PODCAST · education
Brúðkaup og smáatriðin
by Alina Vilhjálmsdóttir
Ert þú að fara að gifta þig? Veist ekkert hvenær þú munt gifta þig, búin að gifta þig eða elskar kanski bara að spá í öllu sem kemur að brúðkaupum? Sama hver þú ert mun þetta hlaðvarp gefa þér innsýn inn í heim brúðkaupsgeirans og hjálpa þér að sigla áhyggjulaust í gegnum hann. Ég heiti Alína og rek brúðkaupsskipulags- og skreytingar fyrirtækið Og smáatriðin. Markmið mitt er að veita þér innblástur, gefa þér innsýn inn í brúðkaupsskipulagsferlið og hjálpa þér að láta drauma brúðkaupið þitt verða að veruleika.
Episodes
-
Hversu mikið áfengi þarftu fyrir brúðkaupið þitt? [S3E32]
Ertu óviss hversu mikið áfengi þú þarft fyrir stóra daginn þinn? Í þessum solo þætti vildi ég deila með ykkur minni þekkingu á áfengi og magni þess svo að áfengið klárist ekki allt of snemma. Við förum yfir magn miðað við tíma, hvaða reglur gilda almennt um fjölda drykkja í fordrykk, með kvöldmat...
-
Hvernig á að gera daginn að sínum með Silju [S3E31]
Ég ræddi við Silju um mikilvægi þess að gera daginn að sínum og fara sínar eigin leiðir. Hún skipulagði daginn sinn sem var fullt af smáatriðum sem endurspegluðu þau sem par. Eins og sérhannað skilti, vintage köku diskar, blúndur og fullt fleira. Svo falleg skilaboð í þessum þætti sem allir ættu…
more -
Allt um vín með Heiðrúnu Sommelier [S3E30]
Tókum spjallið með Heiðrúnu sem er vínsérfræðingur og heldur uppi Tiktokinu Heidrunvinkona og rekur fyrirtækið Vínvísar - www.vinvisar.is þar sem hægt er að bóka vínsmakk fyrir hópa. Við ræddum allt það helsta sem kemur að vínum og vonandi finnst ykkur þetta jafn fræðandi og skemmtilegt og mér....
-
DIY brúðkaup fullt af smáatriðum með Kristínu [S3E29]
Tökum spjallið við hana Kristínu sem skipulagði skemmtilegt og skrautlegt brúðkaup fullt af smáatriðum með 2 börn og vinnu. Veislan var haldin í Félagsgarð í Kjós og það var smíðað sér sætaskipan stand, boðskort og keypt inn 200 vasa. Þetta er sjón að sjá og hægt er að fylgja henni hér:...
-
Töfrandi brúðkaup í kastala með Ragnheiði [S3E28]
Hér sest ég niður með henni Ragnheiði sem gifti sig ásamt manninum sínum í KASTALA í Írlandi. Þetta var svo sannarlega eins og saga úr ævintýri með fairy godmother, kórónu og draumakjól. Við ræddum líka praktísk atriði og hvað það kostar að gifta sig í kastala. Mjög skemmtilegur þáttur og vonandi...
-
Allt um hár með Kötu frá Sprey [S3E27]
Þessi þáttur er möst til að hlusta á þó að hljóðið er pínu ónýtt mín megin. Hér fer Katrín Sif yfir allt sem er mikilvægt að vita um hárumhirðu og hár þegar kemur að brúðkaupsgreiðslunni. Ég lærði svo margt og ég veit að þú munt gera það líka. You do you merkið sem Kata nefndi með fallegu...
-
Planaði brúðkaup á 3 mánuðum með Simona [S2E26]
Spjölluðum við Simona sem sagði okkur allt um brúðkaupið sitt sem hún planaði á 3 mánuðum svo það gæti verið á brúðkaupsafmælinu þeirra. Fullt af ráðum um það hvernig maður getur notið sín á deginum og ekki verið að stressa sig á littlu hlutunum. ------- Upplýsingar um Og Smáatriðin Ef þú ert með...
