Skip to content
Flugvarpið podcast artwork

PODCAST · news

Flugvarpið

by Jóhannes Bjarni Guðmundsson

Fjallað er um flugmál á Íslandi, viðburði, málefni og áhugavert fólk tekið tali. Jói Baddi hefur langa reynslu sem atvinnuflugmaður og flugkennari og starfaði einnig um tíma við fjölmiðla. Flugvarpið er þannig góður farvegur til að sameina þetta tvennt - flugið og fjölmiðlun.

Publisher-supplied feed metadata · PodParley refreshed Oct 16, 2026 · Source feed

Episodes

  1. #174 – Stýrir rannsóknardeild flugslysa innan ICAO - Eykst að sóst sé eftir aðkomu ICAO vegna milliríkjadeilna og til að tryggja trúverðugleika - Þormóður Þormóðsson

    Í þessum þætti er spjallað við Þormóð Þormóðsson sem stýrir sérstakri rannsóknardeild flugslysa innan Alþjóða flugmálastofnunarinnar ICAO með aðsetur í Montreal þar sem hann hefur búið síðustu 20 árin. Þormóður fer yfir ástæður þess að sérfræðingar frá ICAO eru kallaðir til í rannsóknum flugslysa...

  2. #173 – Skynsemi og öllum landsmönnum til heilla að staðsetja eina þyrlu LHG á Akureyri. – Sigurður Ásgeirsson og Njáll Trausti Friðbertsson

    Í þættinum er rætt við Sigurð Ásgeirsson flugstjóra hjá Landhelgisgæslu Íslands og Njál Trausta Friðbertsson alþingismann um kosti þess að staðsetja björgunarþyrlu á Akureyri. Tilefnið er að Njáll Trausti hefur ásamt fleiri þingmönnum lagt fram þingsályktun á Alþingi um að dómsmálaráðherra verði...

  3. #172 – Skilgreina þarf hlutverk LHG í öryggis- og varnarmálum, en brýnasta verkefnið er að fá fjórðu þyrluna segir forstjórinn í tilefni 100 ára afmælis Landhelgisgæslunnar – Georg Kr. Lárusson

    Landhelgisgæsla Íslands fagnar 100 ára afmæli á þessu ári og af því tilefni er rætt við Georg Kr. Lárusson forstjóra. Farið er yfir afmælisfagnaðinn og rætt um ýmis atriði í langri sögu gæslunnar og einkum þær breytingar sem hafa orðið á þeim rúmlega tveimur áratugum sem Georg hefur setið í stóli...

  4. #171 – „Ekki tapa gleðinni” – Ein af síðustu flugferðum PLAY rifjuð upp þegar 1 ár er liðið frá falli félagsins - Una Gísladóttir og Bjarni Jónsson

    Rætt er við þau Bjarna Jónsson flugstjóra og Unu Gísladóttur flugmann í tilefni af því að nú er 1 ár liðið frá falli flugfélagsins Play. Þau voru saman í áhöfn á síðasta degi sem félagið starfaði og flugu Airbus vél félagsins frá Keflavík til Dublin að morgni 29. september 2025 þar sem þau fengu...

  5. #170 - Neytendavernd flugfarþega í Evrópu kostar flugfélögin um 8 milljarða USD á ári – fjallað um GROUNDED ráðstefnu AVILABS um flugraskanir og ferðarof (IROPS) – Sveinn Akerlie

    Grounded ráðstefnan fór fram í Hörpu í Reykjavík 2.–3. september 2026 og var þetta í þriðja sinn sem hún er haldin á vegum íslenska hugbúnaðarfyrirtækisins AVILABS. Í þættinum er rætt við Svein Akerlie forstjóra AVILABS um efni ráðstefnunnar og einnig eru tveir þátttakendur þau Sherly Lee frá...

  6. #169 – Gríðarleg uppbygging hjá RwandaAir í Kigali - 5 A330 vélar í flotann á næstu mánuðum og margföld stækkun flugvallarins – lægri skattar og gjöld laða flugfélög að Möltu - Andri Geir Eyjólfsson

    Rætt er við Andra Geir Eyjólfsson framkvæmdastjóra flugrekstrarsviðs hjá RwandaAir sem gerir út frá Kigali. Andri Geir hefur víðtæka reynslu úr fluginu og var einn af lykilstjórnendum Play allt þar til yfir lauk haustið 2025 og var í forystu þess að stofna Fly Play á Möltu, sem nú er komið að…

    more
  7. #168 – Arnarflug 50 ára - Flugfélag með ferskan blæ og einstakan starfsanda – lítilmagni sem lifði lengi við hlið Flugleiða.

