Fréttir úr feðraveldinu

PODCAST · society

Fréttir úr feðraveldinu

Í þættinum ræða þær Sara Stef Hildardóttir og María Pétursdóttir um valdar fréttir úr feðraveldinu.

  1. 22

    Jólahald, piparsprey og rautt glimmer

    12. des ´23 Ertu búin með allt fyrir jólin? Í þættinum ræða þær Sara Stef Hildardóttir og María Pétursdóttir um valdar fréttir úr feðraveldinu, jólahaldið í áranna rás, piparsprey og rautt glimmer.

  2. 21

    Fréttir úr feðraveldinu

    5. desember ´23 Í þættinum ræða þær Sara Stef Hildardóttir og María Pétursdóttir um valdar fréttir úr feðraveldinu svo sem uppgang fasisma, rafmynt og jólabónus.

  3. 20

    Fréttir úr feðraveldinu - Gervigreind og brjóstapúðar.

    28. nóvember ´23 Í þættinum ræða þær Sara Stef Hildardóttir og María Pétursdóttir um valdar fréttir úr feðraveldinu svo sem gervigreind og brjóstapúða.

  4. 19

    Fréttir úr feðraveldinu - Marxísk kvennaráðstefna, vinnuframlegð og kosningar í Argentínu

    21. nóvember ´23 Í þættinum ræða þær Sara Stef Hildardóttir og María Pétursdóttir um valdar fréttir úr feðraveldinu en þær eru nýkomnar frá Póllandi þar sem þær sóttu Marxíska Kvennaráðstefnu. Einnig ræða þær vinnuframlegð út frá erindi Nönnu Hlínar Halldórsdóttur á ráðstefnunni, starfsgetumat og kosningarnar í Argentínu.

  5. 18

    Fréttir úr feðraveldinu - Feðraveldi, Palestína, Grindavík og fóstureyðingar

    14. nóv '23 Í þættinum ræða þær Sara Stef Hildardóttir og María Pétursdóttir um valdar fréttir úr feðraveldinu, gjörning til stuðnings Palestínu, karllægan fréttafluttning af náttúruhamförum í Grindavík, fóstureyðingalöggjöfina í Bandaríkjunum og fleira.

  6. 17

    Fréttir úr feðraveldinu

    Sara og María ræða fréttir úr feðraveldinu svo sem stríð og stjórnskipan í aldanna rás og kynna samnefndan þátt (Fréttir úr feðraveldinu) sem tekur við af þættinum Sósíalískir femínistar á þriðjudagskvöldum.

  7. 16

    Ofbeldi gegn konum í stjórnmálum / Violence against women in politics.

    Þriðjurdagurinn 31. Október Sósíalískir femínistar - Ofbeldi gegn konum í stjórnmálum / Violence against women in politics. Mona Lena Krook Prófessor í stjórnmálafræði sem var með fyrirlestur á dögunum á vegum Kvennasögusafnsins segir okkur frá rannsókn sinni um Ofbeldi gegn konum í stjórnmálum. Þátturinn Sósíalískir femínistar er í umsjón Söru Stef Hildardóttur og Maríu Pétursdóttur. Í þættinum ræða þær við fólk um málefni líðandi stundar í ljósi feminískrar baráttu en feminísk barátta er í grunninn barátta allra undirskipaðra hópa sem reyna að lifa af í kapítalísku feðraveldi fyrr og nú.

  8. 15

    Nemar í Kvennaverkfall

    Ungar konur úr femínistahreyfingum framhaldsskólanna og Sambandi Íslenskra framhaldsskóla velta fyrir sér Kvennaverkfallinu með þeim Söru og Maríu. Þátturinn Sósíalískir femínistar er í umsjón Söru Stef Hildardóttur og Maríu Pétursdóttur. Í þættinum ræða þær við fólk um málefni líðandi stundar í ljósi feminískrar baráttu en feminísk barátta er í grunninn barátta allra undirskipaðra hópa sem reyna að lifa af í kapítalísku feðraveldi fyrr og nú.

