PODCAST · society
Frjálsar hendur
by RÚV
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
-
282
Ódysseifskviða 13 - Sírenurnar, Skylla og Kabarydís,
Hér segir af því Ódysseifur og félagar hans sigla heimleiðis frá eyju Kirku eftir að hafa heimsótt land hinna dauðu og fyrst liggur leið þeirra framhjá sírenunum, dísum sem seyða til sín sæfarendur með fögrum söng, en síðan er siglt um klettasund milli ófreskjanna Skyllu og Charybdisa, og loks komið að landi á eyju þar sem sólarguði Helíos geymir nautgripi sína og sauðfé. Aldrei hafa félagarnir komist í aðrar eins raunir! Þetta er 12. kafli kviðunnar.
-
281
Jón Arason hálshöggvinn - þrisvar
7. nóvember 1550 voru Jón Arason biskup á Hólum og synir hans Björn og Ari líflátnir í Skálholti. Þrír íslenskir skáldsagnahöfundar hafa lýst aftökunni í verkum sínum, Torfhildur Hólm, Gunnar Gunnarsson og Ólafur Gunnarsson. Umsjónarmaður fjallar stuttlega um aðdraganda aftökunnar og les síðan kaflana þrjá.
-
280
Ódysseifskviða 12 - Í landi dauðans
Hér er lýst för Ódysseifs og félaga til heljar. Hinir daufu draugar í dauðramannalandinu ganga hver af öðrum fyrir Ódysseif og hann spyr spámanninn Tíresías um hvernig framhaldið á heimferð hans til Íþöku muni ganga. Við sögu koma meðal annars Akkiles, Agamamnon og Sísýfos.
-
279
Norman Lewis 6 - Sovéskir stríðsfangar afhentir Stalín
Breski dátinn Norman Lewis var í setuliði Breta í Napólí 1943-1944. Áður hefur verið lesið úr stórmerkilegum og skemmtilegum endurminningum hans í Frjálsum höndum. Nú segir hann frá því þegar honum var falið að fylgja hópi sovéskra stríðsfanga frá Ítalíu áleiðis heim til Sovétríkjanna en þeir höfðu mátt þola hræðilega vist í þýskum fangabúðum, og er því lýst á mjög hispurslausan hátt. En ekki var víst að betra tæki við þegar til Sovétríkjanna kæmi.
-
278
Árni Thorsteinsson
Árni Thorsteinsson tónskáld var sonur Árna Thorsteinssonar landfógeta og bróðursonur Steingríms Thorsteinssonar skálds og rektors í Reykjavík og ólst upp í bænum fyri aldamótin 1900. Hann skrifaði seinna æviminningar sínar, sem nefndust Harpa minninganna, og í þættinum er lesið ýmislegt frá æskudögum hans og athyglin beinist ekki síst að tónlistarlífinu.
-
277
Trippa-Sigga 3: Hestakona verður til
Þriðji þáttur úr endurminningum Jónu Sigríðar Jónsdóttur, Ein á hesti, þar sem hún segir frá ævi sinni. Í þessum þætti er Jóna Sigríður komin um þrítugt og hefur fengist við margvísleg störf um ævina, en hún tekur nú að gerast mikil hestakona og kaupir og selur hross og fer í ýmsar svaðilfarir milli landshluta með hesta sína.
-
276
Bjarni Brandsson og sjóferðasögur hans 2
Framhald af síðasta þætti. Hér er áfram lesið úr viðtali Vilhjálms S. Vilhjálmssonar við Bjarna Brandsson sjómann sem nú segir m.a. frá því er hann kom úr siglingu haustið 1918 þegar spænska geisaði sem harðast í Reykjavík og síðan frá hörmulegu strandi togarans Jóns forseta við Stafnes 1928.
-
275
Fjósakona fer út í heim 2
Framhald af ferðasögum Önnu frá Moldnúpi. Hér segir frá ferð hennar til Skotlands og Bretlands.
