Skip to content
Flugucastið podcast artwork

PODCAST · sports

Flugucastið

by Tight Lines

Flugucastið er hlaðvarp um fluguveiði. Umsjónarmenn eru Hafsteinn Már Sigurðsson og Sigþór Steinn Ólafsson. Markmið þáttarins er að auka á afþreyingarefni fyrir veiðimenn og miðla þekkingu. Tight lines.

Publisher-supplied feed metadata · PodParley refreshed Mar 18, 2026 · Source feed

Episodes

  1. Flugucastið - Bónus þáttur - Sögustund með Árna Baldurssyni

    Jæja kæru kastarar. Fyrst við fögnuðum okkar fyrsta starfsári á dögunum og gátum ekkert gert fyrir ykkur og ástandið er eins og það er, reynum við okkar allra besta til að stytta ykkur stundirnar og bjóða ykkur upp á smá nýjung. Sögustund. Ef þið eruð sátt með þetta þætti okkur gaman að heyra frá...

  2. Flugucastið #37 - Stórlaxarnir og kvíðinn - Nils Folmer Jörgensen

    Nils Folmer Jörgensen er fyrir löngu orðinn þekktur meðal veiðimanna fyrir sérstakt lag sitt á því að veiða stóra laxa hvar sem hann kemur. Allt frá barnsaldri hefur Nils verið límdur við flugustöngina og ferðast heimshorna á milli í leit sinni að lónbúanum. Við förum yfir alla söguna og snertum…

    more
  3. Flugucastið #36 - Þrákastað með Ragnheiði Thorsteinsson

    Ragnheiður Thorsteinsson hefur frá unga aldri verið heilluð af veiði. Hún hefur víða veitt, framleitt veiðiefni fyrir sjónvarp, sitið í skemmtinefnd og stjórn SVFR. Góður veiðimaður, skemmtilegur viðmælandi og sannarlega góð fyrirmynd fyrir konur í sportinu. Njótið, takið upp kampavínið en þó...

  4. Flugucastið #35 - Lávarðar Laxár

    Pétur og Birgir Steingrímssynir (ekki bræður) hafa helgað stórum hluta ævi sinnar í eltingarleik við þann silfraða í Laxá í Aðaldal. Báðir hafa þeir fylgt veiðimönnum um áratugaskeið og marga fjöruna sopið og ölduna stigið á bökkum Laxár. Við þökkum Veiðitorg.is og Avis bílaleigu sérstaklega…

    more
  5. Flugucastið #34 - Sami gamli þorparinn- Pálmi Gunnarsson

    Jæja kæru kastarar þá er það er enginn annar en þjóðargersemin Pálmi Gunnarsson sem er gestur 34. þáttar Flugucastsins. Pálmi hefur víða komið við sínum veiðiferli og ekki gert mikið af því að liggja á skoðunum sínum. Við viljum svo sértaklega þakka AVIS og Veiditorg.is fyrir það að gera okkur...

  6. Flugucastið #33 - Þá beit helvítið á - Matti Hákonar

    Jæja kæru kastarar, við Flugucastarar erum enn fyrir norðan og hittum þar engan annan en Matthías Þór Hákonarson en Matthías Þór rekur fyrirtækið Iceland Fishing Guide og hefur undir sinni regnhlíf þó nokkur veiðisvæði sem við ræðum við hann um. Einnig segir Matti okkur frá ákaflega skrautlegri...

  7. Flugucastið #32 - Íslenskar bleikjur og Erlendur Steinar

    Halló Akureyri og aðrir kastarar. Í þessum þætti tökum við hús á Ella Steinari sem er fyrrum formaður SVAK og eigandi hinnar sívinsælu og góðu sölusíðu Veiðitorg.is. Elli, sem er sjávarútvegsfræðingur og sjálftitlaður letingi sem byrjaði sinn veiðiferil ekki fyrr en 25 ára, fer með okkur í gegnum...

  8. Flugucastið #31 - Maðurinn sem gjörbreytti veiðinni, Ingimundur Bergsson

    Kæru kastarar þá bjóðum við ykkur uppá Ingimund Bergsson í þætti vikunnar. Ingimundur fer með okkur í gegnum sinn veiðiferil og ekki síst hugmyndina af Veiðikortinu og hvernig það hefur breytt veiðinni fyrir margan veiðimanninn. Svo við segjum njótið því jú við nutum.

  9. Flugucastið #30 - Hilmar Hansson og stórlaxaþráhyggjan

    Hilmar Hansson, dúkalagningarmeistara, kannast flestir veiðimenn við. Hann hefur snert á ýmsu í gegnum tíðina en rauði þráðurinn í hans dellu er draumurinn um þann stóra.

