Skip to content
Dagbók Urriða podcast artwork

Dagbók Urriða

by Ólafur Guðbjartsson

Veiðispjall, fróðleikur, tímaferðalög, veiðisögur og annað til að drepa tímann.

From the show's RSS feed, refreshed May 14, 2023. Source feed.

Subscribe Bookmark

Episodes

  1. Dauði bleikjunnar. (Gamall Patreon þáttur)

    Í þessum þætti skoðum við hnignun bleikjunnar. Hvað er að gerast? Það veit enginn fyrir víst, en nokkrar líklegar kenningar eru á sveimi. Við gerum það eina sem við getum og rýnum í tölur, veður og sjó og finnum óvænta samnefnara. Þessi þáttur er nokkuð þungur nördalega.

  2. Þurrfluguveiði með Óla Caddisbróður. (Gamall Patreon þáttur)

    Í þessum þætti fáum við Ólaf Ágúst Haraldsson (Óli Caddisbróðir) í spjall og tölum um listina að veiða á þurrflugu.

  3. Dagur Árni - Allt um straumflugur fyrir stóru fiskana. (Gamall patreon þáttur)

    Í þessum þætti heyrum við í Dag Árna og lærum mikið um stórar straumflugur og þá tækni sem býr að baki því að ná þessum stóru fiskætum. Við spjöllum líka um Kaliforníu og þær hættur sem leynast þar í veiðinni. Virkilega skemmtilegur þáttur sem mikið er hægt að læra af.

  4. Maðurinn með hornsílin. (Gamall Patreon þáttur)

    Í þessum þætti spjöllum við Tryggvi Guðmundsson um ýmislegt í veiðinni. Tryggvi hefur starfað við jöklaleiðsögn til fjölda ára en er einnig sjúkur veiðimaður og náttúrubarn. Tryggvi nemur nú líffræði við Háskóla Íslands. Við skoðum Arnarvatnsheiði, pöddur, fluguhnýtingar, sýkingar í fiskum og...

  5. Caddisbræður

    Í þessum þætti komu þeir Caddisbræðir, Óli og Hrafn í spjall. Þeir bræður eru með færustu þurrfluguveiðimönnum landsins og einstaklega mikil náttúrubörn. Þeir eru líka afskaplega skemmtilegir menn og fróðir. Mjög skemmtilegt spjall, þar sem mikið er hlegið.

  6. Frændaspjall - Elías Pétur Þórarinsson Viðfjörð.

    Hann Elías Pétur kom í langt og skemmtilegt spjall. Við fórum um víðan völl. Urriða,bleikju og laxveiði, Fuss félag, sjókvíaeldi og yfir í að spjalla um móahægðir veiðimanna. Skemmtilegur þáttur.

  7. Einveran og austurland.

    Í þessum þætti tölum við aðeins um þá iðju að veiða einn. Einnig læt ég loksins verða af því að kynna mér silungsveiðina á austurlandi með hjálp góðs gest. Jón Þór Tryggvason er gestur minn í þessum þætti.

  8. Galdraflugan og brennuöldin á Íslandi.

    Í þessum þætti leitum við svara hversvegna Bibio Pomonae er kölluð Galdrafluga. Sú leit tekur okkur til baka um tæp 400 ár þar sem ár og vötn eru yfirfull af fisk og Íslendingar voru brenndir á báli. Þessi er nokkuð sagnfræðiþungur. Fulla útgáfu má finna á patreonsíðu Dagbókar urriða.

  9. Jónas og arfurinn.

    Í þessum þætti leiðbeinum við honum Jónasi um silungsveiðina á Íslandi. Jónas er byrjandi sem verður að veiða 5 punda silung og eða 5 vænar bleikjur á innan við sólarhring til þess að erfa moldríkan föður sinn. Vandamálið er að Jónas á aðeins tvær flugur og engan pening. En við hjálpum honum í...

  10. Dagbók Urriða - Hin rotnandi hætta.

    Í þessum þætti skoðum við Hnúðlaxinn. Hvað er þessi afturgöngufiskur að vilja okkur. Hvaðan kemur hann og hversvegna. Við förum vandlega í málið.

  11. Truflaðir veiðimenn - Hólmsá (frír Patreonþáttur)

    Við skoðum Hólmsá, Bugðu og það frábæra vatnakerfi sem er fyrir ofan Elliðavatn í þessum þætti. Grúskum í sagnfræði og heyrum í Sævari Snorrasyni veiðiverði og veiðimanni.