    Í þessum þættu er rakin saga Arnarflugs í tilefni af því að á þessu ári eru 50 ár liðin frá stofnun félagsins. Efni þáttarins byggir á samantekt Flugsafns Íslands um Arnarflug, en safnið opnaði sérstaka sýningu tileinkaða félaginu í byrjun sumars í tilefni tímamótanna. Í þættinum er rætt við…

    more
  8. #167 - Eftir litlu að sljægjast fyrir flugið með inngöngu í ESB – rætt um kosti og galla aðildar Íslands að ESB fyrir flugrekstur, ETS málin og vond áhrif af reglugerð innviðaráðherra eftir fall Play - Erlendur Gíslason

    Í tilefni af þjóðaratkvæðagreiðslu Íslendinga um mögulegar aðildarviðræður að Evrópusambandinu fékk Flugvarpið Erlend Gíslason lögmann í viðtal til að ræða stuttlega um hvaða áhrif innganga í ESB hefði fyrir flugið; þessa stóru grein hérlendis sem þúsundir hafa atvinnu af með beinum og óbeinum...

  9. #166 – Hátíðin Flug&fákar framundan á Egilsstaðaflugvelli – von á tugum flugvéla austur og margs konar græjur til sýnis – mikil tækifæri í að nýta flugvöllinn betur en gert er í dag – Þura Garðarsdóttir

    Flughátíðin Flug og fákar verður á Egilsstöðum 26. júlí og af því tilefni er rætt við Þuru Garðarsdóttur sem starfar í dag sem flugradíómaður á Egilsstaðaflugvelli og er aðalsprautan í skipulagningu hátíðarinnar. Hún segir að græjumenningin sé rík í Austfirðingum og það verði sannkölluð upplifun...

  10. #165 - Forystumaður í grasrót flugsins – hannar og framleiðir Pixweather, nýjar veðurstöðvar sem virka einkar vel fyrir flugið og vill opnari umræðu um flugatvik- og slys til að flugmenn geti lært af þeim – Ágúst Guðmundsson

    Ágúst Guðmundsson er tölvunarfræðingur og flugmaður sem er vel þekktur í grasrót flugsins hér á landi. Hann situr í framkvæmdastjórn alþjóða Flugmálafélagsins (FAI) og hefur á undanförnum áratugum tekið virkan þátt í félagsstörfum hér heima og erlendis. Ágúst er þjálfunar- og tæknistjóri…

    more
  11. #164 – Fyrstur á fisflugvél yfir Norðurpólinn – ferðasaga tékkneska fisflugmannsins – nú í fjórða skiptið á fisflugvél til Ísland og stefnir á að heimsækja alla flugvelli landsins - Jiří Pruša

    Tékkneski fisflugmaðurinn Jiří Pruša flaug yfir Norðurpólinn þann 4. júlí 2026 og var það í fyrsta sinn sem fisflugvél er flogið yfir pólinn og til baka. Jiří er mikill Íslandsvinur og hafði viðkomu hér á landi á leið sinni frá pólnum og heim til Tékklands. Hann segir hér frá ferðalaginu á...

  12. #163 – 80 ár frá því að Bretar afhentu Íslendingum Reykjavíkurflugvöll – völlurinn öruggari í sessi nú en áður – samantekt frá viðburði ISAVIA innanlandsflugvalla í tilefni tímamótanna.

    Þann 6. Júlí 2026 voru liðin 80 ár frá því að Bretar afhentu íslenska ríkinu Reykjavíkurflugvöll með formlegum hætti og af því tilefni efndi ISAVIA innanlands til kaffisamsætis í flugstjórnarmiðstöðinni við Nauthólsveg þar sem tímamótanna var minnst. Í þessum þætti fer samantekt Flugvarpsins á...

