Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir
by Brotkast ehf.
Brotkast er efnisveita þar sem dagskrárgerðarmenn eru óháðir auglýsendum og svara eingöngu til áskrifenda sinna. Þannig bjóðum við upp á heilbrigðari umræðu sem verður ekki nauðbeygð undir háværan hóp róttæklinga á Twitter.Hægt er að kaupa áskrift á brotkast.is þar sem allt efnið er inni með aðeins einni áskrift.
Episodes
-
S04E68 - Þorbjörg um hert útlendingalög: „Við ætlum að gera kröfur“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra ræðir við Frosta Logason um útlendingamál og breytingarnar sem hún hefur lagt fyrir Alþingi á dvalarleyfiskerfinu. Hún segir að fólksfjölgunin á Íslandi, um fimmtíu þúsund manns frá 2017, hafi ekki byggt á neinni stefnu og að stjórnvöld hafi…
more -
Um styrkhæf sjónarmið meirihlutans | Harmageddon | S04E42
Til er fólk sem telur að fjölmiðlastyrkur stjórnvalda eigi eingöngu að ná til þeirra miðla sem ganga í takt við ákveðnar meginstraumslínur í umdeildum málum. Fjölmiðlar sem styðja ekki ákveðnar rétttrúnaðarstefnur skuli þannig fjársveltir á meðan þeir sem kyrja kórinn verði í áskrift að fjármagni...
-
S04E67 - „ÞETTA ER SPILLING!“ – Brynjar Karl hjólar í Reykjavíkurborg
Brynjar Karl Sigurðsson, körfuboltaþjálfari og forsvarsmaður íþróttafélagsins Aþenu, mætir í Spjallið og fer yfir harðvítugar deilur félagsins við Reykjavíkurborg um framtíð íþróttastarfs í Efra-Breiðholti. Brynjar Karl fer mikinn og sakar embættismenn borgarinnar um spillingu, vanrækslu og...
-
Ísland verður eins og Svíþjóð! | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E66
Ástralski áhrifavaldurinn Leon Hill hefur vakið gríðarlega athygli á samfélagsmiðlum fyrir harða og umdeilda gagnrýni sína á innflytjendastefnu Evrópuríkja, íslam og vaxandi áhrif íslamskrar hugmyndafræði á vestræn samfélög.Í þessu viðtali við Frosta Logason í Spjallinu fer Hill yfir þá þróun sem...
-
Ólukka ríkisstjórnarflokkanna | Harmageddon | S04E41
Stórfurðuleg atburðarrás sem hófst á undarlegu tísti framkvæmdastjóra þingflokks Flokks fólksins hefur leitt til harðrar deilu á milli fyrrverandi forseta Íslands. Komið hefur fram að stigmögnun í kjarnorkustríð er ekki opinber stefna Flokks fólksins heldur eingöngu persónuleg skoðun...
-
Kærleikurinn sem flæmdi kennara út | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E64
Frosti Logason og Helga Dögg Sverrisdóttir ræða starfslok hennar sem dönskukennara við Síðuskóla á Akureyri og aðdraganda þeirra. Helga rekur viðbrögð við grein sinni um kyn og fræðslu barna, en að sögn Helgu urðu skrifin upphaf að ágreiningi og breyttum samskiptum á vinnustaðnum. Í umræðunni…
more -
Teitur Atlason - Er fjölmenningin að bresta? | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E63
Frosti Logason og Teitur Atlason ræða mótmæli og óeirðir í Evrópu og velta fyrir sér hvað liggi að baki óánægjunni. Þeir ræða húsnæðisvanda, lífskjör, ferðaþjónustu og innflytjendastefnu og greinir meðal annars á um stöðu innviða álfunnar. Innflytjendamál eru fyrirferðarmikil í samtalinu. Þeir…
more -
Tjáningarfrelsi á útsölu | Harmageddon | S04E40
Hér á Íslandi er til fólk í áhrifastöðum sem vill henda þeim í fangelsi sem tjá sig um áhyggjur sínar af þróun útlendingamála. það er ekkert nýtt að róttæklingar vilji misnota lög í pólitískum tilgangi en það er verra þegar kjörnir fulltrúar á Alþingi eru komnir þangað. Fáðu þér áskrift og sjáðu...
