Grjótkastið podcast artwork

PODCAST · news

Grjótkastið

Grjótkastið. Fréttaskýringar, pistlar og viðtöl um málefni líðandi stundar. Dagbókarbrot.

Publisher-supplied feed metadata · PodParley refreshed Apr 12, 2026 · Source feed

  1. 65

    Vaxtaákvörðun og úrslit kosninga

    Skuggabankastjórn kemur saman að loknum sveitarstjórnarkosningum og rýnir í úrslitin og ræðir ákvörðun peningastefnunefndar sem kynnt verður seinna í vikunni. Sigurður Hannesson og Þórður Pálsson liggja ekki á skoðunum sínum frekar en fyrri daginn.

  2. 64

    Ríkisstjórnin sem vill ekki hlusta

    Bergþór Ólason og Ingibjörg Ísaksen um ríkisstjórnina sem hlustar bara alls ekki á nein varnaðarorð, hvaðan sem þau koma, óvænt brotthvarf varaformannsins úr Flokki fólksins, skoðanakannanir og komandi sveitarstjórnarkosningar og magnaðan blaðamannafund forsætisráðherra fyrir utan Jysk í Kópavogi.

  3. 63

    Baráttan um Ísland

    Björgvins Halldórssonar minnst. Baráttan um Ísland framundan, komandi sveitarstjórnarkosningar, veröld sem var í alþjóðamálum, staða efnahagsmála og margt, margt fleira.

  4. 62

    Hvar ertu litla saklausa Ísland?

    Í þessum þætti:Staða mála í borgarpólitíkinni, er hægt að bjarga borginni?Ná borgaralegu öflin saman um breytingar, eða vilja sumir sjálfstæðismenn vinna með Samfylkingunni þrátt fyrir allt?Borgarlínan og skipulagsmál og óhófleg yfirbygging borgarkerfisins með fjölda atvinnustjórnmálamanna.Hvaða áhrif hafa Evrópumálin á kosningabaráttuna fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar?Munu kjósendur vilja nota tækifærið og refsa stjórnarflokkunum fyrir sífellt óvinsælli ríkisstjórn?Af hverju fáum við ekki betri skóla og kennslu, þegar við setjum meira fjármagn í þennan málaflokk en aðrar þjóðir?Hamas-frétt Moggans og átök í undirheimunum, erum við að lenda á sama stað og hin Norðurlöndin?Solaris-málsóknin gegn formanni Sjálfstæðisflokksins, þingsályktunartillaga Karls Gauta ofl um bann við að hylja andlit í opinberu rými.Hundrað ára afmælis landsmálafélagsins Varðar minnst í nýrri bók.Hvað meinar Tony Blair með því að vinstrið verði að gera upp dálæti sitt á íslamistum, sem vilja ekki aðlagast vestrænum samfélögum?

  5. 61

    Féllust seðlabankastjóra hendur?

    Í fyrri hluta Grjótkastsins greinir Agnar Tómas Möller stöðu efnahagsmála eftir vaxtahækkun í síðustu viku. Féllust Ásgeiri Jónssyni seðlabankastjóra hendur í Silfrinu í gær, þegar hann reyndi að útskýra horfur framundan? Hversu slæm er staðan í reynd? Af hverju er húsnæðisverð og leiguverð að fara að lækka á næstunni og hvað þýðir þessi staða fyrir umræðuna um aðild Íslands að Evrópusambandinu?Í seinni hluta þáttarins koma þau Einar Jóhannes Guðnason og Signý Tryggvadóttir og ræða stöðu mála í Kópavogi og Hafnarfirði í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga, þar sem þau eru bæði í framboði.

  6. 60

    Skuggabankastjórnin: Kreppuverðbólga í kortunum

    Þeir eru mættir í Skuggabankastjórninni Þórður Pálsson og Sigurður Hannesson og spá í spilin fyrir vaxtaákvörðun Seðlabankans í vikunni. Rætt er um hugtakið kreppuverðbólgu (stagflation), íslenska vinnumarkaðsmódelið, Evrópuleiðangur ríkisstjórnarinnar, óvissuna á alþjóðamarkaði, vöxt báknsins og gengi krónunnar svo eitthvað sé nefnt.