-
Skiptir maturinn máli með Bjarna frá Nomy Veisluþjónustunni [S2E25]
Í þessum skemmtilega þætti tölum við um allt sem kemur að mat með honum Bjarna frá Nomy en þeir eru búnir að vera í þessum bransa lengi og sérhæfa sig í veisluþjónustu og geggjuðum mat. Við skyggnumst á bakvið tjöldin og fáum ráð um hvað skiptir máli þegar kemur að því að velja mat fyrir…
more -
Skreytinga spjall með Láru frá Skreytingaþjónustunni [S2E24]
Geggjað skemmtilegt viðtal við hana Láru frá Skreytingaþjónustunni þar sem við ræðum hvernig hún byrjaði í þessu öllu og hversu mikil vinna það fer í það að skreyta sal. Einnig gefur hún okkur góð ráð sem koma að skreytingum og hvað er gott að hafa í huga þegar þú ert að skreyta þinn eigin sal....
-
Allt um kokteila með Ivani frá Reykjavik Cocktails [S2E23]
Tölum við hann Ivan frá Reykjavik Cocktails um allt sem kemur að kokteilum í brúðkaupum, hvað er gott að hafa í huga, hvers vegna það skiptir máli og fáum að skyggnast á bakvið tjöldin og heyra um alla littlu hlutina sem fer í það að stylla upp kokteila bar í veislu. Þetta er geggjaður þáttur og…
more -
Allt um brúðkaupsvefsíður [S2E22]
Mig langaði að tala við þig um brúðkaupsvefsíður og mikilvægi þeirra, afhverju ég er svona hrifin af þeim og það mikilvæga, hvað á að vera í þeim. Ég fer vel yfir allar upplýsingar sem er gott að hafa á vegsíðunni ykkar, hvað þið gætuð bætt við og munurinn á vefsíðunni og Facebook. Einnig deili…
more -
Söngur í athöfninni með Ingu Maríu [S2E21]
Í þessum skemmtilega þætti talaði ég við hana Ingu Maríu sem er söngkona um allt sem kemur að söng í athöfninni og fullt fleirra. Hún gefur okkur góð ráð um það hvað er gott að huga að þegar verið er að velja lag í athöfnina, hverskonar lög er gott að vera með, ferdlið hennar og fullt fleirra....
-
Það sem ég lærði á mínu fyrsta ári sem brúðkaupsplanari [S2E20]
Þá er sería TVÖ gengin í garð, en þið munið fá sömu góðu þættina og skemmtilegu viðtölin við áhugaverða söluaðila og brúðhjón sem deila sinni reynslu og brúðkaupsdegi. Eini munurinn er hversu oft ég get lofað mér að koma út með þætti, en ég mun ekki lengur gefa út einn þá í hverri viku heldur…
more -
Tölum um brúðkaupsathafnir [S1E19]
Ég vildi tala við þig um allt sem kemur að athöfnum, eins og að plana tímalínuna, hvernig þú getur haft athöfnina meira persónulega og gefa þér hugmyndir af athöfnum og stöðum sem þú hefur kanski ekki pælt í bæði í kirkju og á öðrum stöðum. Láttu mig vita ef þér fannst þetta ganglegt eða ef það…
more -
Allt um brúðartertur með Evu Maríu frá Sætum Syndum [S1E18]
Við tökum spjall með Evu Maríu frá Sætum Syndum en hún er búin að vera að reka fyrirtæki í 9 ár og er komin með 2 útibú. Hún er að sérhæfa sig í glæsilegum kökum og eftirréttum. Við spjöllum saman um upphaf hennar í rekstrinum, hvernig hugmyndin að Sætum Syndum varð til ásamt því að gefa þér...
-
5 tól sem þú þarft í skipulagsferlinu [S1E17]
Maður þarf að meðhöndla svo mikið af skjölum, allskonar efni og plön þegar maður er að skipuleggja brúðkaup og það geta farið margir tímar í það að finna hluti sem eru hér og þar. Til að stytta þér tíma og auðvelda líf þitt vildi ég deila með þér 5 tólum sem munu hjálpa þér að skupuleggja þig og...
-
Hvað gerir brúðkaupsljósmyndari með Gunnhildi Lind? [S1E16]
Við tökum spjall með Gunnhildi Lind sem er fjölskyldu og brúðkaups ljósmyndari um hvernig það er að vera ljósmyndari, hvað fellst í starfinu og afhverju það skiptir máli. Einnig ræðum við aðeins um góð samskipti og fagið sjálft og gefur þér innsýn inn í orðalag og hugtök sem gott er að vita....