  13. #162 – Flughátíðin Allt sem flýgur á Hellu – einn af hápunktum flugsumarsins – margir viðburðir víða um land - Edda Ingibjörg Eggertsdóttir og Matthías Sveinbjörnsson

    Árleg flughátíð Flugmálafélags Íslands verður helgina 10. til 12. júlí n.k. og af því tilefni er spjallað við þau Eddu Ingibjörgu Eggertsdóttur varaforseta og Matthías Sveinbjörnsson forseta Flugmálafélagsins. Rætt er um dagskrá hátíðarinnar í ár og við hverju megi búast ásamt því að spjalla...

  14. #161 – Þyrluflugið mikilvægur þáttur í ferðaþjónstunni - Sameining HeliAir og Reykjavik Helicopters lofar góðu – Friðgeir Guðjónsson

    Rætt er við Friðgeir Guðjónsson framkvæmdastjóra sameinaðs þyrlufélags HeliAir Iceland og Reykjavik Helicopters. Farið er yfir aðdragandann að sameiningu félaganna nú í vor og hvernig gengur hjá nýju félagi. Friðgeir segir þyrlubransann engu líkann, þar fái viðskiptavinir stúkusæti til að skoða...

  15. #160 – „Flugið er lífsstíll“ – Stórveldið í Kópavogi með risaþotur um allan heim - Valdir kaflar úr upptöku frá „Live podcast“ viðburði Air Atlanta í tilefni 40 ára afmælis félagsins.

    Það var fjölmenni sem mætti á „live podcast“ viðburð í tilefni af 40 ára afmæli Air Atlanta á þessu ári sem haldinn var í Cafe Atlanta 28. maí 2026. Í þessum þætti er búið að klippa saman viðtalsefni frá kvöldinu en þennan dag var einmitt tilkynnt um viðskipti lykilstjórnenda Atlanta og Atlas...

  16. #159 – „Þetta er náttúrulega bara della“ – einstakur ferill í atvinnuflugi í meira en hálfa öld – flaug fyrstu Twin Otter vélinni til Íslands en besta tímabilið var í Þýskalandi – Ómar Ólafsson

    Ómar Ólafsson flugstjóri á að baki langan og stórmerkilegan feril í fluginu. Hann fór í flugnám um miðjan sjöunda áratuginn og hefur sinnt ótrúlega fjölbreyttum störfum á langri starfsævi hjá fjölda flugfélaga. Má þar nefna Flugfélagið Þór í Keflavík, flugþjónustu Björns Pálssonar, Vængi,...

  17. #158 – ”Live podcast” - Viðburður Icelandair og Flugvarpsins – upptaka frá 7. maí 2026 – Linda Gunnarsdóttir, Snorri Tómasson og Guðbergur Ólafsson

    Upptaka frá ”live podcast” viðburði Icelandair sem haldinn var í samvinnu við Flugvarpið 7. maí 2026. Rætt er við þau Lindu Gunnarsdóttur director chief pilots office, Snorra Tómasson director network and scheduling og Guðberg Ólafsson manager operations control center. Spjallað er um starf…

    more
  18. #157 – Samantekt frá fundi Flugmálafélagsins um Reykjavíkurflugvöll og flugið í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga.

    Flugmálafélag Íslands stóð fyrir fundi um Reykjavíkurflugvöll og flugið í aðdraganda sveitastjórnarkosninga. Fulltrúar allra framboða sem bjóða fram í höfuðborginni mættu, hlustuðu á erindi og greindu frá afstöðu sinni og síns flokks. Þessi þáttur er stutt samantekt frá þessum fundi og…

    more
  19. #156 – Efast um heimildir heilbrigðiseftirlits borgarinnar til að setja hömlur á starfsemi flugvallarins - Rætt um skipulagsmál RKV og KEF og af hverju er Malta vinsæl? – Karl Alvarsson

    Karl Alvarsson er fyrrverandi flugumferðarstjóri og lögfræðingur og hefur unnið ýmis sérfræðistörf tengd fluginu. Hann er í dag formaður Fagráðs um flugmál sem er innviðaráðherra til ráðuneytis í málaflokknum og er þar að auki formaður skipulagsnefndar fyrir Keflavíkurflugvöll. Í þættinum er rætt...

