PODCAST · business
Fjármálakastið
by Fjármálakastið
Fjármálakastið er hlaðvarp fyrir áhugafólk um fjármál, hagfræði og efnahagsmál. Í þættinum er rætt við fólk frá ýmsum áttum um efnahagsmál. Þættirnir koma út einu sinni í viku inn á allar helstu hlaðvarpsveitur og inn á podcast.is. Umsjónarmaður þáttarins er Magdalena Anna Torfadóttir.
-
106
Þáttur 108 - Staða lítilla og meðalstórra fyrirtækja rædd
Í þessum þætti er rætt um stöðuna í rekstrarumhverfi lítill og meðalstórra fyrirtækja. Rætt er um skýrslu sem unnin var af Reykjavík Economics fyrir Íslandsbanka sem ber heitið Óvissa út við sjóndeildarhring: Efnahagur lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Rætt er um þær áskoranir og tækifæri sem fyrirtækin standa frammi fyrir um þessar mundir, áhrifin sem gervigreindin mun hafa á þeirra starfsemi, vöxt hins opinbera og efnahagsmálin.
-
105
Þáttur 107 - Efnahagsspjall við Kára hagfræðing hjá Arion
Í þessum þætti er farið um víðan völl yfir efnahagsmálin. Kári Friðriksson hagfræðingur hjá Arion greiningu er gestur þáttarins. Í þættinum er rætt um verðbólguhorfur, hagvaxtarhorfur, fasteigna og byggingamarkaðinn, hvaða efnahagslegu áhrif innganga Íslands í ESB myndi hafa, atvinnuleysi, stöðuna á vinnumarkaði og fleira.
-
104
Þáttur 106 - Efnahagsspjall við Agnar Tómas Möller
Í þessum þætti er rætt um ákvörðun Seðlabankans um að hækka stýrivexti um 25 punkta. Einnig er rætt um efnahagsmálin, Opinber fjármál, sjávarútveginn og skuldabréfamarkaðinn.
-
103
Þáttur 105 - Viðtal við Hreiðar Má Hermannsson, forstjóra Eikar
Í þessum þætti er rætt við Hreiðar Má Hermannsson forstjóra fasteignafélagsins Eikar. Rætt er um stöðu og horfur í rekstri Eikar, atvinnuhúsnæðismarkaðinn, horfur í efnahagsmálum og fleira.
-
102
Þáttur 104 - Efnahagsspjall með Unu Jónsdóttur hjá Landsbankanum
Í þessum þætti er rætt um nýja Hagspá Landsbankans og efnahagsmálin. Rætt er við Unu Jónsdóttur aðalhagfræðing Landsbankans.
-
101
Þáttur 103 - Spjall um tækni og hugverkaiðnaðinn
Í þessum þætti er rætt við Sigríði Mogensen, sviðstjóra iðnaðar og hugverkasviðs hjá Samtökum iðnaðarins. Rætt er um nýja atvinnustefnu stjórnvalda, framþróun á sviði gervigreindar og vöxt hugverkaiðnaðarins en Samtök iðnaðarins gáfu út skýrslu um það málefni á dögunum.----------------Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad#fyrirvari-fjarmalakastid
-
100
Þáttur 102 - Viðtal við Andra Þór Guðmundsson
Í þessum þætti er rætt við Andra Þór Guðmundsson sem starfaði lengi vel sem forstjóri Ölgerðarinnar sem nú heitir Bera. Rætt er um þær breytingar sem eru í farvatninu hjá fyrirtækinu, vaxtartækifærin hjá fyrirtækinu, nýtt hlutverk Andra Þórs innan fyrirtækisins, efnahagshorfur og ýmislegt fleira.----------Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad#fyrirvari-fjarmalakastid
-
99
Þáttur 100 - Praktísk ráð í rekstri frá Sólveigu í Strata Advisory
Í þessum þætti er rætt við Sólveigu Gunnarsdóttur fjármálaráðgjafa og eiganda Strata Advisory. Rætt er um rekstur fyrirtækja, námskeiðið Praktík í rekstri sem ráðgjafarfyrirtækið stendur fyrir, efnahagsástandið, hvernig skattahækkanir ríkisstjórnarinnar eru að hafa áhrif á fyrirtæki í rekstri og margt fleira.--------------------Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