  9. 14

    Áköf mæðrun og kröfur um kvenleika

    Sunna Símonardóttir nýdoktor í félagsfræði ræðir rannsóknir sínar á foreldrahlutverkinu og sér í lagi móðurhlutverkinu, ákafa mæðrun út frá stéttagreiningu, leikskólamálin, viðhorf og kröfur dagsins í dag um kvenleikann. Þátturinn Sósíalískir femínistar er í umsjón Söru Stef Hildardóttur og Maríu Pétursdóttur. Í þættinum ræða þær við fólk um málefni líðandi stundar í ljósi feminískrar baráttu en feminísk barátta er í grunninn barátta allra undirskipaðra hópa sem reyna að lifa af í kapítalísku feðraveldi fyrr og nú.

  10. 13

    Stefnumót um skaðaminnkun

    Gestir kvöldsins eru Kristín I. Pálsdóttir, framkvæmdastýra og talskona Rótarinnar, sem er félag um velferð og lífsgæði kvenna, og Svala Jóhannesdóttir, fjölskyldufræðingur, faghandleiðari og formaður Matthildar, samtaka um skaðaminnkun. Við ræðum stöðum jaðarsettra kvenna og annarra undirskipaðra hópa en lítið sem ekkert regluverk er um þá starfsemi sem fólki er gert að nýta sér ef það stríðir við fíkn. Ekkert verndað neyslurými er heldur til staðar fyrir þau sem eru verst sett en eina neyslurýminu í boði, Ylju, var lokað í mars sl. Þá segja þær okkur frá ráðstefnu um skaðaminnkun sem haldin verður í Reykjavík á næstunni.

  11. 12

    Kvennaverkfall 2023

    Í morgun var haldinn blaðamannafundur þar sem Íslandi var tilkynnt að konur muni leggja niður störf þann 24. október næstkomandi. Kvennaverkfallið í ár byggir á því að enn er algjört vanmat á störfum kvenna, launuðum sem ólaunuðum, og enn er ofbeldi gegn konum eins og faraldur sem fær að geisa hömlulaus, kynslóð eftir kynslóð. Í þætti kvöldsins fengum við því til okkar tvær konur sem leggja nú nótt við dag að skipuleggja verkfallið. Hvernig gengur undirbúningurinn og hvað gengur konum til nú næstum fimmtíu árum eftir að konur lögðu fyrst niður störf svo öll heimsbyggðin tók eftir? Gestir kvöldsins eru þær Sonja Þorbergsdóttir, formaður BSRB og skipuleggjandi Kvennaverkfalls 2023 og Inga Auðbjörg Straumland, viðburðarstýra Kvennaverkfalls 2023

  12. 11

    Barátta trans fólks!

    Gestir þáttarins eru Arna Magnea Danks og Halldóra Hafsteinsdóttir trans aðgerðasinnar en þær ræða baráttuna og mikilvægi hennar í sögulegu samhengi og bakslagið sem kynsegin og trans fólk stendur frammi fyrir í dag. Þátturinn Sósíalískir femínistar er í umsjón Söru Stef Hildardóttur og Maríu Pétursdóttur. Í þættinum ræða þær við fólk um málefni líðandi stundar í ljósi feminískrar baráttu en feminísk barátta er í grunninn barátta allra undirskipaðra hópa sem reyna að lifa af í kapítalísku feðraveldi fyrr og nú

  13. 10

    Hvað er málið með kvennabaráttuna?

    Kristín Ástgeirsdóttir, fyrrum framkvæmdastýra Jafnréttisstofu, Kvennalistakona og Rauðsokka með meiru kom til að ræða stöðu kvennabaráttunnar fyrr og nú og hvað þarf til að missa ekki móðinn og halda áfram. Þátturinn Sósíalískir femínistar er í umsjón Söru Stef Hildardóttur og Maríu Pétursdóttur. Í þættinum ræða þær við fólk um málefni líðandi stundar í ljósi feminískrar baráttu en feminísk barátta er í grunninn barátta allra undirskipaðra hópa sem reyna að lifa af í kapítalísku feðraveldi fyrr og nú.

