Skip to content
Birtingarmyndir podcast artwork

PODCAST · society

Birtingarmyndir

by Bergrún Andradóttir, Díana Sjöfn Jóhannsdóttir, Sjöfn Hauksdóttir

Birtingarmyndir alls kyns fyrirbæra í dægurmenningu.

Publisher-supplied feed metadata · PodParley refreshed Feb 16, 2024 · Source feed

Episodes

  1. BMN: (500) Days of Summer

    Velkomin í samúðarkortadeildina. Bergrún, Díana Sjöfn og Sjöfn dýfa sér í rómantísku gamanmyndina (500) Days of Summer og skoða birtingarmyndir eitraðrar karlmennsku, sérvitra álfadísa, allt of gáfaðra barna í kvikmyndum og sjálfrar ástarinnar. Sjöfn nær að fara yfir söguþráð myndarinnar á innan...

  2. Tilkynning

    Það er komið aftur! Podcastið sem allir hafa beðið eftir! Eða hvað? Sökum tæknilegra örðugleika í ársbyrjun kemur næsti þáttur því miður ekki fyrr en í næstu viku en örvæntið ekki, hlustið á vafasöm hljóðgæði og vægt fliss til að hita upp fyrir komandi þátt.

  3. Manic Pixie Dream Girl

    Ert þú sérvitur álfadís? Eða hefur einhver annar gefið þér það hlutverk? Í þætti dagsins ræðum við Manic Pixie Dream Girl, staðalmyndina sem tröllreið indie-kvikmyndaheiminum frá um 2005 til 2015. Hvers vegna er staðalmyndin skaðleg og hvernig hefur hún þróast? Hefur hún haldið velli eða má finna...

  4. BMN: Candyman

    Candyman. Candyman. Candyman. Það er Spooky Season í öllu sínu veldi og í tilefni Hrekkjavökunnar horfðum við á hryllingsmyndina Candyman (2021) í leikstjórn Nia DaCosta. Við veltum fyrir okkur hryllingsminnum, menningarátökum, miðstéttarvæðingu og kynþáttafordómum í myndinni sem og samfélaginu…

    more
  5. Bara vinir

    Verður þú að ríða vinum þínum? Svarið er oft á tíðum já, en birtingarmyndir sambanda gagnkynhneigðra kvenna og karla gefa í skyn að eingöngu vinátta sé óraunhæfur möguleiki. Við kíkjum á þrjár myndir með þemu vináttu og ásta, My Best Friend's Wedding, When Harry met Sally og Just Friends. Díana...

  6. Met Gala

    Borgaðir þú 25.000 dollara til að hlusta á þennan þátt? Ekki? Þá ertu sennilega ekki jafn ríkur og fólkið sem mætti á Met Gala til að sýna sig og sjá aðra. Við ræðum tískuna, ádeiluna, pólitíkina og allt hitt tengt Met Gala 2021, dæmum nokkur outfit og spyrjum alvöru spurninga eins og, hvað er...

  7. Madonnan, hóran og lokastelpan

    Staðalmyndirnar eru víða og ekki síst í bíómyndum. Við kíkjum á einhliða kvenpersónur í kvikmyndum og einbeitum okkur að þremur erkitýpum til frekari greiningar. Við ræðum til dæmis Mean Girls, Grease, Halloween, House of Wax, Alien og auðvitð Vertigo. Svo leikum við auðvitað hinn fræga...

  8. Vampírur

    Færðu þig lúðalegi Drakúla, Edward cullen er mættur! Í þætti dagsins ræðum við vampírur: birtingarmyndir þeirra í gegnum söguna og þróun ímyndar þeirra, frá fornkína, yfir til austur og norður Evrópu og alla leið til Forks, Washington. Þess má til gamans geta að þetta er fyrsti þátturinn sem við...

  9. Framakonan LIVE

    Áður en sumarfríið skall á okkur vorum við Live á Instagram. Nú snúum við aftur úr fríi deilum með ykkur þessari live upptöku þar sem við fjöllum um birtingarmyndir framakonunnar. Við skoðum hina raunverulegu framakonu, framakonuna í kvikmyndum og sögu hinna vinnandi kvenna almennt. Við áhlustun...