-
98
Þáttur 99 - Efnahagsspjall við Þórð Pálsson
Í þessum þætti er rætt við Þórð Pálsson forstöðumann fjárfestinga hjá Sjóvá. Rætt var um vaxtaákvörðunina í síðustu viku, stöðuna á vinnumarkaði, ríkisfjármálin, áhrifin sem gervigreindin mun hafa á efnahagslífið, fjártækni og samruna á bankamarkaði.-----------Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
-
97
Þáttur 98 - Viðtal við Daða Kristjánsson hjá Visku sjóðum
Í þessum þætti er rætt við Daða Kristjánsson framkvæmdastjóra Visku sjóða. Rætt er um tækifærin á sviði gervigreindar um þessar mundir bæði fyrir fyrirtæki og starfsmenn, vaxtaákvörðun Seðlabankans sem verður tilkynnt á morgun og fleira.-----------Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
-
96
Þáttur 97 - Björn Berg: „Gott að hafa ofnæmi fyrir skuldum“
Í þessum þætti er rætt við Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafa um persónuleg fjármál og markmiðasetningu í fjármálum. Hann segir að besta fjármálaráðið sem hann gefi fólki gjarnan er að þróa með sér ofnæmi fyrir því að skulda og kveðst ekki vera hrifinn af því viðhorfi sem virðist vera ríkjandi um að nánast ómögulegt sé fyrir fyrstu kaupendur að komast inn á fasteignamarkaðinn. Þá er einnig rætt um hvernig foreldrar ættu að ræða við börnin sín um fjármál, efnahagsmálin og margt fleira. -----------------------Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
-
95
Þáttur 96 - Spjall um skatta, regluverk og landeldi
Í fyrsta þætti ársins 2026 er rætt við Orra Hauksson stjórnarformann First Water og fyrrum forstjóra Símans. Farið var um víðan völl og meðal annars rætt um fjárfestingar í landeldi, starfsemi First Water og hvað sé á döfinni hjá fyrirtækinu. Þá var einnig rætt um erindi Orra á Skattadegi Deloitte, horfur í efnahagsmálunum og fleira. -------------------Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
-
94
Þáttur 95 - Efnahagsspjall með Kára í Arion
Í þessum þætti var rætt um efnahagsmálin við Kára Friðriksson hagfræðing í Arion greiningu. Rætt var um áhrifin af biluninni á Grundartanga á efnahagslífið, áhrifin af falli Play á ferðaþjónustuna, vaxta og verðbólguhorfur og horfur á fasteignamarkaði í kjölfar nýlegs dóms Hæstaréttar í vaxtamálinu svokallaða. Þá var farið yfir nýja Hagspá Arion banka og að lokum rætt um skýrslu bankans um stöðuna í íslenskum sjávarútvegi.--------------------------Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
-
93
Þáttur 94 - Yfirferð yfir Q2 uppgjörin með Helga Frímanns
Fjármálakastið snýr aftur eftir smá sumarfrí og er þétt dagskrá fram undan í haust. Í þessum þætti er farið yfir allt það helsta sem fram kom í uppgjörum skráðu félaganna í Kauphöllinni fyrir annan ársfjórðung þessa árs. Helgi Frímannsson fjárfestingaráðgjafi hjá New Iceland Advisors mætti í settið til Magdalenu Torfadóttur. Í þættinum er rætt um horfur í starfsemi allra félaganna og einnig hvernig markaðurinn í heild sinni muni þróast á næstunni. Þá er einnig rætt um hvaða nýskráningar gætu verið væntanlegar í Kauphöllina, tækifærin í landeldi og ýmislegt fleira.---------------------Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
-
92
Þáttur 93 - Spjall um rafmyntir, markaði og bankasamruna