  10. Flugucastið #29 - Engisprettufaraldur-Haraldur Eiríksson

    Haraldur Eiríksson hefur gert veiðina að ævistarfi og er flestum veiðimönnum af góðu kunnur. Einstakur veiðimaður og umfram allt baráttumaður fyrir villtan lax. Njótið kæru kastarar

  11. Flugucastið #28 - Hvíti hvalurinn, Árni Bald

    Það er líklega enginn veiðimaður í heiminum sem hefur ferðast jafnvíða og Árni Baldursson. Ótrúlegur karakter sem hefur alls staðar stungið niður fæti. Verði ykkur að góðu!

  12. Flugucastið #27 - Strengir, Jökla og Nürnberg réttarhöldin

    Þröst Elliðason og fyrirtæki hans, Strengi, þekkja allir veiðimenn. í 27. þætti Flugucastsins förum við yfir hans mögnuðu sögu, feril hans í veiðinni og lítum til framtíðar.

  13. Flugucastið #26 - Dusty Miller, Harpa og NASF

    Kæru kastarar Það var hann Elvar Örn Friðriksson sem mætti til okkar þessa vikuna hann fékk veiðina í vöggugjöf og hefur komið víða við. En hann hefur starfað við leiðsögn, veiðileyfasölu en nú berst hann fyrir verndun villtra laxastofna sem framkvæmdastjóri North Atlantic Salmon Fund á Íslandi....

  14. Flugucastið #25 - Laxfiskar, Jóhannes Sturlaugsson og vísindin

    Jóhannes Sturlaugsson hefur helgað líf sitt laxfiskum. Hann fer vítt og breitt með okkur í þætti vikunnar og dregur ekkert undan í gagnrýni sinni á Hafrannsóknarstofnun. Þessum má enginn missa af!

  15. # - Vörður Marel Jóla-special

    Jæja kæru kastarar hér kemur jólagjöfin okkar til ykkar. Heill þáttur með engum öðrum en Verði Marel Einarssyni. Við þökkum ykkur kærlega fyrir stuðninginn og hlustunina á árinu sem er að líða. Vonandi hafið þið jafn gaman að þessum þætti og við höfðum að gera hann. Jóla- og áramóta kveðja til...

  16. Flugucastið #24 -FOS, hálendið og heiðavötnin

    Kæru kastarar. Kristján Friðriksson er mikill grúskari og hefur undanfarin ár haldið úti þeirri frábæru veiðisíðu FOS.is. Hann er einnig formaður Ármanna, þess gamla og rótgróna stangaveiðifélags. Við fengum Kristján í spjall í þessum síðasta þætti Flugucastsins á sínu fyrsta starfsári. Gleðileg...

  17. Flugucastið #- 23 Þingvellir, Kolaportið og Arnarvatnsheiði

    Kæru kastarar Tómas Skúlason er veiðimönnum kunnur sem eigandi Veiðiportsins úti á Granda. Þessi einstaki og skemmtilegur maður lætur allt flakka í Flugucastinu. Njótið og fáið ykkur því við nutum og já fengum okkur

  18. Flugucastið #22 - Setbergsá, keppnisskapið og þessir stóru

    Tvíburabræðurnir Ásmundur og Gunnar Helgasynir segja okkur frá sínum oft og tíðum skrautlega veiðiferli. Sumir sigrar eru mjög stórir en ósigrarnir geta verið litríkir. Njótið!

  19. Flugucastið #21 - Svartá, þurrflugur og silungar

    Jón Aðalsteinn er frumkvöðull í fluguhnýtingum og fluguveiði. Einn af þeim fyrstu sem virkilega náðu valdi á þurrfluguveiði sem og að veiða á pinku litlar flugur. Einnig byrjaði hann að veiða á bognar nálar og girni. Njótið kæru kastarar við nutum. Sipp og hoj

  20. Flugucastið #20 - Náttúran, rótin og like-in

    Howdiddlyho kæru kastarar. Það eru þungarvigtarmenn hjá okkur í þessum þætti. Feðgarnir Atli og Heiðar Bergmann. Þeir fara yfir veiðiferil sinn sem er nú kannski ekki sá lengsti en engu að síður pakkaður. Farið er yfir rót vandans, gæderí, mússó og samningarviðræður um bíla. Já, þeir feðgar hafa...

  21. Flugucastið #19 - Sumarstrákur, Euronymphing og Kjósin

    Ok ok kæru kastarar. Það var nördast í þessum þætti því það er enginn annar en Hrafn H. Hauksson sem mætti í castið og fór yfir sinn stutta en gríðarlega merkilega veiðiferil. Hér er kafað djúpt í misflóknar pælingar í veiðinni. Taumar, Euronymphing, stangir og flest tæknileg afbrigði af...

