PODCAST · music
Fílalag
by Fílalag
Fílalag er hlaðvarp um tónlist. Á hverjum föstudegi senda þeir Snorri Helgason og Bergur Ebbi frá sér nýjan þátt þar sem dægurlag er tekið fyrir og fílað í ræmur.Í fíluninni felst að greina menningarleg fyrirbæri sem eru kynnt í laginu, tískustrauma í hljómi og tíðaranda í framsetningu. Farið er um víðan völl og fjallar þátturinn um poppmenningu í stærra samhengi.Um málið er ekkert meira að segja. Fílið þetta bara og fokk svo off.
Episodes
-
These Days – Smurstöð sexunnar
Nico – These Days Bleiki pardusinn settur í hrærivél og stappaður niður í bleikt vax sem bráðnar í lavalampa sem varpar bjarma á kríthvít kinnbein sem tróna á stalli rúllukragabolskraga sem er svartari en gljáandi gítarnöglin í hendi unglingsins sem svífur í gegnum móðuna með sama andvara og...
-
Ljósvíkingurinn – Hann er útilegumaðurinn
Mugison – Ljósvíkingur KFC-sokkin augu horfa á þig úr Mount Rushmore Almannagjáar. Þú gengur ekki einn. Fjallageit jarmar yfir heiðarlönd. Þú hlýðir ekki einn. Skynfæri spennt, kroppurinn kaldur. Upp úr dalnum líður reykur. Þú gengur ekki einn. Ljósið. Eldsneytið. Krafturinn.
-
DARE – Stafrænt camouflage
Gorillaz ft. Shaun Ryder – DARE Alþjóðavæðing. Nótt. Flókið. Casio hljómborð. Þreyttur um kvöld. Teikna. Heimurinn er án hjarta en það má spartsla upp í holur hér og þar. Það má glærlakka yfir óskapnaðinn og gefa stílleysinu hjúp kúls. Það eru bara til þrír til fjórir persónuleikar. Við höldum að...
-
Betri tíð – Listin að lifa í stuði
Stuðmenn – Betri tíð Kýrnar leika við kvurn sinn fíngur. Ananas-hlunkum sturtað niður úr flugvél sem stýrt er af flugkappa í terlin-buxum. Laugardalslaug fyllt lakkrís-konfekti. Í stúkunni hvítir komma-kroppar. Í kvöld förum við á fílum til Skatmandú. Nepjan. Norpið. Puðið. Stuðið. Hor í nös…
more -
Movin’ on Up – Öskur úr iðrum jarðar
Primal Scream – Movin’ on Up Það er gott í vændum á nýju ári. Seiðkarlinn hrærir í potti og dregur upp lukkulegan spádóm handa þér væni minn. Þú munt stækka á nýju ári, vaxa um eitt númer, komast á næsta borð tölvuleiksins. Heill sé þér himnafaðir og allir jarðálfar púkalands því þessi stÆKKUN er...
-
Ef ég nenni – Ávöxtur í augnhæð
Helgi Björns – Ef ég nenni Slyddugremjan, rokið í hausnum, myrkrið í sálinni. Bless á þetta allt. Sýrustigið í maganum, slátturinn í brjóstinu, munnangrið. Verið þið sæl. Stundum þarf bara að taka stærstu gangstéttarhelluna og keyra hana í gegnum kjallaragluggann til að opna fyrir flæðið…
more -
Come On, Let’s Go – Kommon. Letsgó.
Ritchie Valens – Come On, Let’s Go Hér fer fram hugmyndafræðileg fílun á andkvíðalyfinu sem gengið hefur undir nafninu rokk og ról. Farið er í frumfílun á fyrsta útgefna lagi Ritchie Valens sem hann samdi og tók upp þegar hann var sextán ára gamall og hefur hinn mergjaða titil: “Come On, Let’s…
more -
Brown Eyed Girl – Frum-fenið
Van Morrison – Brown Eyed Girl George W. Bush í baði. Þröstur á grein. Fáviti að spóla úti á Granda. Dalalæða og derringur. Og þú brúneyga stúlkan mín. Hlaupa og hlæja og detta. Leiddu mig í lundinn. Morgunroði, dögg. Dick Cheney klippir táneglur. Mín liljan fríð.