  10. Mörk

    Í þætti vikunnar ræðum við mörk þegar kemur að „kynlífssenum“ í kvikmyndum. Margar frægustu senunar eru vægast sagt vafasamar, og ef maður lítur aftur í kvikmyndasöguna má finna margt óþægilegt sem fer yfir mörk. Við kíkjum á 16 Candles, James okkar Bond (sem þarf á mikilli sálfræðihjálp að…

    more
  11. Kynlif

    Við ræðum kynlíf í dægurmenningu, sérstaklega í bíómyndum og sjónvarpi, í gegn um tíðina. Einnig kíkjum við á Horny Twitter og fáum hjálp graðra tvítverja við að nefna eftirminnilegar kynlífssenur. Mikið er flissað þar sem þáttarstjórnendur virðast ekki alveg nógu þroskaðar til að tækla þetta...

  12. Sifjaspell II

    Við höldum áfram að skoða sifjaspell. Nú snúum við okkur að sögu sifjaspella í dægurmenningu aftur til 16. aldar og veltum auk þess fyrir okkur Human Centipede. Af því að .. oj. Eftir þennan þátt getum við svo sáttar snúið okkur að öðru. Takk fyrir.

  13. Sifjaspell I

    Sifjaspell eru víðar en við héldum og hafa laumað náskyldum krumlum sínum í ýmsa anga dægurmenningar. Frá Game of Thrones til Hornauga Ásdísar Höllu, yfir í biblíuna og auðvitað í kláminu, bæði rituðu og leiknu, má finna sifjaspell. Við skoðum uppruna þessara vinsælda þeirra, umdeildu kenninguna...

  14. Strákasveitir

    Þátturinn sem tvær af þremur umsjónarkonum poddsins kafna næstum á sælgæti. Og talandi um sælgæti, í þessari viku fjöllum við um strákasveitir. Við skoðum hvað þær eru, hver fann þær upp og hvers vegna þær eru svona vinsælar. Er það uppbygging sveitanna sem sker úr um hver er strákasveit eða eru...

  15. BMN: Promising Young Woman

    Kvikmyndaklúbbur Bergrúnar tekur fyrir myndina Promising Young Woman. Við viljum vara við því að myndin fjallar um kynferðisofbeldi og getur umræðan verið triggerandi. Einnig er góð spurning hvers vegna báðar myndirnar sem við höfum tekið fyrir í podcastinu hingað til innihalda Adam Brody…

    more
  16. Samfélagsmiðlar: Sjálfið

    Marilyn Monroe. Kim Kardashian. Píkan hans Gustave Courbet. Nektarsjálfan, samfélagsmiðlar, valdefling, gægjuhneigð og glápþörf. Við drepum víða niður fæti í þessum þætti sem fjallar um sjálfið á tímum samfélagsmiðla, áhrifavalda og markaðssetninga. Er instagramsjálfsmyndin list, er hún tekin á...

  17. Fitufordómar

    TW. átraskanir. Í þættinum ræðum við birtingarmyndir feitra (kvenna) í dægurmenningu. Það kannast flest ef ekki öll við neikvæðar hugsanir um líkama sinn, oftar en ekki vegna þess að hann er „of mikið“ eða „ekki nógu“. Við ræðum þráhyggju samfélagsins gagnvart þyngd, kerfisbundna mismunun…

    more
  18. Fötlun

    Hverjar eru birtingarmyndir fatlaðra í menningunni okkar? Af hverju eru aðeins 3.1% leikara í sjónvarpi fatlaðir? Hvers vegna endaði Quasimodo ekki með Esmeröldu í lokin? Einnig -er ekki kominn tími á fatlaðan karakter sem er horny? Við spjöllum um kvikmyndirnar Forrest Gump, Me Beore You…

    more
  19. BMN: Jennifer's Body

    Velkomin í kvikmyndaklúbb Bergrúnar, Bergrún's Movie Night. Við ræðum og greinum hina mögnuðu og misskildu költmynd Jennifer's Body frá árinu 2009. Þú þarft ekki að hafa séð myndina til að njóta spjallsins, en við mælum þó með að kíkja á hana. Dýfðu þér með okkur í heim kvenhaturs, hryllingsmynda...