-
Frakkland er fallið | Harmageddon | S04E39
Fjölmiðlar hér á landi sem erlendis reyna enn að selja okkur þá hugmynd að óeirðirnar í Frakklandi séu fyrst og fremst mótmæli framhaldskólanema. Að loftslagsbreytingar séu að gera nemendum svo erfitt fyrir og ekki sé hægt að taka samræmd próf í svo miklum hita. Þess vegna sé verið að brenna…
more -
Jóhannes Loftsson - Þetta gæti verið mun verra en við höldum! | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E62
Geta afleiðingar COVID-bólusetninganna verið að koma fram fyrst núna, fimm árum síðar? Og hvers vegna hefur ekki farið fram ítarlegra uppgjör á sóttvarnaraðgerðum og ákvörðunum heilbrigðisyfirvalda? Jóhannes Loftsson, verkfræðingur og stjórnarmaður í Heilsuvon, er gestur Frosta Logasonar í...
-
Ofbeldi og eyðilegging | Harmageddon | S04E38
Óeirðirnar í Frakklandi ættu að vera víti til varnaðar. Óvarleg fjölmenningar- og innflytjendastefna getur reynst vestrænum samfélögum stórhættuleg. Vonandi eru einhverjir loksins að vakna. En svo eru auðvitað þeir vinstrimenn sem hafa slíkt horn í síðu vestrænna gilda að þeir virðast helst fagna...
-
Reynir Grétarsson - Frá milljarðaviðskiptum til gagnslausra hugsana | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E61
Reynir Grétarsson er einn af athyglisverðari frumkvöðlum og fjárfestum Íslands. Hann var aðeins 24 ára þegar hann stofnaði ásamt félögum sínum fyrirtækið Lánstraust, sem síðar varð Creditinfo, og átti eftir að vaxa langt út fyrir landsteinana.Í þessu viðtali við Frosta Logason fer Reynir yfir...
-
Kolbeinn Stefánsson: Þegar pólitík ræður vísindunum – og fjölmiðlar gleypa allt | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E60
Hvað gerist þegar pólitísk hugmyndafræði fær að ráða för í vísindum og fjölmiðlar birta niðurstöður rannsókna án þess að spyrja gagnrýninna spurninga?Kolbeinn Stefánsson, dósent við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands, er gestur Frosta Logasonar í Spjallinu að þessu sinni.Tilefnið er umdeild...
-
„Veruleikinn er miklu skrýtnari en við höldum“ – Gunnar Dan | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E59
Gunnar Dan, hlaðvarpsstjórnandi og rithöfundur, snýr aftur í Spjallið með nýja bók, UFO 202, og segir óhætt að fullyrða að mikið hafi breyst frá því hann settist síðast niður með Frosta til að ræða eitt dularfyllsta viðfangsefni samtímans.Undanfarin misseri hafa fyrrverandi starfsmenn bandaríska...
-
Sadó-masókismi íslenskra kjósenda | Harmageddon | S04E37
Í Harmageddon þætti dagsins veltum við fyrir okkur hversu þolinmóðir íslenskir kjósendur ætla að vera gagnvart Viðreisn og Samfylkingu sem sýna engin merki þess að ætla ná þeim tökum á efnahagsmálum sem þau voru kosin til að gera. Við ræðum líka um mikinn árangur sem Já-hliðin náði fram í nýlegri...