  22. Flugucastið #18 - Norðurá, Haugurinn og hnýtingarnar

    Kæru kastarar Það var enginn annar en Sigurður Héðinn (Siggi Haugur)sem mætti til okkar þessa vikuna. Hann fór yfir sinn feril í leiðsögn, veiði og við fluguhnýtingar. Einnig renndum við yfir nýju bókina hans sem ber nafnið Af flugum, löxum og mönnum. Hún er frábær gripur fyrir alla veiðimenn og...

  23. Flugucastið #17 - Skátinn, Norðurá og puttinn

    Jæja kæru kastarar. Þá er komið að ansi merkilegri, fróðlegri og magnaðri sögu. Þorsteinn Stefánsson kom til okkar og fór yfir allan sinn feril. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann náð að þvælast á puttanum um nánast allt land til að veiða, orðinn háttskrifaður gæd og klárað stofn í heilli á. Já...

  24. Flugucastið #16 - Korpa, pólitíkin og Hreggnasi

    Kæru kastarar. Jón Þór Júlíusson, framkvæmdastjóri Hreggnasa, mætti til okkar í ham og í HAM-bol í fyrsta þátt vetrarins. Jón fer með okkur um víðan völl, veltir steinum og stingur á kýlum. Hann er yngsti leigutaki að laxveiðiá á Íslandi. Hann er HAM, þið eruð HAM, við erum öll HAM. Njótið!…

    more
  25. Flugucastið - #Bónusþáttur - Urriðinn, húkkið og fósturstellingin

    Já kæru kastarar. Hér er live-þátturinn með Dagbók urriða, Ólafi Tómasi Guðbjartssyni. Hér förum við yfir margt og mikið. Allt frá góðu húkki í Blöndu yfir í snappið Dagbók urriða, fyrrum tengdapabba og lífið og tilveruna. Já, þessi þáttur var live og við viljum benda á að hljóðgæðin eru ekki...

  26. Flugucastið #15 - Snæfellsnes, SVFR, veiða og sleppa?

    Kæru kastarar! Farið er yfir stóru málin í þessum þætti. Allt frá nærri gjaldþrota stangaveiðifélagi til SVFR eins og það stendur í dag. Bjarni Júlíusson veiðimaður og fyrrverandi formaður SVFR fer yfir æskuna á Snæfellsnesi, leiðsögnina, ástina og formennskuna. Svo er það mál málanna. Veiða og...

  27. Flugucastið #14 - Bloggið, Stangaveiðifélagið og bransinn

    Jæja kæru kastarar. Eftir smá bið er komið að næsta þætti. Er það? Já. Ok. Það er enginn annar en heljarmennið Stjáni Ben sem er gestur þáttarins. Hann fer yfir sögu sína allt frá dópinu yfir í að ætla að sigra stangveiðiheiminn eða svona næstum því. Bloggið sem startaði öllu, árin í SVFR og...

  28. Flugucastið #13- Kjósin, 100 kallarnir og geimverurnar

    Nú jæja þetta er aldeilis þáttur. Í þætti vikunnar er alvöru fræsing. Gestur okkar í þessari viku er einfaldlega frægasti Íslendingur Íslands og þó víða væri leitað. KÓNGURINN Og það er bara einn. Njótið BÚMMMMMM

  29. Flugucastið #12- Urriðafoss, Outfitters og skellinöðruprófið

    Kæru Kastarar. Hvar er sósan? Þá er komið að þætti vikunnar og er hann ekki af verri endanum. Gestur vikunnar er Norðlendingurinn, sem er sem betur fer fluttur í Kópavoginn, Stefán Sigurðsson. Hann er einn eiganda Iceland Outfitters og fer yfir sína veiðisögu sem hófst þegar Stefán var þriggja…

    more
  30. Flugucastið #11 - Bræður, Á og myndastyttan

    Já, þáttur vikunnar er með þeim lengri enda í honum tveir gestir. Bræðurnir Oscar og Erik Koberling mættu og sögðu okkur sínar veiðisögur. Þeir hafa veitt á flugu frá átta ára aldri og síðan þá hefur ekki fengið þá stöðvað í veiði og gæderíi. Kæru kastarar, þáttur vikunnar er á ensku enda urðum…

    more
  31. Flugucastið #10 - Lækurinn, Loop og Húseyjarkvísl

    Jæja, kæru kastarar. Í þætti vikunnar er farið um víðan völl. Við fengum til okkar Valgarð Ragnarsson sem sagði okkur frá sínum afrekum. Allt frá tíma sínum í veiðibúðinni við lækinn og til þróunarvinnu fyrir Loop. Þetta er bingó.

  32. Flugucastið #9 - Hábeinn heppni, SVFR og kampavínsköstin

    Jæja kæru kastarar. Þáttur vikunnar er langur og góður, Við fáum til okkar snilling sem er ekki bara stíflaður veiðimaður heldur er hann einnig formaður Stangaveiðifélags Reykjavíkur. Þetta er enginn annar en Jón Þór Ólason. Við förum yfir alla hans veiðisögu og komandi tíma hjá SVFR og lofum...