-
Brimful of Asha – Barmur plús harmur deilt með takmarkaleysi
Cornershop og Norman Cook – Brimful of Asha Rómúlus og Remus totta spena. Fjörutíu og fimm snúningar á mínútu. Níl flæðir yfir bakka sína. Villigöltur hleypur í skjól. Hlöður fyllast. Sósan flæðir. Tuttugu og níu ára grafískur hönnuður hálsbrýtur sig í stiga. Rjóminn flæðir. Varir brosa, mjaðmir...
-
Sweet Jane – Kontrapunktur kúlsins
Velvet Underground – Sweet Jane Starfsmaður vegabréfaeftirlits á JFK-flugvelli horfir rannsakandi en kæruleysislegum augum þráðbeint framhjá þér. Í belti hans 9mm Glock, í vasa hans valdið, pakki með sex þurrum Orbit-þiljum. Það má skera loftið með kauðalegum smjörhníf sem átta ára barn kom með...
-
Moonlight Shadow – Miðilsfundur á Myrká
Mike Oldfield og Maggie Reilly – Moonlight Shadow Viðjulauf. Hvítir náttkjólar. Gólandi hundur. Skothvellur í fjarska og silkimjúkt myrkrið. Tonn hughrifa í eldspýtustokki. Heil veröld sem örbylgjumáltíð. Hvísl, þyngsli, sorg, gall. Þú gengur inn í blómabúð í leit að samúðarkorti og það er farið...
-
Fylgd – Áminning til labbakúta
Heimavarnarliðið – Fylgd Volkswagen bjöllur. Súld. Hagatorg. Gamla góða Keflavíkurgöngugreddan. Fegurð. Sveit í borg. Hólkvíðar skálmar undir heiðum himni. Bollasúpa. Breznev. Þjóðviljinn. Hermannajakkar. Ljóðabækur. Mussur þvegnar í læk þar sem nú er Smáralind. Lektorar. Billiard. Bartar og...
-
Serbinn – Segulsvið svitans
Bubbi – Serbinn Fjörutíu metrar á sekúndu. Ekki vindhviða heldur beinstíf leiðsla af flæðandi draugum inn í himinhvel hugans. Lax í dauðakippum. Eggjarauð kokteilsósa. Ok uxans. Minkafeldur suður slavneska herrans. Hringar Salómons. Framundan er bara vegurinn. Ekki Nebraska-vegurinn hans Steina...
-
Hotel California – Ernir. Síðari hluti. Vængir bráðna.
Eagles – Hotel California Lagið sem er fílað í dag ætti með réttu að vera síðasta lag sem Fílalag tekur fyrir (engar áhyggjur, það er það ekki, við erum rétt að byrja nýja seríu). Ástæða þess að það ætti að vera síðasta lagið sem við fílum er vegna þess að það er ósköp erfitt að […]
-
Lyin’ eyes – Ernir. Fyrri hluti. Að þolmörkum
Eagles – Lyin’ Eyes Kjarnasamruni. Reykjanesbrautin. Daðrið í myrkrinu. Augun, köldu krumlurnar, kæfisvefnsgræjurnar. Skiptilyklar, kokteilar, seðlaveski, bros. Gardínur í vindinum. Marge Simpson með varalit. Perlurnar, tárin, orðin. Söngur hjartans. Magasár, móðurmjólk, úraníumstútur. Langdrægir...
-
Geislinn í vatninu – Seiglan og lopinn
Hjálmar – Geislinn í vatninu Á borðið er lagður pottréttur, pottþéttur og piparlagður. Flúðasveppirnir löngu orðnir hluti af sósunni. Hvaðan kom þessi brögðótta en samt basic himnasending? Stundum er stöðum líst þannig að Guð hafi yfirgefið þá. “God forsaken” nefnist þetta á ensku. Sama hvað má...