-
Óli Björn Kárason: „Ægivald Ríkisútvarpsins er orðið þrúgandi“ | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E58
Óli Björn Kárason, fyrrverandi þingmaður og ritstjóri, er gestur Spjallsins að þessu sinni.Tilefnið er ný bók hans, Villigötur valdsins – til varnar frelsinu gegn miðstýringu, ríkisafskiptum og rétthugsun, en samtalið vindur fljótt upp á sig og verður að víðtæku uppgjöri við íslensk stjórnmál og...
-
Ísland á bandarísku áhrifasvæði | Harmageddon | S04E36
Fyrir nokkrum vikum var ágengni Trumps gagnvart Grænlandi sögð sýna að Ísland gæti ekki lengur treyst Bandaríkjunum og yrði að leita skjóls í Evrópusambandinu. Nú hefur náðst farsælt samkomulag um Grænland, allir eru hæstánægðir og stærsta röksemdin fyrir inngöngu Íslands í ESB virðist hafa gufað...
-
Jón Helgi: „Ríkisstjórnin stöðvaði vinnu að betra íbúðalánakerfi“ | Spjallið með Frosta | S04E57
Jón Helgi Egilsson, doktor í peningamálahagfræði, segir að Ísland geti boðið húsnæðislán með föstum vöxtum til mun lengri tíma en nú tíðkast. Hann tók þátt í vinnu á vegum fyrri ríkisstjórnar sem miðaði meðal annars að því að gera tíu ára vaxtafestingu að raunhæfum valkosti fyrir íslenska...
-
Tæp 60% atvinnulausra eru útlendingar – en umræðan er vandamálið | Harmageddon | S04E35
Erlendir ríkisborgarar eru aðeins um fjórðungur vinnuaflsins en tæplega 57% þeirra sem voru á atvinnuleysisskrá fyrstu sjö mánuði ársins. Við ræðum þessar sláandi tölur og spyrjum hvers vegna stjórnvöld virðast hafa meiri áhyggjur af umræðunni en vandanum sjálfum.Við förum einnig yfir hvernig…
more -
Sigmundur Davíð: „Við verðum að ná stjórn á landamærunum“ | Spjallið með Frosta | S04E56
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er gestur Frosta Logasonar í Spjallinu að þessu sinni. Í viðtalinu ræðir hann niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið og gagnrýnir viðbrögð ríkisstjórnarinnar við ósigrinum. Hann segir stjórnvöld hafa misst af tækifærinu til…
more -
Hallalausu fjárlögin: Núllið þeirra - reikningurinn okkar | Harmageddon | S04E34
Ríkisstjórnin fagnar hallalausum fjárlögum fyrir árið 2027. En þegar betur er að gáð fæst núllið meðal annars með hærri sköttum og gjöldum, rýrari bótum og aðgerðum sem gætu aukið verðbólguþrýsting. Við förum yfir það sem leyndist á bak við glansandi kynninguna og spyrjum: Eru fjárlögin...
-
Debbie Hayton: „Transkonur eru karlar – sættið ykkur við það“ | Spjallið með Frosta | S04E55
Debbie Hayton er breskur kennari, blaðamaður og verkalýðsbaráttukona sem gekkst sjálf undir kynleiðréttingu árið 2012. Þrátt fyrir það hefur hún orðið ein ötulasta gagnrýnisröddin gegn nútíma kynvitundarpólitík og þeirri hugmyndafræði sem hún telur hafa tekið yfir umræðuna um transfólk.Í þessu...
-
Við viljum ráða okkur sjálf | Harmageddon | S04E33
Það hefur verið athyglisvert að fylgjast með viðbrögðunum erlendis við niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Víða er henni fagnað sem verðskuldaðri áminningu til Evrópusambandsins um að sífellt fleiri Evrópubúum hugnast illa sú aukna miðstýring sem sambandið stefnir að. Viðbrögðin hér heima hafa…
more -
Bjarni Benediktsson: „Ríkisstjórnin er augljóslega í brekku“ | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E54
Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og fyrrverandi forsætis- og fjármálaráðherra, sest hjá Frosta Logasyni í ítarlegt viðtal um stöðu efnahagsmála, uppnám á vinnumarkaði og niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um ESB-viðræður.Bjarni segir niðurstöðuna „hart nei“ og mikið...
