Fljúgum hærra podcast artwork

PODCAST · music

Fljúgum hærra

Gömlu vinkonurnar Lolla og Linda setjast niður og fræða hvor aðra um tónlist og merkilegar konur. Lolla sem er djúpvitur tónlistargúrú segir frá framúrskarandi konum úr tónlistarheiminum og í seríu 3 segir hún frá hinum ýmsu tónlistarstefnum og merkum atburðum í tónlistarsögunni. Safnakerlan Linda dregur hins vegar fram sögur af spennandi konum í ljósmyndun. Þið finnið okkur líka á Facebook og getið hlustað á þættina okkar á Spotify, Apple Podcast og fjölmörgum öðrum hlaðvarpsveitum

  1. 130

    30) Guns ´n´ Roses - The Most Dangerous Band in the World

    Margir segja að Guns ´n´ Roses séu síðasta risa rokk bandið sem komið hefur fram á sjónarsviðið. Þeir spiluðu sína blöndu af pönki, blues og classic rock og komu með, eins og einhver sagði "danger, attitude and legitimacy" þegar hair metalið hafði gengið allt of langt í hárspreyi og eyliner. Þó þeir hafi bara gefið út 4 stórar plötur með frumsömdu efni á öllum sínum ferli þá er hljómsveitin enn að fylla stórar íþróttahallir út um allan heim og það er hægt að velta fyrir sér hversu mikið meir þeir hefðu getað gert ef risastór egó og allt of mikið af vímuefnum hefðu ekki sprengt hljómsveitina í loft upp eftir Use your illusion

  2. 129

    29) Lou Reed - Með og án Velvet Underground

    Einhver blaðamaðurinn sagði um Lou Reed: Það eru til allskonar áhrifavaldar. Sumir hafa áhrif á ákveðna bylgju tónlistar meðan aðrir hafa áhrif á ákveðna kynslóð. Áhrif Lou Reed náðu langt út fyrir eina tónlistarbylgju eða eina kynslóð heldur náði hann að setja sitt mark á allt frá pönkinu á fyrri hluta 8. áratugarins og öllu sem á eftir því fylgdi yfir í alternative rock 10. áratugarins

  3. 128

    28) Metallica

    Metallica er án nokkurs vafa ein áhrifamesta og goðsagnakenndasta metal hljómsveit sögunnar. Ferill þeirra spannar áratugi og milljónir aðdáenda um allan heim hafa hlustað á lögin þeirra, mætt á tónleika og keypt plötur allar götur síðan Kill ´em all kom út.Saga Metallica er saga þrautsegju og ástríðu fyrir tónlistinni og þeir hafa alltaf haldið ótrauðir áfram sama hvað á hefur dunið

  4. 127

    27) Billy Idol - Breski pönkarinn sem fann frægð og frama í Bandaríkjunum

    Billy Idol er eflaust ein af mest áberandi persónum 9. áratugarins í tónlistarbransanum.Það þekkja allir ljósa aflitaða hárið, rámu röddina og glottið sem hann var alltaf með á andlitinu. En hann vann fyrir þessu öllu. Hann flytur frá Bretlandi til Bandaríkjanna með ekkert í höndunum annað en drauminn um að öðlast frægð og frama sem tónlistarmaður og það tókst honum svo sannarlega. Hann var réttur maður á réttum stað á réttum tíma og ásamt útlitinu og grípandi pop/rock lögunum þá var engin furða að MTV tækju honum opnum örmum

  5. 126

    26) Aerosmith

    Aerosmith eru risastór áhrifavaldur á heila kynslóð rokktónlistarmanna í Bandaríkjunum hvort sem það eru Guns´n´Roses, Van Halen eða Skid Row.Í heil 56 ár hefur hljómsveitin starfað og nánast allan þann tíma með sömu meðlimunum sem byrjuðu að spila saman í íbúðinni sem þeir deildu í Boston sem er alveg ótrúlegt miðað við lífernið. Að þeir séu allir ofan moldu í dag, komnir á áttræðisaldur er hreint magnað.

  6. 125

    25) Duran Duran

    Á sínum 48 ára ferli hafa Duran Duran farið frá því að vera ein vinsælasta hljómsveit heims með með hysterískar unglingsstelpur við hvert fótmál yfir í að vera droppað af þrem mismunandi útgáfufyrirtækjum og vera skítblankir og skulda svimandi háar upphæðir.En sama hvað á dundi þá komu þeir alltaf til baka og er hljómsveitin í dag enn skipuð fjórum af fimm uprunalegu meðlimunum og er enn í fullu fjöri.