-
Wonderful Tonight – Dýrinu klappað
Eric Clapton – Wonderful Tonight Hápunktur. Lágpunktur. Stærðfræðilegur ómöguleiki. Mjótt mitti, lint typpi, í hjartanu nagandi ótti. Armani, Rolex, enginn náungakærleikur. Laxá í Ásum, kókómjólk og happaþrenna, kláði. Ferrari, Stratocaster, Château Mouton Rothschild. Connor. Covid. Cocaine....
-
Superman – Kaðlastigi úr kúlheimum
Trabant – Superman Tuttugu hestar hníga niður í miðri Ártúnsbrekku og leysast upp í grárri malbiks-súldinni í krampakenndum íslenska-dansflokks-hnykkjum. Gallajakka er rennt gegnum pre-reykingabanns íslenskt djamm-sumar og grafinn undir krossi að hausti. Neó-rómantísk tár falla og springa á…
more -
Don’t Know Much – Sölufuglinn
Linda Ronstadt og Aaron Neville – Don’t Know Much Linda Ronstadt er svalan sem syngur fyrir Bandaríkin. Að vísu hefur hún misst röddina nú því hún þjáist af taugasjúkdómi sem veldur skjálfta í líkamanum – en hott hott á hesti hvað hún hefur skilað inn drjúgu ævistarfi. Hún hefur líka sungið allt...
-
Það er puð að vera strákur – Puðið og tuðið
Bjartmar Guðlaugsson – Það er puð að vera strákur Núna geta allir loksins sofnað rótt. Hvort sem þið eruð langt leidd af klámfíkn, fransk-rennilása-læst í gamer-stól eða að klára mastersgráðu í þróuðu hugvísindanámi þá verða hér leidd fyrir ykkur sönnunargögn af safaríkara taginu. Um er að ræða...
-
More Than Words – Hegningarlagabrot
Extreme – More Than Words Everly Brothers sönnuðu það á sínum tíma að það er hægt að bora ansi mikið inn í kvikuna með einföldu gítarspili og tveimur röddum – og ef það er gert rétt, þá virkar sama formúlan ár eftir ár. Metal-hljómsveitin Extreme gaf út sitt frægasta lag á kraftbölluðuárinu mikla...
-
Masters of War – Mölétin mennskan
Bob Dylan – Masters of War Hamstur í örbylgjuofni. Óður maður á eplakassa. Skraufþurr heysáta. Vítisvélar á himni. Reikningur greiddur. Thank you ma’am. Rop og skyggðar rúður. Regn fellur á svörð. Þungamálmar fluttir á teinum. Rafmynta-reikningur opnaður á Ermasundseyju. Kúlur steyptar í mót....
-
Make You Feel My Love – Knúið af kúlusúkk
Bob Dylan – Make You Feel My Love Það er erfitt að skilja Dylan. Djúpur? Já. Nóbelsverðlaunahafi? Já. En samt er hann líka bílastæða-maður. Gaur sem er mest í elementinu sínu í ljótri skyrtu innan um ómerkilega bíla. Samt er hann ekki basic. Það er alltaf eitthvað tvist, einhver súputeningur í...
-
Diamonds and Rust – Tíkallasími, tunglið og tíminn
Joan Baez – Diamonds and Rust Hún er Venus í skelinni, móðir og meyja, Kelti og frumbyggi, sigld, sveipuð silki. Joan Baez. Ósnertanleg keramik stytta. En þó líka mjúk sem deig. Í sínu frægasta lagi gefur hún ekkert eftir í ísköldum víbrató flutningi, en ásetningurinn er heitari en kvika...
-
Knockin’ On Heaven’s Door – Þurr steinn grætur
Bob Dylan – Knockin’ On Heaven’s Door Fyrsti í Dylan-svítu. Fógetinn er við dauðans dyr. Hann grefur byssur sínar. Útlagi í Ástralíu-frakka gengur framhjá Monaco á Laugavegi. Þunnur maður brotnar saman í Volkswagen Jetta bifreið. Það er brostið á með Dylan-regni og það mun lemja ykkur fast. Þið...
