Skip to content
Dagbók urriða - Truflaðir veiðimenn - Áskrift. podcast artwork

Dagbók urriða - Truflaðir veiðimenn - Áskrift.

by Dagbók urriða

Patreon-sería Dagbókar urriða. Í Trufluðum veiðimönnum skoðum við einstök ár í sögu stangveiða á Íslandi ásamt því að trufla veiðimenn í gott spjall.

From the show's RSS feed, refreshed Jul 27, 2024. Source feed.

Subscribe Bookmark

Episodes

  1. Ferðast um landið 3

    Við klárum nú að skoða þá veiðistaði sem ég hef kastað í á landinu okkar. Förum frá Skagaheiðinni alla leið yfir að Þingvöllum.

  2. Ferðast um landið #2

    Við ferðumst áfram um Ísland og heimsækjum hvern einasta veiðistað þar sem ég hef veitt í. Allt frá heimsþekktum svæðum yfir í skolprör og drullupolla. Já ég hef víða farið :)

  3. Á ferð um landið.

    Við ferðumst um Ísland og heimsækjum hvern einasta veiðistað þar sem ég hef veitt í. Allt frá heimsþekktum svæðum yfir í skolprör og drullupolla. Já ég hef víða farið :)

  4. Dagbók urriða - Tossalistinn.

    Í þessum þætti förum við saman yfir fjölmörg atriði sem ég hef verið að gera rangt í veiðinni undanfarin ár og mögulega þið líka. Það er þó ekkert rétt eða rangt í veiði, eins lengi og veiðimenn og konur hafa ánægju af...og já að aðferðirnar séu löglegar.

  5. Sumarið 2023.

    Við skoðum veiðisumarið 2023 og hvernig það tók á móti mér. Einnig fáum við nokkur fróðleg innskot frá Hrafni Ágústssyni Caddisbróður.

  6. Regnbogasilungur

    Í þessum þætti tölum við aðeins og vorið sem stendur yfir. Heyrum í Elíasi Pétri Viðfjörð, sem víða hefur farið í vor og skoðum síðan sögu regnbogasilunga á Íslandi, svona í ljósi þess sem er að gerast í Minnivallalæk.

  7. Þurrfluguveiði með Óla Caddisbróður.

    Í þessum þætti fáum við Ólaf Ágúst Haraldsson (Óli Caddisbróðir) í spjall og tölum um listina að veiða á þurrflugu.

  8. Dauði bleikjunnar.

    Í þessum þætti skoðum við hnignun bleikjunnar. Hvað er að gerast? Það veit enginn fyrir víst, en nokkrar líklegar kenningar eru á sveimi. Við gerum það eina sem við getum og rýnum í tölur, veður og sjó og finnum óvænta samnefnara. Þessi þáttur er nokkuð þungur nördalega.

  9. Dagur Árni - Allt um straumflugur fyrir stóru fiskana.

    Í þessum þætti heyrum við í Dag Árna og lærum mikið um stórar straumflugur og þá tækni sem býr að baki því að ná þessum stóru fiskætum. Við spjöllum líka um Kaliforníu og þær hættur sem leynast þar í veiðinni. Virkilega skemmtilegur þáttur sem mikið er hægt að læra af.

  10. Tryggvi Guðmundsson - Maðurinn með hornsílin.

    Í þessum þætti spjöllum við Tryggvi Guðmundsson um ýmislegt í veiðinni. Tryggvi hefur starfað við jöklaleiðsögn til fjölda ára en er einnig sjúkur veiðimaður og náttúrubarn. Tryggvi nemur nú líffræði við Háskóla Íslands. Við skoðum Arnarvatnsheiði, pöddur, fluguhnýtingar, sýkingar í fiskum og...

  11. Nördaslagur - fyrsta umferð.

    Í þessum þætti reyni ég að hefna fyrir tap mitt í veiðipubquiz-i fyrir viku síðan. Þar tapaði ég naumlega fyrir líffræðing og veiðinörd. Ég þurfti að reyna að jafna leikinn og setti upp veiðinördabardaga í beinni. Danner Vs Dagbókin. Þessi er lærdómsríkur.

  12. Eldgos og laxfiskar.

    Við skoðum áhrif eldgosa á fiskana sem við elskum að veiða. Ferskvatnsfiskstofnar á Íslandi hafa þurft að þola ýmislegt þau 11.500 ár sem þeir hafa búið hér. Við skoðum samspil eldgosa og fiskdauða á Íslandi.

  13. Þar sem tröllin búa.

