PODCAST · tv
Engar stjörnur
by Engar stjörnur
Þetta er hlaðvarp Engra stjarna, kvikmyndafræði Háskóla Íslands.
Episodes
-
Engar stjörnur #29 – Sjónvarpsspjall um Succession
Í þættinum ræða Björn Þór og Guðrún Elsa um sjónvarpsþáttaröðina Succession, aðeins örfáum mánuðum eftir að lokaþáttur seríunnar var sendur í loftið!
-
Engar stjörnur #28 – Barbenheimer!
Í þættinum ræða Björn Þór og Guðrún Elsa um Barbenheimer!
-
Engar stjörnur #27 – Miranda July í maí
Í þættinum ræða Björn Þór og Guðrún Elsa fréttir úr kvikmyndaheiminum, myndir sem þau hafa séð nýlega og kvikmyndahöfundinn Miröndu July.
-
Engar stjörnur #26 – Óskarinn og bíóárið 2022
Í þættinum ræða Björn Þór og Guðrún Elsa um nýafstaðna Óskarsverðlaunahátíð og fara yfir topp tíu listana sína yfir bestu myndir ársins 2022.
-
Engar stjörnur #25 – Jeanne Dielman og bestu myndir allra tíma
Í þættinum ræða Björn Þór og Guðrún Elsa um BFI-listann yfir bestu myndir allra tíma sem birtist í Sight and Sound í desember síðastliðnum. Þar að auki rýna þau í bestu mynd allra tíma samkvæmt listanum, mynd Chantal Akerman frá 1975, Jeanne Dielman, 23, quai du commerce, 1080 Bruxelles.
-
Engar stjörnur #24 – Sorgarþríhyrningurinn á enni Matthews Perry
Í þættinum spyr Björn Þór Guðrúnu Elsu út í nýlega sjálfsævisögu Matthews Perry, Friends, Lovers, and the Big Terrible Thing áður en þau rýna í nýjustu mynd Rubens Östlund, Sorgarþríhyrninginn.
-
Engar stjörnur #23 - LHÍ og myndir sumarsins
Myndir sumarsins voru Top Gun: Maverick, Nope og Elvis, eða það finnst Birni Þór og Guðrúnu Elsu, sem ræða um þær og nýstofnaða Kvikmyndalistardeild LHÍ.
-
Engar stjörnur #22 - Sjón
Í þættinum er rýnt í myndir sem Sjón var handritshöfundur af, Dýrið og The Northman. Björn Þór Vilhjálmsson spjallar við skáldið og handritshöfundinn Sjón.
-
Engar stjörnur #21 – Launmorð og loftsteinar
Í þættinum ræða Guðrún Elsa og Björn um forvitnilegar myndir sem þau hafa séð upp á síðkastið. Svo kemur Jón Bjarki Magnússon í heimsókn og ræðir við Björn um heimildarmynd sína, Even Asteroids Are Not Alone, en hún fjallar um það mannlega samfélag sem orðið hefur til innan söguheims…
more -
Engar stjörnur #20 - The Texas Chainsaw Massacre.
Í þættinum er rætt við Texas-búann og kvikmyndafræðinginn Greg Burris um hans eftirlætismynd: The Texas Chainsaw Massacre.
-
Engar stjörnur #19 - Sambíóin og Sigurgeir
Rætt er um ævisögu Sambíókóngsins Árna Samúelssonar og sögu íslenskra kvikmyndahúsa. Björn Þór Vilhjálmsson ræðir við rithöfund ævisögunnar Sigurgeir Orra Sigurgeirsson.
-
Engar stjörnur #18 - Ása og Paradís
Rætt er um Bíó Paradís, Verstu manneskju í heimi, Ölmu og stærstu orrustu tíunda áratugarins: Oasis eða Blur? Björn Þór Vilhjálmsson ræðir við Ásu Baldursdóttur dagskrárstjóra Bíó Paradísar.
-
Engar stjörnur #17 - Greg Burris og kvikmyndir Palestínu
Björn Þór Vilhjálmsson ræðir við Greg Burris við American University of Beirut um kvikmyndir Palestínu.
-
Engar stjörnur #16 - Viðtökur íslenskra kvenleikstjóra
Björn Þór Vilhjálmsson ræðir við Jónu Grétu Hilmarsdóttur um nýsköpunarrannsókn hennar um viðtökur íslenskra kvenleikstjóra.
-
Engar stjörnur #15 - Bestu myndir síðasta áratugar
Björn Þór Vilhjálmsson ræðir við Brynju Hjálmsdóttur og Gunnar Ragnarsson um starf kvikmyndagagnrýnandans á smáskerinu Íslandi og gildismat. Farið er yfir það besta sem síðasti áratugur kvikmyndanna bauð upp á og Platipusar-prófið kynnt til sögunnar.