-
White Christmas – “Let’s Go Have a Coca-Cola”
Bing Crosby – White Christmas Það gengur svo mikið á í lífi okkar að við þurfum stundum pásu, frið, hlé. Við þurfum þetta hlé einu sinni á ári. Jólin eru fyrst og fremst hlé frá veseninu, rifrildinu, stríðinu og stritinu. Þess vegna elskum við hvít jól. Því snjórinn leggur hvíta mottu yfir allt,...
-
1979 – Goth báðu megin
The Smashing Pumpkins – 1979 Lífið er endalaust. Fyndinn 16 ára gaur djögglar snakkpokum inn í flúorljósum 10-11, tvær stelpur hlæja en meira að honum en með honum. Lífið er endalaust, orkan er endalaus, hláturinn hættir aldrei. En dauðinn er nærri, dauðinn er inn í okkur og með okkur og það er...
-
Only Time – Silkiþræðir Keltans
Enya – Only Time Hver þekkir vegi himinsins? Fuglinn. Hver veit hvert vindurinn mun blása? Fuglinn. Hver býr yfir grimmd grameðlu og sakleysi páskaungans? Aðeins fuglinn. Hver hratt af stað iðnbyltingunni? Keltinn. Hvert er leynihráefnið í rokk og ról? Keltinn. Hver skynjar tímann sem leiftur?...
-
Snertu, elskaðu og fljúgðu – You’ve Lost That Lovin’ Feelin’
The Righteous Brothers – You’ve Lost That Lovin’ Feelin’ Kærleikurinn. Geðveikin. Gnægðin. Háloftin. Hlið himins. F-18. 33C. Undir þér er motta. Lokaðu augunum, opnaðu hjartað, láttu þig falla.
-
Undir regnboganum – Nanooq í Kringlunni
Hvalræði – Undir regnboganum Jökulblátt vatn. Orbit-tyggjó. Fljótandi ísjakar. Morgunsjónvarps stjarna hlær. Skutull skríður. Blóð fossast. Veðurbarinn maður með barta í Víetnam hermannajakka gefur vélinni meiri olíu. Það er hugmyndastríð á Norðurslóð, takmarkalaus þykistuleikur í búningi káboj…
more -
Rasputin – Alheimsgreddan
Boney M – Rasputin Á meginlandi Evrópu býr leigubílstjóri sig undir langa vakt. Hann girðir terelín buxurnar upp að handahrikum og herðir beltið vel áður en hann klæðir sig í hnausþykkann perrajakkann. Grænn Derrick-skífusími hringir. Hann svarar og heyrir að hinum megin á línunni er...
-
Walk Away Renée – Tær buna
The Left Banke – Walk Away Renée Glimrandi unglingar, tærir en tjúllaðir, nýbúnir að ljúka upp gáttinni að undrum klassískrar tónlistar, búnir spjótum og panflautum, nestaðir af náttúrunnar hendi, í víðum skyrtum og þröngum jökkum. Glimdrandi unglingar, tyggjójórtrandi, skröltandi beinahrúgur með...
-
Venus – Appelsínugulur órangútan losti
Shocking Blue – Venus Hollenskur nefapi sveiflar sér á grein. Starfsmaður Philips bókar sig á tveggja stjörnu hótel við hlið Paddington stöðvarinnar í London. Kona setur á sig klút. Í efnafræðistofu í austurhluta Reykjavíkur brennur magnesíum. Jack London horfir á.
-
No Woman, No Cry – Skráargat gullna hliðsins
Bob Marley – No Woman, No Cry Samruni tónlistar og trúar, akursins og borgarinnar, gamla tímans og nýja. Skurðpunkturinn, meitluð sneiðmyndin, hin ljóslifandi rispa á landslagi hugans, auga ljónsins grafið djúpt í gamla Adidas merkið. Í mesta myrkinu, moðreyknum er að finna göngin að ljósinu....