  7. 59

    Sótt að landsbyggðinni úr öllum áttum

    Sótt er að landsbyggðinni úr öllum áttum af ríkisstjórninni, er samdóma álit þeirra Jens Garðars Helgasonar, varaformanns Sjálfstæðisflokksins, Gunnars Braga Sveinssonar varaþingmanns Miðflokksins og fv. ráðherra og Þórarins Inga Péturssonar þingmanns Framsóknarflokksins. Þeir fara yfir pólitíska sviðið, stefnu og stöðu ríkisstjórnarinnar og sóknarfæri stjórnarandstöðunnar í snörpu spjalli.

  8. 58

    Skuggabankastjórnin spáir óvæntri vaxtalækkun

    Skuggabankastjórn Grjótkastsins kemur saman á mikilvægum fundi og spáir í spilin fyrir vaxtaákvörðun Seðlabankans. Hvaða staða er að teiknast upp í íslensku efnahagslífi og hvernig þarf að bregðast við? Þáttur sem telst skylduhlustun.

  9. 57

    Það er töff að vera trúaður

    Söngkonan Dagbjört Rúriks varð fyrir trúarlegri frelsun sem hjálpaði henni að verða edrú. Verkfræðingurinn og athafnamaðurinn Gunnlaugur Jónsson opnaði á alvöru spurningar um trúna og fann svör sem skiptu hann máli. Hvers vegna er aukinn trúarleg vakning meðal ungs fólks? Hvaða áhrif hafði morðið á Charlie Kirk? Hversu miklu máli skiptir kristin trú í okkar daglega lífi og er ekki bara allt í lagi að tala um trúna?

  10. 56

    Allt um botnfrosinn fasteignamarkað á mannamáli

    Ómar Rafnsson er byggingaverktaki til áratuga og gömul knattspyrnukempa. Hannes Steindórsson hefur selt fasteignir um árabil. Þeir vita hvað þeir syngja, þegar kemur að stórfurðulegri stöðu á íslenskum fasteignamarkaði og deila pælingum sínum og stöðumati með þjóðinni.

  11. 55

    Vinstri femínistar eiga ekki jafnréttisumræðuna

    Félagsfræðingurinn Heiðdís Geirsdóttir og foreldrafræðingurinn og uppeldisráðgjafinn Kristín Kolbrún Kolbeinsdóttir Waage ræða jafnréttismál í víðum skilningi, velferð og nám barna, símabann í skólum, leikskólamál í Kópavogi og í Reykjavík, skóla án aðgreiningar, líðan barnanna okkar og margt fleira í sérlega áhugaverðu spjalli.

  12. 54

    Pólitísk vakning og ferðalag ungrar konu frá VG og Stundinni yfir í Miðflokkinn

    Félagsfræðingurinn Hlédís Maren var í ungliðastarfi VG og blaðamaður á Stundinni, en lætur nú til sín taka í Miðflokknum og sat landsþing hans um helgina. Þar var líka hlaðvarparinn Þórarinn Hjartarson sem einnig er stjórnmálafræðingur og hnefaleikaþjálfari. Þau ræða aukinn áhuga ungs fólks á stjórnmálum, nýjar áherslur kvenna í jafnréttismálum, komandi sveitarstjórnarkosningar og margt fleira í stórfróðlegu spjalli sem vekja mun mikla athygli.

  13. 53

    Hvað er eiginlega að gerast?

    Er kreppa í kortunum samfara óvissu um stríðsátök? Hvers vegna gengur ekkert að ná verðbólgunni niður? Hvaða vandamál hrjáir íslenska hlutabréfamarkaðinn? Hvers vegna er ákveðnum hópi haldið nauðugum á leigumarkaði? Hvað er eiginlega framundan í efnahagsmálum heimsins og hvaða áhrif hefur það hér á landi. Agnar Tómas Möller fjárfestir og einn okkar helsti greinandi í þeim efnum svarar því á dýptina í áhugaverðu spjalli við Björn Inga Hrafnsson.

  14. 52

    Hvað má ræða og hvað ekki? Menningarstríðin hin nýju

    Menningarstríðin hin nýju, þar sem margir hreinlega standa á orginu og telja að fólk annarrar skoðunar megi helst hvergi þrífast setja mark sitt á alla umræðu, ekki bara á Íslandi heldur um allan heim. Hvers vegna er skautunin svo mikil og óþol fyrir andstæðum skoðunum? Morðið á Charlie Kirk, staða Þjóðkirkjunnar, hin ömurlegu átök fyrir botni Miðjarðarhafs og margt fleira eldfimt til umræðu og gestir eru sr. Örn Bárður Jónsson prestur, Snorri Másson alþingismaður Miðflokksins og Stefán Einar Stefánsson fjölmiðlamaður og siðfræðingur.

