PODCAST · sports
Fyrsta sætið
by Ritstjórn Morgunblaðsins
Íþróttahlaðvarp mbl.is og Morgunblaðsins. Íþróttavikan gerð upp, allt það helsta sem þú þarft að vita um íþróttir líðandi stunda og stóru málin krufin til mergjar. Umsjón: Bjarni Helgason
Episodes
-
#81 - Margrét Lára: Hjálpaði mér að loka ferlinum
Knattspyrnukonan fyrrverandi Margrét Lára Viðarsdóttir er ein besta knattspyrnukona sem Ísland hefur átt og markahæsti landsliðsmaður Íslands frá upphafi. Margrét Lára ræddi ævisögu sína; MLV9 - Ástríða fyrir leiknum, hugmyndina að bókinni og af hverju hún ákvað að gefa út ævisögu sína.
-
#80 - Kristófer Acox: Síðast þegar ég svaraði var mér hent úr landsliðinu
Körfuboltamaðurinn Kristófer Acox, fyrirliði Vals, fór yfir viðskilnaðinn við íslenska landsliðið og ósættið við landsliðsþjálfarann Craig Pedersen, ræddi tímabilið framundan með Val og spáði í spilin í Bestu deildunum og ensku úrvalsdeildinni ásamt íþróttablaðamanninum Aroni Elvari Finnssyni.
-
#79 - Steini Halldórs: Íhugaði það alvarlega að kalla þetta gott
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, gerði upp frammistöðu Íslands á Evrópumótinu í Sviss í sumar og ræddi framtíð sína með kvennalandsliðið, spáði í spilin í Bestu deildunum og ensku úrvalsdeildinni og fór yfir fréttir vikunnar ásamt íþróttablaðamanninum Aroni...
-
#78 - Fyrsta sætið: Fær ekkert jólakort frá landsliðsþjálfaranum
Bjarni Helgason hitaði upp á léttu nótunum fyrir þriðja leik Íslands gegn Noregi á Evrópumóti kvenna í fótbolta ásamt samfélagsmiðlastjörnunni Gústa B. og íþróttafréttamanninum Helga Fannari Sigurðssyni á DV.is.
-
#77 - Fyrsta sætið: Hótelstjórinn áfengisdauður öll kvöld
Bjarni Helgason hitaði upp á léttu nótunum fyrir annan leik Íslands gegn Sviss á Evrópumóti kvenna í fótbolta ásamt samfélagsmiðlastjörnunni Gústa B. og íþróttafréttamanninum Helga Fannari Sigurðssyni á DV.is.
-
#76 - Fyrsta sætið: Íslendingar stálu ketti í Thun
Bjarni Helgason fór yfir fyrsta leik Íslands gegn Finnlandi á Evrópumóti kvenna í fótbolta á léttu nótunum ásamt samfélagsmiðlastjörnunni Gústa B. og þá ræddu þeir félagar einnig um nýjustu vendingar í svissnesku borginni Thun þar sem þeir munu dvelja á meðan Evrópumótið stendur yfir.
-
#75 - Fyrsta sætið: Gerði ráð fyrir Margréti Láru í byrjunarliðinu
Bjarni Helgason hitaði upp á léttu nótunum fyrir fyrsta leik Íslands gegn Finnlandi á Evrópumóti kvenna í fótbolta sem hefst í Sviss á morgun ásamt samfélagsmiðlastjörnunni Gústa B. og íþróttafréttakonunni Eddu Sif Pálsdóttur á Rúv.
-
#74 - Addi Grétars: Misgáfulegir hlutir sem fólk lætur út úr sér
Arnar Grétarsson, fyrrverandi þjálfari Vals í Bestu deildinni, fór yfir viðskilnaðinn við Val, gerði upp frammistöðu íslenska landsliðsins í nýliðnum landsleikjaglugga og spáði í spilin fyrir lokaumferðir Íslandsmótsins ásamt íþróttablaðamanninum Aroni Elvari Finnssyni.
-
#73 - Ásta Eir og Elísa Viðars: Fagnar enginn meira en mótanefnd KSÍ
Ásta Eir Árnadóttir, fyrirliði Breiðabliks, og Elísa Viðarsdóttir, fyrirliði Vals, hituðu upp fyrir úrslitaleik liðanna í Bestu deildinni í fótbolta sem fram fer á Hlíðarenda á morgun. Þá ræddu þær einnig um enska boltann ásamt því að fara yfir helstu fréttir vikunnar.
-
#72 - Óli Óla: Fyrsta skiptið sem ég hugsaði ekkert um eldgos og Grindavík
Ólafur Ólafsson, fyrirliði Grindavíkur í körfubolta, gerði upp síðasta tímabil þar sem jarðhræringarnar á Reykjanesskaga höfðu mikil áhrif á bæði liðið og bæjarfélagið, ræddi um flutningana úr Grindavík, framtíðina og framtíð körfuboltans í Grindavík ásmt íþróttablaðamanninum Aroni Elvari Finnssyni.
