Episodes
-
Frú Barnaby: Útkall - Konunglegt fíaskó
Oft var þörf en nú er nauðsyn, Frú Barnaby rís eins og fönix úr öskunni til að svara ákalli samfélagsins um vitræna umfjöllun um hið stóra Kötumál. Ekki stóð á Lóu og Móu og með hjálp ónefnds freyðandi drykks, gengu þær í málið - Vesgú! KKVLOGM
-
Frú Barnaby: S6E3 - Örlaganóttin
Jahá, það eru aldeilis fréttir úr hlaðvarpsgerðarturninum. Þær stöllur, Lóa og Móa opna dyr inn í framtíðina en skilja eftir rifu inn í fortíðina. Völva frú Barnabys spáir fyrir þeim í tarot sem og framtíð allra hlustenda: Keisarinn, sól, tungl og dularfullar dökkhærðar konur koma við sögu....
-
Frú Barnaby - S6E2: Jólaspes
Lóa og Móa eru mættar upp í stúdíó Barnaby, sitja í hægindastólum umvafðar köflóttum teppum, orna sér við arineld og Lóa með Coco (upptökustjórann) í kjöltu. Þær stöllur veigra sér ekki við að fara yfir flest aðkallandi samfélagslegu málefni líðandi stundar, eins og jólagjafir, kapítalisma,...
-
Frú Barnaby: S6E1 - Skært lúðrar hljóma
Já, þið heyrðuð rétt, þær eru komnar aftur: Drottningar hlaðvarpsgerðar á Íslandi. Eftir margra mánaða langa þögn koma þær Lóa og Móa með nýja seríu. Og af nógu er að taka, jarðarför aldarinnar, krúnan, samsæriskenningar aðdáenda Frú Barnaby eru meðal umræðuefna. Við þökkum jafnframt áhugasömum...
-
Frú Barnaby: S5E8 - Berrassaður í Birckenstock
Lóa og Móa eru mættar í Kanínuholuna til að taka upp síðasta þátt seríunnar. Þær eru í sumarskapi með sumarmjöð í glasi og ræða það sem er efst á baugi þessa daganna svo sem félagskap sinn í aðdáendahópi Barnaby, sveppir, mýs og morgunfrúr. Leynigestur laumast inn með rúv-passa um hálsinn og…
more -
Frú Barnaby: S5E7 - Sticky toffee pudding
Frú Barnaby fékk til sín góðan gest frá fyrirheitna landinu, en það er hann Aron Már Ingham Grímsson. Aron leiðir okkur í sannleika um menningarheim Midsomer, en við spjöllum saman um blásíldina og gamla breta. Nú Aron segir okkur einnig frá lystisemdum breskrar matargerðar sem hefur oft á tíðum...
-
Frú Barnaby: S5E6 - Beðmál í Borgartúni
Þá er komið að því! Stöllurnar sívinsælu láta loks í sér heyra eftir annasamar vikur. Afmælishátíðarhöld, vídeókvöld og hámhorf hafa verið í forgangi. En nú er danskortið autt og þær Móa og Lóa gefa sér tíma til að skeggræða þetta alltsaman fyrir ykkur til að njóta. Díönuhornið er í forgrunni í...
-
Frú Barnaby: S5E5 - Húðflúrs húllumhæ
Marglyttan og ansjósan brjótast út úr heilaþokunni hressari enn nokkru sinni fyrr, enda er afmælismánuður Frú Barnaby genginn í garð. Hátíðarhöld eru margvísleg, en þau hefjast á einkaþotuflugi. Fyrsti áfangastaður er húðflúrstofa, annar er heimili Kardashian fjölskyldunnar en ferðinni lýkur með...
-
Frú Barnaby: S5E4 - Flagð undir fögru skinni
Fimmtugasti og fyrsti þátturinn af þessu bulli - gjörið svo vel!
-
Frú Barnaby: S5E3 - Júbbíleum
Móa og Lóa eru mættar í júbíleum hátíðarhöld drottningarinnar Jónu - sem slær upp konunglegri veislu. Veitingarnar eru ekki af verri endanum en við nýtum tækifærið til þess að smakka nýja Royal búðinginn og kveða upp dóm. Margt ber á góma, bókaútgáfa, söfnunarárátta, starfsumhverfi…
more -
Frú Barnaby: S5E2 - Marglyttan og ansjósan
Upp komst um hlaðvarpsnjósnir handritshöfunda Midsomer þáttanna þegar tvær miðaldra áhugakonur um galdra og hlaðvarpsþáttagerð skutu upp kollinum í nýjasta þætti Herra Barnaby. Nú við Lóa og Móa látum þetta ekki á okkur fá né hinar ýmsu veirur sem herja á okkur. Hins vegar tökum við á öllum…
more -
Frú Barnaby: S5E1 - Urður, verðandi og skuld
Enn og aftur rís frú Barnaby eins og fönix úr ösku og fagnar nú fyrsta þætti fimmtu seríu - hverjum hefði dottið það í hug? Lóa og Móa eru komnar í spádómssokkana og segja okkur hvað næsta ár hefur upp á að bjóða. Þær lesa í Tarot-spilin, ræða pláguna margrómuðu, cocoa-puffs og íslenska...