Í þessum þætti er rætt um rafmyntamarkaði og allt það helsta sem hefur gerst í geiranum að undanförnu. Einnig er farið yfir mikla skuldasöfnun í Bandaríkjunum og þá staðreynd að fjárfestar eru í meiri mæli farnir að horfa til þess að fjárfesta utan Bandaríkjanna. Þá er einnig rætt um horfur á innlendum og erlendum mörkuðum og loks velt vöngum um nýjustu vendingar í samrunamálum banka.----------------------Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
-
91
Þáttur 92 - Spjall um bankasamruna, markaðinn og fleira
Í vikunni sendu stjórnir Arion banka og Íslandsbanka bréf til stjórnar Kviku þar sem óskað var eftir samrunaviðræðum við Kviku. Þá er ekki langt síðan Íslandsbankaútboðið kláraðist og hlutabréfamarkaðurinn hefur tekið við sér að undanförnu. Í síðustu viku voru vextir lækkaðir um 25 punkta og verðbólgan mælist nú 3,8%. Í þessum þætti er rætt um þessi mál ásamt fleiru við Má Wolfgang Mixa, dósent í fjármálum við Háskóla Íslands.-----------------------Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
-
90
Þáttur 91 - Efnahagsspjall með Jóni Bjarka
Í þessum þætti er farið yfir efnahagsmálin en Jón Bjarki Bentsson aðalhagfræðingur Íslandsbanka mætti í settið. Rætt er um væntingar fyrir stýrivaxtaákvörðunina í næstu viku, væntingingar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um hjöðnun verðbólgu og horfur á því sviði. Þá var einnig rætt um áhrif mögulegra tolla áforma Bandaríkjaforseta á íslenskt efnhagslíf og horfur á innlenda hlutabréfamarkaðnum.---------------Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
-
89
Þáttur 90 - Spjall um gervigreind og fjármál
Í þessum þætti er rætt við Söfu Jemai stofnanda og framkvæmdastjóra Víkonnekt. Rætt er um gervigreind almennt, hvernig hægt er að nýta hana í fjárhagslegum ákvarðanatöku, hvað er nýjast í fræðunum, hvað er fram undan, hvernig standa íslensk fyrirtæki á þessu sviði og margt fleira.--------------Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
-
88
Þáttur 89 - Spjall um englafjárfestingar og nýsköpun
Í þessum þætti er rætt við Jón Inga Bergsteinsson formann ICEBAN - Samtök englafjárfesta á Íslandi og fjárfesti. Rætt er um englafjárfestingar, fjármögnun nýsköpunarfyrirtækja, stefnu ríkisstjórnarinnar í málefnum nýsköpunarfyrirtækja og ýmislegt fleira.-------Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
-
87
Þáttur 88 - Spjall um rekstrarumhverfi fjölmiðla, efnahagshorfur og fleira
Í þættinum er rætt við Gunnar Úlfarsson hagfræðing Viðskiptaráðs um nýja úttekt Viðskiptaráðs á rekstraumhverfi fjölmiðla. Einnig er rætt um hagræðingartillögur fyrir ríkisstjórnina, gagnrýni á frumvarp um almannatryggingar, leigubílalögin og fleira. Þá er spáð í spilin hvað Seðlabankinn gerir við næstu vaxtaákvörðun sem verður næstkomandi miðvikudag og hvaða áhrif tollastríð myndi hafa á Ísland.----------------Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
-
86
Þáttur 87 - Efnahagsspjall við Konráð Guðjóns
Í þessum þætti er rætt við Konráð Guðjónsson hagfræðing. Rætt er um efnahagshorfur hér heima og erlendis, ríkisfjármálin, kjarasamningana, fasteignamarkaðinn og fleira. Þá er farið yfir spurningar frá hlustendum þar sem meðal annars er komið inn á hans sýn á mögulegan samruna Arion og Íslandsbanka. Léttu nóturnar eru á sínum stað.---------Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