-
#71 - Halldór Árna: Talsvert meiri vinna sem fylgir þjálfarastarfinu
Halldór Árnason, þjálfari Breiðabliks í Bestu deildinni, fór yfir fyrsta árið sitt í starfi og tímabilið hjá Blikum, ræddi frammistöðu íslenska karlalandsliðsins í síðasta landsleikjaglugga og spáði í spilin í ensku úrvalsdeildinni ásamt íþróttablaðamanninum Aroni Elvari Finnssyni.
-
#70 - Guðni Th. Jóhannesson: Sigurinn í Nice stendur upp úr
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, fór yfir eftirminnilegustu íþróttaafrek Íslands frá því hann tók við embætti árið 2016, ræddi um framtíð íþrótta á Íslandi ásamt því að ræða aðstöðumál landsliðanna, sem og fjárskortinn sem íþróttahreyfingin þarf að glíma við.
-
#69 - Þorvaldur Þórðarson: Það má ekki vanmeta Ronaldo
Eldfjallafræðingurinn og fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Þorvaldur Þórðarson fór yfir fyrstu leiki Evrópumóts karla í knattspyrnu sem fram fer í Þýskalandi, ræddi um liðin sem eru líklegust til árangurs og þau sem hafa valdið mestum vonbrigðum á mótinu, ásamt því að ræða um Bestu deildir karla og...
-
#68 - Gaupi: Þetta er í raun fíkn
Guðjón Guðmundsson, betur þekktur sem Gaupi, lagði íþróttafréttamennskuna á hilluna eftir 32 ár í bransanum síðasta sumar en hann fór yfir fréttir vikunnar, ræddi um íslenska karlalandsliðið í handbolta og fótbolta, kvennalandsliðið í fótbolta, gerði upp tímabilin í handboltanum og fótboltanum...
-
#67 - Guðlaug Edda: Það small eitthvað í heilanum á mér
Þríþrautarkonan Guðlaug Edda Hannesdóttir fór yfir vegferðina og þrautagönguna að Ólympíuleikunum 2024 sem fram fara í París í Frakklandi í sumar en hún varð á dögunum fyrst Íslendinga til þess að tryggja sér keppnisrétt í greininni á Ólympíuleikum.
-
#66 - Enska sætið: Líklega besta liðið í sögu úrvalsdeildarinnar
Bjarni Helgason gerði upp tímabilið í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamönnunum Aroni Elvari Finnssyni og Jökli Þorkelssyni.
-
#65 - Viktor Gísli: Stefnir á spíkat í fyrsta skiptið á ævinni
Viktor Gísli Hallgrímsson, landsliðsmarkvörður Íslands í handbolta og leikmaður Nantes í Frakklandi, gerði upp tíma sinn í Frakklandi, ræddi um meiðslin sem hafa verið að plaga hann undanfarin tvö ár, fór yfir fyrsta árið hjá landsliðinu undir stjórn Snorra Steins Guðjónssonar ásamt því að fara...
-
#64 - Enska sætið: Stuðningsmennirnir komnir með upp í kok af honum
Bjarni Helgason gerði upp 36. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamönnunum Aroni Elvari Finnssyni og Jökli Þorkelssyni.
-
#63 - Enska sætið: Erfitt að sjá toppliðin misstíga sig á lokametrunum
Bjarni Helgason gerði upp 35. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamönnunum Aroni Elvari Finnssyni og Jökli Þorkelssyni.
-
#62 - Enska sætið: Hefur meiri trú á Arsenal en Liverpool
Bjarni Helgason gerði upp 34. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamanninum Jökli Þorkelssyni og Sonju Sif Þórólfsdóttir, aðstoðarfréttastjóra Morgunblaðsins.
-
#61 - Enska sætið: Gæti hentað þeim betur að elta City
Bjarni Helgason gerði upp 33. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamönnunum Aroni Elvari Finnssyni og Jökli Þorkelssyni.
-
#60 - Enska sætið: Arsenal í bílstjórasætinu
Aron Elvar Finnsson gerði upp 32. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamanninum Jökli Þorkelssyni og Sæbirni Steinke, fréttaritara hjá fótbolta.net.
-
#59 - Enska sætið: Bikarinn er Liverpool að tapa
Bjarni Helgason gerði upp 31. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamönnunum Aroni Elvari Finssyni og Jökli Þorkelssyni.