-
Frú Barnaby: S4E10 - Hálfmánaverksmiðjan
Nú er sko aldeilis handagangur í öskjunni, en þær Lóa og Móa eru ekki í stúdíó Barnaby í þessum þætti. Því þær stöllur eru búnar að binda á sig svunturnar og hella sér í hálfmánagerð. Í þessum lokaþætti seríunnar ber margt á góma á meðan þær baka vandræðin; Bítlarnir, umhverfisvænar jólagjafir,...
-
Frú Barnaby: S4E9 - Með í jól í hjarta
Jólaenglarnir Lóa og Móa eru mættar á jólalínuna og eru með lausnir við öllum ykkar jólavandamálum. Þær veigra sér ekki við að leita til sérfræðinga og fá einn slíkan, heiðursjólasveinninn, Arnar Eggert Thoroddsen sem veitir okkur og hlustendum ráðgjöf hvað varðar afþreyingu yfir jólahátíðarnar....
-
Frú Barnaby: S4E8 - Jólastjörnurnar
Í þessum fyrsta aðventuþætti sitja vinkonurnar Lóa og Móa ekki auðum höndum. Þær eru vopnaðar rúmfóbæklingi, vír, skærum og límbyssu því jú það er komið að föndurstund. Þær ræða þess á milli sögulegt jólaföndur og dónalegar piparkökur sem búa í rykugum piparkökuhúsum. Díönuhornið sígilda er á…
more -
Frú Barnaby: S4E7 - Hneyksli og hleypidómar
Galvaskar og undirbúnar hlaðvarpsgerðarkonur eru mættar hér í stúdíó Barnaby. Í hlaðvarpinu þar sem allt er hugsað og ekkert er sagt taka orðin þó að streyma stríðum straumum og umfjöllunarefnin eru hneykslanleg: fordómar, framhjáhöld, kvenfyrirlitning og nektarsumarbúðir fyrir fólk sem vill vera…
more -
Frú Barnaby: S4E6 - Prinsessan og almúgamaðurinn
Þær Lóa og Móa eru glaðar í bragði eftir Lóu-samlokuþátt síðustu viku. Í þessum þætti búa þær meðal annars til ný verðlaun, MLóbelinn, sem þær veita óhikað. Þær vinda sér síðan í mál líðandi stundar, mál sem er á allra vörum þessa dagana: Netflix -jólamyndirnar, Smjattpattarnir, breisku konunar…
more -
Frú Barnaby: S4E5 - Barnatennur úr ókunnugu fólki
Þær Lóa og Móa hella upp á konunglegt te því gest ber að garði, Lóa Hjálmtýsdóttir nokkur, listamaður og rithöfundur. Í þættinum fáiði að vera fluga á vegg í hinu skemmtilegasta teboði þar sem tekið er á stóru málunum og litlu hlutunum. Lóa segir okkur frá söfnunaráráttu, æskuminningum,...
-
Frú Barnaby: S4E4 - Skinkuhornið
Þjóðháttasafn framtíðarinnar hefur leitað til Frú Barnaby og biður hana um að lýsa fornum heimi, árdaga Skeifunnar, fegurð Grensásvegar og æskustundirnar á Pizzahúsinu. Móa og Lóa fara yfir stóru málin, á að fara í ljós fyrir ballið, er tungumálið þrungið merkingu neindarinnar, nú svo ræða þær...
-
Frú Barnaby: S4E3 - Menningarátökin
Lóa og Móa taka við gesti í stúdíóinu og það er engin önnur en menningarmógúllinn og stjórnandinn Auður Jörundsdóttir, boss lady. Hún er okkur í Frú Barnaby vel kunnug sem einn af okkar helstu aðdáendum. Auður leiðir okkur í gegnum líf "menningar-verkamannsins", skoska fortíð og svo koma við sögu...