  7. 124

    24) Van Halen

    Fyrsta plat Van Halen kom út í febrúar 1978 og rokktónlistin varð aldrei söm aftur. Hún kom eins og skrattinn úr sauðarleggnum inn í tónlistarumhverfi þar sem var disco annars vegar og pönk og nýbylgja hins vegar og ruddi veginn fyrir það sem á eftir kom og dró gítarhetjuna og flamboyant söngvarann aftur fram í sviðsljósið auk þess að sýna að gleði og húmor áttu alveg heima í rokktónlist

  8. 123

    23) KISS - The hottest band in the land!

    KISS hafa verið með okkur í 52 ár og eru ekkert að fara. Þó að tónlistarpressan hafi hatað hljómsveitina allan hennar feril þá létu þeir það ekkert á sig fá og það eru ófáir tónlistarmennirnir sem hafa verið KISS aðdáendur á unglingsárunum og margir eru það enn.En KISS eru ekki bara hljómsveit heldur heimsþekkt vörumerki sem metið er á um 300 milljónir dollara

  9. 122

    22) Prince - Margur er knár þó hann sé smár

    Það eru engar ýkjur að kalla Prince einn áhrifamesta, hæfileikaríkasta og jafnframt afkastamesta tónlistarmann okkar tíma. Hann virtist geta spilað á hvaða hljóðfæri sem var og lögin sem hann samdi teljast í þúsundum. Tónlistin sem hann gaf út spannar allt frá disco, synth poppi og r´n´b til jazz, funk og acid rock og hafa plötur hans selst í um 150 milljón eintökum um allan heim sem gerir hann að einum af söluhæstu tónlistarmönnum allra tíma.

  10. 121

    21) Bon Jovi

    Hljómsveitin Bon Jovi er búin að vera starfandi samfleytt í 42 ár og innihelddur enn þrjá af upprunalegu meðlimunum.Það virðist vera alveg sama hvaða nýju straumar og stefnur koma og fara í tónlistinni, ekkert virðist trufla vinsældir Bon Jovi og þeir standa allt af sér. Ætli galdurinn sé bara ekki sá að geta endalaust samið grípandi lög sem límast við heilann í þér og áður en þú veist af ertu farinn að syngja hástöfum með.

  11. 120

    20) Ozzy Osbourne - The Prince of Darkness

    Ferill Ozzy Osbourne spannaði 6 áratugi. Hann varð stjarna með Black Sabbath á áttunda áratugnum, hóf gríðarlega farsælan sólóferil á níunda áratugnum, gerðist þungarokksfrumkvöðull á tíunda áratugnum með  Ozzfest tónlistarhátíðinni og árið 2002 varð hann  raunveruleikasjónvarpsstjarna, þökk sé MTV þáttunum The Osbournes.Í sínum villtustu draumum hefur hann örugglega ekki séð þetta fyrir sér þegar hann var að alast upp í litlu tveggja herbergja íbúðinni í Birmingham þar sem 8 manna fjölskyldan bjó við kröpp kjör og þurfti að notast við útikamar.

  12. 119

    19) Bruce Springsteen

    Ferill Bruce Springsteen spannar 6 áratugi og hefur hann gefið út 21 stúdíóplötu auk óendalegs magns af safnplötum, live plötum og allskonar box settum sem eru stútfull af lögum sem honum fannst á þeim tíma ekki passa á neina af þeim plötum.Skilgreiningin "heartland rock" hefur verið notuð fyrir tónlist hans þar sem hann tvinnar saman rokktónlist og samfélagslega meðvitaða texta sem endurspegla líf þess fólks sem tilheyrir hinum vinnandi stéttum í Bandaríkjunum og oftast fá litla athygli

  13. 118

    18) Ramones - Hey ho, let's go!!

    Þegar Ramones koma fram á sjónarsviðið í byrjun 8. áratugarins færðu þeir rokkið aftur til upprunans og komu í leiðinni með uppskriftina að pönkinu. Lögin voru einföld og hröð og helst ekki mikið lengri en 2 mínútur.Það væri mjög margt öðruvísi í tónlistarheiminum ef Ramones hefði aldrei notið við. En þó þeir hafi haft gríðarleg áhrif á ekki bara einstaka hljómsveitir og tónlistarfólk heldur á heilu tónlistarstefnurnar þá fengu þeir aldrei þá viðurkenningu sem þeir svo sannarlega áttu skilið meðan hljómsveitin var starfandi. 

  14. 117

    17) Eurovision - Saga keppninnar til dagsins í dag

    Eurovision er stórmerkilegt menningarfyrirbæri og stundum veit maður ekki hvort maður er að horfa á grínþátt eða háalvarlega söngvakeppni. En það er einmitt það sem gerir þetta svo heillandi.En hvernig byrjaði þetta ævintýri allt saman? Af hverju er Ísrael með í keppni sem heitir Söngvakeppni Evrópskra Sjónvarpsstöðva? Og af hverju vinnur Svíþjóð?