  12. Grímsá og nágrenni - Dagbók urriða.

    Við skoðum ýmislegt í þessum þætti. Bjarni Sæmundsson skoðar Reyðarvatn, Hreðavatn og Langavatn. Við laumust til þess að skoða Grímsá, Vatnsdalsá og margt fleira skemmtilegt. Til ykkar sem viljið styrkja þessi hlaðvörp. www.Patreon/dagbokurrida

  13. Truflaðir veiðimenn - Ep2 - 1992 - Patreon þáttur - frír

    Við ferðumst aftur til 1992 og skoðum veiðina þá. Eftir þá samatekt heyrum við í einstaklega færum veiðimanni og spyrjum hann spurninga þáttarins. Þessir þættir fara inn á lokaðan Patreonreikning eftir þennan þátt. Hjálpið mér að standa í þessu með því að styrkja mig um "hamborgara" á mánuði á...

  14. SKORRADALUR - SKRÍMSLI - SLEPPINGAR -SLYS

    Við skoðum Skorradalsvatn árið 1898. Einnig leyfum við okkur að ferðast fram og til baka og snerta aðeins á sögunni á svæðinu. Við skoðum veiðina og þær breytingar sem átt hafa sér stað þar undanfarna áratugi.

  15. Truflaðir veiðimenn - Ep1 -1981 Patreon þáttur (frír)

    Truflaðir veiðimenn eru hlaðvarpsþættir um veiði og sagnfræði sem í framtíðinni verða aðeins aðgengilegir í gegnum Patreon-síðu Dagbókar urriða. Í þáttunum stillum við tímavél og ferðumst aftur í tímann og skoðum einstaka ár í veiðinni á Íslandi, ásamt því að hringja í allskonar veiðimenn, trufla...

  16. Furðuverur og skrímsli í Kleifarvatni.

    Við skoðum Kleifarvatn bæði árin 1750, 1896 og 2021 og rekumst á furðuverur og skrímsli sem við þurfum að útskýra.

  17. Selvogur.

    Við Bjarni skoðum Hlíðarvatn í Selvogi og nágrenni. Hittum höfuðskáld, útlagarollu og spjöllum við snjallann veiðimann um kuðunga, flugur, bellybáta ofl.

  18. Undir jöklum.

    Við ferðumst undir jöklum á svörtum söndum og skoðum allt sem við getum frá Skógá að Meðallandi. Hér er nóg af furðulegum hlutum. Þeir voru furðulegir 1896 og eru það enn í dag.

  19. Þjórsá 1896

    Brúarsmiðurinn Mark veiðir fyrstur manna lax á stöng í Urriðafossi. 23 punda lax veiðist í Ytri Rangá og menn gapa yfir því að lax finnst þar. Þykkbæingar ráðast í mestu handavinnu íslandssögunnar. Stærsti laxastofn íslands verður til. Við skoðum Þjórsá og nágrenni með Bjarna Sæmundssyni 1896.

  20. Varmá og nágrenni 1896

    Dagbók Urriða og Bjarni Sæmundsson skoða Varmá árið 1896. Einnig Hestvatn, Apavatn, Laugarvatn, nokkrar ár og leynivatn uppá fjalli. Sérstakur gestur í spjalli er Árni Kristinn Skúlasson.

  21. Þingvellir 1896.

    Við ríðum með Bjarna Sæmundssyni til Þingvalla árið 1896 og skoðum fiskana, veiðimennina og dýralífið. Við stillum síðan tímavélahestinn okkar aftur til ársins 2020 og berum saman ólíka tíma og veiðisögur verða sagðar.

About this show

Veiðispjall, fróðleikur, tímaferðalög, veiðisögur og annað til að drepa tímann.

Hosted by

Ólafur Guðbjartsson

Categories

Frequently asked questions

How many episodes does Dagbók Urriða have?

Dagbók Urriða has 21 episodes on PodParley. The most recent episode was published on November 9, 2023.

What is Dagbók Urriða about?

Veiðispjall, fróðleikur, tímaferðalög, veiðisögur og annað til að drepa tímann.

How often does Dagbók Urriða release new episodes?

Dagbók Urriða publishes about every 54 days, based on its 21 episodes since December 2020.

Who hosts Dagbók Urriða?

Dagbók Urriða is created and hosted by Ólafur Guðbjartsson.
Link copied