-
Frú Barnaby: S4E2 - Vængjasláttur í kálgarðinum
Það er haust, Móa og Lóa eru staddar í matjurtagarði á vegum reykjavíkurborgar - það heyrist þrusk, kjökur og illkvitnislegur hlátur í fjarska. Þetta er einfalt mál að leysa - sökudólgar eru fleiri en einn. Með Barnaby gleraugunum fáið þið innlit í veruleika grænmetisbænda, kvenna í…
more -
Frú Barnaby: S4E1 - Uppi og niðri
Loksins eru þær Lóa og Móa mættar til leiks fyrir enn eina seríu af Frú Barnaby - vinsælasta hlaðvarp á Íslandi og þó víðar væri leitað. Þær stöllur veigra ekki fyrir sér að hlaupa upp og niður í húsakynnum hinnar virðulegu fjölskyldu Grantham og skoða þar alla króka og kima. Eitthvað ber…
more -
Frú Barnaby: Sumarsmellur
Stjörnurnar röðuðust óvænt upp í fullkomna röð og hið ótrúlega gerðist - Frú Lóa birtist í gættinni; Tene norðursins, illgresi suðursins - vöxtur, rækt og órækt, aldargömul brúðarterta. Vinkonurnar færa ykkur hér á silfurfati sérstakan sumarsmell um leið og þær hita upp fyrir fjórðu þáttaröð. Og...
-
Frú Barnaby: S3E15 - La prima vera
Það er komið að endalokum seríu þrjú, þær Lóa og Móa renna hýru auga til sumarsins og velta því upp hvort þessi endalok séu í raun upphaf. Græðlingar, kímblöð, eitruð karlmennska, kynlífsróbót og sjúkdómar í eikartrjám koma við sögu á meðan þær sötra pina colada undir sólhlíf á ímyndaðri strönd....
-
Frú Barnaby: S3E14 - Grafið í stein
Góðvinur Frú Barnaby er mættur í stúdíóið, það eru íshnettir í glösum og vorsólin skín inn um þakgluggann. Myndlistamaðurinn Matthías Rúnar Sigurðsson heiðrar okkur í þetta skiptið með nærveru sinni og hefur heldur betur náð Coco á sitt band Lóu til mikillrar gleði. Það er farið vítt og breitt um...
-
Frú Barnaby: S3E13 - Ávaxtakarfan
Móa og Lóa leggjast í rannsóknar, þær þenja út vængi ímyndunaraflsins og verða þær sjálfar fórnarlömb sálgreiningaferlis síns. Veruleikinn tekur á sig aðra mynd, ávextir, nammi, desertar og litir regnbogans fljúga um stúdíó Barnaby. Coco kemur og er gáfulegust að vanda en jafnvel hún verður…
more -
Frú Barnaby: S3E12 - Garður dauðans
Þær Lóa og Móa setja ekki upp garðhanskana enda óhræddar við að óhreinka hendar sínar. Henda niður fræum, færa til lauka og eru aldeilis komnar í gúmmístígvélin því sumarið er handan við hornið. Monty don, Barnaby þríhyrningurinn - hættuleg viðreynsla og sofandi hundar koma fyrir í þessum…
more -
Frú Barnaby: S3E11 - Í djúpu lauginni
Frú Barnaby alvarlega lífstílshlaðvarpið fer í saumana á þjóðarsálinni, greinir frá nýjum rannsóknum á tilurð eldgosa. Einnig eru nýjir málshættir kynntir til leiks sem æstir hlustendur þáttarins hafa sent inn. Móa og Lóa "pitcha" nýjan þátt og ræða framtíðaráform frúarinnar - en hún er bara rétt...
-
Frú Barnaby: S3E10 - Hundahvíslarinn
Úr hrjóstrugu nýju hrauni spretta fram handritshæfileikar Lóu og Móu. Þær koma úr biðraðakenndum nútímanum og ferðast til Midsomer í huganum. Nýr Barnaby þáttur er skrifaður "læf" og í honum er allt sem þið gætuð óskað ykkur, hlustendur góðir. Lík í skóginum, hundaáhugamannklúbbur, Díana…
more -
Frú Barnaby: S3E9 - Á besta aldri
Eftir langt hlé eru þær stöllur, Lóa og Móa mættar í stúdíó Barnaby í hátíðarskapi. Það er sko skálað í eldgosi fyrir eins árs afmæli Frú Barnaby sem er akkurat á milli afmæla hlaðvarpskvennanna tvenna. Eldgos, grillaðar pulsur, bandarískt slúður og heimsfrægðin sem ber að dyrum. Hér er sko öllu...