  15. 116

    16) Depeche Mode

    Þeir voru kallaðir synthesiser boy band af Bresku pressunni og Bay City Rollers of the electronic age, þegar hljómsveitin var að byrja að vekja athygli. Nintendo tónlist spiluð með einum fingri myndi ég skilgreina tónlistina sem þeirra þarna fyrstu árin. En svo skánaði þetta með hverri plötunni45 árum síðar, þar sem tískustraumar hafa komið og farið og tónlistarstefnur risið og fallið eru Depeche Mode enn relevant og enn að gefa út plötur og án þeirra hefðum við kannski ekki Nine Inch Nails eða Marilyn Manson.

  16. 115

    15) Black Sabbath

    Þann 5. júlí næstkomandi munu allir upprunalegu meðlimir Black Sabbath stíga á svið í síðasta skiptið á stórtónleikum á Villa Park í Birmingham...ef enginn þeirra hrekkur upp af áður en að þar að kemur.Því er ekki úr vegi að fara í gegn um skrautlegan feril þessarar hljómsveitar sem er án nokkurs vafa ein áhrifamesta rokkhljómsveit allra tíma.

  17. 114

    14) Phil Spector og "The wall of sound"

    Það fór aldrei á milli mála að Phil Spector var hæfileikaríkur. Hann hlóð saman hverju hljóðfærinu ofan á annað og bjó til þetta fyrirbæri sem er kallað "Wall of sound" og dæmi um það er lagið "River deep, mountain high" með Tinu Turner sem væntanlega allir þekkja.Brian Wilson var mikill aðdáandi Spectors og tók þessa hugmynd hans yfir í Beach Boys og Jim Steinman hlustaði örugglega mjög vel og vandlega á það sem hann hafði gert þegar hann gerði plötuna "Bat out of hell" með Meat Loaf.En Spector átti greinilega við einhverjar persónuleikaraskanir að stríða og samskipti hans við suma af þeim tónlistarmönnum sem hann vann með, eins og t.d John Lennon og Leonard Cohen, voru í skrautlegri kantinum og samband hans við konur var langt frá því að vera til fyrirmyndar oft á tíðum og endaði eitt þannig með ósköpum.

  18. 113

    13) Iggy Pop - Ber að ofan í rúmlega hálfa öld

    Iggy Pop er búinn að vera að gefa út tónlist síðan 1969.Hann hefur verið kallaður "the godfather of punk" og án hans og The Stooges væri örugglega ýmislegt öðruvísi.Hann átti mjög farsælt samstarf við David Bowie, hefur gert ambient jazz plötu, komið fram fyrir hönd Madonnu á innsetningarathöfn hennar í Rock´n´roll hall of fame og gaf út sína vinsælustu plötu þegar hann var orðinn 69 ára gamall.Og sögurnar af honum og hans stór furðulegu uppátækjum eru óteljandi.

  19. 112

    12) Grunge: Seattle, flannelskyrtur og hermannaklossar

    Þegar 70´s rock og punk eignuðust afkvæmi varð útkoman grunge og þetta gerðist í Seattle af öllum stöðum í heiminum. Borg sem fram að þessu hafði verið þekktust fyrir rigningu, ryðgaðar brýr og aðeins of mikið af efnum sem voru ekki holl fyrir neinn. Meðan hair metalið var að tröllríða öllu þá var hrátt gítarrokk með óþarflega þunglyndislegum textum að spretta úr kjöllurum og bílskúrum í þessari borg sem enginn fór til nema eiga nauðsynlega erindi þangað og eins og hendi væri veifað skaust það upp á stjörnuhimininn í upphafi 10. áratugarins og skein þar skært þar til allir byrjuðu að deyja.

  20. 111

    11) CBGB - Litla sóðabúllan á Manhattan sem varð vagga pönksins og nýbylgjunnar

    CBGB var miklu meira en bara einhver sóðabúlla með veggjagroti og brotnum klósettum. Í 33 ár átti grasrót rokktónlistar í New York þar sinn samastað og fékk tækifæri til að vaxa og dafna og þar réði sköpunargleðin ríkjum.Þar áttu sitt athvarf allt frá Ramones og Blondie til Patti Smith, Talking Heads og Bad Brains.

  21. 110

    10) ABBA

    ABBA var á sínum gullaldarárum ein allra vinsælasta hljómsveit heims. Þó að hljómsveitin hafi algerlega legið í dvala í einhver 35 ár þá var hún langt frá því gleymd og grafin.Það voru allsstaðar ABBA laumuaðdáendur og komu þeir út úr öllum skúmaskotum þegar safnplatan ABBA Gold var gefin út 1992. Síðan þá hefur hljómsveitin gengið í algerlega endurnýjun lífdaga þar sem gerðar hafa verið bíómyndir byggðar í kring um lögin þeirra, gríðarlega vinsæll söngleikur og núna síðast sýndarveruleikatónleikar með hljómsveitinni.