-
274
Bjarni Brandsson og sjóferðasögur hans 1
.Vilhjálmur S. Vilhjálmsson blaðamaður á Alþýðublaðinu var kunnur fyrir fjölda merkilegra viðtala við alþýðufólk. Hér er gluggað í magnað samtal hans við Bjarna Brandsson sjómann sem segir m.a. frá því þegar hann var talinn látinn eftir að togarinn Skúli fógeti sigli á tundurdufl árið 1914
-
273
Jósef á Svarfhóli 2
Annar þáttur þar sem lesið er úr minningum Jósefs Björnssonar (1878-1964) var lengst af bóndi á Svarfhóli í Borgarfirði. Leitað er fanga í bókinni Æskustöðvar þar sem hann segir áfram af ættmennum sínum og eigin æskuárum.
-
272
Ódysseifskviða 11 - Í höll hinnar göldróttu Kirku
Hér segir áfram frá tilraunum Ódysseifs og manna hans til þess að komast heimleiðis. Nú liggur leiðin meðal annars til eyjar þar sem hin mjög svo viðsjála Kirka býr og reynist félögum Ódysseifs mjög þung í skauti en hann reynir að snúa vörn í sókn með hjálp sendiguðsins Hermesar.
-
271
Jósef á Svarfhóli 1
Jósef Björnsson (1878-1964) var lengst af bóndi á Svarfhóli í Borgarfirði. Hann var sveitastólpi mikill en í bókinni Æskustöðvar (1954) fjallaði hann fyrst og fremst um foreldra sína og æskuárin. Í þessum þætti lýsir hann foreldrum sínum bæði fallega og hispurslaust.
-
270
Skjaldbökur, sporðdrekar og furðulegt fólk
Enski náttúrufræðingurinn og rithöfundurinn Gerald Durrell (1925-1995) skrifaði æskuminningar um undir nafninu Fjölskylda mín og fleiri dýr. Þar lýsir hann á bráðskemmtilegan hátt lífi fjölskyldu sinnar á grísku eyjunni Korfu er hann var 10 ára. Þar koma dýr mjög við sögu en einnig litríkt mannlíf, því mjög gestkvæmt var hjá fjölskyldunni.
-
269
40 ára afmælisþáttur: Hvað ef ...?
Þessi þáttur er fluttur um það bil sem 40 ár eru frá því fyrsti þáttur Frjálsra handa var sendur út. Sá þáttur fjallaði um "hið sögulega ef" - það er að segja hvað hefði breyst ef einhver tiltekin smáatriði í sögunni hefðu farið öðruvísi en þau fóru. Í tilefni dagsins verður fjallað um sama efnið í þessum þætti og sér í lag hvað hefði breyst ef valdarán kommúnista í Rússlandi 1917 hefði misheppnast.
-
268
Stefan Zweig og Veröld sem var 6 - Kynlíf í Vínarborg
Umsjónarmaður las á síðasta ári margvíslegt efni úr Veröld sem var, æviminningabók Stefans Zweigs sem jafnframt er mögnuð samtímalýsing á árunum fyrir fyrri heimsstyrjöld í Vínarborg og síðan eftirstríðsáranna.
-
267
Þýskur kafbátur birtist á ytri höfninni
19. september 1939 birtist þýskur kafbátur óforvarandis á ytri höfninni í Reykjavík. Síðari heimsstyrjöldin var þá nýhafin og þýskir kafbátar farnir að láta að sér kveða á hafinu. Það sem Íslendingar vissu ekki þá var að skipverjar einmitt þessa báts höfðu nýlega framið einn fyrsta stríðsglæp stríðs, og kafbátaforinginn átti síðan eftir verða örlagavaldur í stríðinu.
-
266
Ódysseifskviða 10
Nú dregur heldur betur til tíðinda í Ódysseifskviðu því nú verður lesin ein allra frægasta frásögn kviðunnar, það er að segja þegar Ódysseifur og félagar hans lenda í klóm hinna eineygðu risa sem Kýklópar kallast.
-
265
Ódysseifskviða 10 - Viðureign við Kýklópa
Nú dregur heldur betur til tíðinda í Ódysseifskviðu því nú verður lesin ein allra frægasta frásögn kviðunnar, það er að segja þegar Ódysseifur og félagar hans lenda í klóm hinna eineygðu risa sem Kýklópar kallast.