-
All I Wanna Do – Tilhlýðilegt hangs
Sheryl Crow – All I Wanna Do Þetta er ekki mega djamm. Þetta er ekkert sunnudags sófaspjall heldur. Þetta er miðlungs sötr. Menn að fá sér. Skaðræði í litlum skömmtum. Tilhlýðilegt hangs. Sheryl Crow flaug inn um glugga Ameríku sem bakraddafagmaður. Hún kunni allar ritningar sunnudagsskólans og...
-
Eitt lag enn – Sprittkerti á Stórhöfða
Brimkló – Eitt lag enn Það er myrkur. Það er kalt. En hérna inni er heitt. Funheitt og huggulegt. Það er stórhríð úti. Úlfurinn blæs og fnæsir á kofann en grísinn er teppalagður fyrir innan. Það er stormsveipur á ferð, sjó rignir og allt hangir á bláþræði. En hér inni er huggulegt. Allavega í...
-
Our House – Hlý baunastappa og maukgírun
Madness – Our House Takið rytjótt gólfteppi, nýsteikta ástarpunga, nokkur vel notuð garðáhöld, ilmvatn unglingsstúlku og gatslitinn Umbro fótbolta og skellið þessu í hakkavélina og myrjið þessu yfir ballskóna og pússið ofan í leðrið þar til þið sjáið glettið andlit ykkar birtast sem spegilmynd....
-
Exit Music (For a Film) – Hjarta hjartans
Radiohead – Exit Music (For a Film) Himininn yfir París. Þrútið var loft og þungur sjór. Tæring þess tærasta. Annó erótíka. Þú ert steindautt lík við vegarkantinn. Blóði litað blóm. Júlía leggur hníf að hjarta sínu. Lokuð augu Rómeós. Farðu burt, burtu frá mér. Ég er eitur. Manga-teiknimynda...
-
Superstition – Hátt enni, heitt efni
Stevie Wonder – Superstition Klístrugt tyggjó undir kirkjubekk í Tannhjólaborg U.S.A. Kælt kampavín á fjallatígrisfeldi. Brynvarðir leðurjakkar og Jésúskegg. Hugsuðurinn í hillunni. Fjallabaksleið úr landi Stefáns. Ævintýri enn gerast. Sól rís, músík heyrist, hiti stígur upp. Hið hversdagslega...
-
Free Bird – Fenið og flugið
Lynyrd Skynyrd – Free Bird Það er morgun. Beikonlitaður mótorhjólamaður kjammsar á djúpsteiktri krókódílatá. Hitamælirinn sýnir 40, rakamælirinn er sprunginn. Úr útvarpinu heyrast skruðningar þar til það brestur á með Free Bird. Krómsleginn álsívalningur flýgur um loftin blá. Sólglampandi…
more -
Boombastic – Bóman rís
Shaggy – Boombastic Svalur andvari. Honda Civic keyrir eftir Grensásvegi. Lítil sólgleraugu, hátt orkustig. Shaggy heyrist í útvarpinu. Allir fíla. Sumir halda að þetta sé grín, en verða brátt undir öldunni. Sóli Hólm kom í heimsókn og fílaði lagið um sprengikraftinn, frá uppáhalds eyjunni okkar...