  15. 51

    „Ég varð að fá að kveðja hana Margréti mína“

    Guðni Ágústsson, fv. ráðherra, í einkar einlægu og mannlegu spjalli um makamissinn, en eiginkona hans til áratuga, Margrét Hauksdóttir, féll frá fyrr á árinu. Guðni segir frá Njáluástríðu sinni og stórum verkefnum sem henni tengjast og spáir í spilin í pólitíkinni. Hann segir vá fyrir dyrum í heimsmálunum og hér heima við sé ljóst að Framsóknarflokkurinn þurfi nýjan formann; Sigurður Ingi Jóhannsson geri sér vel grein fyrir því.

  16. 50

    Hver eru tækifæri Íslands í gjörbreyttri heimsmynd?

    Hér er nú ekki töluð vitleysan! Konráð S. Guðjónsson hagfræðingur og fv. efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar, Álfrún Tryggvadóttir hagfræðingur og sérfræðingur hjá OECD og Bergþóra Halldórsdóttir hjá Borealis Data Center og stjórnarmaður í Samtökum iðnaðarins ræða gjörbreytta stöðu í heimsviðskiptunum og tækifæri og ógnir sem Ísland stendur frammi fyrir. Er að koma kreppa ofan á tal um ófrið í heiminum? Hvernig takast ríkisstjórnir hér á landi og annars staðar á við nauðsynlega hagræðingu? Er hagsmunum Íslands betur borgið innan ESB og ber að flýta þjóðaratkvæði? Er lögmál að báknið stækki endalaust? Hverjar eru horfurnar hér á landi og á alþjóðavísu við gjörbreyttar aðstæður? Umræða fyrir þá sem vilja vita meira.

  17. 49

    Er allt að fara í skrúfuna? Staðan skýrð á mannamáli

    Stefán Einar Stefánsson og Hörður Ægisson rýna í ótrúlega stöðu á heimsmörkuðum vegna tollastríð Trumps Bandaríkjaforseta, þar sem allt var eldrautt fyrir helgi og óttast að botninum sé ekki náð. Hvað þýðir þetta fyrir Ísland og viðskiptalífið hér á landi? Verður ríkisstjórnin að taka U-beygju í snatri í áformum um tvöföldun veiðileyfagjalds og álögur á ferðaþjónustuna? Er ætlunin að flýta þjóðaratkvæði um aðild Íslands að Evrópusambandinu? Skylduhlustun fyrir alla sem vilja vera með á nótunum, en mögulega ekki sérlega notalegar vangaveltur rétt fyrir svefninn!

  18. 48

    Tvær grjótharðar láta gamminn geisa

    Þær kalla ekki allt ömmu sína, þær Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, og Sigríður Á. Andersen, þingmaður Miðflokksins og fv. ráðherra. Í Grjótkasti dagsins er fjallað um ríkisstjórnina og hundrað fyrstu dagana, tvöföldun veiðigjalda og slaginn sem framundan er um sjávarútvegsmálin, stöðuna í stjórnmálunum, nýja forystu Sjálfstæðisflokksins og fl.

  19. 47

    100 daga ríkisstjórn og fyrsti ráðherrann fallinn, Trump, tollastríð og undarlegt ferðalag til Brussel

    Guðmundur Fertram Sigurjónsson í Kerecis og Hermann Guðmundsson í Kemi mæta í Grjótkastið og ræða nýjustu tíðindi: Afsögn barnamálaráðherra á hundrað daga afmæli ríkisstjórnarinnar, hvort rannsaka eigi bakgrunn nýrra ráðherra, furðulegt ferðalag ríkisstjórnarinnar til Brussel, Trump og áherslur hans, tollastríðið sem framundan er, innanlandsflugið, pólitíkina almennt og margt fleira. Allt sem þú þurftir að vita um helstu mál!

