Fatlist

PODCAST · arts

Fatlist

Þáttaröð í fjórum hlutum sem fjalla um birtingarmyndir fötlunar í menningu og listum. Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir og Heiða Vigdís Sigfúsdóttir leiða hlustendur í gegnum sögu fötlunar, skilgreiningar hennar og hvaða mynd listin dregur upp af fötluðu fólki. Þær ræða við fræða- og listafólk, höfunda, fatlað fólk og aðgerðasinna sem sér efnið út frá ýmsum sjónarhornum. Umsjón: Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir og Heiða Vigdís Sigfúsdóttir.Ritstjórn og samsetning: Jóhannes Ólafsson. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  1. 4

    4. þáttur

    Geðheilbrigði og list á jaðrinum verður aðalefni þáttarins. Rætt er við Héðinn Unnsteinsson sem hefur verið framarlega í réttindabaráttu í þágu geðheilbrigðis og farið verður í heimsókn í Listvinnsluna og í danstíma í Kúnstpásu.Viðmælendur: Héðinn Unnsteinsson rithöfundur, Íris Stefanía Skúladóttir dansari og kennari, Þórir Gunnarsson listamaður, Elín Sigríður María Ólafsdóttir listamaður, Eiríkur Karl Ólafsson Smith frá Rannsóknarsetri í fötlunarfræðum. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  2. 3

    3. þáttur

    Í þessum þætti verður kveikt á sjónvarpinu og farið í bíó. Birtingarmyndir fötlunar í kvikmyndum og sjónvarpi hefur tekið breytingum í gegnum árin, þar eru fatlaðar persónur oft annað hvort hetjan eða skúrkurinn og í gegnum söguna hafa ófatlaðir leikarar sem leika fatlaða persónu gjarnan verið tilnefndir til verðlauna, og unnið. Og myndlistin verður líka skoðuð og hvernig fötlun birtist í listinni og hver tækifæri fatlaðra listamanna eru.Viðmælendur þáttarins: Kristín Björnsdóttir prófessor í fötlunarfræði menntunar við Háskóla Íslands, Kjartan Þór Ingason verkefnastjóri hjá ÖBÍ, Helga Rakel Rafnsdóttir kvikmyndagerðarkona, Margrét Norðdahl myndlistarmanneskja og framkvæmdastýra Listvinnslunnar, Inga Björk Margrétar- Bjarnadóttir listfræðingur og doktorsnemi. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  3. 2

    2. þáttur

    Í þessum þætti er fjallað um birtingarmynd fötlunar í bókum og leikhúsi. Fatlaðar persónur eða fötlun er stundum notuð sem vending í söguframvindu eða nýtt sem tákn eða táknræn framsetning. En mega þá ófatlaðir ekki skrifa fatlaðar sögupersónur? Á leiksviðinusviði hafa ófatlaðir leikarar í gegnum tíðina farið með hlutverk fatlaðra en það er að breytast. Og þegar kemur að aðgengismálum er frekar gert ráð fyrir fötluðum sem þiggjendum menningar, ekki gerendum.Viðmælendur þáttarins: Gunnar Helgason rithöfundur, Hallgrímur Helgason rithöfundur, Sjón rithöfundur, Karl Ágúst Þorbergsson sviðshöfundur, Embla Guðrúnar Ágústsdóttir félagsfræðingur og listamaður og Bjarni Snæbjörnsson leikari. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

  4. 1

    1. þáttur

    Í fyrsta þætti er farið yfir skilgreiningar og nokkur algeng sjónarhorn á fötlun sem hafa breyst í gegnum söguna. Með tilkomu fötlunarfræð á háskólastigi upp úr aldamótum jókst skilningur og sýnileiki fötlunar til muna.Viðmælendur þáttarins: Kristín Björnsdóttir prófessor í fötlunarfræði menntunar við Háskóla Íslands, Eiríkur Karl Ólafsson Smith frá Rannsóknarsetri í fötlunarfræðum og Hanna Björg Sigurjónsdóttir prófessor í fötlunarfræði við Háskóla Íslands. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Þáttaröð í fjórum hlutum sem fjalla um birtingarmyndir fötlunar í menningu og listum. Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir og Heiða Vigdís Sigfúsdóttir leiða hlustendur í gegnum sögu fötlunar, skilgreiningar hennar og hvaða mynd listin dregur upp af fötluðu fólki. Þær ræða við fræða- og listafólk, höfunda, fatlað fólk og aðgerðasinna sem sér efnið út frá ýmsum sjónarhornum. Umsjón: Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir og Heiða Vigdís Sigfúsdóttir.Ritstjórn og samsetning: Jóhannes Ólafsson. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.

HOSTED BY

Jóhannes Ólafsson

URL copied to clipboard!