PODCAST · tv
Bíó - Kvikmyndahlaðvarp
by Helgi Snær Sigurðsson
Hlaðvarpsþáttur um kvikmyndir eftir blaðamann Morgunblaðsins
Episodes
-
BÍÓ - EFA spá með Ásu Baldursdóttir
Ása Baldursdóttir, dagskrárstjóri í Bíó Paradís, spáir í Evrópsku kvikmyndaverðlaunin 2022.
-
Bíó - Kvennatvenna VARÚÐ SPILLIEFNI!
Helgi Snær Sigurðsson ræðir við Arnar Eggert Thoroddsen um Verdens veste menneske og Madres paralelas. Varað er við spilliefni, að sagt er frá mörgu sem gerist í myndunum og mælt með því að fólk hafi séð myndirnar áður en hlustað er.
-
BÍÓ - Martraðarsund
Helgi og Þóroddur ræða við Markús Má Efraím, aðdáanda Guillermo del Toro, um nýjustu kvikmynd leikstjórans, Nightmare Alley.
-
BÍÓ - No Time To Die og Bond - VARÚÐ SPILLIEFNI
Bond-aðdáandinn Jón Agnar Ólason ræðir við Helga Snæ Sigurðsson og Þórodd Bjarnason um James Bond í áranna rás og nýju myndina. Varað er við því að kjaftað er frá mörgu um nýjustu myndina, No Time To Die, og þeir sem hafa ekki séð hana ættu því að hlusta að lokinni bíóferð.
-
BÍÓ - Dune með Gísla í Nexus
Gísli Einarsson, eigandi Nexus, er fróður mjög um Dune, rómaða vísindaskáldsögu Franks Herbert frá árinu 1965 og ræðir við umsjónarmenn um hana og nýja kvikmynd sem byggð er á helmingi bókarinnar, þeirrar fyrstu af nokkrum sem höfundur skrifaði.
-
BÍÓ - Suicide Squad með Villa Neto
Helgi Snær og Þóroddur ræða við leikarann og grínistann Villa Neto um hina skondnu, ofbeldisfullu og blóðugu sumarmynd Suicide Squad.
-
BÍÓ - Svarta ekkjan
Rætt er við Marvel-aðdáandann Arnór Inga Hjartarson um nýjustu Marvel-myndina, Black Widow.
-
BÍÓ - Davíð Már Stefánsson handritshöfundur
Helgi Snær Sigurðsson ræðir við Davíð Má Stefánsson, einn handritshöfunda sjónvarpsþáttanna Kötlu, um þættina, námið við Columbia, handritsskrif og dálæti hans á X-Files.
-
BÍÓ - Saumaklúbburinn
Helgi Snær Sigurðsson ræðir við Göggu Jónsdóttur, leikstjóra og annan handritshöfunda gamanmyndarinnar Saumaklúbburinn.
-
BÍÓ - Godzilla vs. Kong
Brynja Hjálmsdóttir, kvikmyndafræðingur og rithöfundur og Godzilla- og King Kong-aðdáandi, ræðir við Helga Snæ Sigurðsson um nýjustu kvikmyndina um risaskepnurnar tvær.
-
BÍÓ - Efnileg, ung kona
Helgi Snær Sigurðsson ræðir við Sigríði Pétursdóttur um frábæra frumraun leikstjórans Emereld Fennell sem hlaut Óskarsverðlaun fyrir besta frumsamda handrit.
-
BÍÓ - Hvörf music library 02
Rætt við tónlistarmennina Þóri Georg og Jóhannes Birgisson um plötuna Hvörf - music library 02 sem hefur að geyma tónlist í anda tónlistarsafna fyrir kvikmyndir og sjónvarpsþætti. Einnig rætt um kvikmyndatónlist vítt og breytt og þá m.a. þá sem er í uppáhaldi hjá þeim félögum.
-
BÍÓ - Kolkrabbakennarinn minn
Helgi Snær Sigurðsson ræðir við sjávarlíffræðinginn Eddu Elísabetu Magnúsdóttur um merka heimildarmynd sem fjallar um vináttu manns og kolkrabba.
-
BÍÓ- Þýskir kvikmyndadagar 2021
Rætt við Ásu Baldursdóttur um Þýska kvikmyndadaga 2021 sem hefjsat 12. mars og lýkur 21. mars.
-
BÍÓ - A Song Called Hate
Rætt við Önnu Hildi Hildbrandsdóttur, leikstjóra A Song Called Hate sem segir af þátttöku Hatara í Eurovision.
-
BÍÓ - Barb og Star skreppa til Visa del Mar
Helgi Snær Sigurðsson og Gunnar Ragnarsson ræða saman um hina furðulegu grínmynd um vinkonurnar Barb og Star.
-
BÍÓ - Hvernig á að vera klassa drusla
Helgi Snær ræðir við handritshöfund og leikstjóra hinnar íslensku Hvernig á að vera klassa drusla, Ólöfu Birnu Torfadóttur.
-
BÍÓ - Gríðarlega undarlegar kvikmyndir
Helgi Snær ræðir við Sigtrygg Berg Sigmarsson, sérfræðing í gríðarlega undarlegum kvikmyndum.
-
BÍÓ - Reykjavík Feminist Film Festival
Helgi Snær Sigurðsson ræðir við Gunnar Ragnarsson kvikmyndagagnrýnanda um nokkrar myndir á dagskrá hátíðarinnar.
-
BÍÓ - Kvikmyndaárið 2020
Helgi Snær ræðir við Mörtu Sigríði Pétursdóttur um kvikmyndaárið 2020 sem einkenndist af bíóleysi og heimaglápi.
We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
Loading similar podcasts...