-
Frú Barnaby: S3E8 - Glamrar í gervitönnum
Lóa og Móa eru búnar að endurheimta stúdíóið og sópa nærbuxnafjallinu niður stigann. Þær eru að sjálfsögðu með puttann á púlsinum og ræða nýjustu skjálftanna í fjölmiðlum vestanhafs. Þær greina frá viðtalinu mikla við Meghan og Harry hjá Drottningunni sjálfri Opruh. En þær kafa jafnvel dýpra í…
more -
Frú Barnaby: S3E7 - Býflugnadrottningin
Lóa og Móa er mættar í Stúdíó Auður Lóa þar sem galdrarnir verða til. Þær eru heiðraðar með höfðinglegri heimsókn sjálfs Chieftainsins þeirra. Áslaug Heiður Chieftain fer yfir Barnabyfræðin með hjálp þjóðfræðinnar og í þokkafullri jógastellingu. Þær stöllur iðka samræðuna sem heimspekingar til...
-
Frú Barnaby: S3E6 - Verk í vinnslu
Eftir mikinn þrýsting frá aðdáendum taka Móa og Lóa loksins það sem er efst á baugi í þeirra lífi og flestra Íslendinga: Framkvæmdir. Allt frá innréttingum, flísum, málningarprufum og sölumönnum niður í existantialískar pælingar um fúgu eða nöfn á mismunandi hvítum litum. Frú Barnaby hefur verið...
-
Frú Barnaby: S3E5 - Fenjadísin og glæpakvendið
Móa og Lóa eða fenjadísin og glæpakvendið leggja drög að þrem eldheitum ástarsögum sem gerast í nærumhverfi þeirra. Þær ræða formið, brjótið formið og sparsla í götin. Arístóteles, rauða serían, Royal Bananasplitt og primus motor alls þess sem til er: Ástin. Við veigrum okkur ekki við að ræða...
-
Frú Barnaby: S3E4 - Ryk og kampavín
Lóa og Móa bjóða til sín umtöluðustu konu úr atvinnulífinu á síðasta ári. Jóna Hlíf kemur í pelsinum færandi hendi með súkkulaðijarðaber og saman dreypa þær á kampavíni. Vald í öllum sínum birtingarmyndum er rætt; valdalosti, samkennd, karma-police og siðblinda. Spilling ber einnig á góma enda er...
-
Frú Barnaby: S3E3 - Annar í Eggerti
Hver segir að jólin séu búin, hver segir að lífið sé dans á rósum. Alla vega ekki við í Frú Barnaby. Í stúdíóið er mættur góður gestur, Eggert sjálfur, hann heldur þar sem frá var horfið og drepur á rússneskri melankólíu, evrópskri aristokratíu og skandínavískum sársauka. Stríð og friður, ást og...
-
Frú Barnaby: S3E2 - Hefðarkettirnir
Lóa og Móa eru staddar á suðrænni strönd, með volga daiquiri við hendina. Þær ræða ansjósur, Bridgerton og pólitíkina á bak við búningadrama, giftingar og leggja drög að uppeldisbók Frú Barnaby. Í lokin taka þær saman handklæðin, dusta af sér sandinn, reima á sig sandalana og tölta rólegar út í...
-
Frú Barnaby: S3E1 - Öld vatnsberans
Móa og Lóa eru mættar ferskar til leiks eftir konunglegt jólafrí. Þær henda jólunum í ruslið og fara yfir áramótaheitin. Frú Barnaby afhjúpar spádómsgáfur sínar og gerist völva hlustenda. Allt sem þú villt vita um það sem koma skal árið 2021. Einnig er kynntur til leiks glænýr dagskrárliður í...
-
Frú Barnaby: S2E11 - Þriðji vitringurinn
Lóa og Móa eru mættar í Stúdíóið og sötra jólabjór. Gestrisnir vesturbæingar og mjög miklir Barnabyaðdáendur buðu Móu og fjölskyldu að upplifa jól í vesturbænum og að horfa á Jólabarnabyþáttinn, Ghosts of Christmas past. Lóa og Móa tala þennan þátt og jólin í vesturbænum. Þær stöllur kryfja...
-
Frú Barnaby: S2E10 - Eggert í aðventu
Lóa og Móa fá til sín mjög góðan gest, sameiginlegan vin okkar. Dalamaðurinn og heimsborgarinn, rússneskumaðurinn segir okkur frá langri ævi sinni, uppáhalds smákökunni, frystikistunum í sveitinni og uppákomu á sæðingarnámskeiði. Hann talar um dvöl sína hinum meginn á hnettinum ungur að árum,...