-
Velkomin í Brúðkaup og Smáatriðin
Velkomin í littla hljóðplássið mitt sem er Brúðkaup og smáatriðin þar sem við ræðum um allt sem við kemur brúðkaupum. Ég heiti Alína og er fyrrum brúði og áhugamaður um brúðkaup sem gerðist brúðkaupsplanari og held nú uppi þessu hlaðvarpi til að hjálpa þér og fræða þig um allt sem snertir brúðkaup.
-
Eftirsjá [S1E15]
Þó ég sé alltaf að reyna að vera uppbyggjandi og peppandi þá held ég að það sé líka verðmætt að læra af reynslu annara og spá í hvað fólk er að sjá eftir að hafa gert þegar brúðkaupsdeginum líkur. Því við eigum oft erfitt með að fjárfesta í ákveðna hluti og teljum þá kanski ekki mikilvægara eða...
-
3 daga brúðkaup á Siglufirði með Guðrúnu Ingibjörgu [S1E14]
Í þessum þætti fáum við geggjaða innsýn inn í daginn þeirra Guðrúnar og Hauks sem giftu sig á Siglufirði seinasta sumar. Hún er með einstaka reynslu þar sem ég skipulagði daginn þeirra og sá um bréfsefnið. Þeim langaði að gifta sig á Ítalíu en faraldurinn kom í veg fyrir það svo þau tóku Ítalíu…
more -
Allt um brúðkaupsboðskortið [S1E13]
Við tökum spjall með eiganda Andartaksins aka ég 😉 þar sem við förum yfir allt sem þú þarft að vita um boðskort, taktu daginn frá kort of fleirra. Við spjöllum um hvernær er best að senda kortin, hvað á að vera í þeim og líka allskonar góð ráð ef þú ert að plana að hanna þitt eigið. Ef þú vilt...
-
Hverskonar athöfn vilt þú halda með Ingu Auðbjörg frá Siðmennt [S1E12]
Þessi þáttur kafar djúpt í athafnir og mikilvægi þeirra, hvað er gott að hafa í huga, tímalína athafnarinnar og hvaða táknræn atriði er hægt að vefja inn í athöfnina ykkar til að gera hana meira persónulega og einstaka. Inga vinnur sem athafnarsstjóri hjá Siðmennt og leyfir okkur líka að kíkja á...
-
Hringborð eða Langborð [S1E11]
Stuttur þáttur um það heita málefni sem er, ætti maður að vera með hringborð eða langborð? Hér fer ég vel yfir mál borða, hver er kosturinn og gallarnir við hverja borðategund og spái í allskonar hlutum sem þú hefur kanski ekki pælt um. Ef að þig langar að rökræða þetta frekar endilega sendu mér...
-
Hvernig er best að skipuleggja sitt eigið brúðkaup með Andreu Ísleifs [S1E10]
Spjöllum við hana Andreu um allt ferðalagið hennar í gegnum brúðkaupsskipulagsferlið er hún skipuleggur sitt eigið brúðkaup frá A til Ö með hjálp vina og vandamanna auðvitað. Þau hjónin smíðuðu sína eigin kassa, pöntuðu allar skreitingarnar að utan, hönnuðu allt bréfsefnið sjálf og enduðu svo á…
more -
Hvernig á að framkvæma Pinterest brúðkaup drauma sinna [S1E09]
Við ætlum að tala um allt sem kemur að Pinterest, hvernig er hægt að nýta sér þann miðil sem best, hvernig á að leita og fá hugmyndir, skipulag þar inni og margt fleirra. Í þessum þætti er ég algjörlega opinn bók og segi þér frá öllum leyndarmálum mínu, hvað ég geri og hvernig ég geri það til að...
-
Spjöllum um brúðkaupsskartið með Elísu frá Mjöll [S1E08]
Í þessum þætti spjöllum við um allt sem þú þarft að vita þegar kemur að brúðkaupsskarti. Við förum yfir það hvernig ferlið lítúr út, hvað þarf að hafa í huga við val, verð mun á málmum og hvaða steinar eru í boði þegar kemur að trúlofunarhringjum. Öll pör sem eru að fara að gifta sig þurfa...