-
264
Hvað þáði krisintómurinn frá trúarbrögðum Persa 3
Þetta er framhald af tveimur þáttum um páska þar sem fjallað var um trúarbrögð sem spámaðurinn Zaraþústra í Baktríu stóð á bak við um árið 1200 fyrir upphaf tímatals okkar. Persar tóku þessi trúarbrögð upp á sína arma og þegar þeir lögðu undir sig Babýlon á 6. öld FT höfðu þau djúp og varanleg áhrif á trúarbrögð Gyðinga sem þangað höfðu verið herleiddir.
-
263
Séra Halldór Jónsson á Kleppi
Halldór Jónsson (1873-1953) var prestur að Reynifelli og tónskáld. Á efri árum veiktist hann á geði og þurfti að leggjast inn á geðspítalann Klepp um tíma. Frá því sagði hann svo í æviminningabók sem út kom skömmu fyrir andlát hans og nefndi Ljósmyndir 1. Mjög sjaldgæft var að fólk talaði um þær mundir opinskátt um glímu sín við geðsjúkdóma og því er hin hispurslausa frásögn Halldórs mjög óvenjuleg.
-
262
William Somerset Maugham 1 - Kirkjuþjónninn og hin opna gröf
Líkt og umsjónarmaður hafði áður lesið úr fyrstu smásögum Edgars Allans Poes og Antons Tsékovs er birtust á íslensku, þá leitar hann nú hófanna í smásagnasöfnum Williams Somersets Maughams (1874-1965) en hann var einhver vinsælasti rithöfundur heims á fyrri hluta 19. aldar og sérlega rómaður fyrir smásögur. Hér eru tvær sögur sem eru dæmigerðar fyrir Maugham, ein fislétt skemmtisaga og önnur sem getur nöturlega mynd af þjónum breska heimsveldisins.
-
261
Trippa-Sigga 2: Lífið í Reykjavík
Öðru sinni er borið niður í ævisögu Jónu Sigríðar Jónsdóttur (1899-1997) sem jafnan var frá fullorðinsárum kölluð Trippa-Sigga. Nú segir frá unglingsárum hennar á Snæfellsnesi en síðan vist hennar í Reykjavík, þar sem kunni vel við sig en varð líka fyrir hinni dýpstu sorg.
-
260
Ódysseifskviða - 9
Í þessum kafla Ódysseifskviðu greinir enn frá veisluhöldum sem Ódysseifur er viðstaddur í höllu Fæeka. Þar flytur blinda skáldið Demódókus meðal annars heldur blautlegt kvæði um samskipti Aresar stríðsguðs og Afródítu ástargyðju. Spurningin er hvort Demódókus sé í aðra röndina sjálfsmynd skáldsins Hómers. Síðar segir meðal annars frá hinum einkennilegu Lótusætum sem Ódysseifur og menn hans hrekjast til.
-
259
Ódysseifskviða 9 - Ástir á Ólympsfjalli
Í þessum kafla Ódysseifskviðu greinir enn frá veisluhöldum sem Ódysseifur er viðstaddur í höllu Fæeka. Þar flytur blinda skáldið Demódókus meðal annars heldur blautlegt kvæði um samskipti Aresar stríðsguðs og Afródítu ástargyðju. Spurningin er hvort Demódókus sé í aðra röndina sjálfsmynd skáldsins Hómers. Síðar segir meðal annars frá hinum einkennilegu Lótusætum sem Ódysseifur og menn hans hrekjast til.
-
258
Hestasögur eftir Þorgils gjallanda og Gest Pálsson
Gunnar Theódor Eggertsson hefur komist að því að Íslendingar séu að líkindum með þeim allra fyrstu sem skrifuðu dýrasögur á ofanverðri 19. öld. Þá er ekki átt við sögur þar sem dýrin tala eða hafa mjög mannlega eiginleika, heldur er reynt að lýsa ævi þeirra frá þeirra forsendum. Hér verða lesnar tvær sögur, önnur er Heimþrá eftir Þorgils gjallanda og hin Skjóni eftir Gest Pálsson.