-
85
Þáttur 86 - Spjall um rekstrarumhverfi banka og fjártækni
Í þessum þætti er rætt við Ingvar Haraldsson greininga- og samskiptastjóra Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu. Rætt var um rekstrarumhverfi fjármálafyrirtækja, regluverkið og séríslenskar kröfur á banka. Einnig er rætt um hvað sé fram undan hjá SFF og um nýlega ráðstefnu samtakanna á sviði fjártækni. Léttu nóturnar eru á sínum stað ásamt spurningum frá hlustendum. ---------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
-
84
Þáttur 85 - Efnahagshorfur með aðalhagfræðingi Arion
Í þessum þætti er rætt við Ernu Björg Sverrisdóttur aðalhagfræðing Arion banka. Rætt var um ganginn í efnahagslífinu á síðasta ári og horfurnar fyrir þetta ár. Spáð í spilin varðandi þróun verðbólgu og vaxta og rætt um ganginn í útflutningsgreinum Íslands ásamt fleiru. ------------ Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
-
83
Þáttur 84 - Markaðsspjall með Alexander, stofnanda Akkur - Greining og ráðgjöf
Í þessum þætti er rætt við Alexander Jensen Hjálmarsson stofnanda nýs greiningarfyrirtækis sem nefnist Akkur - Greining og ráðgjöf. Rætt er um greiningar og verðmöt, stöðu og horfur á mörkuðum, nýútkomna greiningu Akkurs á Arion banka, farið er yfir spurningar frá hlustendum og sitthvað fleira. ------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
-
82
Þáttur 83 - Rafmyntaspjall með Daða í Visku Digital Assets
Í þessum þætti er rætt við Daða Kristjánsson stofnanda Visku Digital Assets. Rætt er um allt það helsta sem er að eiga sér stað í heimi rafmyntanna, m.a. miklar verðhækkanir á Bitcoin, kjör Trumps og þýðingu þess fyrir geirann, framtíð rafmynta, regluverkið og breytingar á því, skuldasöfnun ríkja og margt fleira. ---------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
-
81
Þáttur 82 - Viðtal við Garðar Stefánsson, forstjóra Good Good
Matvælafyrirtækið Good Good sem framleiðir sultur og smyrjur hefur verið í mikilli sókn á Bandaríkjamarkaði undanfarin ár. Í þessum þætti er rætt við Garðar Stefánsson, forstjóra Good Good um uppbyggingu fyrirtækisins, reksturinn, helstu markaði fyrirtækisins og markaðsetningu. Þá er rætt um samninginn sem fyrirtækið landaði við verslunarkeðjuna Costco í Bandaríkjunum og ýmislegt fleira. --------------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
-
80
Þáttur 81 - Viðtal við Unu Jónsdóttur, aðalhagfræðing Landsbankans
Í þessum þætti er rætt við Unu Jónsdóttur, aðalhagfræðing Landsbankans. Rætt er um vaxtaákvörðunina í síðustu viku og spáð í spilin varðandi verðbólguþróun, ferðaþjónustuna, fasteignamarkaðinn og hagvaxtarhorfur. ------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
-
79
Þáttur 80 - Viðtal við Hörpu Magnúsdóttur, stofnanda Hoobla
Í þessum þætti er rætt við Hörpu Magnúsdóttur, stofnanda og framkvæmdastjóra Hoobla. Harpa starfar einnig sem mannauðsráðgjafi. Rætt var um starfsemi Hoobla, tekjumódel og rekstur nýsköpunarfyrirtækja, umhverfi nýsköpunarfyrirtækja og mannauðsmál. -------------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
-
78
Þáttur 79 - Viðtal við Jón Bjarka Bentsson, aðalhagfræðing Íslandsbanka
