en kappinn er fæddur 1930 og því elsti viðmælandi minn eins og staðan er í dag (93 ára).   Steinar er ern með eindæmum og man vel er hann hóf akstur fyrst 1948.

  35. -4

    #24 - Jón Baldur Þorbjörnsson

    Gestur þáttarins er Jón Baldur Þorbjörnsson bíltæknifræðingur, oft kenndur við ÍSAK og Ísafold Travel.    Segir hér örstutt frá góðum og farsælum starfsferli sínum sem er margvíslegur í alla staði. 

  36. -5

    #23 - Pétur B Snæland "PEBS"

    Pétur B Snæland eða PEBS eins og hann er alltaf kallaður er gestur minn að þessu sinni.  Segir hér sögu sína frá unga aldri, allt frá kassabílasmíði, akstur á alvondum steypubílum og ekki síst frá rúmlega 30 ára ferli í akstri hjá Jóa Geira sem gerði út marga bíla í vinnu hjá EIMSKIP.  PEBS hefur alla tíð verið afar lífsglaður og finnst ekkert skemmtilegra en að teikna skopmyndir af vinnufélögum.

  37. -6

    #22 - Örn Sigurðsson

    Gestur þáttarins er Örn Sigurðsson landfræðingur og bílasagnfræðingur.  Örn vinnur hjá Forlaginu og stýrir þar landakortadeild auk þess sem hafa skrifað og gefið út margar góðar bækur um bíla á Íslandi.    

  38. -7

    #21 - Gunnlaugur Sveinbjörnsson

    Í síðasta þætti var nefnt að Gunnlaugur Sveinbjörnsson bílstjóri væri góður kostur sem viðmælandi í þessum þætti.. Gulli er bílstjóri af bestu gerð, farsæll og búinn að aka vel yfir þrjár milljón kílómetra, fyrst hjá Kaupfélagi Þingeyjinga, svo hjá Alla Geira og nú síðustu árin hjá Eimskip /Flytjanda.   

  39. -8

    #20 - Sigurgeir Aðalgeirsson

    Húsvíkingurinn Sigurgeir  Aðalgeirsson er gestur þáttarins að þessu sinni.   Sigurgeir er sonur Aðalgeirs Sigurgeirssonar, sem oftast var kallaður Alli Geira, en Alli var einn af frumkvöðlum í vöruflutningum hér á landi og td einn af stofendum Vöruflutningarmiðstöðvarinnar við Borgartún.  

  40. -9

    #19 - Sigurður Gunnarsson

    Vinirnir og ólympíufararnir Gunnar Pétursson og Ebenezer Þórarinsson hófu rekstur á vöruflutningabílum um leið og vegur var fær um Dynjandisheiði árið 1959.   Sigurður Gunnarsson (sonur Gunnars) fer hér yfir sögu Gunnars og Ebenezer í afar góðum og fróðlegum þætti um þær erfiðu aðstæður sem menn glímdu við á þessum tíma.

  41. -10

    #18 - Hlynur Snorrason

    Lögreglumaðurinn Hlynur Snorrason segir hér stuttlega frá bílaáhuga sínum, m.a. stuttum keppnisferli í ralli, jeppaferðum um Fjallabak, fólkinu sínu og örlagaríka ákvörun um ferðalag vestur á firði.   

  42. -11

    #17 - Sigurður Ólafsson "Bíi"

    Ísfirðingurinn Sigurður Ólafsson er gestur þáttarins að þessu sinni.   Bíi eins og hann er alltaf kallaður fékk bíladelluna afar ungur, gerði út vörubíla, leigubíla, var ökukennari og ók bílum fyrir aðra þess á milli.     Bíi segir hér sögu sína á afar góðan og skemmtilegan hátt.

  43. -12

    #16 - Heimir Örn og Hreggviður, "HP og Synir"

    Heiðar Pétursson var einn af frumkvöðlum í vöruflutningum á Íslandi er hann hóf áætlunarferðir á milli Patreksfjarðar og Reykjavíkur árið 1958 og síðar á milli Hafnar í Hornafirði til Reykjavíkur.  Í þessum þætti segja þeir synir hans Heimir Örn og Hreggviður sögu hans á afar góðan og skemmtilegan máta.

