PODCAST · news
Dagmál - Kosningar 2022
by Ritstjórn Morgunblaðsins
Laugardaginn 14. maí fara fram sveitarstjórnakosningar um land allt í 69 sveitarfélögum. Í Dagmálum Morgunblaðsins er fjallað sérstaklega um aðdraganda kosninganna, skipun framboðslista og stöðu í einstökum sveitarfélögum. Umsjón með kosningaumfjöllun Dagmála hafa blaðamennirnir Andrés Magnússon, Stefán Einar Stefánsson og Karítas Ríkharðsdóttir, sem fara um landið og taka stjórnmálamenn og álitsgjafa tali fyrir hlaðvarpið, auk þess sem góðir gestir koma í streymisþætti Dagmála.
Episodes
-
#28 Meirihlutamyndanir í brennidepli
Rykið er að setjast eftir sveitarstjórnakosningarnar um helgina, en víða er eftirleikurinn við meirihlutamyndun eftir. Þar beinast augu manna sérstaklega að borginni. Blaðamennirnir Gísli Freyr Valdórsson og Andrés Magnússon fara yfir flókna stöðu og spá í spilin.
-
#27 Niðurtalningin er hafin
Nú eru innan við tveir sólarhringar í að kjörstaðir opni og fólk fær tækifæri til að velja fólk í sveitarstjórnir um land allt. Dagmál Morgunblaðsins hafa gert víðreist um landið og tekið púlsinn á pólitíkusum og kjósendum, allt frá Patreksfirði til Eskifjarðar og frá Húsavík til Vestmannaeyja....
-
#26 Ótal tækifæri en atvinnustigið hátt
Ómar Garðarsson hefur lengi haft puttann á púlsinum í Eyjum. Hann segir forvitnilegt að fylgjast með pólitíkinni og að harkan sé mikil og persónuleg á þeim vettvangi. Honum kemur á óvart hversu mikil áhrif orrahríðin í tengslum við sölu á eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka virðist hafa. Hann…
more -
#25 Grunnt á því góða í Eyjum
Enn gætir mikillar spennu í pólitíkinni í Eyjum vegna þeirrar ákvörðunar Írisar Róbertsdóttur, oddvita H-listans að kljúfa sig út úr Sjálfstæðisflokknum árið 2018. Eyþór Harðarson, oddviti Sjálfstæðismanna segir að flokkurinn hafi jafnað sig fljótt á klofningnum en annað virðist koma í ljós í...
-
#24 Bær sem er að breytast í borg
Bárður Guðmundarson hefur frá barnsaldri fylgst með uppbyggingunni á Selfossi og lengi vel átti hann og rak helstu byggingavöruverslunina í bænum. Hann segir samfélagið hafa tekið stakkaskiptum. Á fyrri árum þekkti hann hvern einasta mann á svæðinu en nú taki hann fólk sérstaklega tali á götum...
-
#23 Forða þarf greiðslufalli sveitarfélagsins
Árborg hefur verið í miklum vexti síðustu ár en flest bendir til þess að skuldir sveitarfélagsins verði orðnar um 30 milljarðar króna árið 2024. Bragi Bjarnason, nýr oddviti Sjálfstæðisflokks segir að snúa þurfi við rekstri sveitarfélagsins og breyta skipulagi til þess að það eigi fyrir skuldum á...
-
#22 Veitumálin stór biti
Tómas Ellert Tómasson er oddviti Miðflokksins í sveitarstjórn Árborgar. Hann er verkfræðingur og segir griðarlegt átak framundan við uppbyggingu fráveitumála. Hann hefur enga trú á því að komi til heitavatnsskorts á komandi árum. Nóg sé af vatnsauðlindum í nágrenni Selfoss sem hægt sé að hagnýta....
-
#21 Vaxtarverkir í stað samdráttar
Atvinnulíf í Ísafjarðarbæ hefur breyst mikið á undanförnum árum og mannlífið með því. Áður fyrr var það fremur einhæft og háð duttlungum náttúrunnar, jafnvel einangrað, en þó að sjávarútvegur sé þar enn ein helsta stoðin, þá hafa fleiri bæst við. Þar munar sjálfsagt mestu um fiskeldi á…
more -
#20 Ísafjörður kominn á vaxtarstig
Laxeldið við Ísafjarðardjúp hefur hleypt nýju lífi í samfélagið fyrir vestan og mikil þörf er á því að Ísafjarðarbær ljúki við nýtt deiliskipulag svo hægt sé að hraða uppbyggingu. Mikil þörf er fyrir íbúðarhúsnæði og hækkandi fasteignaverð veldur því að æ álitlegra er að láta verkin tala á...