  22. 109

    9) Þegar Bretar uppgötvuðu blues: Frá Alexis Korner til Led Zeppelin

    Hvernig kom það til að Bandarísk blues tónlist náði jafn kirfilega að festa sig í sessi í Bretlandi í byrjun 7. áratugarins og raunin varð á? Tónlist sem engin hefð var fyrir þar í landi, var ekki spiluð þar í útvarpi og var bara fáanleg á plötum eftir krókaleiðum?Sérstaklega þegar horft er til þess að það var engin stemming fyrir blues tónlist í heimalandinu og þeir sem enn ströggluðu við að spila þá tónlist þar rétt skrimtu.Breskir tónlistarmenn tóku ekki bara bluesinn upp á sína arma heldur notuðu hann til að búa til það sem núna er skilgreint sem classic rock.

  23. 108

    8) Motown: Litla útgáfan í Detroit sem breytti tónlistarsögunni

    Motown útgáfan var stofnuð í Detroit 1959 og á örfáum árum hafði hún breytt tónlistarsögunni. Þar lögðust allir á eitt við að skapa þetta sérstaka sound sem kennt hefur verið við Motown og stórsmellirnir runnu þaðan á færibandi.Frá Motown hafa komið óendanlega mörg lög sem eru löngu orðin klassísk popp lög og við þekkjum öll flytjendur eins og Supremes, Jackson 5, Marvin Gaye og Stevie Wonder

  24. 107

    7) Britpop - Suede, Oasis, Blur og Cool Britannia

    Britpoppið kom fram á sjónarsviðið í Bretlandi fyrri hluta 10. áratugarins. Það var efnahagsuppgangur og aukin bjartsýni hjá ungu fólki í landinu. Bæði tónlistin og textarnir sóttu fyrirmyndir í eldri Breskar hljómsveitir og til Breskrar menningar og það að vera Breti var eitthvað til að vera stoltur af.Og allir voru rosa hressir alla vega til að byrja með nema auðvitað Gallagher bræðurnir. Og við sem vorum á áhrifasvæði Breskrar menningar tókum hljómsveitum eins og Blur, Suede, Oasis og Pulp opnum örmum.

  25. 106

    6) Þegar 80´s synth poppið tók yfir heiminn

    Hvað dettur okkur fyrst í hug þegar við hugsum um 80´s? Væntanlega herðapúðar, grifflur, marglitir jogginggallar, rosalega blásið og túberað hár, Miami Vice og rifrildið um hvor væri betri Duran Duran eða Wham.Og svo auðvitað synth allt poppið þar sem að magn og gæði fóru ekki alltaf saman, alla vega þegar líða fór á. Í þessum þætti er farið í gegn um það hvaðan synth poppið kom og hverjum datta þetta eiginlega í hug og hvernig, með aðstoð MTV Breskar hljómsveitir yfirtóku Bandaríkin og breiddu þar út boðskapinn

  26. 105

    5) Laurel Canyon - Þar sem tónlistin hljómaði úr hverju húsi og tónlistarsagan var skrifuð

    Frá 1965 til 1979 var Laurel Canyon staðurinn þar sem að ungar og upprennandi tónlistarstjörnur bjuggu. Þar var nóg af lausu húsnæði á góðu verði og eftir að Chris Hillman og Roger McGuinn, sem þá höfðu nýlega stofnað The Byrds, settust þar að fylgdi fjöldi annara tónlistarmanna á eftir.Þú gast átt von á því að sjá Jim Morrison hjóla eftir götunum og hitt Framk Zappa og Alice Cooper í hverfisbúðinni.Allir voru að semja og spila tónlist.En ýmislegt átti eftir að hrista upp í samfélaginu þar og áður en yfir lauk og þar koma við sögu annars vegar Charles Manson og hins vegar duft unnið úr Suður-Amerískri plöntu sem hefur áhrif á miðtaugakerfið.

  27. 104

    4) Punk - Hvaðan kom það og hvert fór það?

