Skip to content
Bruggvarpið podcast artwork

PODCAST · arts

Bruggvarpið

by Bruggvarpið Bruggvarp

BruggVarpið er hlaðvarpsþáttur í umsjón Stefáns Pálssonar og Höskuldar Sæmundssonar. Báðir eru þeir áhugamenn um bjór, hafa skrifað bók um bjór, drukkið bjór í meira magni en þeir kjósa að viðurkenna og hafa talað um bjór í áratug að minnsta kosti, hvor um sig.

Publisher-supplied feed metadata · PodParley refreshed Apr 15, 2026 · Source feed

Episodes

  1. S5E02 - Áramótaþynkan

    Strákarnir hrærðu í einn svona aukaþátt, rétt fyrir áramótin. Ýmislegt skeggrætt og skrafað. Hér er smakkaður Bóndalager frá Ægisgarði Frelsislager frá Dokkunni SkyrjarmurSkyrjarmur Ketkrókur Sour jólaglögg - Borg brugghús Röðull rauðöl - RVK Brugg Huginn - RVK Brugg SteðjaKveðja - Collab milli...

  2. S05E01 - Bruggvarpið byrjar á nýjan leik

    Enn og aftur telja piltarnir í Bruggvarpsþátt. Vissulega er langt um liðið síðan síðast og fögur fyrirheit ávalt brostin, en hér er talið í nýtt tímabil fyrir Bruggvarpið. FArið er yfir víðan völl, enda langt síðan síðast. Lagabreytingar, nýjir bjórar, breytingar á Brugghúsamarkaði og allskonar…

    more
  3. S04E09 - Loksins rumskar Bruggvarpið

    Eftir logn, lágdeyðu, lægðir, storma, COVID og rauðar viðvaranir rumskar þetta Bruggvarp loksins. Hér er farið svona létt yfir stöðu mála, hvað hefur gerst síðan síðast og þetta smakkað: Skúli nr. 70 Pale Ale frá Borg Brugghúsi Hver? nr. 10 frá Ölverk Brugghúsi Einstök Arctic Lager frá...

  4. S04E08 - Fyrsti þáttur ársins

    Í þessum fyrsta þætti ársins 2022 er farið yfir helstu áramótahluti hjá strákunum. Áramótaskaupið er skoðað, toppar og lægðir ársins á undan, í bjór og rennt er yfir sölutölur í Vínbúðinni örlítið.

  5. S04E07 - Síðasti jólaþátturinn þetta árið

    Senn líður að tíðum og núna er síðasti jólaþátturinn kominn í hús. Amk þetta árið. Hér er farið yfir ýmislegt, jólin rædd, nýjar sóttvarnaraðgerðir ræddar, og bara allskonar. Fátt mannlegt óviðkomandi þessum strákum. Hér er smakkað Akasleikir frá Borg Drunken Monkey frá RVK brewing Choc HoHo frá...

  6. S4E06 - Annar í jólum

    Hér er dottinn annar þátturinn sem gengur meira og minna útá jólabjór. Strákarnir fara í „djúpa“ greiningu á jólabjóramarkaðinum og kasta fram sleggjudómum eins og þeim einum er lagið. Staðsetningar nýrra Vínbúða og þróun stór-Hlemmsvæðisins rædd. Í þessum þætti var smakkað: Hátíð í bæ frá Múla...

  7. S04E05 - Fyrsti í jólabjórum og hungangsflugan.

    Í ár ætla strákarnir nú ekki alveg að missa sig í jólabjórunum eins og síðast en ætla að smakka allskonar sem þeim finnst skemmtilegt. Hér er farið aðeins yfir jólabjóramarkaðinn, Ora Jólabjórinn smakkaður ásamt HóHóHó tunnuþroskuðum stout frá Ægisgarði. Þá er Hampbjór frá Svaneke brugghúsinu í...