  20. #155 – Flugfreyja, leikkona, leiðsögumaður og uppistandari með ólæknandi ferðabakteríu – „Samskipti við fólk eru mínar ær og kýr“ segir Helga Braga í spjalli um flugfreyjustarfið, leiklistina o.fl. – Helga Braga Jónsdóttir

    Rætt er við Helgu Brögu Jónsdóttur flugfreyju og eina þekkturstu leikkonu landsins. Hún hefur verið í ferðabransanum í um 40 ár, vann um skeið hjá Ferðaskrifstofu Íslands og hóf flugfreyjuferil sinn hjá Iceland Express árið 2011, áður en hún fór til WOW air og síðar Icelandair þar sem hún starfar…

    more
  21. # 154 - Umhverfisskattar ógna tengimiðstöð flugs um Ísland. ESB vinnur að endurskoðun á ETS kerfinu. Flugvarpið rýnir í skýrslu sem íslensk stjórnvöld sendu til ESB sem innlegg í þessa vinnu og rætt er við Sigurberg Björnsson fulltrúa innviðaráðuneytisins

    Í þættinum er fjallað um ETS viðskiptakerfið og áhrif þess á flugrekstur í Evrópu og ekki síst hér á Íslandi. Rýnt er í skýrslu sem íslensk stjórnvöld sendu í samráðsgátt Evrópusambandsins sem innlegg Íslands í vinnu við endurskoðun á ETS kerfinu. Rætt er við Sigurberg Björnsson fulltrúa...

  22. #153 – Sérfræðingur í skipulagningu á viðhaldi flugvéla – er ein fárra kvenna í stétt flugvirkja á Íslandi – Guðrún Hrefna Kolbeinsdóttir

    Rætt er við Guðrúnu Hrefnu Kolbeinsdóttur flugvirkja hjá Icelandair um hennar starf við skipulagningu á viðhaldi flugvéla sem hún hefur starfað við í á annan áratug. Guðrún Hrefna segir líka frá því hvernig það kom til að hún fór í flugvirkjanámið á sínum tíma til Danmerkur og hvernig hún fann…

    more
  23. #152 – AVIANS tekur við af ISAVIA ANS. Ísland í leiðtogahlutverki í flugleiðsöguþjónustu á Norður-Atlantshafinu. Framkvæmdastjórinn segir metnað um að auka sveigjanleika og bæta þjónustuna við flugið. - Kjartan Briem.

    Rætt er við Kjartan Briem framkvæmdastjóra AVIANS dótturfyrirtækis ISAVIA, en fyrirtækið annast flugleiðsöguþjónustu á íslenska flugstjórnarsvæðinu, sem er eitt hið stærsta í heimi. Kjartan segir frá breytingum sem orðið hafa í tækni og þjónustu á liðnum árum og ræðir þær áskoranir sem blasa við....

  24. #151 – Icelandair vill kaupa 49% í flugfélaginu Fly Play Europe á Möltu – meiri sveigjanleiki og ný tækifæri segir forstjórinn - Bogi Nils Bogason

    Rætt er við Boga Nils Bogason forstjóra Icelandair í tilefni af viljayfirlýsingu sem félagið hefur skrifað undir um að hefja viðræður um möguleg kaup á 49% hlut í félaginu Fly Play Europe, sem er skráð á Möltu og er með flugrekstrarleyfi þar. Félagið var stofnað af íslenska flugfélaginu Play…

    more
  25. #150 - Mikil eftirspurn eftir Grænlandsflugi Norlandair – 7 flugvélar í rekstri og tækifærin mörg – þörf á uppbyggingu víðar en í Keflavík – Arnar Friðriksson

    Rætt er við Arnar Friðriksson framkvæmdastjóra flugfélagsins Norlandair um starfsemi félagins sem er með höfuðstöðvar sínar á Akureyri. Félagið er með 7 flugvélar í rekstri og flug félagsins er gríðarlega mikilvægt ekki bara fyrir Akureyringa heldur landsmenn alla. Félagið er með sjúkraflugsvakt...

  26. #149 – Rétt þjálfun, hæfni og skilningur flugmanna getur skilið á milli feigs og ófeigs segir „guðfaðir” UPRT þjálfunar. Sj´álfvirkni, háþróuð kerfi og minna handflug kalla á nýjan nálgun í þjálfun – Dr. Sunjoo Advani

    Í þættinum er rætt við Dr. Sunjoo Advani forstjóra og stofnanda IDT (International Development of Technology) sem Boeing hefur kallað guðfaðir UPRT (Upset Prevention and Recovery Training) þjálfunar í heiminum. Tilefni heimsóknar Dr. Sunjoo til Íslands að þessu sinni er samstarf IDT og...