-
257
Hvað þáði kristindómurinn frá trúarbrögðum Persa? - 2
Framhald af síðasta þætti; hér verður athygli einkum beint að sögu ríkjanna Ísraels og Júda frá 800-586 FT, greint frá því hvað þau áttu sameiginlegt og hvað var ólíkt í trúarlegum efnum. Síðan segir frá örlögum íbúanna þegar Assyríumenn hernámu Ísrael og síðan Babýloníumenn Júda. Þá hyllir loks undir hernám Persa og þau áhrif sem þeir höfðu á trúarlíf Gyðinga.
-
256
Hvað þáði kristindómurinn frá trúarbrögðum Persa?
Í þessum páskaþætti verður fjallað um uppruna hinna svokölluðu Zaraþústra-trúarbragða í Persíu. Þar segir frá ungum Baktríumanni sem gerbylti hugmyndum landa sinna um guðdóminn og lagði grunn að nýrri trú sem var síðan við lýði í tvö þúsund árum. Og snemma í sögu þessara trúarbragða höfðu þau mjög afdrifarík áhrif á trú Gyðinga og þar af leiðandi kristinna manna líka. Fyrri þáttur.
-
255
Kropotkin fursti - 3
Kropotkin fursti skrifaði rómaða sjálfsævisögu sem áður hefur verið gluggað í í Frjálsum höndum. Nú er hann kominn á táningsár og farinn að komast í kynni við hirðlífið í hinu feyskna ríki Romanov-keisaraættarinnar. Þrælahaldið heldur áfram að varpa skugga yfir þjóðlífið allt.
-
254
Ódysseifskviða 8
Nú er Ódysseifur gestur Alkinosar konungs Fæeka sem lofar honum aðstoð við að komast heim til sín. Ekki gerir kappinn þó uppskátt um hver hann er. Haldin er mikil íþróttakeppni við hirð Alkinosar og nærvera Ódysseifs vekur mikla athygli.
-
253
Ódysseifskviða 8 - Veisluhöld og íþróttir hjá Alkinosi
Nú er Ódysseifur gestur Alkinosar konungs Fæeka sem lofar honum aðstoð við að komast heim til sín. Ekki gerir kappinn þó uppskátt um hver hann er. Haldin er mikil íþróttakeppni við hirð Alkinosar og nærvera Ódysseifs vekur mikla athygli.
-
252
Trippa Sigga 1: Uppeldi á Snæfellsnesi
Hér verður gluggan í ævisögu Jónu Sigríðar Jónsdóttur (1899-1997) sem varð svo fræg fyrir hestamennsku og hestaferðir að hún var jafnan kölluð Trippa Sigga. Hér segir þó fyrst og fremst af uppeldi hennar fram að fermingu en hún ólst upp á Snæfellsnesi og bjó við vægast sagt misjafnt atlæti í æsku. Meðal annars var henni stranglega bannað að læra landafræði.
-
251
Anna á Moldnúpi, Ólafur Jóhann og Ásta vitlausa - 2
Hér segir frá gagnrýni sem Anna á Moldnúpi ("fjósakona sem fór út í heim") setti fram á skáldsögu Ólafs Jóhanns Sigurðssonar, Fjallið og draumurinn, árið 1944. Hún taldi bókina skelfilega lýsingu á sveitalífi og höfundi ekki til sóma. Ólafur Jóhann svaraði fyrir sig fullum hálsi og Anna svaraði þá enn. Í ritdeilunni birtist ólíka afstaða þeirra til bókmennta og samfélags og kynjaviðhorf koma og við sögu.
-
250
Anna á Moldnúpi, Ólafur Jóhann og Ásta vitlausa 1
Árið 1944 gaf Ólafur Jóhann Sigurðsson út skáldsöguna Fjallið og drauminn sem hlaut yfirleitt mjög góða dóma, þótt sumir væru upp og ofan, t.d. dómur Halldórs Laxness. En ein persóna bókarinnar, niðursetningurinn Ásta vitlausa, varð sérlega umdeild enda lýsing á ævi hennar sérlega ofboðsleg. Undir lok þáttar víkur svo að alþýðukonunni Önnu frá Moldnúpi sem nánar segir af í næsta þætti.