  33. Flugucastið #8 - Langskeggur, spilafífl og Veiðivötn

    Já, kæru kastarar. Við biðjumst velvirðingar á töfum á þættinum en hér er hann kominn í allri sinni dýrð og það er ennþá fimmtudagur. Í þætti vikunnar er kafað vel í vatnaveiði. Örn Hjálmarsson leiðir okkur í allan sannleik um dýpstu leyndardóma vatnaveiði og við ræðum meðal annars Hraunsfjörð,...

  34. Flugucastið #7 - Skriðdrekinn, állinn og mambó no 5

    Í þætti vikunnar verður farið allt frá Rússlandi yfir til Argentínu og þaðan til Íslands. Kristján Páll Rafnsson er gestur þáttarins, fer yfir sinn feril og fræðir okkur meðal annars um Fishpartner og auðvitað margt fleira.

  35. Flugucastið #6 - Vorflugur og slysið í Slæðunni

    Jæja kæru kastarar. Þá er komið að sjötta þætti af Flugucastinu. Í þessari viku er kafað djúpt, en samt ekki of djúpt, í silungsveiði og caddis-flugur. Caddis-bræðurnir Hrafn og Ólafur mættu og jusu úr viskubrunni sínum um Þingvallavatn og fóru einnig mjög vel yfir Laxá í Aðaldal. Þar eru þeir...

  36. Flugucastið #5- Bruni, sprenging og leður. BB

    Í Flugucasti þessarar viku er kafað djúpt. Kannski of djúpt eða kannski ekki. Lengsti þátturinn til þessa. Einfaldlega höfðum við um of mikið að tala og viðmælandi okkar of mikilvægur. Björn Roth. Já, þið heyrðuð rétt; liðsmaður Bruna BB. Hér er fræsing og hér er drukkið og hér er stuð. Björn…

    more
  37. Flugucastið #4- Taumar, tökuvari og teikningar

    Í Flugucasti vikunnar köfum við djúpt inn í pælingar um silungsveiði. Við fengum til okkar einn af bestu silungsveiðimönnum Íslands. Ingólfur Örn Björgvinsson kom og fræddi okkur um flest öll trikkin í bókinni. Ef þið viljið ná alvöru árangri í þessari veiði þá hvetjum við ykkur til að hlusta af...

  38. Flugucastið #3 - Snapchat, barðahattar og punghárið

    Þriðji þátturinn kominn í loftið! Í honum er farið yfir málin með fulltrúa ungu kynslóðarinnar, Elíasi Pétri Viðfjörð Þórarinssyni, Villimanni og veiðigúrú.

  39. Flugucastið #2 - Attenborough, síldin og fjöldamorðið

    Veiðikonur og veiðimenn. Til lukku! Veiðitímabilið er byrjað og ekki nóg með það. Annar þátturinn af Flugucastinu er kominn í loftið og í honum fengum við engan smá gest. Eggert Skúlason. Eggert fer um víðan völl, allt frá stórlöxum niður í smæstu síldir. Við ræðum líka um Sporðaköst og fáum…

    more
  40. Flugucastið #1 - Vatnsdalurinn og hundrað kallarnir

    Björn Kr. Rúnarsson mætti til okkar í fyrsta þáttinn af Flugucastinu. Við fórum um víðan völl og ræddum meðal annars Vatnsdalsá og gæderí.

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Flugucastið er hlaðvarp um fluguveiði. Umsjónarmenn eru Hafsteinn Már Sigurðsson og Sigþór Steinn Ólafsson. Markmið þáttarins er að auka á afþreyingarefni fyrir veiðimenn og miðla þekkingu. Tight lines.

HOSTED BY

Tight Lines

Produced by Flugucastið

CATEGORIES

Frequently Asked Questions

How many episodes does Flugucastið have?

Flugucastið currently has 40 episodes available on PodParley. New episodes are automatically indexed when they're published to the podcast feed.

What is Flugucastið about?

Flugucastið er hlaðvarp um fluguveiði. Umsjónarmenn eru Hafsteinn Már Sigurðsson og Sigþór Steinn Ólafsson. Markmið þáttarins er að auka á afþreyingarefni fyrir veiðimenn og miðla þekkingu. Tight lines.

How often does Flugucastið release new episodes?

Flugucastið has 40 episodes. Check the episode list to see recent publication dates and frequency.

Where can I listen to Flugucastið?

You can listen to Flugucastið on PodParley by clicking any episode. We provide an embedded audio player for direct listening, and you can also subscribe via your preferred podcast app using the RSS feed.

Who hosts Flugucastið?

Flugucastið is created and hosted by Tight Lines.
URL copied to clipboard!