    Punkið kom eins og stormsveipur inn í staðnaða og sjálfhverfa tónlistarsenu 8. áratugarins og spörkuðu hressilega í rassinn á öllum uppskrúfuðu og veruleikafyrrtu rokkstjörnum þess tíma sem sátu í villunum sínum og mokuðu í sig kókaíni. Punkið ætlaðist ekki til að þú sætir inni í herbergi og æfðir þig í 5 ár áður en þú stofnaðir hljómsveit. Stofnaðu hljómsveit strax og lærðu á hljóðfærið um leið. En hvaðan tók punkið fyrirmyndir sínar? Alla vega ekki frá Emerson, Lake and Palmer svo mikið er víst. Og hvert teygði það anga sína?Allt um það í þessum þætti

  28. 103

    3) Þegar allir dönsuðu diskó

    Þeir sem að voru unglingar upp úr 1977 fóru væntanlega ekki varhluta af diskó æðinu sem þá gekk yfir. Það voru haldin diskó kvöld í öllum skólum og danskennarar upplifðu líklega sína mestu gósen tíð því allir vildu kunna réttu sporin. Og það var enginn svalari en John Travolta að gera mjaðmahnykki í hvítu jakkafötunum sínum.En nokkrum árum síðar var diskóið horfið af sjónarsviðinu og hafði sums staðar alla vega verið sprengt í loft upp, bókstaflega.En hvaðan kom það og dó það alveg?

  29. 102

    2) Rolling Stones og Altamont Festivalið: Þar sem Hells Angels héldu öllu í heljargreipum og hugsjón hippanna dó

    The Altamont Speedway Free Festival var haldið á samnefndri kappakstursbraut skammt frá bænum Tracy í Kaliforníu 6. desember 1969 að undirlagi Rolling Stones með aðkomu Greatful Dead og nokkura annara hljómsveita úr tónlistarsenunni í San Fransisco. Það sem flestir höfðu vonast til að yrði einhverskonar Woodstock West, þar sem ást og friður myndu svífa yfir vötnunum varð eitthvað allt annað og kallaði Rolling Stone tímaritið Altamont versta dag í sögu rokktónlistarinnar. Allt sem gat farið úrskeiðis gerðið það og meira til enda hafði skipuleggjendum gjörsamlega láðst að skoða afstöðu himintunglanna þegar dagsetningin var valin. Því ef þeir hefðu gert það hefðu þeir strax séð að 6. desember var Tungl í Sporðdreka og það boðaði dimma daga, ill tíðindi og ofbeldi.

  30. 101

    1) 80´s Hair Metal: Spandex, hárlakk og eyeliner

    80´s hair metal var "Nothin´ but a good time" eins og Poison komust svo skemmtilega að orði.  Allir sungu um kvenfólk, partý og áfengi og að skemmta sér var ófrávíkjanleg regla. Enginn pældi í morgundeginum og allt, sem var þess virði að gera, mátti klárlega ofgera.Ekkert hair metal band með sjálfsvirðingu lét sjá sig í öðru en leðri, spandex og blúndum og berar bringur voru þeirra vörumerki. Allir voru með eyeliner,  maskara, kinnalit og sítt hár og það var ekkert til sem hét of mikið púff eða of mikið hárlakk.Ef að einhversstaðar hefur verið gat á ozonlaginu á þessum tíma þá var það yfir Los Angeles.

  31. 100

    100) Fljúgum hærra - Íslenskar konur 1985

    Ljósmyndasýningin Augnablik árið 1985, var líkt og heróp til íslenskra kvenna um að þora að stökkva fram í sviðsljósið og sýna að þær væru jafn góðir ljósmyndarar og karlmenn. Meira en 20 konur sýndu ljósmyndir í Nýlistasafninu og þarna ægði saman verkum mjög ólíkra ljósmyndar. Jóhanna Ólafsdóttir, Svala Sigurleifsdóttir og Valdís Óskarsdóttir voru í fararbroddi en þarna sýndu líka fullt  af ljósmyndurum sem áttu langan ferl eða sumar sem hurfu alveg af radarnum. Besta bransasaga ársins tengdist þessari sýningu þegar fyrirsæta Vilborgar Einarsdóttur lenti í miklu lífsháska í Reynisfjöru. Meira um það í þessu síðasta hlaðavarpi okkar Lollu og Lindu. 

  32. 99

    99) Fljúgum hærra - Janis Joplin

    Janis Joplin gaf ekki út nema 4 plötur á sínum stutta ferli og þar af tvær sem bara söngkonan í hljómsveitinni Big Brother and the Holding Company. Við erum enn að hlusta á þessar plötur, 53 árum eftir andlát hennar, jafn heilluð af þessari mögnuðu, tilfinningaþrungnu rödd.En fyrir innan harða skelina var viðkvæm manneskja sem þráði ást og viðurkenningu og að gera foreldra sína stolta en því miður þá gekk það ekki alltaf upp hjá henni.