Í þessum þætti er rætt við Jón Bjarka Bentsson, aðalhagfræðing Íslandsbanka. Rætt er um nýjustu verðbólgutölur, fasteignamarkaðinn, efnahagshorfur, stöðu ferðaþjónustunnar og skuldabréfamarkaðinn. ------------ Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
-
77
Þáttur 78 - Viðtal við Jón Finnbogason, framkvæmdastjóra Stefnis
Í þessum þætti er rætt við Jón Finnbogason, framkvæmdastjóra Stefnis. Rætt er um stöðu og horfur á hlutabréfa og skuldabréfamarkaði, skuldasöfnun ríkisins, ESG-fjárfestingar og sjóðastýringu. Þá er einnig rætt um kaup sjóðs á vegum Stefnis á Heimstaden á Íslandi, fjárfestingar lífeyrissjóða á fasteignamarkaðnum, leigumarkaðinn, skipulagsmál og fleira. ------------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
-
76
Þáttur 77 - Viðtal við Gunnar Úlfarsson, hagfræðing Viðskiptaráðs
Í þessum þætti er rætt við Gunnar Úlfarsson, hagfræðing Viðskiptaráðs. Rætt er um nýja skýrslu IMD viðskiptaháskólans sem sýnir samkeppnishæfni ríkja og stöðu Íslands á því sviði. Einnig er rætt um sérstakan vaxtastuðning, fasteignamarkaðinn, efnahagsmál og golf. ------------ Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
-
75
Þáttur 76 - Viðtal við Jónínu Gunnarsdóttur, rekstrarstjóra Blikk
Í þessum þætti er rætt við Jónínu Gunnarsdóttur, rekstrarstjóra Blikk. Jónína hefur starfað í fjármála og færsluhirðingargeiranum í fjölda ára og starfaði á tímabili sem forstjóri Teya (SaltPay). Rætt er um starfsemi Blikk, fjártækni, færsluhirðingu og fleira. -------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
-
74
Þáttur 75 - Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri Íslandshótela
Í þessum þætti er rætt við Davíð Torfa Ólafsson, forstjóra Íslandshótela. Rætt er um skráningu félagins á Aðalmarkað sem verður 30. maí næstkomandi, sögu hótelkeðjunnar, íslenska ferðaþjónustu og margt fleira. -------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
-
73
Þáttur 74 - Viðtal við Magnús Árna Skúlason, framkvæmdastjóra Reykjavík Economics
Í þessum þætti er rætt við Magnús Árna Skúlason, framkvæmdastjóra Reykjavík Economics. Rætt er um efnahagshorfur, stýrivexti, aukningu ríkisútgjalda, fasteignamarkaði í OECD, atvinnuhúsnæði og sitthvað fleira. ------------ Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
-
72
Þáttur 73 - Viðtal við Tinnu Laufey Ásgeirsdóttur, prófessor við HÍ
Í þessum þætti er rætt við Tinnu Laufey Ásgeirsdóttur, prófessor við Háskóla Íslands. Rætt er um nokkrar rannsóknir á sviði heilsuhagfræði en Tinna Laufey hefur leitt margar rannsóknir á því sviði. ------------ Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
-
71
Þáttur 72 - Viðtal við Ragnheiði M. Magnúsdóttur, framkvæmdastjóra Nordic Ignite
Í þessum þætti er rætt við Ragnheiði M. Magnúsdóttur, framkvæmdastjóra Nordic Ignite en það félag fjárfestir í nýsköpunarfyrirtækjum á hugmyndastigi. Rætt er um stofnun félagsins og hvert það stefnir, fjárfestingar í nýsköpun og fleira. ------------ Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
-
70
Þáttur 71 - Hagfræðingar fara yfir efnahagshorfur
Í þessum þætti er rætt við Kára S. Friðriksson, hagfræðing hjá Arion banka og Hjalta Óskarsson, hagfræðing hjá Landsbankanum. Farið var yfir stýrivaxtaákvörðunina, verðbólguhorfur, kjarasamningana og aðkomu ríkisins að þeim, íbúðamarkaðinn, horfur erlendis og fleira.