-
Engar stjörnur #12 - Hrönn í paradís
Gestur þáttarins að þessu sinni er Hrönn Sveinsdóttir framkvæmdastjóri Bíó paradísar.
-
Engar stjörnur #13 - Evrópsku Háskólakvikmyndaverðlaunin
Gestir þáttarins að þessu sinni eru Arína Vala Þórðardóttir, Nikulás Tumi Hlynsson og Petra Ísold Bjarnadóttir, sem fóru á vegum Kvikmyndafræði Háskóla Íslands sem þátttakendur í Evrópsku Háskólakvikmyndaverðlaununum: EUFA
-
Engar stjörnur #11 - Ísland : Bíóland
Gestur þáttarins að þessu sinni er Ásgrímur Sverrisson leikstjóra og vefstjóra Klapptre.is
-
Engar stjörnur #10 - Maður fer í stríð
Gestur þáttarins, Benedikt Erlingsson, ræðir um kvikmyndagerð sína við Björn Þór Vilhjálmsson.
-
Engar stjörnur #9 - Ísbrjótar íslenskrar kvikmyndasögu
Gestur þáttarins er Gunnar Tómas Kristófersson og rætt er um tvær konur sem sannarlega voru ísbrjótar í íslenskri kvikmyndasögu. Annars vegar Ruth Hanson, dans- og íþróttakennara, sem varð fyrst kvenna til að gera kvikmynd hér á landi. Þá er sjónum einnig beint að Svölu Hannesdóttur, sem Gunnar...
-
Engar stjörnur #7 - Jeppi á fjalli
Rætt er við Gunnar Ragnarsson um íranska leikstjórann Abbas Kiarostami, alþjóðlega listabíóið og breytufrásagnir.
-
Engar stjörnur #6 - Um vondleika, viðbjóð og viðsjárverða menningu
Gestir þáttarins að þessu sinni eru Páll Óskar Hjálmtýsson, tónlistarmaður, og Ísak Jónsson, tæknimaður, en báðir eru sérstakir áhugamenn um viðsjárverða menningu. - Inngangsstef: Franz Schubert: Trio pour piano et violoncelle en Mi Bémol Majeur, D. 929, Op. 100: II. Andante con moto. - Útstef:...
-
Engar stjörnur #5 - Drag og menning
Viðfangsefni Engra stjarna í þetta skiptið er drag, jafnt í kvikmyndum, sjónvarpi og í íslensku skemmtanalífi. Sérstakur gestur þáttarins er Sólveig Johnsen, kvikmyndafræðingur, dragsérfræðingur, dragkóngur og listamaður á hinum ýmsustu sviðum.
-
Engar stjörnur #4 - Bíó Paradís: Fyrsta listabíóið, síðasta listabíóið?
Björn Þór Vilhjálmsson ræðir við Guðrúnu Elsu Bragadóttur og Hrafnkel Úlf Ragnarsson um sérstöðu Bíó Paradísar í íslenskri kvikmyndahúsamenningu og mikilvægi þess að hér á landi sé starfandi að minnsta kosti eitt listabíó. Þá ræðir Björn Þór við Hrönn Sveinsdóttur, framkvæmdastjóra Bíó Paradísar,...
-
Engar stjörnur #3 - Blossi og költkvikmyndir
Þetta er hlaðvarp Engra stjarna, kvikmyndafræðideildar Háskóla Íslands. Í þessum þætti ræðir Björn Þór Vilhjálmsson við kvikmyndafræðinginn Gunnar Tómas Kristófersson um kvikmynd Júlíusar Kemp, Blossa frá 1997 og költkvikmyndir.
-
Engar stjörnur # 2 - The Irishman
Þetta er hlaðvarp Engra stjarna, kvikmyndafræðideildar Háskóla Íslands. Í þessum öðrum þætti ræðir Björn Þór Vilhjálmsson við kvikmyndafræðinginn Heiðar Bernharðsson um nýjasta stórvirki Martin Scorsese, The Irishman, á sama tíma og ferill kvikmyndahöfundarins er ræddur í víðara samhengi.
-
Engar stjörnur #1 - Quentin Tarantino
Þetta er hlaðvarp Engra stjarna, kvikmyndafræðideildar Háskóla Íslands. Í þessum fyrsta þætti ræðir Björn Þór Vilhjálmsson við kvikmyndafræðinemana Silju Björk Björnsdóttur og Heiðar Bernharðsson um höfundaverk Quentin Tarantino og nýjustu mynd hans Once Upon a Time in Hollywood.
We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
Loading similar podcasts...