  33. 98

    98) Fljúgum hærra - Edith Tudor-Hart. Ljósmyndarinn og njósnarinn

    Edith Tudor-Hart var ljósmyndari sem barðist fyrir félagslegu réttlæti og jöfnuði. Hún flúði frá heimalandi sínu, Austurríki þegar nasistar komust til valda og átti framtíðina fyrir sér sem ljósmyndari í Bretlandi. En líf þessarar konu var vægast sagt óvenjulegt og ljósmyndaferilinn fór hálfvegis í vaskinn því Edith lifði tvöföldu lífi og var um tíma elt á röndum af Bresku leyniþjónustunni. Í dag eru margir ákafir í að vita meira um æfi þessarar hugsjónakonu og verk hennar á sviði ljósmyndunar.

  34. 97

    97) Fljúgum hærra - Madonna

    Í 40 ár hefur Madonna setið í sínu hásæti sem drottning popptónlistarinnar.Madonna er alls staðar; í sjónvarpi, í útvarpi, á forsíðum tímarita og jafnvel í bókabúðum. Hún er sérfræðingur í að halda sjálfri sér í umræðunni.Æðið í kring um Madonnu var eitthvað sem hafði ekki sést síðan á tímum Bítlanna og allan þennan tíma hefur hún náð að feta þessa mjóu línu á milli þess að vera trendy og commercial.

  35. 96

    96) Fljúgum hærra - Ylla og dýrin stór og smá

    Myndir þú fara inni í búr og girðingar með dýrunum í dýragarði til að ná góðum ljósmyndum? Líklegast ekki.  En þetta og meira til gerði hin ungverska  Ylla (Camilla Koffler) sem sérhæfði sig í ljósmyndun dýra og hlaut verulega frægð sem slíkur  ljósmyndari snemma á 20. öld. Meðan aðrir í faginu notuðu myndavélina til að berjast gegn ranglæti og kúgun fasista eða gerðust súríalistar þá notaði Ylla myndavélina til að færa sig eins langt inn í heim dýra og hún komst. Myndir hennar voru gæddar blíðu og húmor og bækur hennar seldust eins og heitar lummur. Hún lifði þó ekki nógu lengi til að njóta til fullnustu frægðar sinnar

  36. 95

    95) Fljúgum hærra - Cher

    Enginn í sögu skemmtanabransans hefur átt viðlíka feril og Cher. Hún var unglingapoppstjarna, sjónvarpsþáttastjórnandi, tískuicon, rokkstjarna, poppsöngkona, discodíva og vinsælt umfjöllunarefni fjölmiðla í áratugi.Hún hefur selt yfir 100 milljón eintök af plötum á heimsvísu og er ein af þeim fáu sem hefur unnið Emmy, Grammy og Óskarsverðlaun.

  37. 94

    94) Fljúgum hærra - Graciela Iturbide og frumbyggjar Mexíkó

    Síðhærð frumbyggjakona af Seri ætt  gengur í eyðilegu landslagi með kassettutæki í hendi og á öðrum stað löngu seinna fer Zapotec kona á markað bæjarins með  fjölmargar eðlur á höfðinu. Þetta eru tvær frægar ljósmyndir sem Graciela Iturbide færði okkur frá heimalandi sínu Mexíkó.  Graciela lagði sig fram um að mynda samfélög frumbyggja í Mexíkó og oftar en ekki var það veröld kvenna sem heillaði hana. Sú stóra sorg í lífi hennar þegar dóttir hennar deyr aðeins 6 ára gömul, var hvati fyrir Gracielu til að þræða vega listarinnar og nota myndavélina til að öðlast dýpri skiling á lífinu og tilverunni. Fuglar og vængjasláttur urðu leiðarstef í hennar myndum þótt eðlur á höfði frumbyggjakonu sé alltaf hennar frægasta ljósmynd.

  38. 93

    93) Fljúgum hærra - Nico (Velvet Underground)

    Hún hafði verið fyrirsæta fyrir Chanel, Elle og Vogue , leikið fyrir Fellini og Andy Warhol, sungið með The Velvet Underground og gert sólóplötur sem taldar eru fyrirmynd goth hljómsveita 9. áratugarins. Hún hitti alla og þekkti alla en glataði öllu og dó ein á sjúkrahúsi á Ibiza þar sem starfsfólkið sá hana bara sem enn einn dópistann að enda sitt ömurlega líf.  Dramatískari getur æfi einnar manneskju varla verið en æfi Nico var.

  39. 92

    92) Fljúgum hærra - Louise L. Serpa og rodeo

    Kúrekar á ótemjum og draumsýnin um villta vestrið dró yfirstéttarstelpuna Louise L. Serpa út í það að ljósmynda rodeó sýningar. Hún hóf ferilinn seint og lærði aldrei ljósmyndun en náði 48 árum í bransanum og varð eitt þekktasta andlit ródeóljósmyndara Bandaríkjanna.  Hún er ein af þessum konu sem braut múra. Í hennar tilfelli varð hún fyrst kvenna til að fara inn á sjálfan rodeóvöllinn að mynda; þetta var árið 1963. Sama ár trakðaði naut á henni en þessi tveggja barna einstæða móðir lét það ekkert stoppa sig. „You need to cowboy up“ hefur hún líklegast sagt  og fengið sér sopa af Tequila sem var í miklu uppáhaldi.

