PODCAST · arts
Bókakaffi
by Ari Óskar Víkingsson, Friðrik Snær Björnsson
Hér verður skeggrætt um góðar bækur og drukkið gott kaffi.
-
5
#5 Ódysseifskviða - Hómer
Ódysseifskviða er eitt elsta varðveitta stórvirki heimsbókmennta. Sagan hafði borist munnlega frá kynslóð til kynslóðar áður en hún var rituð af forngríska skáldinu Hómer fyrir um 2700 árum.Hér er farið yfir þessa merkilegu sögu og bókin, í stórkostlegri 19. aldar þýðingu Sveinbjarnar Egilssonar, borin saman við nýútkomna Hollywood-endurgerð sögunnar eftir Cristopher Nolan.Hverju breytir Nolan frá upprunalegu sögunni?Bætir myndin lestur bókarinnar?Þessum spurningum er velt upp í þættinum og að lokum komist að neðangreindri einkunn á bókinni:Karakterar: Ari - 4 / Friðrik - 3,5Ritstíll: Ari - 4,5 / Friðrik - 4,5Sögusvið: Ari - 3,5 / Friðrik - 3Tilfinningaáhrif: Ari - 4 / Friðrik - 4Saga: Ari - 4,5 / Friðrik - 4,5Heildareinkunn: Ari - 4,1 / Friðrik - 3,9
-
4
#4 - Egils saga
Egils Gull Lite, Egilshöll og Silfur Egils… Forfaðir okkar Egill Skallagrímsson lifir enn með okkur í alls kyns myndum. Hann var bardagamaður mikill með girnd fyrir sífellt meira silfri og landi. Á sama tíma hafði hann mannlega hlið sem birtist í hjartnæmum ljóðum sem hann orti eftir þunglyndisköstin sín.Þessi þáttur er bæði fyrir þá sem hafa lesið bókina og þá sem hafa ekki gert það. Við lok hlustunar verður viðkomandi orðinn sérfræðingur í uppgangi Haralds hárfagra í Noregi, landnámi Skalla-gríms í Borgarfirði og svo öllum helstu bardögum, ljóðum, áskorunum og sigrum Egils.Persónur: Ari - 4,5 / Friðrik - 4Sögusvið: Ari - 3 / Friðrik - 3,5Ritstíll: Ari - 4 / Friðrik - 3,5 Tilfinningaáhrif: Ari - 4 / Friðrik - 4Saga: Ari - 4,5 / Friðrik - 5Heildareinkunn: Ari - 4 / Friðrik - 4
-
3
#3 Bókin um veginn - Lao Tse
Bókin um veginn er 2500 ára gömul lífsspekibók sem hefur lifað af ástæðu. Farið er yfir vítt svið í þættinum, allt frá tilurð heimsins niður í anarkisma Jóns Gnarr. Bókin snertir á trúarmálum, stjórnmálum, hermálum og einstaklingnum og ákjósanlegum lífsháttum hans.Bókin er einungis 84 blaðsíður, skrifuð í stuttum setningum sem eru í stóru letri. Þetta þýðir að ef þú nennir að hlusta á þáttinn þá nennir þú að lesa bókina!Þetta mun vera okkar besti þáttur hingað til.Einkunnagjöf fylgir í kjölfar umræðna og er til hliðsjónar hér að neðan:BoðskapurAri - 4,5Friðrik - 4Tilfinningaáhrif Ari - 3,5Friðrik - 2,5StíllAri - 4,5Friðrik - 4LokaeinkunnAri - 4,2Friðrik - 3,5 (3,9 í kjölfar leiðréttingar a vægi þáttakr
-
2
#2 Sjálfstætt fólk - Halldór Kiljan Laxness
Hér er farið yfir eitt af meistaraverkum nóbelskálds þjóðarinnar. Er Bjartur í Sumarhúsum enn til í nútímasamfélagi?Er ást hans á Ástu Sóllilju sönnun þess að allir eigi sína mjúku hlið?Vangaveltur eins og þessar eru ræddar en einnig er farið í hávísindalega ritdóma með formfastri einkunnagjöf (0-5 stjörnur) og fylgir hún hér að neðan:Karakterar: Ari - 5 / Friðrik - 5Sögusvið: Ari - 4 / Friðrik - 4Ritstíll: Ari - 4,5 / Friðrik - 4,5Tilfinningaáhrif: Ari - 5 / Friðrik - 5Saga: Ari - 4,5 / Friðrik - 4Heildareinkunn: Ari - 4,6 / Friðrik - 4,5
-
1
#1 Breyttu hugarfari þínu, breyttu lífi þínu - Bob Proctor
Hljóðbókin Change Your Paradigm, Change Your Life eftir Bob Proctor mun breyta lífi þínu.
We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
Loading similar podcasts...