  8. S04E04 - HEimsókn í Bjórland

    Strákarnir fóru að heimsækja Þórgný Thoroddsen hjá Bjórlandi. Þar var ekki í kot vísað og fóru þeir yfir upphaf og mögulegan endi Bjórlands ásamt ýmsu öðru. Í þessum þætti var ýmislegt smakkað, m.a. Raföl frá A6 brugghúsinu á Akureyri, tilraunabjór frá Steðja, Samstarfsverkefni við Ægisgarð og…

    more
  9. S4E03 - Októberfestgrín

    Nú er haustið mætt í allri sinni dýrð og eins og boðað hafði verið fara strákarnir yfir fyrri reynslu sína af Októberfest í Munchen. Þá er farið yfir jólabjórana aðeins, gott grín á kostnað strákanna og jólahlaðborðs strategíur. Í þessum þætti er smakkað: Paulaner Oktoberfest Bier Litla…

    more
  10. S04E02 Lite haust

    Þessi þáttur hefst á óvnjulegum slóðum þegar Lite markaðinum á Íslandi eru gerð smávægileg skil. Þá er farið um víða völl og allskyns smakkað meðan piltarnir velta vöngum yfir lífi og tilveru.

  11. S4E01 - Kosningaviti Bruggvarpsins og netverslanir með áfengi

    Bruggvarpið snýr aftur. Strákarnir setjast aftur við míkrafóninn og röfla eins og þeim einum er lagið. Í þessum þætti er farið aðeins yfir kosningarnar framundan. Höskuldur veltir því fyrir sér með hvaða leiðtoga stjórnmálaflokkanna hann myndi vilja fá sér bjór, með dyggir aðstoð Stefáns. Þá er...

  12. S3E17 - Síðasti þáttur fyrir sumarfrí

    Síðasti reglubundni þáttur sumarsins. Hér var farið aðeins yfir Bjórhátíðina sem að var haldin í Vestmannaeyjum, hjá Brothers Brewery. Þá var farið um víðan völl, meðal annars kíkt aðeins í Brugghús blaðið sem að fylgdi með Fréttablaðinu í loka júní. Hér var smakkað: Djúpið frá Dokkunni…

    more
  13. S3E16 – Innlit á RVK Bruggstofu

    Strákarnir fóru og hittu hann Sigga hjá RVK Bruggfélagi á nýja veitingastað félagsins á Snorrabrautinni. Viðeigandi að þetta var áður ein vinsælasta ÁTVR búðin, en það er önnur saga. Sigurður Pétur Snorrason eða Siggi eins hann er alltaf kallaður fór með strákunum yfir sögu RVK brewing ,...

  14. S3E-Auka1 - Bjórhátíð BB

    Bjórhátíð Brothers Brewery. Það er fjör og strákarnir fóru þangað. Það er of langt mál að telja allt upp sem var smakkað en í staðin var hatíðinni gerð stutt skil á staðnum. Óklippt gleðinu hljómar svo!

  15. S3E15 - Sumarið er tíminn

    Sumarið er tíminn söng maðurinn. Og það er alveg rétt. Sumarið hefur fært okkur þónokkra sumar bjórar sem hér eru smakkaðir. Strákarnir ræða saman um norðurlandið og hvernig Stefán mun taka N1 mótið í sumar. Þá eru bjórhátíðir sumarsins ræddar lítið eitt ásamt því að baráttunni um netverslanirnar...

  16. S3E14 - Snemmbúið sumar eða síðbúið Eurovision... þáttur um allskonar.

    Sumarið er handan hornsins og í stað sólar virðist það koma með vefverslanir og óáfenga bjóra. Hér er farið yfir ýmislegt, byrjað á óáfengum bjórum og svo færa strákarnir sig út um allt borðið. Löng umræða um vefverslanir í áfengi, smá spjall um bjórhátíðir og sitthvað fleira. Hér er smakkað…

    more
  17. S3E13 - Þátturinn um allskonar

    Jæja, það er komið sumar. Loksins. En það er enn COVID, þó það sjái fyrir endann á því. Strákarnir fara hér aðeins yfir stöðuna og fókusa aðeins á sumarbjórana. Smá umræða um allar þessar netverslanir. Hér er smakkað: Slipfrá Smiðjunni í Vík 10 Beers Cream Ale nr. C29 Frá Borg Brugghúsi…