    Í þessum þætti skoðum við einstaka náttúruparadís sem fyrir veiðimanninn, væri líklega best að lýsa sem furðulegri. En þar finnast þó líklega stæðstu bleikjur á Íslandi. Fáum einnig til okkar skemmtilegan gest til að fara yfir málið.

  14. Sjóbirtingur í Danmörku og vinsæl veiðiperla á Íslandi.

    Í þessum þætti spjöllum við örlítið meira um fluguveiði í sjó. Við fáum til okkar gest sem keppir í slíkri veiði og er sá eini sem ég þekki sem gerir slíkt. Hann hefur víða veitt á Íslandi einnig og fræðir okkur um okkar helstu perlu.

  15. Silungur í sjó.

    Nú skoðum við veiðar á silung í sjó. Eitthvað sem við Íslendingar gerum lítið af. Í það minnsta minna en frændur okkar á norðurlöndum. En er mögulega ástæða fyrir því? Fáum til okkar góðan gest sem þekkir veiðar á sjógöngusilung í sjó vel.

  16. Veiðin á Íslandi 1752 - 3 hluti.

    Þá ljúkum við ferðalagi okkar með þeim Eggerti Ólafssyni og Bjarna Pálssyni um Ísland milli 1752-1757. Við skoðum veiðina á austurlandi og suðausturlandi. Finnum risableikjur í jökullóni, drepum síðastu tvo Geirfuglana, sjáum geysi gjósa og rannsökum hvernig Sogið gat horfið í einn dag.

  17. Veiðin á Íslandi 1752 - 2 hluti.

    Við höldum áfram að ferðast með þeim Eggerti Ólafssyni og Bjarna Pálssyni um Ísland milli 1752-1757. Við skoðum hvernig veiðin var þá og síðan hvernig hún er í dag.

  18. Veiðin á Íslandi 1752

    Í þessum þætti förum við enn á ný í tímavélina og núna alla leið til ársins 1752. Þar sláumst við í för með Eggerti Ólafssyni og Bjarna Pálssyni á ferð þeirra um Ísland. Við ignorum nánast allt sem þeir sjá, nema laxfiska og veiði. Við berum svo saman hvernig staðan á þeim svæðum sem skoðuð eru…

    more
  19. Kjötiðnaðarmaðurinn Hjörvar Jóhannesson.

    Í þessum þætti spjalla ég við Hjörvar Jóhannesson. Hjörvar er kjötiðnaðarmaður frá Akureyri. Hann er veiðisjúklingur eins og við flest en þó ekki aðeins á sumrin. Hjörvar veiðir töluvert í gegnum ís um vetur og veit sitthvað um hvítmaðk. Við förum um víðan völl í spjalli okkar.

  20. Að gera veiðiþætti.

    Í þessum sóló þætti, fer ég yfir reynslu mína af gerð veiðimyndbanda og þátta. Skyggnumst aðeins bakvið tjöldin á gerð þáttana Dagbók urriða. Þetta er jólaþáttur, svo ég óska ykkur gleðilegra jóla og þakka ykkur fyrir liðið ár :)

  21. Caddisbræður.

    Ég fékk þá Óla og Hrafn, betur þekkta sem Caddisbræður í skemmtilegt spjall. Það var víða farið og mikið hlegið. Silungsveiðin alla leið.

  22. Frændaspjall - Elías Pétur Þórarinsson Viðfjörð.

    Hann Elías Pétur kom í langt og skemmtilegt spjall. Við fórum um víðan völl. Urriða,bleikju og laxveiði, Fuss félag, sjókvíaeldi og yfir í að spjalla um móahægðir veiðimanna. Skemmtilegur þáttur.

  23. Einveran og austurland.

    Í þessum þætti tölum við aðeins um þá iðju að veiða einn. Einnig læt ég loksins verða af því að kynna mér silungsveiðina á austurlandi með hjálp góðs gest. Jón Þór Tryggvason er gestur minn í þessum þætti.

  24. Galdraflugan og brennuöldin á Íslandi.

    Í þessum þætti leitum við svara hversvegna Bibio Pomonae er kölluð Galdrafluga. Sú leit tekur okkur til baka um tæp 400 ár þar sem ár og vötn eru yfirfull af fisk og Íslendingar voru brenndir á báli. Þessi er nokkuð sagnfræðiþungur.

  25. Jónas og arfurinn.

    Í þessum þætti leiðbeinum við honum Jónasi um silungsveiðina á Íslandi. Jónas er byrjandi sem verður að veiða 5 punda silung og eða 5 vænar bleikjur á innan við sólarhring til þess að erfa moldríkan föður sinn. Vandamálið er að Jónas á aðeins tvær flugur og engan pening. En við hjálpum honum í...