  20. 46

    Margeir í Úkraínu: Allir sammála Trump um að þetta stríð verði að enda

    Stórmeistarinn og bankamaðurinn Margeir Pétursson hefur verið búsettur undanfarin ár í Úkraínu og þekkir því manna best hvernig innrásarstríð Rússa hefur bitnað á landinu og íbúum þess. Fyrir þremur árum tæpum -- þegar stríð var nýlega hafið -- fór Björn Ingi Hrafnsson til Úkraínu og heimsótti Margeir og stríðsslóðir í austurvegi. Nú eiga þeir samtal aftur, þegar gífurlegur fjöldi hefur fallið í herjum beggja ríkja og ræða möguleika á friði, hvort sem er varanlegur eða tímabundinn; áhrif Trumps Bandaríkjaforseta, vopnavæðingu Evrópu og hvað er eiginlega framundan í alþjóðamálunum. Samtalið er skylduhlustun fyrir þá sem vilja vera með á nótunum!

  21. 45

    Evrópa vígvæðist á methraða, verðbólgusamningar við kennara og hvað gerir Valhöll nú?

    Stefán Einar Stefánsson blaðamaður og þáttastjórnandi og Sigríður Mogensen hjá Samtökum iðnaðarins gera upp magnaðan landsfund Sjálfstæðisflokksins og næstu skref í Valhöll. Trump er í öllum fréttum og Evrópa vígvæðist í ofboði og hvað þýðir það fyrir Ísland? Hvers vegna sitjum við eftir þegar kemur að gervigreindinni? Hvað gerum við ef sæstrengirnir okkar verða klipptir í sundur? Kannast ríkisstjórnin ekki við eigin hagræðingartillögur og eru þær nóg? Hefur verðbólgunni aftur verið hleypt af stað með samningum við kennara?

  22. 44

    Hvað á borgaralegu fólki eiginlega að finnast um þetta allt saman?

    Það eru alveg ótrúlegir tímar; hvort sem litið er á alþjóðamálin þar sem allt er í steik eða í innlendum stjórnmálum. Vigdís Häsler og Friðjón R. Friðjónsson ræða Trump og Úkraínu, stöðu NATO, varnir Íslands, Evrópusambandið, ríkisstjórnina og stöðu Flokks fólksins, væntanlegan nýjan meirihluta í borginni og komandi landsfund Sjálfstæðisflokksins þar sem kjósa á nýja forystu.

  23. 43

    Svandís Svavars rýfur þögnina og fyrstu dagar þingmannsins Jóns Gnarr

    Nú þegar þing er að koma saman, vonum seinna, eftir alþingiskosningar, og spjót standa á ríkisstjórn Valkyrjanna kemur Svandís Svavarsdóttir, formaður VG, í Grjótkastið og rýfur þögnina eftir skellinn mikla þar sem flokkurinn datt af þingi. Er VG búið að vera? Hvað varð um vinstrið á Íslandi? Jón Gnarr, fv. borgarstjóri og forsetaframbjóðandi, er hins vegar nýr þingmaður og segir frá fyrstu dögunum í því hlutverki. Saman greina þau stöðuna, tíðindi úr borgarmálunum, stöðu stjórnarinnar og margt fleira í athyglisverðu spjalli. Beðist er velvirðingar á smávægilegum hljóðtruflunum framarlega í þættinum.

  24. 42

    Hvernig formann þarf Sjálfstæðisflokkurinn?

    Júlíus Viggó Ólafsson, formaður Heimdallar, og Andri Steinn Hilmarsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, ræða átakamenningu stríðandi fylkinga í Sjálfstæðisflokknum í aðdraganda landsfundar. Geta öll dýrin í skóginum verið vinir? Er Áslaug Arna svarið við pólitískum vandræðum Sjálfstæðisflokksins til framtíðar? Hvað gera Guðlaugur Þór og Guðrún Hafsteinsdóttir? Ræður elíta flokknum eða hefur hinn almenni flokksmaður einhver áhrif? Hvernig er hægt að ná aftur til venjulegs lág- og millitekjufólks? Hvernig virkar flokksskrifstofan í Valhöll? Nær ríkisstjórnin vopnum sínum eftir brösótta byrjun eða halda vandræði Flokks fólksins áfram?