  20. Lesbíur

    Hverjar eru þessar lesbíur? Eða hinsegin konur almennt? Við dýfum okkur í skilgreiningar, komum allar út úr skápnum og skoðum birtingarmyndir kvenna sem elska konur í kvikmyndasögunni.

  21. Geimverur

    Geimvera hvað? Við fjöllum um geimverumyndirnar Alien (1979), Signs (2002) og Arrival (2016), District 9, Bird Box, A Quiet Place, The Thing (1982) og War of the Worlds. Díana deilir með okkur martröð sem ásækir hana endurtekið og Sjöfn rifjar upp söguþráð Avatar (2009) og af hverju hún er alveg...

  22. Nornir

    Er þetta gömul kona sem á kött og huggulegan grasagarð, eða er þetta NORN? Við ræðum nornir almennt, sögu þeirra, kíkjum á hið kynjakvótajafnandi íslenska nornafár og veltum okkur upp úr birtingarmyndum norna í kvikmyndinni The Craft. Galdrið með! Vísindavefurinn: Hvað voru margar nornabrennur á...

  23. Barneignir

    Hvaða áhrif hafa birtingarmyndir foreldra í poppkúltúr og á samfélagsmiðlum á það hvernig við hugsum um hlutverkið? Mommy-bloggers, instamoms, working moms. Fullkomin outfit, fullkomnar veislur… fyrir hvern er þetta? Hvaða áhrif hefur það á okkur og hvaða áhrif hefur það á börnin?...

  24. Asía I

    Hvað er Asía? Hver er asískur? Og hvernig birtast okkur staðalmyndir fólks frá þessari gríðarstóru heimsálfu? Við ræðum margbreytileika Asíu, skaðlegar staðalmyndir, hugmyndir vestursins og ris kynþáttafordóma gegn fólki af asískum uppruna á Covid tímum. Ýtarefni: https://www.asiannotasianpod.com...

  25. Karlmennska II

    Ó karlmennska, af hverju ertu stundum svona skaðleg? Við skoðum Incel-menningu, gervi-femínista, og margslungnar birtingarmyndir skaðlegrar karlmennsku í dægurmenningu.

  26. Karlmennska I

    Við fræðumst um ríkjandi karlmennsku, skaðlega karlmennsku, karlmennskuhugmyndir og Rambo.

  27. Einhverfa

    Grannur og spengilegur hvítur, karlkyns snillingur gengur inn í bíómynd. Gæti hann verið ... einhverfur? Við ræðum birtingarmyndir einhverfu í dægurmenningu, mýtur og staðalmyndir.

  28. Skvísan

    Við köfum ofan í birtingarmyndir skvísunnar í dægurmenningu. Skvísið ykkur í gang.

  29. Kynning

    Birtingarmyndir okkar koma á óvart.

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Birtingarmyndir alls kyns fyrirbæra í dægurmenningu.

HOSTED BY

Bergrún Andradóttir, Díana Sjöfn Jóhannsdóttir, Sjöfn Hauksdóttir

CATEGORIES

Frequently Asked Questions

How many episodes does Birtingarmyndir have?

Birtingarmyndir currently has 29 episodes available on PodParley. New episodes are automatically indexed when they're published to the podcast feed.

What is Birtingarmyndir about?

Birtingarmyndir alls kyns fyrirbæra í dægurmenningu.

How often does Birtingarmyndir release new episodes?

Birtingarmyndir has 29 episodes. Check the episode list to see recent publication dates and frequency.

Where can I listen to Birtingarmyndir?

You can listen to Birtingarmyndir on PodParley by clicking any episode. We provide an embedded audio player for direct listening, and you can also subscribe via your preferred podcast app using the RSS feed.

Who hosts Birtingarmyndir?

Birtingarmyndir is created and hosted by Bergrún Andradóttir, Díana Sjöfn Jóhannsdóttir, Sjöfn Hauksdóttir.
URL copied to clipboard!