  27. #148 – Ólíklegt að eignir þrotabús flugfélagins Play dugi fyrir forgangskröfum uppá um 1 milljarð – kröfurnar í heild um 20 milljarðar - Arnar Þór Stefánsson

    Rætt er við Arnar Þór Stefánsson hæstaréttarlögmann og skiptastjóra þrotabús flugfélagsins Play. Farið er yfir stöðuna í þrotabúinu eftir fall félagsins og þá vinnu sem skiptastjórar hafa unnið til þessa. Heildarkröfur í þrotabúið nema um 20 milljörðum króna, eignir eru afar takmarkaðar og þess...

  28. #147 – Mildi að varaflugvellirnir virkuðu þann 26. febrúar 2026 – samantekt um veðrið, flugreksturinn, flugvellina og fólkið - Einar Sveinbjörnsson, Ásgeir Gunnar Stefánsson og Sigrún Björk Jakobsdóttir

    Í þættinum er fjallað um atburðina þann 26. febrúar þegar veðurskilyrði í Keflavík breyttust undraskjótt sem olli því að margar farþegaþotur og fleiri flugvélar urðu frá að hverfa og neyddust til að lenda á sínum varaflugvöllum í Reykjavík og á Akureyri og á Egilsstöðum. Varaflugvellirnir sönnuðu...

  29. #146 – Komu til Afríku áður en þau komu til Akureyrar. Flugsystkynin Anna María og Róbert Magnús spjalla um ferilinn og Air Atlanta sem er að fá 19. breiðþotuna og þjálfa nýja flugmenn. - Anna María Kristmundsdóttir og Róbert Magnús Kristmundsson.

    Gestir þáttarins eru systkynin Anna María og Róbert Magnús Kristmundsbörn sem hafa bæði áratuga reynslu úr flugheimunum, hún sem flugfreyja og hann sem flugstjóri. Bæði fengum þau “flugbakteríuna” í vöggugjöf því faðir þeirra Kristmundur Magnússon var loftskeytamaður og síðar flugstjóri fyrir…

    more
  30. #145 - Skipulagsvald borgarinnar yfir Reykjavíkurflugvelli í öngstræti. Borgin vill starfsemina burt 2032 án tillits til þjóðarhagsmuna. Spjallað við Njál Trausta alþingismann um innanlandsflugvellina, samgönguáætlun o.fl. - Njáll Trausti Friðbertsson

    Í þættinum er rætt við Njál Trausta Friðbertsson alþingismann og flugumferðarstjóra um ýmis atriði sem tengjast fluginu í nýrri samgönguáætlun og nú er í meðförum Alþingis. Njáll Trausti hefur fylgst vel með flugmálum á síðustu árum og verið ötull talsmaður uppbyggingar á flugvöllum landsins,...

  31. #144 – Heillaðist af fluginu og stýrir nú flugumferð á Reykjavíkurflugvelli. Vill efla samtalið við flugmenn til að auka skilning milli hópa. Aníta Eik Kjartansdóttir

    gestur þáttarins er Aníta Eik Kjartansdóttir en hún lauk námi í flugumferðarstjórn árið 2024 og starfar í dag í turninum á Reykjavíkurflugvelli. Hún heillaðist snemma af fluginu og segir í þessum þætti frá flugumferðarstjóranáminu og uppbyggingu þess. Þá fer hún yfir ýmislegt sem tengist starfinu…

    more
  32. #143 – Margt jákvætt í rekstri Icelandair þrátt fyrir tap uppá 1,2 milljarða eftir skatta í fyrra. Umhverfisskattar og gjöld um 5 milljarðar hjá Icelandair 2025. Töf er á afhendingu hjá Airbus og lausir kjarasamningar skapa óvissu. Bogi Nils Bogason

