Skip to content
Fotbolti.net podcast artwork

PODCAST · sports

Fotbolti.net

by Fotbolti.net

Podcastþættir Fótbolta.net

Publisher-supplied feed metadata · PodParley refreshed Oct 10, 2026 · Source feed

Episodes

  1. 38 umferðir - Er of seint að kaupa De Cuyper?

    Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu eftir 6. umferð og lögðu á ráðin fyrir 7. umferð. Fresturinn til að gera breytingar rennur út laugardaginn 17. október kl. 10:00 en umferðin hefst á leik Everton - Chelsea kl 11:30 sama dag.

  2. Enski boltinn - City á toppnum í storminum og hiti á Carrick

    Enska úrvalsdeildin er aftur farin af stað eftir þriggja vikna landsleikjahlé. Það var nóg að ræða í Enski boltinn hlaðvarpinu að þessu sinni. Manchester City fór á Anfield og vann þar 0-3 sigur í skugga þess að hafa verið fundið sekt í 114 af 115 ákæruliðum í landsleikjahléinu. City er á toppnum...

  3. Innkastið - Hvaða félög taka þátt í þjálfarakaplinum?

    Innkastið eftir 25. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Kári Snorrason. Eyjamenn eru fallnir og annað af Akureyrarliðunum mun fylgja, KR-ingar hafa svo gott sem tryggt sér annað sætið og það vantar ekki slúðursögurnar á þessum árstíma.

  4. Útvarpsþátturinn - Bestu agabrotin og U21 einvígi frá EM

    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 10. október. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Farið er yfir fótboltafréttir vikunnar þar sem agabrot innan íslenska landsliðs bar hæst. Besta deildin fer aftur af stað og rýnt er í slúðrið. Sævar Pétursson framkvæmdastjóri KA kemur í heimsókn og ræðir um...

  5. Gummi Torfa fer yfir allt sviðið fyrir stórleikinn

    Fram hefur átt mjög gott tímabil, karlalið félagsins verður í Evrópukeppni næsta sumar í fyrsta sinn í rúman áratug og kvennaliðið hélt sæti sínu í Bestu deildinni þvert á spár. Fyrrum atvinnu- og landsliðsmaðurinn Guðmundur Torfason, meðlimur í 19 marka klúbbnum, er formaður fótboltadeildar…

    more
  6. Íslandsmeistarar fara yfir tímabilið

    Óskar Borgþórsson og Daníel Hafsteinsson mættu í hljóðver til Kára Snorrasonar og fóru yfir tímabilið hjá Íslandsmeisturum Víkings. Víkingar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn á Meistaravöllum undir lok síðasta mánaðar og urðu þar með fyrsta liðið í tæpan áratug sem tekst að verja titilinn.…

    more
  7. 38 umferðir - Wildcard og vítamín

    Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu eftir lengsta landsleikjahlé sögunnar og lögðu á ráðin fyrir næstu umferð. Fresturinn til að gera breytingar rennur út laugardaginn 10. október kl. 10:00 en umferðin hefst á leik Arsenal - Leeds kl 11:30...

  8. Innkastið - Ósáttir en ósigraðir

    Innkastið gerir upp landsleikjagluggann hjá Íslandi og skoðar hvaða leiki verða um næstu helgi í Bestu deildinni. Elvar Geir, Valur Gunnars og Valur Páll Eiríksson í hljóðveri. Íslandi mistókst að vinna Eistland en er samt á toppi riðilsins, U21 landsliðið komst í umspil með frábærum lokakafla í...

  9. Uppbótartíminn - Leikur ársins og hvað verður um Val og Víking?

    Valur og Víkingur féllu úr Bestu deild kvenna síðasta föstudag eftir rosalega lokaumferð í neðri hluta deildarinnar. Báðum liðum var spáð talsvert betra gengi en sumarið var virkilega erfitt. Í efri hlutanum var líklega leikur ársins spilaður í dag þegar Þróttur heimsótti Breiðablik. Það er vonin...

  10. Útvarpsþátturinn - Breytingar í Bestu og landsliðsleikdagur

    Úvarpsþátturinn Fótbolti.net 3. október. Elvar Geir, Kári Snorra og Baldvin Borgars fara yfir það helsta í fótboltanum. Þátturinn er sendur út á leikdegi hjá landsliðinu. Frammistaða Íslands í Þjóðadeildinni er skoðuð og hitað upp fyrir leik gegn Búlgaríu. Þá er farið yfir allt það helsta sem er…

    more
  11. Hvað verður um Man City?