-
Hvaða þarf að hafa í huga þegar verið er að velja sal? [S1E07]
Ef þú ert að fara að gifta þig þá þarftu sal undir veisluna en hvaða sal ættir þú að velja og hvaða spurningar þarftu að vera vera viss um að spyrja? Við förum saman yfir allskonar sala pælingar, hvaða þarf að huga að, hvaða spurningar þarftu að spyrja og fullt fleirra. Þú vilt ekki vera með of...
-
Vilt þú umhverfisvænan brúðarkjól með Eyrún Birnu frá Bloom [S1E06]
Geggjað spjall við hana Eyrún Birnu sem er algjör galdrakona þegar kemur að umhverfisvænum og þæginlegum brúðarkjólum. Við ræðum við hana hvernig hún fór út í þennan feril, hvernig er hægt að vera meira umhverfisvænn á brúðkaupsdaginn þegar kemur að kjólnum og fullt fleirra. Kjólar hennar hafa...
-
Förum yfir brúðkaupstímalínuna [S1E05]
Það mikilvægasta við að skipuleggja brúðkaup er að vera skipulagður og ég veit að það helsta sem flestir spyrja út í er brúðkaupstímalínuna eða hvenær á maður að gera hvað til að vera viss um að ná öllum söluaðilunum sem manni dreymir um að ráða og langar að hafa á brúðkaupsdeginum sínum. Þess...
-
Brúðkaupið á Borgarfirði eystra með Vigdísi Diljá [S1E04]
Þessi þáttur er stútfullur af frábærum ráðum, fyndnum sögum og skemmtilegum uppákomum. Vigdís Diljá segir okkur frá öllu sem komst í einn þátt, sem gerðist á brúðkaupsdaginn þeirra þann 14. ágúst 2021, sem var haldinn á Borgarfirði eystra. Vigdís Diljá er 27 ára landbyggðar tútta sem er mikið á...
-
10 ráð til að skapa drauma brúðkaupið þitt [S1E03]
Ég veit að okkur langar öllum að skapa drauma brúðkaupið okkar og í þessum jam packed þætti fer ég yfir 10 hluti sem ég held að muni hjálpa þér að skapa drauma brúðkaupið þitt. Við ræðum hvað fólks sér oft eftir að hafa slept, hvað er gott að hafa í huga og hvað skiptir raunverulega máli...Pss…
more -
Hvað gerir blómaskreytir með Dísu frá Luna studio [S1E02]
Hefur þú einhverntíman spáð í því hvað blómaskreytir gerir og hvað starf þeirra inniheldur? Í þessum þætti sest ég niður með henni Eydísi frá Luna Studio og við gröfum djúpt í það hvað það þýðir að vera blómaskreytir, hvað þarf að hafa í huga og gefur þér nokkur góð ráð fyrir brúðkaupsdaginn þinn...
-
Það sem ég lærði af brúðkaupinu mínu [S1E01]
Það var svo ótrúlega margt sem ég lærði af mínu eigin brúðkaupi enda var ég eins og þú að gera þetta í fyrsta sinn og vissi lítið um þennan bransa, hvað væri gott að gera og hvaða hlutir taka langan tíma. Ég vildi deila því með þér hvað ég lærði og gerði og hvað ég hefði viljað gera öðruvísi....
We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
ABOUT THIS SHOW
Ert þú að fara að gifta þig? Veist ekkert hvenær þú munt gifta þig, búin að gifta þig eða elskar kanski bara að spá í öllu sem kemur að brúðkaupum? Sama hver þú ert mun þetta hlaðvarp gefa þér innsýn inn í heim brúðkaupsgeirans og hjálpa þér að sigla áhyggjulaust í gegnum hann. Ég heiti Alína og rek brúðkaupsskipulags- og skreytingar fyrirtækið Og smáatriðin. Markmið mitt er að veita þér innblástur, gefa þér innsýn inn í brúðkaupsskipulagsferlið og hjálpa þér að láta drauma brúðkaupið þitt verða að veruleika.
HOSTED BY
Alina Vilhjálmsdóttir
CATEGORIES
Loading similar podcasts...