-
Frú Barnaby: S2E9 - Tregafulli listasögukennarinn
Í þessum fyrsta aðventuþætti blaðra þær Lóa og Móa um skammdegið, hefðir og smákökur. Þær dreypa á viskýi, tala um aldursfordóma, hvernig afi fékk alltaf möndluna og hvar má finna bestu jólagjafirnar. Það eru ekki alltaf dýrustu jólagjafirnar sem eru dýrmætastar því fjársjóðina er best að finna...
-
Frú Barnaby: S2E8 - Tannhvöss tengdamamma
Heitt toddí, kanilstöng og kertaljós. Lóa og Móa eru mættar í Stúdíó Barnaby og þær kryfja hér eitt svæsnasta hneyskli ársins, Megxit. Margir hafa beðið eftir þessari greiningu okkar með óþreyju og jafnvel sent okkur skilaboð þess efnis. Við hlýðum aðdáendum og förum djúpt í saumana á aðdraganda,...
-
Frú Barnaby: S2E7 - Konfektkassi lífsins
Móa og Lóa orna sér við arineld í Stúdíó Barnaby með tebolla sér við hönd og velta fyrir pólitískum afleiðingum þess að hafa það of huggulegt. Að venju fer lítið sem ekkert framhjá þeim stöllum úr fréttum líðandi stundar og kafa þær m.a. djúpt í súkkulaðihneykslið mikla. Hinar fjölmörgu...
-
Frú Barnaby: S2E6 - Vingjarnlegi sporðdrekinn
Detti okkur allar dauðar lýs úr höfði því í stúdíóið er kominn góður gestur. Þetta er líka frumflutningur á nýju upphafsstefi og er gesturinn dularfulli einmitt einleikarinn bakvið flutninginn. Við köfun djúpt í innra líf sporðdrekans, ræðum æskuár á framandi slóðum, sjónvarpsgláp og...
-
Frú Barnaby: S2E5 - Konunglega tæknikonan
Lóa og Móa sitja í fílabeinsturni sínum, dreypa á konunglegum veigum ættuðum úr Hosiló. Það er farið yfir hinar ýmsu tæknihindranir sem að tæknikona frú Barnaby þarf að vinna bug á. En konunglegt efni þáttarins er upphitun fyrir 4. seríu af sjónvarpsþáttaröðinni, The Crown. Móa veltir fyrir sér...
-
Frú Barnaby: S2E4 - Halló Hrekkjavaka!
Hryllilegasta hlaðvarp sem sögur fara af, hrekkjavökuþáttur Frú Barnaby. Móa og Lóa hittast í fölu mánaskini ræða hrekkjavökuhefðirnar, uppruna þeirra, heiðni, "guising" sem Ameríkanar öpuðu eftir og breyttu í Trick or Treat. Nú svo venda þáttastjórnendur sér til Midsomer nánar tiltekið í...
-
Frú Barnaby: S2E3 - COVID SPECIAL
Lóa og Móa hafa gengið í gegnum hæðir og lægðir vegna Covid en geta nú loks skálað í Corona og storkað örlögunum. Þær reyna að leiða hugann að öðru, þær mæla með ýmis konar afþreyingu fyrir fólk sem leiðist, er í sóttkví eða liggur veikt heima. Nú svo er hið sívinsæla Diönuhorn endurvakið með…
more -
Frú Barnaby: S2E2 - Nótt hjartarins
Í þessum þætti takast Lóa og Móa við nýja hluti, þær fá viðmælanda til sín í stúdíó Barnaby. Rætt er við hinn frábæra Gunnar Óla Þjóðfræðing og safnvörð um Vesturbæinn, Breiðholtið, Þjóðfræði og líf í skugga verðlaunakattar. Með gestinum setjum við á okkur þjóðfræðigleraugun og skoðum…
more -
Frú Barnaby: S2E1 - Það var nú mikið!
Loksins, loksins, önnur þáttaröð hins sívinsæla hlaðvarps er komin af stað! Lóa og Móa sólbrúnar og sælar eftir langt sumarfrí mæta í stúdíó Barnaby og ræða, persónuleikaprófið sívinsæla, hundinn Sykes, morðingja og fórnarlömb. Nú svo er auðvitað drepið á ferðalögum sumarsins, stúdíótiltektum og...
-
Frú Barnaby: 10. þáttur - Staldrað við
Síðasti þáttur fyrstu seríu Frú Barnaby er tekinn upp í pottinum, við förum yfir farinn veg, drögum í land með Vesturbæjarskömmun og komumst að því að Frú Barnaby er stereótýpa 105. Auðvitað ræðum við vinnusjúklinginn Barnaby, flórgoða, golf, pappamassa, rokkstjörnur, garðyrkjumenn, hitastig nú…
more