    Fjármálaráðgjafinn Björn Berg Gunnarsson kom í hljóðver og ræddi við Kára Snorrason um stóra Manchester City-málið. Farið var yfir brotin, mögulegar refsingar, áfrýjunina og hvað gæti tekið við.

  12. Uppbótartíminn - Gerist eitthvað ótrúlegt í lokin

    Það er komið að Uppbótartímanum eftir 20. umferð Bestu deild kvenna. Guðmundur Aðalsteinn og Arnar Páll komu sér fyrir í Coke stúdíóinu ásamt Herði Bjarnari Hallmarssyni, þjálfara Hauka, og fóru yfir umferðina. Valur og Víkingur gerðu jafntefli og eru fyrir lokaumferðina í fallsætum. Þór/KA getur...

  13. Útvarpsþátturinn - Maggi.net og martröð Man City

    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 26. september. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, er sérstakur gestur þáttarins en liðið vann Lengjudeildina og komst í bikarúrslit á tímabilinu. Í seinni hluta þáttarins ræðir fjármálasérfræðingurinn Sævar Þór...

  14. Harkið - Uppgjörsþáttur úr 2 deild

    Harkið tók góða yfirferð á 2 deild karla og fór yfir stærstu atvik sumarsins auk þess að velja lið tímabilsins, besta leikmann, efnilegasta leikmann og þjálfara ársins Gestir þáttarins voru Frosti Brynjólfsson leikmaður Selfoss og Ólafur Darri Sigurjónsson leikmaður Hauka Þáttastjórnendur eru...

  15. 38 umferðir - Er Thierno Barry næsti Thierry Henry?

    Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á fimmtu umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem lauk á mánudag, fóru yfir liðin sín og gáfu hlustendum góð ráð til að nýta í landsleikjahléinu. Fresturinn til að gera breytingar fyrir næstu...

  16. Enski boltinn - Leeds gegn Víkingi á næsta tímabili?

    Það er góður andi yfir Leeds þessa dagana en liðið hefur farið vel af stað í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili. Agnar Þór Hilmarsson og Árni Þór Birgisson, stuðningsmenn Leeds, mættu í Coke stúdíóið í dag og fóru yfir stöðuna hjá sínum mönnum. Leeds er enn taplaust fyrir landsleikjahléið…

    more
  17. Uppbótartíminn - Geggjuð vegferð, biluð barátta og stórar landsliðsfréttir

    Það er nóg að ræða í Uppbótartímanum, hlaðvarpi um íslenskan kvennabolta, að þessu sinni. Þróttur varð bikarmeistari á dögunum, fyrsti stóri tillinn í sögu félagsins. Þróttur hefur verið á mikilli vegferð síðustu árin og þetta var toppurinn á henni, allavega hingað til. Nokkrar áhugaverðar…

    more
  18. Harkið - Uppgjörsþáttur úr 3 deild

    Harkið tók góða yfirferð á 3 deild karla og fór yfir stærstu atvik sumarsins auk þess að velja lið tímabilsins, besta leikmann, efnilegasta leikmann og þjálfara ársins Gestir þáttarins voru Hafþór Bjarki Guðmundsson leikmaður KH og Nadir Simon Moukhliss leikmaður Víðis. Þáttastjórnendur eru...

  19. Innkastið - Siggi Lár og rígurinn rosalegi

    Sérstök útgáfa af Innkastinu þar sem Sigurður Egill Lárusson, leikmaður Þróttar og leikmaður ársins í Lengjudeildinni, er sérstakur gestur. Rætt er um sigur Þróttar í 100 milljóna leiknum, lið ársins í Lengjudeildinni, ríginn rosalega milli KR og Víkings, sunnudagsleikina í Bestu og fleira.…

    more
  20. Innkastið - Skortur á reisn

    Innkastið eftir lúxus laugardag. Elvar Geir, Valur Gunnars og Haraldur Örn.Víkingur varð meistari á Meistaravöllum. Það voru læti.Bestu liðin komust upp í Bestu deildina. Til hamingju Þróttur.KA rúllaði yfir Þór í seinni hálfleik.