-
249
Kravténko og ógnarárið 1936 - 4
Kravténko þarf að berjast á hæl og hnakka til að hverfa ekki inn í Gúlag-eyjaklasa Stalíns eða hreinlega vera tekinn af lífi þegar hreinsanir í Sovétríkjunum standa sem hæst.
-
248
Kravténko og ógnarárið 1936 - 3
Hreinsunaræði Stalín náði æ fastari tökum á sovésku samfélagi árið 1936. Viktor Kravténko segir frá örlögum ýmissa samstarfsmanna sinna og loks stendur hann sjálfur í eldlínunni.
-
247
Kravténko og ógnarárið 1936 - 2
Ógnir hreinsana Stalíns og hans manna færast æ nær Kravténko sem reynir að halda velli sem yfirmaður verksmiðjunnar í Nicopol. Allt í kringum hann falla jafnvel eldheitir kommúnistar í valinn og svo gerist hið óumflýjanlega, röðin kemur að honum.
-
246
Kravténko og ógnarárið1936 - 1
Úkraínumaðurinn Viktor Kravténko kom síðast við sögu í Frjálsum höndum haustið 2024 en þá var hann orðinn forkólfur í iðnframleiðslu þeirri sem stjórn Stalíns hrinti af stokkunum á fjórða áratug síðustu aldar. Á ýmsu gekk í iðnvæðingunni en jafnframt færðist ofsóknaræði Stalíns í aukana. Og árið 1936 hófust nýjar "hreinsanir", grimmari en nokkru sinni fyrr.
-
245
Ódysseifskviða 7
Enn er litið í Ódysseifskviðu og borið niður í sjöttu kviðu. Nú er Ódysseifur kominn í land Fæaka og hittir fyrir prinsessuna Násíku sem hefur farið að boði guðanna til að þvo þvotta í laug nálægt heimili foreldra sinna og ákveður að liðsinna hinum prúða Ódysseifi. Hún ráðleggur honum hvernig skuli ganga á fund kóngs og drottningar.
-
244
Ódysseifskviða 7 - Násíka prinsessa fer að þvo þvott
Enn er litið í Ódysseifskviðu og borið niður í sjöttu kviðu. Nú er Ódysseifur kominn í land Fæaka og hittir fyrir prinsessuna Násíku sem hefur farið að boði guðanna til að þvo þvotta í laug nálægt heimili foreldra sinna og ákveður að liðsinna hinum prúða Ódysseifi. Hún ráðleggur honum hvernig skuli ganga á fund kóngs og drottningar.
-
243
Höskuldur Jónsson, Bólu-Hjálmar og Eyvindur duggusmiður
Hér lýkur að segja frá Höskuldi Jónssyni, sem Bólu-Hjálmar skrifaði um, en síðan er gluggað í frásögn Hjálmars af Eyvindi Jónssyni bónda og smið á 17. öld en hann var sérlega frægur fyrir bátasmíði sína og eru af því rómaðar sögur sem Hjálmar skráði mjög skemmtilega.
-
242
Höskuldur Jónsson og Bólu-Hjálmar 2
Áfram er gluggað í magnaða frásögn skáldsins Bólu-Hjálmars um ævi Höskuldar Jónssonar bónda og sjómanns sem bjó á Siglufirði og í nágrannasveitum á fyrri hluta 19. aldar. Eftir miklar raunir sem fjölskylda hans lenti í vegna snjóflóða tekur almenn lífsbarátta við, en stundum þarf Höskuldur ekki síður að hafa áhyggjur af nágrönnum sínum en náttúruöflunum.
-
241
Höskuldur Jónsson og Bólu-Hjálmar 1
Í þættinum er gluggað í frásögn sem skáldið Bólu-Hjálmar ritaði eftir Höskuldi Jónssyni bónda, vinnumanni og sjómanni sem lýsir lífsbaráttunni í upphafi 19. aldar, þar á meðal gríðarlegu snjóflóði gróf bæ hans á kaf, svo kona hans og börn voru þar innilokuð í 18 daga.
-
240
Sálarlíf konunnar 1
Aðalbjörg Sigurðardóttir var ein best menntaða kona á Íslandi á fyrri hluta 20. aldar og skrifaði margt, meðal annars um réttindi kvenna. En viðhorf hennar voru þó líka barn síns tíma og hér er gripið niður í grein sem hún skrifaði í Eimreiðina 1925, þar sem hún fjallar um sálarlíf kvenna og leitast við að sýna að þakklæti kvenna í garð karla sé þeim meira virði en matur og drykkur.