    more
  18. Sumardagurinn þyrsti

    Jæja, það er formlega komið sumar. Sumarbjórarnir eru að komast á kreik og um ýmislegt að spjalla. Ný brugghús skoðuð aðeins og vangaveltur um allskonar íþróttatengingar í bjórnum. Í þessum þætti var smakkað: Bergið Pilsner frá Litla Brugghúsinu Bönní Bönní Bönní Bönní White Ale Cyclopath Pale…

    more
  19. S3E10 - Austurland að Glettingi

    Þegar pósturinn bankar með töskuna fulla af góðgæti var ekki annað hægt en að taka því fagnandi. Upp úr pokanum komu 4 alveg prýðis bjórar sem að strákarnir gerðu góð skil. Austri og Múli eru tvö brugghús með miklar tengingar og flæktar rætur á Austurlandi. Um ýmislegt er spjallað í tengslum við...

  20. S3E9 - Þátturinn með öllum lausnunum...

    Loksins datt þátturinn eftir páska. Enn er COVID að stríða landanum. Strákarnir hittust á laugardagskvöldi aldrei þessu vant og fóru aðeins yfir stöðuna. Ýmislegt rætt, eins og þegar Costco bauð í listun fyrir Stellu í ÁTVR, hvernig leysa má sóttvarnarhótelsvandann, fagleg úttekt á viðrunarvanda...

  21. S3E8 – Páskar og aftur páskar

    Páskaþátturinn er kominn. Hér fara piltarnir aðeins yfir bara stöðuna, ræða eldgos, páskamat og hefðir, veitingastaði og allskonar. Enda fátt mannlegt óviðkomandi. Tengjast páskar einhvernvegin bjór? Í þessum þætti er tekið í smakk en bara frá brugghúsum sem byrja á B: Ljúflingur, Session IPA frá...

  22. Saison 3 - Þáttur 7 - Komdu inn í Kófið mitt, er bylgjan skyggja fer

    Fyrsti þáttur piltanna sem fer líka í myndbandsformi á netið! Sjá á youtube hér: https://www.youtube.com/watch?v=6-S9GQU7Mxs Þessi þáttur var tekinn upp í gegnum fjarfundarbúnað og þegar hann var komin þangað var svo tilvalið að skella honum á netið. Hér er fyrsti þáttur piltanna á netinu í bæði...

  23. S3E6 - Brothers Brewery

    Jóhann Guðmundsson og Hlynur Vídó frá Brothers brewery kíktu í heimsókn í BruggVarpið. Eins og allir vita sem fylgst hafa með Brothers brewery er alltaf gaman þegar þessir „bræður“ koma saman, í heidl eða hluta. Í þessum þætti fóru Höskuldur og Stefán með þeim yfir upphaf, tilurð og tilgang...

  24. S3E5: Bjórinn beint frá býli: Snilld eða Kjaftæði?

    Í þessum þætti fara strákarnir yfir málefni sem tengjast nýlegu frumvarpi um heimild til sölu bjórs frá framleiðslustað. Farið er yfir trend og tölur þegar kemur að neyslu áfengis og eru ýmsar mýtur vegnar og léttvægar fundnar. Hér er hlekkur á umsögn piltanna til Allsherjar- og…

    more
  25. S3E4- Steini Stefáns af allsstaðar!

    Steinn Stefánsson eða Steina á Míkró, Steini á Mikkeller, Steini hjá Kex, STeini hjá KexBrewing, Steini í Ölvísholti og nú Steini í Malbygg kíki til piltanna í því sem einungis verður lýst sem afar fróðlegt spjall. Þessu spjalli var ætlað að verða styttra en þegar gleðin er við völd, er erfitt að...

  26. Saison trippel, þáttur 3 - Þorraþræll og Vínbúð

    Hvað er betra en að pæla aðeins í Þorrabjórum? Drekka þá er svarið, ef einhver var í vafa. Hér er farið aðeins yfir allskonar, meðal annars farið töluvert dýpra ofan í sölutölur Vínbúðarinnar fyrir árið 2020 en gert var í þáttum áður. Þá uppljóstrast gamalt fjölskylduleyndamál frá Siglufirði og...