-
#19 Gríðarleg verðmæti út af svæðinu
Þótt aðeins búi um 1.100 manns í Vesturbyggð nema útflutningsverðmæti af starfsemi á svæðinu tugum milljarða á ári hverju. Gríðarlegur vöxtur í laxeldi bendir til þess að þau umsvif muni enn aukast til muna. Skjöldur Pálmason er framkvæmdastjóri og eigandi fiskvinnslu- og útgerðarfyrirtækisins…
more -
#18 Vildu forðast að yrði sjálfkjörið
Það er blússandi sigling í atvinnulífinu í Vesturbyggð og mörg stór verkefni í burðarliðnum. Sveitarstjórnin gerir allt til að halda í við þróunina og byggja upp innviði til að mæta fólksfjölgun og vilja fólks og fyrirtækja til uppbyggingar. Tveir listar bjóða fram í Vesturbyggð að þessu sinni og...
-
#17 Unga fólkið þyrpist í bæinn
Börnum fjölgar ört í Hólminum og er leikskólinn í bænum orðinn smekkfullur. Hrafnhildur Hallmarsdóttir leiðir H-listann í sveitarstjórn sem er með hreinan meirihluta og segir hún að áherslur á nýju kjörtímabili verði þær sömu og á því yfirstandandi, nái listinn að fylkja fólki á bak við sig....
-
#16 Tuttugu tillögur til sóknar
Atvinnulífið í Stykkishólmi er á blússandi siglingu en enn má sækja fram. Þetta segir Jakob Björgvin Jakobsson, sveitarstjóri í Stykkishólmi. Tuttugu tillögur liggja nú fyrir hvernig efla megi samfélagið og segir hann að nýting jarðhita sé meðal þess sem til skoðunar sé. Mikilvægt sé að nýta þær...
-
#15 Akranes: Bæjarstjórinn segir stór tíðindi í vændum
Sævar Freyr Þráinsson hefur verið bæjarstjóri á Akranesi frá árinu 2017. Hann vill halda áfram störfum á þeim vettvangi og segir mikla uppbyggingu í farvatninu. Vænta megi stórra tíðinda af atvinnumálum í bænum en hvert sem litið er á Akranesi eru byggingakranar og iðnaðarmenn að störfum. Það...
-
#14 Akranes: Næstu skref að laða fleiri fyrirtæki að
Mikil uppbygging á sér stað á Akranesi og í burðarliðnum er nýtt og vistvænt iðnaðarhverfi sem pólitíkusarnir á Akranesi telja að feli í sér mörg tækifæri. Þá greinir hins vegar á um hvernig skuli staðið að því að laða fyrirtæki til bæjarins. Samfylking, Framsókn og óháðir hafa myndað meirihluta…
more -
#13 Borgarbyggð: Gagnrýni á aðgerðaleysi stjórnmálamanna
Ingimundur Ingimundarson og Skúli Guðmundsson eru fulltrúar ólíkra kynslóða í Borgarbyggð. Þeir eiga það þó sameiginlegt að halda uppi gagnrýni á meirihlutann í sveitarfélaginu. Þeim finnst of lítið að gert í því skyni að laða ný fyrirtæki til bæjarins. Þeir gagnrýna einnig samráðsleysi varðandi...
-
#12 Borgarbyggð: Óljós svör um sameiningu í skólamálum
Oddvitar framboðanna í Borgarbyggð tala undir rós þegar spurt er hvort til greina komi að sameina skólastarf í helstu þéttbýliskjörnum sveitarfélagsins. Ljóst er að sitt sýnist hverjum í þeim efnum og að ákvarðanir á þessu sviði munu alltaf reynast umdeildar en spurningin er hvort kjósendur muni...
-
#11 Meirihlutinn fær stuðning úr óvæntri átt
Mikil gerjun er í pólitíkinni í Norðurþingi og leiðtogi E-listans í sveitarstjórn mun leiða lista Sjálfstæðisflokksins í komandi kosningum. Það væri kannski ekki í frásögur færandi nema vegna þess að E-listinn er í minnihluta nú en Sjálfstæðisflokkurinn myndar meirihluta með VG og Samfylkingu.…
more -
#10 Sameiningin stendur enn yfir
Stjórnmálin í Fjallabyggð markast mjög af því að þar eru sameinaðir tveir grónir þéttbýliskjarnar með fjörð á milli. Þrátt fyrir að Héðinsfjarðargöng hafi tengt Siglufjörð og Ólafsfjörð vel hefur sameiningin 2006 gengið misvel og er í raun enn að eiga sér stað. Bæjarfulltrúarnir Tómas Atli...