  44. -13

    #15 - Sveinbjörn Halldórsson

    Sveinbjörn Halldórsson formaður Ferðaklúbbsins 4x4 er gestur þáttarins að þessu sinni.   Sveinbjörn hefur verið lengi í ýmiskonar félagsmálum og stefnir enn lengra eins og kemur fram í þættinum.   Rætt var um hið mikla starf sem klúbburinn stendur fyrir, vinahópa sem myndast í þessum félagsskap, ferðalögin og bílana.

  45. -14

    #13 - Jón Ferdinand Sigurðsson

    Jón Ferdinand Sigurðsson (Jón Drafli) frá Draflastöðum í Fnjóskadal er gestur þáttarins. Jón er einn af þessum jörlum sem barðist á gömlu vegunum sem hann líka tók þátt í að búa til.  Þurfti jafnvel að sinna mjólkur- og aðfangaflutningum með snjóbílum, traktorum og jarðýtum í sinni heimasveit og var einnig vörubílstjóri og skólabílstjóri svo eitthvað sé nefnt.

  46. -15

    #12 - Einar Guðmundsson

    Einar Guðmundsson er gestur hlaðvarpsins að þessu sinni. Einar hefur nánast allan sinn starfsaldur unnið að forvörnum, þó mest er snýr að umferðarmálum ýmiskonar.  Starfaði lengi hjá Sjóvá og hefur síðustu árin verið hjá EIMSKIP, auk þess sem forvarnarmálin eru líka hans áhugamál,td verið í stjórn Brautarinnar sem á og rekur Veltibílinn.   Einar fer stuttlega yfir sögu sína og við hefðum farið létt með það að tala í marga klukkutíma um áhuga hans og dugnað í þessum málum.   Takk fyrir Einar að gefa þér tíma í spjall.

  47. -16

    #11 - Þorvarður Hjalti Magnússon

    Þorvarður Hjalti Magnússon er einn af stofnendum Ferðaklúbbsins 4x4 og er gestur hlaðvarpsins að þessu sinni.   Er reyndar alltaf kallaður Hjalti og hefur frá unga aldri verið með mikla bíla-, jeppa- og ferðadellu.   Við sem eigum breytta jeppa í dag getum þakkað honum og fleirum hans líka fyrir þá baráttu sem náðist í gegn hér í denn er breytingar á jeppum urðu löglegar.

  48. -17

    #10 - Einar Gíslason

    Einar Gíslason fyrrum eigandi verktakafyrirtækisins Einars og Tyggva er gestur þáttarins.  Einar í ET eins og hann er oftast kallaður er frumkvöðull í svo mörgu og hefur látið verkin tala svo lengi sem elstu menn muna.  Hann fer hér yfir farsælan feril sinn í starfi og gefur okkur örstutta sýn að auki í áhugamálið.

  49. -18

    #9 - Finnur Lúðvíksson

    Gestur þáttarins er Finnur Lúðvíksson bílstjóri hjá ET.  Finnur er sennilega sá ökumaður sem hefur mesta reynslu hér á landi í stórflutningum ýmiskonar, bæði á þungum vélasamstæðum og spennum, auk húsflutninga og stórra vinnuvéla.  Í þessum þætti fáum við örstutta innsýn í hans daglegu störf.

  50. -19

    #8 - Hjalti Skaftason

    Hjalti Skafta oftast kenndur við Skagaströnd er gestur þáttarins að þessu sinni.   Hjalti er fjallhress áttræður unglingur og hafði frá mörgu að segja frá fyrri tíð og hefur engu gleymt.

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Rally Palli mun fá góða gesti í heimsókn til að spjalla um alls konar ferðir fólks á bílum, bæði ferðir í óbyggðum, erlendis, áætlanaferðum vöruflutningabílstjóra og hópferðamanna fyrr á tímum. Fyrst og fremst er hlaðvarp þetta sett upp til að heiðra minningu frumkvöðlana og ekki síst til að minna okkur á notagildi bílsins.

HOSTED BY

Páll Halldór Halldórsson / Rally Palli.

CATEGORIES

URL copied to clipboard!