-
Richard Werner: Why EU Membership Would Be a Grave Mistake for Iceland | S04E53
Professor Richard Werner warns Icelanders against surrendering their monetary sovereignty by joining the European Union and eventually adopting the euro.In this wide-ranging interview, recorded ahead of Iceland’s referendum on reopening EU accession negotiations, Werner argues that joining the…
more -
Athygli ríkisstjórnarinnar á að vera á efnhagsmálum | Harmageddon | S04E32
Á baráttufundi já-hliðarinnar í vikunni talaði Kristrún á þann veg að helst mætti skilja að hún væri búin að gefast upp á verkefninu, sem ríkisstjórnin hefur varla byrjað á, og væri nú sannfærð um að aðeins kommissararnir í Brussel gætu kveðið niður verðbólguna á Íslandi. En ríkisstjórnin gæti...
-
Egill Almar: Ísland hefur nær ekkert vaxið í tíu ár | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E52
Egill Almar Ágústsson hefur á síðustu misserum vakið athygli fyrir skrif sín um íslenska krónu, verðtryggingu, vexti og hagvöxt. Hann telur að Ísland standi frammi fyrir miklu stærra efnahagsvandamáli en flestir geri sér grein fyrir: Hagvöxtur á mann hafi verið sáralítill síðasta áratuginn og...
-
Hilmar Veigar Pétursson - Allt viðtalið | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E51
Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri Fenris og maðurinn á bak við CCP og EVE Online, studdi áður inngöngu Íslands í Evrópusambandið og upptöku evru. Nú hefur honum snúist hugur og ætlar að greiða atkvæði gegn áframhaldandi aðildarviðræðum.Í þessu ítarlega viðtali útskýrir Hilmar hvað varð til þess…
more -
Snærós Sindradóttir - Allt viðtalið | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E50
Snærós Sindradóttir, framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar, mætir í ítarlegt og beinskeytt samtal um Evrópusambandið og þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
-
Byggjum á árangri Íslands - Hilmar Veigar segir ESB trufla rétta forgangsröðun | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E50
Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri Fenris og maðurinn á bak við CCP og EVE Online, studdi áður inngöngu Íslands í ESB og upptöku evru. Nú hefur honum snúist hugur og ætlar að greiða atkvæði gegn áframhaldandi aðildarviðræðum.Í þessu ítarlega viðtali útskýrir Hilmar hvað varð til þess að hann…
more -
Ólafur Ragnar Grímsson | Kjarni málsins með Helga Bjarna | S01E01 | Þátturinn í heild sinni
Við byrjum á því hvernig heimsmyndin er að breytast og færum okkur þaðan að norðurslóðum, stöðu Íslands og alþjóðlegum viðskipta- og öryggishagsmunum. Síðan ræðum við nýjar atvinnugreinar og tæknibreytingar, meðal annars gervigreind, áður en við endum á Evrópusambandinu og komandi...
-
Hinn raunverulegi kostnaður við aðildarviðræður við ESB | Harmageddon | S04E31
Því er gjarnan haldið fram að aðildarviðræður við Evrópusambandið séu aðeins saklaus leið til að „kíkja í pakkann“. En viðræðurnar eru hvorki hlutlaus könnunarferð né ókeypis. Þær eru umfangsmikið pólitískt og stjórnsýslulegt ferli sem hefur eitt skýrt lokamarkmið: fulla aðild Íslands að ESB.Í...
-
Snærós Sindradóttir „Við myndum finna betur fyrir því að vera rík þjóð í ESB“ | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E49
Snærós Sindradóttir, framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar, mætir í ítarlegt og beinskeytt samtal um Evrópusambandið og þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst.Snærós telur að Íslendingar eigi að segja já við áframhaldandi aðildarviðræðum. Með því sé ekki verið að samþykkja inngöngu í Evrópusambandið...