  26. Lokaþáttur - Kveðjurant.

    Það er komið að því að kyngja því að ekki er hægt að gera allt sem maður vill. Tíminn er hreinlega ekki nægur. Ég er farinn að átta mig á því að ég hef ekki verið að sinna þessu eins og til er ætlast. Ég viðurkenni það eins og maður en er um leið fullur þakklætis fyrir stuðninginn hingað til <3

  27. Truflaðir veiðimenn - Nördaspjall með Ragga Danner

    Ég fékk Ragnar Inga Danner í heimsókn. Raggi er líffræðingur og sjálftitlaður "besstewizzer". Við spjölluðum um skordýrin sem gera okkur mögulegt að vera veiðimenn auk þess að fara um víðan völl.

  28. Veiðiþjófnaður.

    Í þessum þætti förum við víða, en megin þema þáttarins er veiðiþjófnaður og sorgleg átakasaga Brynjudalsár.

  29. Truflaðir veiðimenn - Leyndardómar Rauðavatns.

    Í þessum þætti skoðum við Hafravatn og Rauðavatn. Auk þess heyrum við söguna um urriðann Nudd sem gladdi börn 1884. Þessi þáttur er fyrir bæði nörda og ónörda held ég.

  30. Truflaðir veiðimenn - Sjóbirtingur, líffræði og leynivötn.

    Við förum víða á fallegum laugardagsmorgni. Við skoðum sjóbirtinginn að vori, reifum aðeins á rannsóknum um hegðun hans við niðurgöngu og skoðum síðan nokkur afskekkt silungsvötn sem gaman er að kíkja á.

  31. Truflaðir veiðimenn - Ógnvaldurinn með mannsaugun.

    Við förum fram og aftur um tímann í þessum þætti. Kíkjum stutt á Arthur Feddersen en fjöllum nú mest um þann ógnvald sem markvisst gengur frá laxinum okkar...eða hvað? Við skoðum rannsóknir á selnum okkar og komust að því hvað hann er í raun og veru að vilja í ósa laxveiðiáa okkar. Þetta mun koma...

  32. Truflaðir veiðimenn - Misstir fiskar.

    Í þessum þætti förum við yfir all nokkra missta fiska sem komu sér rækilega fyrir á koddanum margar nætur eftir á. Það er sárt að missa stóra fiska, en því lengra sem líður á þroskaferli veiðimanns hættir þetta að rista of djúpt. Það er sigur að setja í góðan fisk. Ég fer yfir nokkra af þeim…

    more
  33. Truflaðir veiðimenn - Fluguveiði í sjó.

    Við skoðum fluguveiði í sjó við strendur landsins. Hvernig veiðum við sjógöngusilung í sjó á Íslandi. Eru sjóbleikjur landsins þær bestu? Hversu gamlar geta þær orðið? Hversu stórar? Við skoðum einnig sjóbleikjur í öðrum löndum og fjöllum aðeins um rannsóknir á sjógöngusilung til hafbeitar. Nóg…

    more
  34. Arthur Feddersen - 3 hluti.

    Við höldum áfram ferðalaginu með honum Arthur F. Feddersen. Það rignir og ferðalagið er farið að taka sinn toll af dananum. Hann skoðar nokkur svæði fyrir norðan og finnur tíma til þess að veiða sjálfur.

  35. Truflaðir veiðimenn - Feddersen 2 hluti.

    Við höldum áfram að ferðast með Arthur F. Feddersen um Ísland árið 1884 að skoða fiskana okkar og veiðisvæðin.

  36. Truflaðir veiðimenn - Leirá á vorin.

    Leirá er orðin ein af þessum vinsælustu vorveiðisvæðum. Nálægðin við borgina og möguleikinn að hafa alla ánna útaf fyrir sig með húsi heillar greinilega marga. Áin hefur vaxið gríðarlega sem sjóbirtingsveiðiá undan farin ár og getur vorveiðin þar verið mikil. Hvað eru veiðimenn að gera rangt ef...

  37. Truflaðir veiðimenn - Arthur F. Feddersen part 1.

    Við höldum í tímavélina góðu og förum í magnað ferðalag um veiðilendur Íslands árið 1884. Arthur F. Feddersen var mikill fræðimaður og þá sérstaklega er kom að ferskvatnsfiskum og klaki á þeim. Hann tók rannsóknarreisu um Ísland 12 árum áður en Bjarni Sæmundsson fór í sína. Munurinn á þessum...

  38. Truflaðir Veiðimenn - Vötnin og árnar á Veiðikortinu.

    Við rennum yfir veiðisvæðin á Veiðikortinu þetta árið. Leynast þar faldar perlur? Ég hef veitt ansi mörg þessara svæða og fundið nokkrar perlur.