  27. Saison 3, þáttur 2. Árni Gæðingur

    Árni Ingólfur Halldórsson Hafstað bóndi, tal- og heyrnarmeinafræðingur, bruggari, þúsundþjalasmiður og bareigandi kíkti í heimsókn í Bruggvarpið. Árni Gæðingur eins og hann er alla jafna nefndur í daglegu tali er einn af upphafsmönnum handverksbrugg senunnar á Íslandi og óhætt að fullyrða að hann...

  28. Saison Trippel hefst.

    Nú er komið nýtt ár og það þýðir bara nýr þáttur. Saison Trippel? VAr það of fyrirsjáanlegt? Allavega. Fram undan er ár bjórsins en hér eru strákarnir að koma sér í gang. Farið yfir málin, smánunaleg sem stórvægileg. Ekki töluð vitleysan… framan af. Hér er smakkað: Yuzu Rice Lager - RVK brewing...

  29. Áramót 2020 - Annus Horribilis kvatt með stæl.

    Áramótaþátturinn. Hér er aðeins horft um öxl, klappað á bak og talað um hvað strákarnir hefðu gert betur við móttöku bóluefnisins. Smá tís fyrir næsta ár, en aðallega er tekið fyrir Sæmundur frá Borg, Festivus, samstarfsverkefni Borgar Brugghúss og Mono, Cosmos 20 og 21 frá RVK Brewing og…

    more
  30. Saison 2, þáttur 11: Jólabjórinn lagður!

    Það eina sem er vont við þetta hlaðvarpsform er að geta ekki sett sigurtónlist undir textalýsingar. Kæri hlustandi. Vinsamlegast taktu símann þinn og gúgglaðu “Theme from Rocky”. Þannig líður strákunum núna. Hér er hið ókleifa fjall sigrað og jólabjórinn lagður. Ó já. Hér er farið yfir: Föröja...

  31. Saison 2, Þáttur 10: Þetta er aaaaaaaaalveg að hafast

    Jæja. Ef þetta á að nást verður að fórna öllu sagði maðurinn og tók tappann úr flöskunni. Hættumerki sagði móðir hans og konan dæsti. En við erum Hlaðvarp í almannaþágu. Áfram veginn! Þetta skal hafast... Hér er klárað: Jingle Balls frá Gæðingi Tveir vinir og annar í Jólum Frostrósir frá RVK...

  32. Níu bjórum fyrir jól…

    „Að setja sér raunhæf markmið eykur líkurnar á því að þau náist” sagði markþjálfinn sem strákarnir hafa aldrei hitt. Að smakka alla jólabjórana er að reynast snúið. Er þetta markmið kannski raunhæft? Það allavega saxast á þetta. Hér er farið yfir ein 11 stykki ásamt því að Stefán kemur upp um sig...

  33. Síson 2: Þessi jólabjór klárast aldrei...

    „Þetta er nú meira verkefnið“ dæsti maðurinn og hélt áfram. Það eru orð að sönnu. Eftir smá tafir þá heldur jólasmakkið áfram ótrautt hér í þessum 8. þætti saison 2. Nú eru það Víking Lite Jóla, Jólapakki frá Segli, Jóli Bæjó frá Móa Brugghúsi, Tomorrows Dreams frá Lady Brewing, Halelúja jólabjór...

  34. Saison 2 - Sjöundi þáttur í sjöunda veldi. Jólabjórasmakk af stærri gerðinni…

    Er allt erlent vont? Heldur betur ekki. En það leynist nú allskonar misjafnt inn á milli. Í þessum þætti sem er lengri en góðu hófi gegnir gera strákarnir tilraun til að smakka alla jólabjórana sem til eru frá útlöndum. Dyggir hlustendur vita að strákarnir telja Færeyjar eins og Vestmannaeyjar…

    more
  35. Saison 2: Það þarf ekki alltaf að vera vín.

    Í þessum þætti staldra piltarnir aðeins við, enda augljós áhrif sem þetta smack hefur á heilsuna, skv. Stefáni. Þessi þáttur er smá hliðarskref þar sem að allt óáfengt sem telst til bjórs og hægt er að tengja við jólin og Stefán og Höskuldur fundu, var smakkað. Egils malt, Víking malt, Danskt...