    Rætt er við Boga Nils Bogason forstjóra Icelandair í tilefni af uppgjöri félagisns fyrir árið 2025 sem nú er búið að birta. Þrátt fyrir sterkan fjórða ársfjórðung, góða stundvísi og góða sætanýtingu hjá félaginu þá er niðurstaðan sú að EBIT tapið nam 2,2 milljörðum króna og tap eftir skatta um…

    more
  33. #142 - Ferðarof eða raskanir á flugi eru flugfélögunum dýr – AVILABS er íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki sem þjónar flugfélögum um allan heim þegar flug raskast – varð til eftir fall WOW og stækkar hratt – Sveinn Akerlie

    Rætt er við Svein Akerlie stofnanda og forstjóra Avilabs sem er öflugt íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki og sérhæfir sig í þjónustu við farþega þegar raskanir verða á flugi eða það sem kallast ferðarof. Í desember s.l. urðu raskanir á meira en 700 þúsund flugferðum vítt og breitt um heiminn sem kallar…

    more
  34. #141 – Áramótaspjall – rætt um fréttir og viðburði í fluginu á árinu 2025 og hvað sé framundan á nýju ári – Kristján Már Unnarsson og Matthías Sveinbjörnsson fara yfir málin.

    Þáttur #141 er kominn í loftið. Í þessum áramótaþætti er farið yfir ýmsar helstu fréttir úr fluginu á árinu 2025 og spáð í útlit og horfur fyrir 2026. Gestir þáttarins þekkja vel til í flugmálum þeir Kristján Már Unnarsson fréttamaður og Matthías Sveinbjörnsson forseti Flugmálafélags Íslands.…

    more
  35. #140 Gamlársdagur á Reykjavíkurflugvelli – spjallað við nokkra flugmenn á rölti um Fluggarða á síðasta degi ársins 2025.

    Þáttur #140 var tekinn upp á gamlársdag 2025 í Fluggörðum, en rík hefð er fyrir því að flugklúbbar þar eins og víðar á landinu bjóði gestum í kaffi og kökur í lok ársins. Í veðurblíðunni voru líka margir sem nýttu daginn til að viðra sig og fara í flugtúr. Viðmælendur (sem voru óvænt teknir tali)…

    more
  36. #139 – Farþegum um KEF fækkar annað árið í röð – tengifarþegum fækkar mest – forstjóri ISAVIA vill halda dampi í gegnum lægðina og vera tilbúinn þegar farþegum fjölgar á ný - Sveinbjörn Indriðason

    Rætt er við Sveinbjörn Indriðason forstjóra ISAVIA um reksturinn á Keflavíkurflugvelli í tilefni af nýrri farþegaspá fyrir árið 2026. Spáin gerir ráð fyrir töluverðri fækkun farþega um völlinn og munar þar mestu um 15% færri tengifarþega. Sveinbjörn segir að þessi fækkun muni hægja á framkvæmdum…

    more
  37. #138 – Icelandair auglýsir eftir flugmönnum – margar umsóknir nú þegar og félagið mun geta valið úr hópi reynslumikilla flugmanna - Linda Gunnarsdóttir

    Rætt er við Lindu Gunnarsdóttur yfirflugstjóra Icelandair um fyrirhugaðar ráðningar flugmanna í millilandaflug félagsins. Á annað hundrað flugmenn misstu vinnuna þegar Play fór í þrot í haust og nú auglýsir Icelandair eftir fólki með reynslu á þotu. En hvað á að ráða marga og hvaða vélum eiga…

    more
  38. #137 – Fékk fyrsta flugmannsstarfið á þotu hjá Icelandair, en valdi að snúa aftur heim og flýgur nú hjá KLM út frá Schiphol. Spjallað um flugmannsstarfið hér og þar - Lennart Keizer

    Rætt er við Lennart Keizer flugmann á Boeing 737 hjá KLM, en hann byrjaði sinn flugmannsferil hjá Icelandair árið 2017 þegar Icelandair réð nokkurn hóp erlendra flugmanna til starfa hjá félaginu. Lennart flutti aftur til heimalandsins í fyrra þegar honum bauðst vinna hjá KLM og er í dag með...

  39. #136 – Það gerist all mannlegt um borð í flugvél og farþegarnir ekki alltaf á leið í skemmtiferð – þakklát fyrir draumastarfið sem flugfreyja í nær hálfa öld - Björg Jónasdóttir

    Rætt er við Björgu Jónasdóttur fyrrverandi flugfreyju hjá Icelandair, Flugleiðum og þar áður Loftleiðum um flugfreyjustarfið og ýmsa atburði á hennar langa og fjölbreytta flugferli. Björg hóf störf árið 1972 þegar hún var aðeins tvítug að aldri. Hún segir meðal annars frá fyrstu flugferðunum á...