-
69
Þáttur 70 - Viðtal við Andra Þór Guðmundsson, forstjóra Ölgerðarinnar
Í þessum þætti er rætt við Andra Þór Guðmundsson, forstjóra Ölgerðarinnar og nýkjörin formann Viðskiptaráðs. Rætt var um Viðskiptaþingið sem haldið var á dögunum, útgjöld hins opinbera, áfengislöggjöfina, rekstur Ölgerðarinnar og fleira. --------------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
-
68
Þáttur 69 - Viðtal við Þórð Pálsson, forstöðumann fjárfestinga hjá Sjóvá
Í þessum þætti er rætt við Þórð Pálsson, forstöðumann fjárfestinga hjá Sjóvá. Rætt er um efnahagsmál bæði hér heima og erlendis og margt fleira. Einnig er farið yfir spurningar hjá hlustendum. ------------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
-
67
Þáttur 68 - Viðtal við Halldór Halldórsson, forstjóra Kalkþörungafélagsins
Í þessum þætti er rætt við Halldór Halldórsson, forstjóra Íslenska kalkþörungafélagsins. Rætt var um starfsemi og stofnun Kalkþörungafélagsins, deilur félagsins við skattayfirvöld, skattamál, íþyngjandi regluverk og fleira. -------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
-
66
Þáttur 67 - Viðtal við Agnar Tómas Möller
Í þessum þætti er rætt við Agnar Tómas Möller. Agnar hefur áratugareynslu af fjármálamarkaði og stundar nú nám í sagnfræði við Háskóla Íslands og situr í stjórn Íslandsbanka. Rætt var um horfur í efnahagsmálum, bæði hér heima og erlendis, hlutabréfa og skuldabréfamarkaði og ýmislegt fleira. -------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
-
65
Þáttur 66 - Áramótaþáttur með viðskiptablaðamönnum
Í þennan Áramótaþátt Fjármálakastsins fékk ég til mín viðskiptablaðamennina Júlíus Þór Halldórsson og Magnús Heimi Jónasson til að gera upp viðskiptafréttaárið 2023 og ræða um horfur fyrir árið 2024. Rætt var um helstu viðskiptafréttir ársins bæði innlendar og erlendar, hvaða aðilar voru áberandi í viðskiptalífinu á árinu sem leið, horfur í efnahagslífinu og á mörkuðum og sitthvað fleira. --------------------------- https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
-
64
Þáttur 65 - Viðtal við Ásdísi Kristjánsdóttur, bæjarstjóra Kópavogs
Í þessum þætti er rætt við Ásdísi Kristjánsdóttur, bæjarstjóra Kópavogs og fyrrum aðstoðarframkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Rætt er um efnahagshorfur, kjarasamningana sem fram undan eru, rekstur Kópavogsbæjar, hlutverk ríkis og sveitarfélaga, skattamál, leikskólamál, skipulagsmál, gæluverkefni og margt fleira. ------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
-
63
Þáttur 64 - Viðtal við Valdimar Ármann um efnahagshorfur
Í þessum þætti er rætt við Valdimar Ármann, forstöðumann eignastýringar hjá Arctica Finance. Rætt er um efnahagshorfur hérlendis og erlendis, horfur á skuldabréfa- og hlutabréfamörkuðum, fasteignamarkaðinn, verðbólgu og vaxtastig bæði hér heima og erlendis og fleira. ---------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
-
62
Þáttur 63 - Svanhildur og Gunnar hjá Viðskiptaráði
Í þessum þætti er rætt við Svanhildi Hólm Valsdóttur, framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs og Gunnar Úlfarsson, hagfræðing Viðskiptaráðs. Rætt er um Peningamálafund Viðskiptaráðs sem fram fór í síðustu viku, stýrivexti, efnahagshorfur, kjarasamningana sem eru fram undan, fasteignamarkaðinn og fleira. --------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