  14. 9

    Lög um fóstureyðingar

    Þátturinn Sósíalískir femínistar er í umsjón Söru Stef Hildardóttur og Maríu Pétursdóttur. Í þættinum ræða þær við fólk um málefni líðandi stundar í ljósi feminískrar baráttu en feminísk barátta er í grunninn barátta allra undirskipaðra hópa sem reyna að lifa af í kapítalísku feðraveldi fyrr og nú. Í þættinum ræðir María við Unni Birnu Karlsdóttur sagnfræðing um fóstureyðingalöggjöf en Unnur hélt erindi um ritgerð sína Fóstureyðingar á Íslandi: Íslensk fóstureyðingalöggjöf og áhrif kvennabaráttu hérlendis og erlendis á ákvæði laga um fóstureyðingar þann 7. september s.l í HÍ. Tilefnið var málþing um Rauðsokkuhreyfinguna, Á rauðum sokkum í hálfa öld.

  15. 8

    Togstreyta og yfirráð jaðarsettra hópa

    Þátturinn Sósíalískir femínistar er í umsjón Söru Stef Hildardóttur og Maríu Pétursdóttur. Í þættinum ræða þær við fólk um málefni líðandi stundar í ljósi feminískrar baráttu en feminísk barátta er í grunninn barátta allra undirskipaðra hópa sem reyna að lifa af í kapítalísku feðraveldi fyrr og nú. Gestur þáttarins er Laufey Líndal Ólafsdóttir sem segir frá reynslu sinni innan félagasamtaka jaðarsettra hópa þar sem umræðan og yfirráðin togast á yfir þeim.

  16. 7

    Konur í neyð - löglegar og "ólöglegar"

    Konur í neyð - löglegar og "ólöglegar" Kristín I. Pálsdóttir, talskona Rótarinnar, kemur til okkar til að ræða konur í neyð - "ólöglegar", sem hafa verið sviptar kennitölu sinni og löglegar, með kennitölu. Rótin rekur eina neyðarskýli kvenna á landinu en það kallast Konukot og er staðsett í Reykjavík. Með breyttum útlendingalögum er orðinn til hvati fyrir stjórnvöld til að stéttskipta fólki enn frekar. En áður en stjórnvöld geta sett upp og læst fólk inni í "búsetuúrræðum með takmörkunum" þá leitar fólk í skjól eins og Konukot. Við spyrjum, geta félagsleg úrræði sem rekin eru fyrir borgina brotið lög og tekið að sér "ólöglegt fólk" sem stjórnvöld hafa gert heimilislaus og allslaus. Rótin er félag áhugakvenna og -kvára og beitir sér fyrir faglegri stefnumótun með skaðaminnkun, mannréttindi og áfalla- og kynjamiðaða þjónustu að leiðarljósi. Um helgina gerði talskona Rótarinnar alvarlegar athugasemdir við birtar húsreglur og nýja stjórn Dyngjunnar sem rekið hefur verið sem áfangaheimili fyrir konur sem eru að ljúka áfengis- og vímuefnameðferð. Við förum yfir málavöxtu og gagnrýni Kristínar á fyrirkomulag rekstur eins og Dyngjunnar. 

  17. 6

    Marxism festival London 2023 - Annar hluti

    Þátturinn Sósíalískir femínistar fara í ferðalag á Marxism festival í London í kvöld en þetta er annar hlutinn. Sýnd verða brot af fyrirlestrum og rætt við Laufeyju Líndal Ólafsdóttur sem fór með þeim Söru og Maríu á ráðstefnuna á dögunum. Þátturinn Sósíalískir femínistar er í umsjón Söru Stef Hildardóttur og Maríu Pétursdóttur. Í þættinum ræða þær við fólk um málefni líðandi stundar í ljósi feminískrar baráttu en feminísk barátta er í grunninn barátta allra undirskipaðra hópa sem reyna að lifa af í kapítalísku feðraveldi fyrr og nú.