  21. Útvarpsþátturinn - 100 milljónir í rúllettu

    Þátturinn er frumfluttur á föstudegi. Elvar Geir og Tómas Þór hita upp fyrir rosalega fótboltahelgi. Víkingur getur orðið meistari á Meistaravöllum, það verður barist upp á líf og dauða í Akureyrarslag og þá tilkynnti Arnar Gunnlaugsson landsliðshóp og lagði starfið að veði á fréttamannafundi…

    more
  22. 38 umferðir - Pascal engan undra hversu góður Gross er í fantasy

    Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban. Þeir settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á fjórðu umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem lauk á mánudag,...

  23. Innkastið - Læti undir ljósum Lautarinnar

    Elvar Geir, Valur Gunnars og Maggi Hödd í Innkastinu að þessu sinni. Byrjað er að skoða umspil Lengjudeildarinnar og undanúrslitaleikirnir gerðir upp. Það ræðst á laugardaginn hvort Þróttur eða Fylkir spili í Bestu deildinni á næsta tímabili. Svo er það fyrsta umferð Bestu deildarinnar eftir...

  24. Harkið - Gæsaveiðar á Dalvík

    Harkið fór yfir stærstu atvikin í loka umferð 2. og 3. deildar karla auk þess var rætt Gatorade bikarinn - Uppgjör 3 deildar - 11 mín - Uppgjör 2 deildar - 45 mín - Gatorade bikarinn - 01.21 mín Harkið er í boði Serrano, Ab sportvörum og Macron Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og...

  25. Enski boltinn - Hörmulegir dómarar í bestu deild heims

    Það vantaði ekki dramatíkina í Manchester slaginn á Old Trafford í gær en dómararnir voru í aðalhlutverki. Erling Haaland skoraði sigurmarkið, en það mark átti aldrei að standa. Byrjunin hefur verið erfið fyrir United á þessu tímabili en Arsenal og Manchester City eru með fullt hús stiga. Hvenær...

  26. Útvarpsþátturinn - Blikar tóku bikar og æsispennandi umspil

    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 12. september. Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars eru í hljóðveri í þættinum og rætt er við Hilmar Jökul, stuðningsmann Breiðabliks. Bikarúrslitaleikurinn er gerður upp en Breiðablik varð meistari. Rýnt er í umspil Lengjudeildarinnar þar sem allt er á suðupunkti…

    more
  27. 38 umferðir - Kominn tími á að Hull fái á sig mörk

    Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban. Þeir settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á þriðju umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem lauk á sunnudag,...

  28. Upphitunarþáttur Mjólkurbikarsins - Starfið undir á Laugardalsvelli?

    Sigurjón Jónsson og Arnór Gauti Ragnarsson voru gestir í setti í sérstökum upphitunarþætti fyrir viðureign Aftureldingar og Breiðabliks í úrslitaleik Mjólkurbikarsins. Leikurinn fer fram á föstudaginn og er Sigurjón stuðningsmaður Breiðabliks en Arnór er Mosfellingur sem lék sömuleiðis með...

  29. Harkið - Nágrannar en ekki vinir

    Harkið fór yfir stærstu atvikin í 21. umferð í 2. og 3.deild karla og val á Macron leikmönnum umferðarinnar í báðum deildum. Uppgjör 3.deild:14:42 Uppgjör 2.deild:40:53 Spá:01:17:14 Harkið er i boði Serrano, AB Sportvörur og Macron. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.

  30. Uppbótartíminn - Fáránleg spenna þegar deildin skiptist

    Síðasta umferðin í Bestu deild kvenna fyrir skiptingu fór fram í kvöld. Núna er gríðarleg spenna framundan á bæði toppi og botni deildarinnar. Hvaða lið verður Íslandsmeistari og hvaða lið falla? Guðmundur Aðalsteinn, Magnús Haukur og Arnar Páll fóru yfir 18. umferðina og sitthvað fleira í...

  31. Enski boltinn - Hver stoppar eiginlega Arsenal?

    Arsenal fór með sigur af hólmi í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni, 2-1 gegn Chelsea. Manchester United fékk rýting í bakið á lokasekúndunni gegn Everton og Alexander Isak skoraði tvö mörk fyrir Liverpool í sigri gegn nýliðum Ipswich. Tottenham náði í sitt fyrsta stig og Manchester…

    more
  32. Innkastið - KR hatar gras og Blikar bulla

    Innkastið eftir 22. umferð, síðustu umferðina fyrir tvískiptingu. Elvar Geir, Valur Gunnars og Kári Snorra. Stjarnan og Valur þurfa að sætta sig við að spila í neðri hlutanum en Keflvíkingar komust í efri hlutann þrátt fyrir tap á Ljósanótt. Farið er yfir alla leikina og einnig rætt um lokaumferð...