  40. #135 - Vinir Gunnfaxa – landssöfnun til að koma þristinum Gunnfaxa á samgöngusafnið á Skógum – Snorri og Jón Karl Snorrasynir

    Rætt er við bræðurna Snorra og Jón Karl Snorrasyni um landssöfnun sem nú er í gangi til að bjarga flugvélaflaki þristsins Gunnafaxa af Sólheimasandi. Þeir bræður hafa á undanförnum vikum unnið að verkefninu ásamt Ólafi Eggertssyni bónda á Þorvaldseyri. Gunnfaxi var í eigu Þristavinafélagsins og...

  41. #134 – Dýrkeyptur metnaður Evrópu í loftlagsmálum – Ísland ber langhæsta kostnað allra landa í Evrópu sem kemur illa niður á íslenskum flugrekstri - Heiða Njóla Guðbrandsdóttir

    Rætt er við Heiðu Njólu Guðbrandsdóttur verkfræðing og forstöðumann hjá Icelandair um þann gríðarlega kostnað sem fellur á íslensk flugfélög í formi umhverfisskatta- og gjalda, en hún er sérfræðingur í margs konar kerfum sem sett hafa verið á flugfélögin í nafni loftlagsmála. Heiða Njóla útskýrir…

    more
  42. #133 – Hagur allra að rekstur Icelandair verði arðbær aftur segir flugmaðurinn og fyrrum forstjóri Play sem nú er framkvæmdastjóri flugrekstrar Icelandair – Arnar Már Magnússon

    Rætt er við Arnar Má Magnússon nýjan framkvæmdastjóra flugrekstrarsviðs Icelandair, en hann tók nýlega við stöðunni samhliða skipulagsbreytingum sem gerðar voru hjá félaginu til að einfalda yfirstjórnina. Arnar Már er atvinnuflugmaður og hefur að auki langa reynslu af flugrekstri. Hann var...

  43. #132 – Alvarleg flugatvik geta verið undanfari slysa – rætt um flugslysarannsóknir og rýnt í alvarlegt atvik yfir Íslandi sem draga má mikinn lærdóm af - Ragnar Guðmundsson

    Rætt er við Ragnar Guðmundsson flugvélaverkfræðing og rannsakanda hjá flugsviði Rannsóknarnefndar samgönguslysa um fjölgun alvarlegra flugatvika á síðustu árum. Þá hefur fjölgun alvarlegra flugumferðaratvika á síðustu misserum orðið tilefni til sérstakrar umræðu á fundum RNSA og Samgöngustofu og...

  44. #131 – Getur vont skap valdið flugslysum? Spjall um andlega heilsu og flugöryggi - Jóhann Pétur Wium Magnússon

    Rætt er við Jóhann Pétur Wium Magnússon flugsálfræðing í tilefni af áhugaverðu erindi hans á flugöryggisráðstefnunni Reykjavik Flight Safety Symposium sem haldin var nýverið. Geðheilbrigðismál hafa á síðustu árum fengið meiri athygli í fluginu eins og víða annars staðar. Nýjar reglur hafa verið...

  45. #130 – Nauðsynlegt að snúa við ósjálfbærum rekstri Icelandair – vonbrigði eftir Q3 og útlit fyrir tap af árinu í heild - Bogi Nils Bogason

    Rætt er við Boga Nils Bogason forstjóra Icelandair í tilefni af uppgjöri félagsins eftir fyrstu 9 mánuði ársins 2025. Þrátt fyrir auknar tekjur og ýmis jákvæð teikn í rekstrinum olli rekstrarniðurstaðan vonbrigðum og spáð er tapi á rekstri félagsins í árslok. Eftir 8 ár af ósjálfbærum rekstri…

    more
  46. #129 - Flugvarpið 5 ára - upptaka frá afmælisviðburði í Sykursalnum 14. október 2025.