  18. 5

    Mansal og konur á flótta

    Í þætti kvöldsins kemur Drífa Snædal í heimsókn til Söru og Maríu og ræðir um mansalsmál og málefni flóttafólks í tengslum við nýju útlendingalögin og málefni flóttakvennanna sem verið hafa í fréttum undanfarið. Þátturinn Sósíalískir femínistar er í umsjón Söru Stef Hildardóttur og Maríu Pétursdóttur. Í þættinum ræða þær við fólk um málefni líðandi stundar í ljósi feminískrar baráttu en feminísk barátta er í grunninn barátta allra undirskipaðra hópa sem reyna að lifa af í kapítalísku feðraveldi fyrr og nú.

  19. 4

    Marxist festival 2023 í London - Fyrsti hluti

    Fimmtudagurinn 6. júlí Marxist festival 2023 í London - Fyrsti hluti María og Sara segja frá ferð sinni á Marxist Festival 2023 í London á dögunum sem haldin er árlega af Sósíalíska Verkamannaflokknum í Bretlandi en þar hittu þær Írönsku kvikmyndagerðarkonuna Suela Javaheri sem þær tóku viðtal við og ræddu m.a. írönsku kvennabyltinguna. Þátturinn Sósíalískir femínistar er í umsjón Söru Stef Hildardóttur og Maríu Pétursdóttur. Í þættinum ræða þær við fólk um málefni líðandi stundar í ljósi feminískrar baráttu en feminísk barátta er í grunninn barátta allra undirskipaðra hópa sem reyna að lifa af í kapítalísku feðraveldi fyrr og nú.

  20. 3

    Feminísk fjármál

    Í þætti kvöldsins ræða þar Sara og María við Steinunni Rögnvaldsdóttur og Finnborgu Salóme Steinþórsdóttur stjórnarkonur í félaginu Feminísk fjármál. Þátturinn Sósíalískir femínistar er í umsjón Söru Stef Hildardóttur og Maríu Pétursdóttur. Í þættinum ræða þær við fólk um málefni líðandi stundar í ljósi feminískrar baráttu en feminísk barátta er í grunninn barátta allra undirskipaðra hópa sem reyna að lifa af í kapítalísku feðraveldi fyrr og nú.

  21. 2

    Tungumálið sem valdatæki

    Sara Stef Hildardóttir og María Pétursdóttir hafa umsjón með þáttunum Sósíalískir femínistar en þar fá þær til sín gesti og ræða feminísk mál út frá ýmsum sjónhornum. Í þessum þætti fimmtudagskvöldið 22. júní fá þær til sín þýðandann Katrínu Harðardóttur og kynjafræðikennarann Maríu Hjálmtýsdóttur og ræða tungumálið sem valdatæki eða hvernig feðraveldið ákveður hver má segja hvað, hvar og hvað þú mátt heita. Bæði Katrín og María hafa innsýn í Suður Amerískar málhefðir spænskunnar og búa yfir ýmsum dæmum til samanburðar.

  22. 1

    Söfnin og kvennasagan

    Í þættinum ræða þær María Pétursdóttir og Sara Stef Hildardóttir við þær Halldóru Kristinsdóttur af handritasafni Íslands og Rakel Adolfsdóttur safnstjóra kvennasögusafnsins um kvennasögu og vendingar í safnakosti landsins. Þátturinn Sósíalískir femínistar er í umsjón Söru Stef Hildardóttur og Maríu Pétursdóttur. Í þættinum ræða þær við fólk um málefni líðandi stundar í ljósi feminískrar baráttu en feminísk barátta er í grunninn barátta allra undirskipaðra hópa sem reyna að lifa af í kapítalísku feðraveldi fyrr og nú.

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Í þættinum ræða þær Sara Stef Hildardóttir og María Pétursdóttir um valdar fréttir úr feðraveldinu.

HOSTED BY

María Pétursdóttir

Produced by Samstöðin

URL copied to clipboard!