-
#9 Gamla fólkið er fast
Eldra fólk í Fjallabyggð situr fast í stórum einbýlishúsum þar sem ekki hefur tekist að byggja minna og hagkvæmra húsnæði fyrir þá sem komnir eru á efri ár. Á sama tíma hafa mörg af eldri húsum Siglufjarðar verið keypt af fólki sem nýtir þau til sumardvala en er ekki með fasta búsetu á svæðinu....
-
#8 Oddvitaslagur en allt í góðu
Sjálfstæðismenn á Akureyri efna til prófkjörs á laugardag, en þar sækjast þrír eftir kjöri í efsta sæti listans. Þeir Stefán Einar og Andrés í kosningahlaðvarpi Dagmála mæltu sér mót við þá í bakherbergi á Hótel KEA og spurðu Ketil Sigurð Jóelsson, Heimi Örn Árnason og Þórhall Jónsson út í bæði...
-
#7 Enginn bilbugur á Ásthildi bæjarstjóra
Kosningaferðalag Dagmála um Norðurland heldur áfram og nú er það Akureyri, höfuðstaður Norðurlands. Blaðamennirnir Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson létu það vera sitt fyrsta verk við komuna í bæinn að fara í ráðhúsið gefa sig fram við bæjarstjórann Ásthildi Sturludóttur. Hún ræddi bæði...
-
#6 Lúxusvandamál í Skagafirði
Atvinnustig er hátt í Skagafirði og vöntun á íbúðarhúsnæði. Mörg tækifæri eru framundan við uppbyggingu ferðaþjónustu á svæðinu og mikil ásókn er í verknám í fjölbrautaskólanum. Álfhildur Leifsdóttir, sem situr í sveitarstjórn fyrir VG og óháða, Gísli Sigurðsson sem leiðir Sjálfstæðisflokk í...
-
#5 Skagfirska efnahagsundrið
Kosningahraðlest Dagmála brunar áfram um landið og nú berst leikurinn á Sauðárkrók, þar sem fjallað er um stöðuna í sveitarfélaginu Skagarfirði. Þau Ásta Björk Pálmadóttir, fjármálastjóri Steypustöðvarinnar sem jafnframt er fv. sveitarstjóri, og Magnús Svavarsson, framkvæmdastjóri Vörumiðlunar,...
-
#4 Ferðamenn hrifnir af eldislaxinum
Í þessum hlaðvarpsþætti Dagmála er fjallað um sveitarstjórnarmál í Fjarðabyggð sem teygir sig frá Mjóafirði í norðri til Breiðdalsvíkur í suðri. Stefán Einar Stefánsson og Karítas Ríkharðsdóttir ræða við Jens Garðar Helgason, framkvæmdastjóra Laxa og Sævar Guðjónsson, ferðaþjónustubónda á Mjóeyri...
-
#3 Fjarðalistinn klofnar í tvennt
Hlaðvarpsþáttur Dagmála fjallar hér um sveitarstjórnarmál í Fjarðabyggð sem teygir sig frá Mjóafirði í norðri til Breiðdalsvíkur í suðri. Stefán Einar Stefánsson og Karítas Ríkharðsdóttir ræða við oddvita allra framkominna framboða í sveitarfélaginu og taka púlsinn á helstu kosningamálum.
-
#2 Barist um oddvitasætið
Dagmál taka fyrir sveitarstjórnarmál í Múlaþing sem er stærsta sveitarfélag landsins að flatarmáli. Stefán Einar Stefánsson og Karítas Ríkharðsdóttir ræða við frambjóðendur ti loddvitasætis í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins sem fram fer um helgina; Berglindi Hörpu Svavarsdóttur og Jakob Sigurðsson.
-
#1 Kosningaslagur í Múlaþingi
Dagmál taka fyrir sveitarstjórnarmál í Múlaþing sem er stærsta sveitarfélag landsins að flatarmáli. Stefán Einar Stefánsson og Karítas Ríkharðsdóttir ræða við fólk sem er öllum hnútum kunnugt í sveitarfélaginu um málefni Múlaþings; Stefán Boga Sveinsson, Gunnar Gunnarsson og Sigrúnu Blöndal.
We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
ABOUT THIS SHOW
Laugardaginn 14. maí fara fram sveitarstjórnakosningar um land allt í 69 sveitarfélögum. Í Dagmálum Morgunblaðsins er fjallað sérstaklega um aðdraganda kosninganna, skipun framboðslista og stöðu í einstökum sveitarfélögum. Umsjón með kosningaumfjöllun Dagmála hafa blaðamennirnir Andrés Magnússon, Stefán Einar Stefánsson og Karítas Ríkharðsdóttir, sem fara um landið og taka stjórnmálamenn og álitsgjafa tali fyrir hlaðvarpið, auk þess sem góðir gestir koma í streymisþætti Dagmála.
HOSTED BY
Ritstjórn Morgunblaðsins
Loading similar podcasts...