-
#58 - Þorvaldur Örlygs: Mörg stór verkefni framundan hjá KSÍ
Þorvaldur Örlygsson, nýkjörinn formaður KSÍ, fór yfir fyrstu vikurnar í nýja starfinu, ræddi landsleiki karlalandsliðsins gegn Ísrael og Úkraínu og komandi undankeppni EM 2025 hjá kvennalandsliðinu, ásamt því að spá í spilin fyrir fótboltasumarið hérna heima.
-
#57 - Arnar Gunnlaugs: Nokkur atriði sem bögguðu mig sem við komumst upp með
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Íslands- og bikarmeistara Víkings, fór yfir frammistöðu íslenska karlalandsliðsins í fótbolta gegn Ísrael, spáði í spilin fyrir komandi úrslitaleik gegn Úkraínu á þriðjudaginn, ræddi frábært tímabil Víkinga á síðustu leiktíð og ræddi markmið liðsins fyrir komandi...
-
#56 - Enska sætið: Líklegasta liðið af toppliðunum þremur
Bjarni Helgason gerði upp 28. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamanninum Aroni Elvari Finssyni og blaðamanninum Viðari Guðjónssyni.
-
#55 - Enska sætið: Liverpool lifir ekki endalaust á lyginni
Bjarni Helgason gerði upp 27. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamönnunum Aroni Elvari Finssyni og Jökli Þorkelssyni.
-
#54 - Enska sætið: Mögulega besti leikur Van Dijk fyrir Liverpool
Aron Elvar Finnsson gerði upp 26. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum og gerði upp sigur Liverpool gegn Chelsea í úrslitaleik deildabikarsins ásamt íþróttablaðamönnunum Gunnari Agli Daníelssyni og Sævari Breka Einarssyni.
-
#53 - Enska sætið: Núnez stal töfrunum af Haaland
Bjarni Helgason gerði upp 25. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamönnunum Aroni Elvari Finssyni og Jökli Þorkelssyni.
-
#52 - Enska sætið: Keppast um að mæta á flottari bíl í vinnuna
Bjarni Helgason gerði upp 24. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamanninum Aroni Elvari Finssyni og útvarpsmanninum Bolla Má Bjarnasyni.
-
#51 - Enska sætið: Samsæriskenning um brotthvarf Klopps
Bjarni Helgason gerði upp 23. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamanninum Aroni Elvari Finssyni og blaðamanninum Viðari Guðjónssyni.
-
#50 - Snorri Steinn: Við fórum út af sporinu
Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handknattleik, gerði upp Evrópumótið í Þýskalandi þar sem Ísland hafnaði í 10. sæti ásamt því að ræða framtíð íslenska liðsins.
-
#49 - Helga Margrét: Fékk ekkert jólakort frá Gumma Gumm
Íþróttafréttakonan Helga Margrét Höskuldsdóttir ræddi um lífið í Þýskalandi á Evrópumótinu í handbolta, fór yfir gengi íslenska liðsins til þessa og spáði í spilin fyrir stórleikinn gegn Austurríki ásamt Brynjólfi Löve Mogensson, verkefnastjóra hjá Morgunblaðinu.
-
#48 - Einar Örn og Logi Geirs: Eiga ekki að vera tengdasynir Íslands
Landsliðsmennirnir fyrrverandi Einar Örn Jónsson og Logi Geirsson gerðu upp frammistöðu íslenska landsliðsins í handbolta í riðlakeppninni á Evrópumótinu í Þýskalandi og spáðu í spilin fyrir milliriðlakeppnina í dag ásamt Brynjólfi Löve Mogensson, verkefnastjóra hjá Morgunblaðinu.
-
#47 - Aron Pálmars og Bjarki Már: Miklu meiri ástríða í Íslendingunum
Landsliðsfyrirliðinn Aron Pálmarsson og landsliðsmaðurinn Bjarki Már Elísson ræddu um fyrstu leiki Íslands á Evrópumótinu í handbolta í München í Þýskalandi, lífið á hótelinu og stórmótum almennt og framhaldið á Evrópumótinu ásamt Brynjólfi Löve Mogensson, verkefnastjóra hjá Morgunblaðinu.
-
#46 - Einar Örn: Við stálum þessu stigi
Einar Örn Jónsson, fyrrverandi landsliðsmaður Íslands í handbolta og íþróttafréttamaður á RÚV, gerði upp fyrsta leik Íslands gegn Serbíu í C-riðli Evrópumótsins í Þýskalandi og spáði í spilin fyrir næsta leik liðsins gegn Svartfjallalandi sem fram fer á morgun ásamt Brynjólfi Löve Mogensson,...
-
#45 - Logi Geirs: Með besta liðið í riðlinum en það getur allt gerst
Logi Geirsson, fyrrverandi landsliðsmaður Íslands í handbolta, spáði í spilin fyrir fyrsta leik íslenska karlalandsliðsins í handbolta gegn Serbíu í C-riðli Evrópumótsins, ásamt því að fara yfir fyrstu dagana í München og landsliðsferilinn ásamt Brynjólfi Löve Mogensson, verkefnastjóra hjá...