-
239
Fjalla-Bensi 1
Aðventa eftir Gunnar Gunnarsson er orðin hin eina sanna jólasaga Íslendinga en þar er byggt á frásögn af eftirleit sem Benedikt Sigurjónsson (Fjalla-Bensi) fór í 1925. Í þessum þætti er lesin sú frásögn eftir Þorgeir Jónsson í Eimreiðinni sem Gunnar byggði á og sagt bæði frá Fjalla-Bensa og viðtökum þeim er Aðventa fékk.
-
238
Kropotkin fursti 2
Lesið er úr hinni frægu sjálfsævisögu stjórnleysingjans Kropotkins fursta og nú einkum um þau ár þegar hann er að vaxa úr grasi og byrja að átta sig á samfélaginu sem hann býr í. Þrælahald er enn við lýði og yfirstéttarfólk eins og hann tilheyrir "á" þræla sína með húð og hári. Yfir öllu trónir svo keisarafjölskyldan.
-
237
Ódysseifskviða 6
Áfram heldur umsjónarmaður að lesa úr þýðingu sinni á Ódysseifskviðu Hómers. Eftir að fylgst hefur verið með Telemakkusi Ódysseifssyni í fyrstu köflum kviðunnar, þá kemur nú Ódysseifur loksins til sögunnar í hinum magnaða 5. þætti. Hann er í byrjun hálfgerður fangi ástsjúkrar gyðju en mun hann sleppa burt frá henni og komast heim til Íþöku þar sem hin trygga Penelópa bíður?
-
236
Ódysseifskviða 6 - Ódysseifur kemur til sögu!
Áfram heldur umsjónarmaður að lesa úr þýðingu sinni á Ódysseifskviðu Hómers. Eftir að fylgst hefur verið með Telemakkusi Ódysseifssyni í fyrstu köflum kviðunnar, þá kemur nú Ódysseifur loksins til sögunnar í hinum magnaða 5. þætti. Hann er í byrjun hálfgerður fangi ástsjúkrar gyðju en mun hann sleppa burt frá henni og komast heim til Íþöku þar sem hin trygga Penelópa bíður?
-
235
Árni Óla, einsetumaður og refaveiðar
Árni Óla var einn kunnasti og dugmesti blaðamaður landsins á fyrri hluta 20. aldar og var óþreytandi að kynna land og lýð fyrir lesendum Morgunblaðsins. Í þessum þætti verður gluggað í minningabók Árna þar sem hann segir fyrst frá einsetumanni sem hann fór að heimsækja sem blaðamaður og síðan rifjar hann upp minningar sínar frá refaveiðum í æsku.
-
234
Árni Óla, einsetumaður og refaveiðar
Árni Óla var einn kunnasti og dugmesti blaðamaður landsins á fyrri hluta 20. aldar og var óþreytandi að kynna land og lýð fyrir lesendum Morgunblaðsins. Í þessum þætti verður gluggað í minningabók Árna þar sem hann segir fyrst frá einsetumanni sem hann fór að heimsækja sem blaðamaður og síðan rifjar hann upp minningar sínar frá refaveiðum í æsku.
-
233
Ingimundur fiðla og Huldudrengurinn
Ingimundur Sveinsson ólst upp í Vestur-Skaftafellssýslu á ofanverðri 19. öld. Hann varð tónlistarmaður og jafnan kallaður Ingimundur fiðla, því fiðlan var hans tryggasti förunautur. Ekki batt Ingimundur bagga sína að öllu leyti sömu hnútum og samferðamennirnir og æskuminningar hans, Huldudrengurinn, er á margan hátt mjög óvenjuleg og hjartnæm ritsmíð. Ekki þarf að orðlengja að Ingimundur var bróðir Jóhannesar Kjarvals og Þorsteins Kjarvals en úr æskuminningum hans var lesið í maí 2025.
We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
ABOUT THIS SHOW
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
HOSTED BY
RÚV
Loading similar podcasts...