-
61
Þáttur 62 - Viðtal við Sólveigu R. Gunnarsdóttur, fjármálaráðgjafa
Í þessum þætti er rætt við Sólveigu R. Gunnarsdóttur, eiganda ráðgjafarfyrirtækisins Sólveig Consulting og fjármálastjóra GeoSilica. Rætt er um góð ráð þegar kemur að fjármálum, hvað fyrirtæki ættu að hafa í huga, nýsköpunarumhverfið á Íslandi og fjárfestingar í nýsköpun, efnahagshorfur, stýrivexti og kjaraviðræðurnar sem eru fram undan, fasteignamarkaðinn og fleira. Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
-
60
Þáttur 61 - Viðtal við Hörð Arnarson, forstjóra Landsvirkjunar
Í þessum þætti er rætt við Hörð Arnarson, forstjóra Landsvirkjunar. Rætt var um það sem fram fór á haustfundi Landsvirkjunar sem bar yfirskriftina Leyfum okkur græna framtíð. Þá var rætt um þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir í orkumálum, hvernig stjórnvöld ættu að bregðast við, hvar Ísland stendur í alþjóðlegum samanburði í þessum málaflokki og fleira. ------------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
-
59
Þáttur 60 - Viðtal við Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
Í þessum þætti er rætt við Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Rætt er um efnahagsmálin, stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans og kjarasamningana fram undan. Einnig er rætt um efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar, hagræðingaraðgerðir og skattamál. Þá er auk þess rætt um nýsköpunargeirann og hvað sé fram undan í ráðuneytinu í þeim efnum ásamt fleiru. ------------ Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
-
58
Þáttur 59 - Viðtal við Daða Kristjánsson um skuldavanda ríkja
Í þessum þætti er rætt við Daða Kristjánsson, stofnanda og framkvæmdastjóra Visku Digital Assets en hann hefur starfað í 16 ár á fjármálamarkaði. Rætt er um skuldavanda ríkja, einkum Bandaríkjanna, hvort ástæða sé til að hafa áhyggjur af stöðunni og hvaða áhrif það myndi hafa ef til skuldakrísu kæmi. Einnig er rætt um stöðuna á skuldabréfamörkuðum, verðbólguna, bæði hér heima og erlendis og viðbrögð seðlabanka við henni. Þá er rætt um stöðu efnahagsmála hér heima, skuldir íslenska ríkisins og kjarasamningana sem nú eru fram undan. Að lokum er rætt stuttlega um rafmyntageirann. --------------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
-
57
Þáttur 58 - Viðtal við Ingvar Haraldsson, samskiptastjóra Samtaka fjármálafyrirtækja
Í þessum þætti er rætt við Ingvar Haraldsson, samskiptastjóra Samtaka fjármálafyrirtækja. Rætt er um regluverk á fjármálamarkaði og breytingar sem hafa átt sér stað í fjármálageiranum á undanförnum misserum. Einnig er rætt um hugmyndir viðskiptaráðherra um bankaskatt. Þá er rætt um starfsemi og hlutverk SFF og auk þess um fjármálalæsi ungs fólks og fleira. --------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
ABOUT THIS SHOW
Fjármálakastið er hlaðvarp fyrir áhugafólk um fjármál, hagfræði og efnahagsmál. Í þættinum er rætt við fólk frá ýmsum áttum um efnahagsmál. Þættirnir koma út einu sinni í viku inn á allar helstu hlaðvarpsveitur og inn á podcast.is. Umsjónarmaður þáttarins er Magdalena Anna Torfadóttir.
HOSTED BY
Fjármálakastið
CATEGORIES
Loading similar podcasts...