-
#44 - Ásgeir Örn og Gunni Magg: Vinnum til verðlauna á næstu árum
Handboltagoðsagnirnar Ásgeir Örn Hallgrímsson og Gunnar Magnússon spáðu í spilin fyrir komandi Evrópumót sem hefst í Þýskalandi í dag. Ásgeir Örn lék 247 A-landsleiki og vann til silfurverðlauna á Ólympíuleikum og bronsverðlauna á EM með liðinu en hann stýrir Haukum í dag. Gunnar var...
-
#43 - Sigurður íþróttalögfræðingur: Telur að Manchester City fái mjög harða refsingu
Íþróttalögfræðingurinn Sigurður Ólafur Kjartansson ræddi um samninga leikmanna hér á landi, lögfræðiumhverfið á Íslandi þegar kemur að íþróttum og ensku úrvalsdeildina þar sem þónokkur félög hafa gerst sek um brot á fjármálareglum deildarinnar. Sigurður úskrifaðist úr Háskólanum í Reykjavík áður…
more -
#42 - Enska sætið: Hann var að gera mig geðveikan
Bjarni Helgason gerði upp 20. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamanninum Aroni Elvari Finssyni og blaðamanninum Sonju Sif Þórólfsdóttur.
-
#41 - Enska sætið: Arsenal miklu sáttara með stigið en Liverpool
Bjarni Helgason gerði upp 18. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamönnunum Aroni Elvari Finssyni og Jóhanni Ingi Hafþórssyni.
-
#40 - Enska sætið: Liverpool var heppið gegn Manchester United
Bjarni Helgason gerði upp 17. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamanninum Jökli Þorkelssyni og Valtý Birni Valtýssyni, fréttamanni á K100.
-
#39 - Enska sætið: Tvö lið sem geta orðið meistari
Bjarni Helgason gerði upp 16. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamanninum Aroni Elvari Finnssyni og ritstjóranum Herði Snævari Jónssyni.
-
#38 - Axel Óskar: Losnaði aldrei við stimpilinn um að ég væri stórskrítinn
Knattspyrnumaðurinn Axel Óskar Andrésson ræddi um áhugaverðan leikmannaferil sinn á Englandi, í Noregi, í Lettlandi og í Svíþjóð og gerði upp 15. umferð ensku úrvalsdeildarinnar ásamt íþróttablaðamanninum Aroni Elvari Finnssyni.
-
#37 - Enska sætið: Kraftaverk ef United nær Meistaradeildarsæti
Bjarni Helgason gerði upp 14. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt blaðamanninum Guðmundi Hilmarssyni og úrvarpsmanninum Heiðari Austmann.
-
#36 - Enska sætið: Þurfa að styrkja sig ef þeir ætla að verða meistarar
Bjarni Helgason gerði upp 13. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamanninum Jökli Þorkelssyni og úrvarpsmanninum Þór Bæring Ólafssyni.
-
#35 - Heimir Guðjóns: Bauð fyrirliðann í skiptum fyrir Aron Pálmarsson
Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, ræddi endurkomuna til félagsins, tímabilið hjá Hafnfirðingum, samstarfið við Jón Rúnar og Viðar Halldórssyni, fór yfir frammistöðu íslenska karlalandsliðsins í fótbolta í undankeppni EM og spáði í spilin fyrir komandi umspil ásamt íþróttablaðamanninum Aroni Elvari...
-
#34 - Enska sætið: Guardiola hlýtur að biðja til guðs fyrir Liverpool-leikinn
Bjarni Helgason gerði upp 12. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamanninum Aroni Elvari Finnssyni.
-
#33 - Gunnar Jarl og ÞÞÞ: VAR er hundrað prósent komið til að vera
Knattspyrnudómarinn Þórður Þorsteinn Þórðarson og fyrrverandi knattspyrnudómarinn Gunnar Jarl Jónsson ræddu um dómaraferilinn, stöðu dómgæslunnar á Íslandi, VAR-myndbandsdómgæsluna og framtíðina í dómgæslu á Íslandi.
-
#32 - Enska sætið: Burt með VAR úr ensku úrvalsdeildinni
Bjarni Helgason gerði upp 11. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamönnunum Aroni Elvari Finnssyni og Jóhanni Inga Hafþórssyni.
We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
ABOUT THIS SHOW
Íþróttahlaðvarp mbl.is og Morgunblaðsins. Íþróttavikan gerð upp, allt það helsta sem þú þarft að vita um íþróttir líðandi stunda og stóru málin krufin til mergjar. Umsjón: Bjarni Helgason
HOSTED BY
Ritstjórn Morgunblaðsins
CATEGORIES
Loading similar podcasts...