  36. Saeson 2: Almanna varir halda áfram að funda - Jólasmakkið heldur áfram

    Já, þetta trukkast áfram. Reyndar er ótrúlega mikið magn af jólabjór eftir að smakka. Hér halda piltasrnir reyndar áfram og í þessari röð smakka þeir: JólaKalda frá Bruggsmiðjunni Kalda, Grýlu frá Ölverk í Hveragerði, Santas Blue Balls frá Smiðjunni, Vík í Mýrdal, Ekkert sérstaklega jólaleg jól…

    more
  37. Síson tvö: koma samt ekki örugglega jól?

    Eða er þetta kannski Saison Dubbel, þáttur Trippel? Í þessum þætti er aðeins farið yfir stöðuna í bjórheimum, ýmislegt smakkað, eins og Sæmundur frá Borg Brugghúsi, Polychrome frá Mono brewing auk JólaMagnúsar Frúktusar, Ris a la Sour Gose frá Smiðjunni og kolsýrðan Þriðja í jólum frá Böl.

  38. Síson 2: Með Ása uppí erminni

    Það gerðist loksins að þáttur tvö sem hefur tafist af allskonar óáhugaverðum ástæðum, datt á netið. Hér fá strákarnir valinkunnan snilling með sér á þriðja hljóðnemann. Allt rætt milli himins og jarðar. Vínarvalsinn frá Gæðingi smakkaður, Paulaner Októberfest bjórinn, Ottó frá Borg Brugghús og...

  39. Síson 2: Fyrsti þáttur. Böl er líka öl!

    Jæja. Eftir töluverða sumarpásu snúa strákarnir aftur með fögur loforð um betri tíma í farteskinu. Allskonar smakkað, meðal annars Frábært tækifæri frá Lady Brewery og Weihenstephaner ásamt öllu Böl safninu með Böl strákunum. Axel og Hlynur kíktu til okkar í það sem okkur þótti stórskemmtilegt...

  40. Sögulegur Sumarþáttur

    Einn síðbúinn Bruggvarps þáttur sem hafði legið á tunnu og þroskast í einhvern tíma. Þessi þáttur fjallar aðeins um Lady Brewery og hvítvínstunnuþroskaða Skaða. Sögustund með Stefáni þar sem White top bjórævintýrið er rakið. Sjá nánar hér https://timarit.is/page/2520596?iabr=on. Glösin sem Stefán...

  41. Sumarþátturinn fjórði

    Eftir samveru í sitthvoru sóttvarnarhólfinu á N1 fótboltamótinu á Akureyri söknuðu strákarnir hvors annars svo mikið að þeir ákváðu að taka einn léttan sumarþátt. Allskonar rætt, m.a. Bjórböðin hjá Kalda Brugghúsi og Iðnaðarsafnið á Akureyri svo eitthvað sé nefnt. Myndir frá Iðnaðarsafninu eru á...

  42. Einn óvæntur sumarþáttur

    Jæja, það er nýr sumarþáttur. Strákarnir smakka Sigla Humlafley frá Brothers Brewery, Fant, Kysstu mig frá Borg og Flamengo frá Malbygg. Svo lögðust menn í símann og hringdu út og suður. Kjartan Vídó og Simmi Vill svöruðu símanum sínum. Síðasta bjórhátíð gerð upp og aðeins rabbað um fyrirætlanir...

  43. Sumarþáttur númer 2 - Sól í glasi

    Nettur sumarþáttur númer 2. Allskonar skeggrætt og farið yfir. Bríói átti 10 ára afmæli, brugghátíðir sem verða og ekki verða og bjórsmakk. Hvað er meira sumar en það?

  44. Sumarþátturinn fyrsti

    BruggVarpið í kjölfarið á Covid-19 skoðar sumarbjóra. STrákarnir fara yfir stóru myndina, fara yfir bruggið sem þeir hafa gert og smakka svo 5 sumarbjóra. Foli frá Gæðingi, Víking Sumaröl, Naggur sumar session IPA frá Segli 67, Dr. Schepskys passion fruit sour frá Agisgarði og Magnús Fructus frá...