  39. Truflaðir veiðimenn - Allt og ekkert.

    Við hugsum um allt og ekkert. Kíkjum aðeins aftur í tímann hvað varðar lax-og silungsveiðilög, svörum nokkrum spurningum um veiðar íslendinga til forna, pælum í selum og sandsílum. Þessi þáttur er bara afslappaður um allt og ekkert.

  40. Truflaðir veiðimenn - Harmur og heimtur.

    Við ferðumst upp á Arnarvatnsheiði á móts við stórvaxinn urriða. Á leið okkar fræðumst við um ýmislegt tengt sögunni á svæðinu, sem og víðar. Í þessum þætti er harmur, dauði og sorg ákveðið þema, en við reynum að gera þetta með bros á vör. Við skoðum sagnfræði, líffræði og jarðfræði á leið okkar...

  41. Truflaðir veiðimenn - 1.apríl

    Langflestir veiðimenn bíða spenntir eftir 1.apríl ár hvert. En hvað gerist þá? Er ekki allt frosið? Er sniðugt að panta fyrirfram? Er einhver séns? Hvert er veiðimaður að fara? Ég reyni að svara þessum spurningum og koma með uppástungur í þessum hugleiðingum mínum um 1.apríl.

  42. Truflaðir veiðimenn - Live í jeppa.

    Er ég ferðaðist upp á hálendi til dorgveiða í gegnum ís, datt mér í hug að kveikja á upptökugræjunni og spjalla við farþegana í jeppanum um þau svæði sem við vorum að aka yfir.

  43. Truflaðir veiðimenn - Blöndukvíslar.

    Í þessum þætti tölum við um þetta magnaða veiðisvæði sem Blöndukvíslar eru. Ég fer létt í sögu þeirra og síðan heyrum við í veiðimanni sem hefur gert þar gott mót og fallið fyrir svæðinu.

  44. Truflaðir veiðimenn - Beituveiði með pungsökku.

    Við dýfum okkur í heim beituveiðimanna. Ég vissi lítið sem ekkert um þessa aðferð og var forvitinn að komast að því hvað þarf til þess að verða góður beituveiðimaður. Gunnar Ólafur leiðir okkur áfram í heimi beituveiðimanna.

  45. Truflaðir veiðimenn - Veiði um vetur / Aukaþáttur

    Í þessum aukaþætti spjöllum við um vetrarveiði á Íslandi og erlendis. Við heyrum svo í Sindra Hlíðari og fáum að forvitnast um hans reynslu á veiði um vetur.

  46. Truflaðir veiðimenn - 1987

    Við ferðumst aftur til ársins 1987 og skoðum veiðina þar. Einnig heyrum við í einum af skemmtilegri veiðimönnum landins í seinnihluta þáttar. Þessi er magnaður.

  47. Truflaðir veiðimenn 1992

    Við ferðumst aftur til ársins 1992 og skoðum veiðina þar. Einnig heyrum við í einum af færustu veiðimönnum landins í seinnihluta þáttar.

  48. Truflaðir veiðimenn 1981

    Í þættinum ferðumst við aftur til ársins 1981 og skoðum veiðina þá. í seinnihlutanum heyrumst við bráðskemmtilegt viðtal við truflaðan veiðimann.

About this show

Patreon-sería Dagbókar urriða. Í Trufluðum veiðimönnum skoðum við einstök ár í sögu stangveiða á Íslandi ásamt því að trufla veiðimenn í gott spjall.

Hosted by

Dagbók urriða

Categories

Frequently asked questions

How many episodes does Dagbók urriða - Truflaðir veiðimenn - Áskrift. have?

Dagbók urriða - Truflaðir veiðimenn - Áskrift. has 48 episodes on PodParley. The most recent episode was published on January 30, 2024.

What is Dagbók urriða - Truflaðir veiðimenn - Áskrift. about?

Patreon-sería Dagbókar urriða. Í Trufluðum veiðimönnum skoðum við einstök ár í sögu stangveiða á Íslandi ásamt því að trufla veiðimenn í gott spjall.

How often does Dagbók urriða - Truflaðir veiðimenn - Áskrift. release new episodes?

Dagbók urriða - Truflaðir veiðimenn - Áskrift. publishes every two weeks, based on its 48 episodes since December 2021.

Who hosts Dagbók urriða - Truflaðir veiðimenn - Áskrift.?

Dagbók urriða - Truflaðir veiðimenn - Áskrift. is created and hosted by Dagbók urriða.
Link copied