-
Geir H. Haarde: „ESB-viðræðurnar eru áhættuspil“ | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E49 | Þátturinn í heild sinni
Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, fjármálaráðherra og utanríkisráðherra, sest niður með Frosta Logasyni og ræðir þjóðaratkvæðagreiðsluna um áframhaldandi aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið.Geir telur rangt að stilla kosningunum upp sem áhættulausri leið til að „kíkja í...
-
Hryðjuverkamálið, Quang Le og baráttan um ESB | Sveinn Andri Sveinsson | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E48
Sveinn Andri Sveinsson lögmaður er gestur Frosta Logasonar í Spjallinu.Í fyrri hluta viðtalsins ræða þeir svokallaða hryðjuverkamálið en Sveinn Andri var verjandi annars mannanna sem sakaðir voru um að hafa undirbúið hryðjuverk hér á landi. Málið endaði með sýknu af hryðjuverkaákærunum eftir…
more -
„Ef ég væri Íslendingur myndi ég kjósa nei“ | Carl Baudenbacher um ESB | Spjallið | S04E47 | Þátturinn í heild sinni
Carl Baudenbacher, fyrrverandi forseti EFTA-dómstólsins og einn helsti sérfræðingur Evrópu í EES-rétti, ræðir hér þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og hvað hann telur að raunverulega sé undir.Baudenbacher hafnar þeirri framsetningu að fyrri þjóðaratkvæðagreiðslan snúist aðeins um að „sjá hvað sé…
more -
„Fyrra já-ið er úrslitaatkvæðið“ - Carl Baudenbacher um ESB ferlið | Spjallið með Frosta | S04E47
Carl Baudenbacher, fyrrverandi forseti EFTA-dómstólsins, segir þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst ekki aðeins snúast um að „sjá hvað sé í boði“. Jákvæð niðurstaða myndi setja öflugt pólitískt ferli af stað og gera erfiðara að hafna aðild síðar.Í klippunni ræðir hann sjálfstæði EFTA-stoðarinnar,...
-
Engin trygging | Harmageddon | S04E30
Allt varð vitlaust þegar Ólafur Ragnar Grímsson benti á í viðtali við Brotkast að engin trygging væri fyrir því að sérstök þjóðaratkvæðagreiðsla yrði haldin um lokasamning við Evrópusambandið. Honum var umsvifalaust gefið að sök að ljúga, blekkja og fara rangt með staðreyndir. En þegar hlustað er…
more -
Ólafur Ragnar: „Það má ekki blekkja þjóðina“ | Spjallið með Frosta | S04E46 | Allur þátturinn
Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, sest hér niður með Frosta Logasyni í ítarlegt viðtal um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og þær afleiðingar sem samþykki hennar gæti haft fyrir framtíðarstöðu Íslands.Ólafur Ragnar hafnar því alfarið að Íslendingar geti einfaldlega sagt „já…
more -
Ólafur Ragnar: „Engin trygging fyrir annarri þjóðaratkvæðagreiðslu“ | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E46
Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, segir hugmyndina um „Já til að sjá“ ekki standast þegar eðli aðildarferlis Evrópusambandsins er skoðað.Í viðtalinu segir hann frá nýlegum samtölum sínum í París við fyrrverandi háttsettan embættismann Evrópusambandsins og sérfræðing í málefnum...
-
Oflof verður háð | Harmageddon | S04E29
Viðtal Rest is Politics hlaðvarpsins við Kristrúnu Frostadóttur hefur vakið mikla von í brjósti Já-sinna á Íslandi sem eru orðnir mjög örvæntingafullir eftir einhverri manneskju sem getur mögulega fært einhver sannfærandi rök fyrir aðild Íslands að Evrópusambandinu. En því miður fyrir þetta sama...