  45. Páskaþáttur Bruggvarpsins.

    Strákarnir gera upp upphafsbruggið aðeins og ræða það næsta. Fyrsta afurðin er síðan smökkuð. Fyrsta bruggið. Og það var ekkert slor. Frábært segja jafnvel sumir. Páskapúki frá Dokkunni, Undraland frá Borg, BunnyBunnyBunnyBunny White ale frá Ægisgarði, tveir vinir og annar í Páskum, páskabjórinn...

  46. Ást á tímum COVID

    Strákarnir komust aftur á bragðið við síðasta þátt en ákváðu að hvíla bruggtækin aðeins. Sest var niður og staðan tekin á okkar allra bestu í bjórheimum. Hvaða áhrif hefur núverandi ástand á bjórheima? Tveir Siggar, einn Óli og Andri til teknir tali. Fréttir af framleiðslunni hjá Kalda…

    more
  47. Loksins, loksins, Bruggið hið fyrsta.

    Eftir áþreifanlega fjarveru strákanna vegan verkfalla, veirufaraldurs og tæknilegrar vankunnáttu er gerð önnur tilraun við það að hefjast handa. Hér hefst bruggið. Hér er ágætt að koma með disclaimer: EF þú hlustandi góður ert nýr að bruggi er þetta ekki þátturinn fyrir þig. Þ.e. þátturinn til að...

  48. BruggVarpið lifir, Hilmir snýr heim, Return of Jedi og aðrir góðir frasar…

    Eftir smá fjarveru snýr BruggVarpið aftur. Þetta eru árdagar þessa hlaðvarps og tæknigeta strákanna eins og áfengislaus bjór, það vantar töluvert uppá. Í þessum þætti taka strákarnir kerfi Vínbúðarinnar til bæna, fara aðeins yfir sölutölur og hvernig verðmyndun bjórs fúnkerar. Þá er Vúlkanía...

  49. Alþjóðavæðing og pólitík

    Hlaðvarpið er alþjóðavætt, Ægisgarður, þýskhreinleikalög og smá umræða um pólitík. Allt sem góður bjórþáttur þarf að hafa.

  50. Bjórklúbbur Advania og stöðugleikinn í Eyjafirði

    Bruggvarpið lullar áfram. Þáttur 2. Allskonar sem ekki hefði átt að fara á netið fær að fljóta sökum leti þess er klippir Bruggvarpið. Skandall. Bjórklúbbur Advania kíkir í heimsókn og tekur spjallið við Stefán og Höskuld, Ölgjörvi smakkaður sem og Stromtrooper. Snúningur tekinn eftir það á Kalda...

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

BruggVarpið er hlaðvarpsþáttur í umsjón Stefáns Pálssonar og Höskuldar Sæmundssonar. Báðir eru þeir áhugamenn um bjór, hafa skrifað bók um bjór, drukkið bjór í meira magni en þeir kjósa að viðurkenna og hafa talað um bjór í áratug að minnsta kosti, hvor um sig.

HOSTED BY

Bruggvarpið Bruggvarp

CATEGORIES

Frequently Asked Questions

How many episodes does Bruggvarpið have?

Bruggvarpið currently has 57 episodes available on PodParley. New episodes are automatically indexed when they're published to the podcast feed.

What is Bruggvarpið about?

BruggVarpið er hlaðvarpsþáttur í umsjón Stefáns Pálssonar og Höskuldar Sæmundssonar. Báðir eru þeir áhugamenn um bjór, hafa skrifað bók um bjór, drukkið bjór í meira magni en þeir kjósa að viðurkenna og hafa talað um bjór í áratug að minnsta kosti, hvor um sig.

How often does Bruggvarpið release new episodes?

Bruggvarpið has 57 episodes. Check the episode list to see recent publication dates and frequency.

Where can I listen to Bruggvarpið?

You can listen to Bruggvarpið on PodParley by clicking any episode. We provide an embedded audio player for direct listening, and you can also subscribe via your preferred podcast app using the RSS feed.

Who hosts Bruggvarpið?

Bruggvarpið is created and hosted by Bruggvarpið Bruggvarp.
URL copied to clipboard!