-
Lady (Hear Me Tonight) – Frelsi, jafnrétti, sólarlag
Modjo – Lady (Hear Me Tonight) Freknuklasi á andliti fyrirsætu. Endalaus hlátur, endalaus harmur. Fingur móta blautan leir. Ilmur blóma. Hringtorg, fjallaþorp. Himininn er heiðblár. íþróttagallar. Smáglæpir. Citroen. Lokuð augu, þróunin og þykknið. Þú ert ástfanginn í fyrsta sinn. Bláar nótur.…
more -
Álfareiðin – Hátindurinn
Álfareiðin – Björgvin Halldórsson, Gunni Þórðar, Sjonne og Hænir Sveif snúið. Stimplar hamrast niður í þéttum takti. Allir mælar rjúka upp, vísar þeirra titra við mörk hins hvíta og rauða. Þessi vél keyrir á fullri ákefð og hana fær ekkert stöðvað. Það er tjú-tjú-trylla að sporleggjast yfir holt…
more -
Jerusalema – Húlú og Zúlú
Master KG ásamt Nomcebo – Jerusalema Vírusinn herjar. Ekki bara þessi kórónajakkafataklæddi heldur líka annar og skæðari. Dansfár sækir að heimsbyggðinni. Við erum ekki að tala um Macarena eða Gangnamanna-stílinn heldur dans og söng sem sóttur er dýpra, úr sjálfri frumorkunni, frá Afríku. Það má...
-
Windmills of Your Mind – Hola hugmyndanna
Dusty Springfield – Windmills of Your Mind Langa-langa-langamma spinnur garn á spólu, hring eftir hring, ull sem hefur krullast og ullast í víraðan spíral af kind sem hefur staðið og jórtrað öld eftir öld, með kjálka sem snúast hring eftir hring, endalaust, að eilífu inn í rafrásir heilans sem...
-
Seven Nation Army – Sýrustig sálarinnar
White Stripes – Seven Nation Army Ýlfrandi hundar. Paranoja. Sándtékk. Teppalagning. Apaheili. Converse All Star sólar klístrast við malbik bílastæðis. International House of Pancakes. Altarisdrengir lemja hvern annan með skiptilykli í skottinu á belgvíðum Plymouth með risastórri afturrúðu....
-
Way Down We Go – Djöfullinn á hringtorginu
Kaleo – Way Down We Go Kjúklingabringurnar eru lentar á eldhúsbekknum, kaldar og blautar í frauðplastbökkum. Þær smokra sér úr plastinu eins og geimverur í Ridley Scott mynd. Þær smokra sér úr plastinu og klæða sig í ullarsjöl og setja á sig hatta. Kjúklingabringurnar steikja sér egg á pönnu. Þær...
-
Crazy – Klikkun
Crazy – Patsy Cline Kötturinn svífur um eldhúsið. Hárþurrkan syngur sópran inn á baði. Rafmagnslínurnar svigna milli stauranna úti á götu og spila hægan kontrabassagang. Það er klikkun í gangi. Kona lætur renna í krómbað og leggst í kaf sjálfsvorkunnar og efasemda. Þetta er bilun og brjálæði,...
-
Sex on Fire – Logandi kynlíf ljónanna
Kings of Leon – Sex on Fire Hafið þið séð ljónshvolpa í dýragarði, leika við hvern annan, bíta í hálsa og veltast um í gamnislag, lúra svo þess á milli ofan á hver öðrum eins og tuskur. Ef það væri hægt að taka þessa orku, þetta ljónshvolpamódjó og setja á flöskur, þá væri maður með […]
-
Dag sem dimma nátt – Strenging húmsins
Í Svörtum fötum – Dag sem dimma nátt Oft hefur Ísland nötrað. Undan hrolli jöklanna, undan jarðhræringum, undan hafísnum, landsins forna fjanda. Oft hefur hrollurinn læst sér í taugakerfi þeirra sem hér búa, refa, minka og manna. Og hrollurinn framkallar herping, þúfur á handarbaki, húð kennda…
more
We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
ABOUT THIS SHOW
Fílalag er hlaðvarp um tónlist. Á hverjum föstudegi senda þeir Snorri Helgason og Bergur Ebbi frá sér nýjan þátt þar sem dægurlag er tekið fyrir og fílað í ræmur.Í fíluninni felst að greina menningarleg fyrirbæri sem eru kynnt í laginu, tískustrauma í hljómi og tíðaranda í framsetningu. Farið er um víðan völl og fjallar þátturinn um poppmenningu í stærra samhengi.Um málið er ekkert meira að segja. Fílið þetta bara og fokk svo off.
HOSTED BY
Fílalag
CATEGORIES
Loading similar podcasts...