-
„Því meira sem menn kynna sér ESB, því meira afhuga verða þeir“ | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E45
Þór Ludwig Stiefel er markaðshagfræðingur með sérmenntun í innri markaði Evrópusambandsins. Undanfarna mánuði hefur hann rannsakað stjórnkerfi, löggjöf og efnahagslega uppbyggingu sambandsins og skrifað um það ítarlega bók sem nú er í undirbúningi.Í viðtalinu ræðir Þór meðal annars um það sem…
more -
Elítu samtrygging | Harmageddon | S04E28
Það stenst enga skoðun að læknir sem ákærður var fyrir manndráp af ásetningi þurfi ekki að fara fyrri dóm vegna þess að hann hafði verið sviptur lækningaleyfi fyrir sömu sök. Það er í raun ekki hægt að skýra þetta öðruvísi en að um einhverskonar elítu samtryggingu sé að ræða. Ef málinu verður…
more -
„Við þurfum ekki að láta bjarga okkur“ | Hermann um ESB og efnahagsmálin | Spjallið | S04E44
Hermann Guðmundsson, framkvæmdastjóri og einn eigenda Kemi ehf., hefur starfað í eigin rekstri í 32 ár og tekist á við gengisfellingar, bankahrun, verðbólgu og fjölmargar efnahagskreppur. Í þessu viðtali ræðir hann stöðu Íslands og Evrópusambandsins frá sjónarhóli reynslumikils...
-
Bakslagið #43 Upphitun fyrir HM
Sverrir Helgason, Jón Þormar, Helgi Bjarnason ræða málin.
-
Narsissískir ofbeldismenn og lögmenn þeirra | Harmageddon | S04E25
Í þætti dagsins fjöllum við meðal annars um hvernig ofbeldismenn eru í raun lítill hluti karla og hvernig enn minni hluti þeirra getur komist upp með að fremja meira en helming af öllum þeim ofbeldisglæpum sem framdir eru. Þá ræðum við einnig um siðleysi lögmanna sem stundum geta framlengt í...
-
Kobeinn um menningarstríðið: „Þetta er pólitík dulbúin sem fræði“ | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E42
Í þessum þætti ræðir Frosti Logason við Kolbein Stefánsson, dósent í félagsfræði við Háskóla Íslands, um hugmyndafræðileg átök sem hafa mótað samfélagsumræðuna á Vesturlöndum á undanförnum árum.Kolbeinn fer yfir hvernig gagnrýnar kenningar (critical theory), póststrúktúralismi og identity…
more -
„Þegar næsta kreppa kemur vil ég að Ísland ráði sér sjálft“ | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E42
Í þessum þætti ræðir Frosti Logason við Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formann Eflingar, um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið.Sólveig Anna útskýrir hvers vegna hún telur að Ísland eigi að segja nei og hafna því að halda viðræðunum áfram. Hún…
more -
Bakslagið #42 - Stefán Einar Stefánsson
Sverrir Helgason, Jón Þormar, Helgi Bjarnason og Stefán Einar Stefánsson ræða málin.
-
Kristján Ingi: „Sönnunarbyrðin er hjá já-liðinu“ | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E40
Þjóðaratkvæðagreiðslan um áframhaldandi aðildarviðræður Íslands að ESB nálgast hratt. En hvað er raunverulega undir? Er Ísland að taka óþarfa áhættu eða mikilvægt skref til framtíðar?Í þessum þætti ræðir Frosti Logason við Kristján Inga Mikaelsson, fjárfesti, annan eiganda MGMT Ventures og einn…
more
About this show
Brotkast er efnisveita þar sem dagskrárgerðarmenn eru óháðir auglýsendum og svara eingöngu til áskrifenda sinna. Þannig bjóðum við upp á heilbrigðari umræðu sem verður ekki nauðbeygð undir háværan hóp róttæklinga á Twitter.Hægt er að kaupa áskrift á brotkast.is þar sem allt efnið er inni með aðeins einni áskrift.
Hosted by
Brotkast ehf.
Categories