  33. Útvarpsþátturinn - Haukar fljúga upp og lokaumferðir framundan

    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur í hlaðvarpsútgáfu þessa vikuna. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Guðjón Pétur Lýðsson þjálfari Hauka er gestur þáttarins en Hafnarfjarðarliðið er komið upp í Lengjudeildina. Lokaumferðir eru framundan um helgina, síðasta umferð fyrir tvískiptingu Bestu...

  34. Uppbótartíminn - Glötuð tækifæri og stórt kærumál

    Guðmundur Aðalsteinn og Arnar Páll Garðarsson komu sér vel fyrir í Coke stúdíóinu og fóru yfir 17. umferð Bestu deildar kvenna. Toppliðin tvö hikstuðu bæði, aftur. FH hefur núna fengið tvö tækifæri til að komast á toppinn en ekki nýtt sér þau. Á hinum enda töflunnar er spennan gríðarleg. Þá var...

  35. 38 umferðir - Er hægt að selja Bruno eftir þessa frammistöðu?

    Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban. Þeir settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem lauk á mánudag,...

  36. Enski boltinn - Hull í draumalandi og glugganum lokað

    Það eru fjögur lið með fullt hús stiga eftir tvo leiki í ensku úrvalsdeildinni. Það eru Arsenal, Chelsea, Manchester City og.. Hull City. Það er óhætt að segja að Hull sé í draumalandi eftir fyrstu tvo leikina en fyrir tímabil var þeim spáð 20. sæti í flestöllum spám. Guðmundur Aðalsteinn fékk…

    more
  37. Innkastið - Ljúgum til um titilbaráttu

    Innkastið eftir 21. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Runólfur Trausti. Þátturinn var tekinn upp strax eftir stórleik KR og Víkings. Fjallað er um leikinn sjálfan og allt í kringum hann. Auðvitað er síðan farið yfir allar helstu sögulínur í kringum hina leiki umferðarinnar.

  38. Harkið - Hiti í 3. deildinni

    Harkið fór yfir stærstu atvikin í tuttugustu umferð í 2. og 3.deild karla og val á Macron leikmönnum umferðarinnar í báðum deildum. Uppgjör 3.deild: 07:14 Uppgjör 2.deild:44:48 Spá: 01:29:00 Harkið er i boði Serrano, AB Sportvörur og Macron. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar...

  39. Kaffispjallið: Blæti fyrir takkaskóm og nýtt tækifæri í KR

    Arnar Freyr Ólafsson, markvörður KR, er nýjasti viðmælandi Kaffispjallsins. Líkt og vanalega var farið yfir víðan völl en Nördahornið og Hraðaspurningarnar eru að sjálfsögðu á sínum stað.

  40. Útvarpsþátturinn - Helgin er svo lengi að líða

    Elvar Geir og Benedikt Bóas eru í hljóðveri í þætti dagsins og með þeim er Valur Páll íþróttafréttamaður á Sýn. Hitað verður sérstaklega upp fyrir komandi stórleik í Bestu deildinni, viðureign KR og Víkings á þriðjudag. Aðrir leikir í Bestu deildinni, Lengjudeildin, Infantino og enski boltinn…

    more
  41. 38 umferðir - Chelsea kom, Joao og sigraði

    Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban. Þeir settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem lauk á mánudag,...

  42. Enski boltinn - Martraðarbyrjun Man Utd og hver stoppar Arsenal?

    Enska úrvalsdeildin hófst um helgina með látum en fyrstu umferðinni lauk í gærkvöldi. Manchester United og Tottenham fengu martraðarbyrjun, Arsenal lita illviðráðanlega út og það var baulað á Alexander Isak í endurkomunni á St James' Park. Er Chelsea kannski liðið sem mun veita Arsenal mesta...