  40. 91

    91) Fljúgum hærra - PJ Harvey

    Polly Jean Harvey er sveitastelpa frá  Dorset á suður-Englandi. Hún fór í listanám en ekki í tónlist heldur í höggmynda- og leirlist. Tónlistin var bara skemmtilegt hobbý til að byrja með.En meira en 30 árum og 10 plötum og ótal öðrum tónlistarverkefnum seinna er PJ Harvey enn að. Markmiðin eru enn jafn háleit og þrjóskan við að endurtaka sig aldrei er enn til staðar. Hún hefði aldrei enst í AC/DC

  41. 90

    90) Fljúgum hærra - Catherine Leroy í Víetnam

    Smávaxin ung frönsk kona með fléttur í hárinu, glænýja Leicu um hálsinn og 200 dollara í vasanum keypti sér, árið 1966 flug til Víetnam aðra leið til að byrja þar feril sinn sem stríðsfréttaljósmyndari. Flestir héldu að annað hvort gæfist hún upp eða væri dauð áður en árið væri liðið.  Þetta var Catherine Leroy. Stríðið í Víetnam breytti henni fyrir lífstíð og hún átti einstakan og langan feril  sem stríðsfréttaljósmyndari. Catherine var með það á heilanum að verða fyrsta konan til að góma hin virtu Robert Capa verðlaun og það tóks henni að lokum

  42. 89

    89) Fljúgum hærra - Adele

    Adele skaust upp á stjörnuhimininn aðeins 19 ára gömul meða samnefndri plötu. Það er eitthvað við lögin hennar sem náði að höfða til milljóna manna út um allan heim og hún hafði söngrödd sem fékk fólk til að fá gæsahúð við að hlusta.Þó að hún sé bara a 35 ára og hafi aðeins gefið út 4 sólóplötur þá er hún með söluhæstu tónlistarmönnum í heimi hafandi selt yfir 120 milljón eintök af þessum 4 plötum sínum á heimsvísu. Eitthvað sem hún hefur örugglega ekki séð fyrir í sínum allra villtustu draumum þegar hún var að alast upp í Tottenham hverfinu í London í félagslegu íbúðinni sem hún deildi mað mömmu sinni.

  43. 88

    88) Fljúgum hærra - Marie, Bolette og kynusli í Noregi

    Norsku ljósmyndararnir Marie Høeg og Bolette Berg pökkuðu vandalega niður þeim glerplötum sem sýndu hluta af viðkvæmu einkalífinu og merktu sem „privat“. Þær voru lífsförunautar, ráku saman ljósmyndastofu og útgáfufyrirtæki og börðust fyrir bættum kjörum kvenna um aldamótin 1900. Frægð þeirra sem ljósmyndarar er hins vegar tilkomin vegna þess að litla leyni myndasafnið þeirra fannst óvænt í hlöðunni á sveitasetrinu þeirra löngu eftir þeirra daga. Það sem þótti tabú þá þykir í dag fremur saklaust en ljósmyndirnar opna samt einhverja glufu inn í annan heim.

  44. 87

    87) Fljúgum hærra - Cyndi Lauper

    Cyndi Lauper varð stórstjarna strax með sinni fyrstu plötu og litagleði og skrautlegt útlit var hennar vörumerki.En svo er eins og hún hverfi af sjónarsviðinu nokkrum árum seinna en við komumst að því að hún hafði alls ekki sest í helgan stein, langt því frá.Hún finnur fjölina sína á Broadway þar sem hún semur tónlistina við söngleikinn Kinky Boots sem rakaði inn verðlaunum og hún fer að gera plötur þar sem tónlistarstefnan var bara það sem hana langaði að gera á hverjum tíma og spreytti hún sig á flestu nema kannski black metal. En það kemur kannski seinna, Cyndi Lauper er óútreiknanleg.

  45. 86

    86) Fljúgum hærra - Cristina Garcia Rodero. Trúarhefðir á Spáni

    Spænski ljósmyndarinn Cristina Garcia Rodero tók ekkert mark á því þegar fólk sagði að hún myndi fljótt gefast upp þegar hún lagði af stað um sveitir landsins til að mynda hina undarlegustu trúarsiði og hefðir. Verkefnið tók hana 15 ára og bókin hennar „Hidden Spain“ sem kom út árið 1989, er enn í dag hennar frægasta verk. Kuflklæddir þorpsbúar, lifandi fólk í líkkistu og dvergar sem taka þátt nautaati eru meðal þess sem hún fangar í mynd.  Og hún er enn að þvælast um heiminn og ljósmynda.