    Hér er á ferðinni upptaka frá afmælisviðburði Flugvarpsins í tilefni af 5 ára afmæli hlaðvarps Íslendinga um flugmál. Ljúfir tónar jasskvintetts Jóns Harðar flugstjóra tóku á móti gestum og á sviðinu var tekið hressilegt spjall um flugmálin við nokkra frábæra viðmælendur og sögur sagðar. Fyrst...

  47. #128 – PLAY á Íslandi gjaldþrota – tilfærslan til Möltu og breytt staða á flugmarkaðnum - Hans Jørgen Elnæs

    Rætt er við norska flugreinandann Hans Jørgen Elnæs um gjaldþrot Play og síbreytilega stöðu á flugmarkaðnum í Evrópu. Hann segir það hafa komið á óvart að Play hafi farið í þrot svo skömmu eftir endurfjármögnun íslenska félagsins. Markaður fyrir Airbus flugvélar af þeirri gerð sem Play notaði er...

  48. #127 –Flugfélagið Bláfugl gjaldþrota eftir margra ára dómsmál – átakamálin sum svipuð og í umræðunni núna um fall PLAY. Karl Ó. Karlsson lögmaður fer yfir ýmsa anga í Bláfuglsmálinu.

    Rætt er við Karl Ó. Karlsson lögmann FÍA og sérfræðing í vinnurétti um áralangar deilur Bláfugls og Félags íslenskra atvinnuflugmanna fyrir dómstólum, eftir að 11 flugmönnum Bláfugls var sagt upp störfum og verktakaflugmenn ráðnir í þeirra stað á mun lægri kjörum. Bláfugl skilaði inn íslensku...

  49. #126 – Nauðlendingin á Sólheimasandi enn í fersku minni, segir flugmaðurinn Gregory Fletcher. Ótrúlegt afrek að svífa ísaðri Douglas vélinni langa leið og lenda giftusamlega á sandinum.

    Rætt er við Gregory Fletcher flugmanninn sem nauðlenti Douglas C-117D flugvél bandaríska sjóhersins á Sólheimasandi í nóvember 1973. Fletcher sótti Ísland heim nýverið og fór þá á staðinn aftur í fyrsta sinn í rúma hálfa öld. Af því tilefni sló Flugvarpið á þráðinn til hans, til að heyra hans…

    more
  50. #125 – Íslenskt hugvit í þróun nýrra tæknilausna á flugvöllum – bylting í nýrri hönnun flugbrautarljósa - Velocity Airport Solutions - Frosti Heimisson

    Rætt er við Frosta Heimisson eiganda og framkvæmdastjóra Velocity Airport Solutions sem hefur náð eftirtektarverðum árangri í að hanna ljósabúnað fyrir flugvelli. Frosti á sinn bakgrunn í fluginu hérlendis, starfaði um tíma hjá ISAVIA og TERN og hefur á síðustu árum náð að hasla sér völl í…

    more

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Fjallað er um flugmál á Íslandi, viðburði, málefni og áhugavert fólk tekið tali. Jói Baddi hefur langa reynslu sem atvinnuflugmaður og flugkennari og starfaði einnig um tíma við fjölmiðla. Flugvarpið er þannig góður farvegur til að sameina þetta tvennt - flugið og fjölmiðlun.

HOSTED BY

Jóhannes Bjarni Guðmundsson

Produced by Jói Baddi

CATEGORIES

Frequently Asked Questions

How many episodes does Flugvarpið have?

Flugvarpið currently has 173 episodes available on PodParley. New episodes are automatically indexed when they're published to the podcast feed.

What is Flugvarpið about?

Fjallað er um flugmál á Íslandi, viðburði, málefni og áhugavert fólk tekið tali. Jói Baddi hefur langa reynslu sem atvinnuflugmaður og flugkennari og starfaði einnig um tíma við fjölmiðla. Flugvarpið er þannig góður farvegur til að sameina þetta tvennt - flugið og fjölmiðlun.

How often does Flugvarpið release new episodes?

Flugvarpið publishes regularly with 173 episodes available. Check the episode list for the typical release schedule.

Where can I listen to Flugvarpið?

You can listen to Flugvarpið on PodParley by clicking any episode. We provide an embedded audio player for direct listening, and you can also subscribe via your preferred podcast app using the RSS feed.

Who hosts Flugvarpið?

Flugvarpið is created and hosted by Jóhannes Bjarni Guðmundsson.
URL copied to clipboard!