  43. Uppbótartíminn - Þú varst ekkert að spá þessu

    Síðustu leikir í dag Bestu deild kvenna hafa heldur betur verið óútreiknanlegir margir. Tvö efstu liðin töpuðu og tvö neðstu liðin unnu bæði. Hvað er eiginlega að gerast í þessari deild? Núna eru bara tvær umferðir eftir fram að skiptingu og verður mjög áhugavert að sjá hvernig deildin þróast....

  44. Harkið - Haukar verða alltaf bestir

    Harkið fór yfir stærstu atvikin í nítjándu umferð í 2. og 3.deild karla og val á Macron leikmönnum umferðarinnar í báðum deildum. Uppgjör 3.deild:10:00 Uppgjör 2.deild:41:36 Spá:01:18 Harkið er i boði Serrano, AB Sportvörur og Macron. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar...

  45. Innkastið - Góð skyndiákvörðun og eitrað andrúmsloft

    Innkastið eftir 20. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Tómas Þór. Kaflaskipt fjör í Kópavogi, markaflóð í heimsókn til Akureyrar, Vatnhamar kvaddur, Jón Þór lét allt flakka í viðtali, Lengjudeildarhorn og ýmislegt fleira.

  46. Útvarpsþátturinn - Stórtíðindi í þjálfaramálum og kraftur í Keflavík

    Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 22. ágúst. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Rætt er um stóru fréttirnar í Bestu deildinni. Eiður Smári er tekinn við KA og Stjarnan rak aftur þjálfarann sinn. Jónas Guðni Sævarsson yfirmaður fótboltamála hjá Keflavík er á línunni. Næsta umferð í Bestu er skoðuð og...

  47. Enski boltinn - Arsenal er langlíklegasta liðið

    Arsenal varð Englandsmeistari á síðasta tímabili eftir 22 ára bið. Núna, fyrir komandi keppnistímabil, er Arsenal langlíklegasta liðið til að vinna ensku úrvalsdeildina. El Jóhann og Engilbert Aron, stuðningsmenn Arsenal, mættu í spjall í Coke stúdíóið á dögunum og fóru yfir allt það helsta hjá...

  48. Kaffispjallið: Ólafsvík, slitið krossband og lyftingar á leikdegi

    Aldís Guðlaugsdóttir, markvörður FH í Bestu deildinni, er án efa ein sú færasta í sínu fagi hér á landi. Hún er nýjasti gestur Kaffispjallsins og fer meðal annars yfir það þegar hún kláraði leik eftir að slíta krossband í hné nokkuð snemma í síðari hálfleik.

  49. Harkið - Sjóðheitir Sindra menn

    Harkið fór yfir stærstu atvikin í átjándu umferð í 2. og 3.deild karla og val á Macron leikmönnum umferðarinnar í báðum deildum. Uppgjör 3.deild: 07:52 Uppgjör 2.deild:40:30 Spá:01:19:15 Harkið er i boði Serrano, AB Sportvörur og Macron. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar...

  50. Enski boltinn - Ætla að horfa saman á næsta úrslitaleik Tottenham

    Það eru áhugaverðir tímar hjá Tottenham þessa stundina. Eftir tvö mjög erfið tímabil, þá er búið að leggja mikið í leikmannahópinn fyrir komandi tímabil. Roberto De Zerbi er á leið inn í sitt fyrsta heila tímabil sem stjóri liðsins og hann ætlar sér stóra hluti. Spurs var hársbreidd frá falli á...

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

TOPICS IN THIS SHOW

Click any topic to search every transcript on PodParley for moments someone mentioned it.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Podcastþættir Fótbolta.net

HOSTED BY

Fotbolti.net

Produced by Hafliði Breiðfjörð

CATEGORIES

Frequently Asked Questions

How many episodes does Fotbolti.net have?

Fotbolti.net currently has 1000 episodes available on PodParley. New episodes are automatically indexed when they're published to the podcast feed.

What is Fotbolti.net about?

Podcastþættir Fótbolta.net

How often does Fotbolti.net release new episodes?

Fotbolti.net releases new episodes frequently with a large back catalog of 1000 episodes. Check the episode list for recent publication dates.

Where can I listen to Fotbolti.net?

You can listen to Fotbolti.net on PodParley by clicking any episode. We provide an embedded audio player for direct listening, and you can also subscribe via your preferred podcast app using the RSS feed.

Who hosts Fotbolti.net?

Fotbolti.net is created and hosted by Fotbolti.net.
URL copied to clipboard!