  46. 85

    85) Fljúgum hærra - Jóla! Jóla!

    Það eru skiptar skoðanir um það hvenær sé ásættanlegt að byrja að spila jólalög en það ætti að vera óhætt núna þegar komið er fram í aðventu.Við spilum nokkur vel valin jólalög, öll sungin af konum auðvitað, segjum aðeins frá þeim og nokkrar góðar sögur fá að fylgja með. Og að sjálfsögðu kemur litla Ísland líka við sögu í þættinum að mis góðu tilefni þó.

  47. 84

    84) Fljúgum hærra - Leyniþáttur Lindu

    Í þætti vikunnar fer Linda all hressilega út af sporinu í efnisvalinu.Hér eru engar ljósmyndakonur en nokkur vel valin lög (að henni fannst) fá að fljóta með.Lolla vissi ekkert um hvað þátturinn fjallaði fyrr en hún ýtti á Rec og Linda byrjaði að lesa. Það má deila um það hversu hrifin hún var þegar sannleikurinn kom í ljós.

  48. 83

    83) Fljúgum hærra - Lady Gaga

    Lady Gaga hefur átt alveg magnaðan feril, ekki bara sem tónlistarkona og trendsetter heldur líka sem leikkona.Hún fór frá því að vinna sem gogo dansari á sveittum rokk klúbbum í New York yfir í að verða ein áhrifamesta tónlistarkona seinustu 15 ára og syngja bæði danstónlist, ofurballöður og jazz og gera það allt frábærlega vel.

  49. 82

    82) Fljúgum hærra - Claire Aho. Finnsk gleði

    Glaðværð og litadýrð einkenndi auglýsingamyndir hinnar finnsku Claire Aho sem myndaði Marimekko fatnað við fæðingu þess fræga vörumerkis. Claire fæddist inn í bransann og var ekki há í loftinu þegar hún fékk að fara með pabba sínum og frænda í kvikmyndaleiðangra til Lapplands. Seinna varð hún hluti af hinu þekkta kvikmyndafyrirtæki fjölskyldunnar, Aho&Soldan og varð svo fræg fyrir að vera  eina konan sem kvikmyndaði Ólympíuleikana í Finnlandi árið 1952. Hún var þrælsnjöll kona með knallrautt hár sem dreifði gleðinni langt út fyrir Finnland.

  50. 81

    81) Fljúgum hærra - Katy Perry

    Katy Perry átti frekar óhefðbundið uppeldi þar sem báðir foreldrar hennar voru ofsatrúaðir predikarar.Hún feta þó ekki í fótspor þeirra heldur eltir tónlistardraumana þó það gangi mjög brösuglega til að byrja með og hefðu einhverjir örugglega bara gefist upp og farið heim.Og þolinmæðin borgaði sig því á endanum fær hún bæði konungsríkið og prinsinn sjálfan

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Gömlu vinkonurnar Lolla og Linda setjast niður og fræða hvor aðra um tónlist og merkilegar konur. Lolla sem er djúpvitur tónlistargúrú segir frá framúrskarandi konum úr tónlistarheiminum og í seríu 3 segir hún frá hinum ýmsu tónlistarstefnum og merkum atburðum í tónlistarsögunni. Safnakerlan Linda dregur hins vegar fram sögur af spennandi konum í ljósmyndun. Þið finnið okkur líka á Facebook og getið hlustað á þættina okkar á Spotify, Apple Podcast og fjölmörgum öðrum hlaðvarpsveitum

HOSTED BY

Lovísa og Linda

CATEGORIES

Frequently Asked Questions

How many episodes does Fljúgum hærra have?

Fljúgum hærra currently has 50 episodes available on PodParley. New episodes are automatically indexed when they're published to the podcast feed.

What is Fljúgum hærra about?

Gömlu vinkonurnar Lolla og Linda setjast niður og fræða hvor aðra um tónlist og merkilegar konur. Lolla sem er djúpvitur tónlistargúrú segir frá framúrskarandi konum úr tónlistarheiminum og í seríu 3 segir hún frá hinum ýmsu tónlistarstefnum og merkum atburðum í tónlistarsögunni. Safnakerlan Linda...

How often does Fljúgum hærra release new episodes?

Fljúgum hærra has 50 episodes. Check the episode list to see recent publication dates and frequency.

Where can I listen to Fljúgum hærra?

You can listen to Fljúgum hærra on PodParley by clicking any episode. We provide an embedded audio player for direct listening, and you can also subscribe via your preferred podcast app using the RSS feed.

Who hosts Fljúgum hærra?

Fljúgum hærra is created and hosted by Lovísa og Linda.
URL copied to clipboard!