  25. 41

    Flokkur fólksins í ólgusjó og valdatafl í Valhöll

    Þótt ríkisstjórnin sé á sínum fyrstu vikum og þing ekki enn komið saman eftir kosningar, er Flokkur fólksins strax kominn í vörn, sumir myndu segja nauðvörn. Framundan er valdatafl í Valhöll og algjör forystuskipti í Sjálfstæðisflokknum. Hvernig fer stjórnarsamstarfið af stað? Hvað er með Kristrúnu og Dag? Andrés Magnússon á Morgunblaðinu og varaborgarfulltrúinn Sandra Hlíf Ocares greina stöðuna með Birni Inga í bráðskemmtilegu og áhugaverðu Grjótkasti.

  26. 40

    Flokkur fólksins ekki bara upp á punt

    Sr. Halldór Gunnarsson (kenndur við Holt) tók þátt í stofnun Flokks fólksins ásamt Ingu Sæland og fleira fólki og varpar hér óvæntu og fréttnæmu ljósi á styrk flokksins við ríkisstjórnarborðið. Segir hann að enginn skyldi vanmeta Ingu; hún hafi ýmis vopn upp í erminni. Halldór í Holti rýnir í stöðuna í Grjótkastinu hjá Birni Inga ásamt Jóni Baldvin Hannibalssyni, fyrrverandi utanríkisráðherra og formanni Alþýðuflokksins og talið berst að mögulegri aðild Íslands að Evrópusambandinu, breyttum heimi og hættunni á stórstyrjöld, hlutverki Íslands í hernaðarkapphlaupi nútímans og mörgu fleiru.

  27. 39

    Ótrúlega áhugaverðir tímar: Af hverju er allt upp í loft í pólitíkinni um allan heim?

    Grjótkastið heilsar nýju ári með greiningu úr efstu hillu þar sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins og fv. forsætisráðherra, og Lilja Dögg Alfreðsdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins og fv. ráðherra og þingmaður setjast niður með Birni Inga í níutíu mínútur og fara yfir hið pólitíska landslag; brotthvarf Bjarna Ben, fyrstu daga Valkyrjustjórnarinnar, ótrúlega atburðarás sem er að teiknast upp á alþjóðavettvangi og margt fleira í fróðlegu og að mörgu leyti sögulegu spjalli, sem vekja mun mikla athygli.

  28. 38

    Miskunnarlausir strigakjaftar II: Uppgjör við áramót

    Rosalegt Grjótkast: Stefán Einar og Ólöf Skafta taka enga fanga í sannkallaðri áramótaveislu.

  29. 37

    Draumalandið vs. Hugmyndalandið

    Nú eru tæp tuttugu ár frá því Andri Snær Magnason rithöfundur sendi frá sér bókina Draumalandið — sjálfshjálparbók handa hræddri þjóð sem hlaut íslensku bókmenntaverðlaunin og var síðar kvikmynduð. Stóriðjustefna stjórnvalda var þar gagnrýnd og áhersla á virkjanir. Bókin hafði mikil áhrif og í hönd fór það sem kallað hefur verið kyrrstaða í orkumálum Íslendinga. Er Andri Snær höfundur kyrrstöðunnar sem Íslendingar kusu burt á dögunum? Vill hann virkja frekar og þá hvar? Stórmerkilegt uppgjör þar sem Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins ræðir við rithöfundinn um orkuskort, hækkandi orkuverð, möguleika Íslendinga til framtíðar og óvissuna sem umlykur okkur á öllum sviðum.

  30. 36

    Óttast atvinnulífið ríkisstjórn Valkyrjanna?

    Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, betur þekktur sem Binni í Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum, og Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar og fv. aðstoðarmaður forsætisráðherra, koma í Grjótkastið og ræða væntingar atvinnulífsins til ríkisstjórnar valkyrjanna sem verið er að reyna að mynda. Hvor verður forsætisráðherra, Kristrún eða Þorgerður? Ásælist ESB auðlindir okkar? Þolir atvinnulífið þyngri skattlagningu? Nær Bjarni Ben áramótaávarpinu? Hvaða áhrif hefur tollastríð í íslenskt efnahagslíf? Og ótalmargt fleira um ferðaþjónustu, sjávarútveg og fjölmargt fleira.

  31. 35

    Erum við að sigla inn í nýja heimsstyrjöld?

    Ekkert léttmeti á aðventunni, því miður, heldur alvöru spjall um raunverulega hættu sem gæti verið að skapast og mun hafa gríðarleg áhrif á okkur öll. Valur Gunnarsson sagnfræðingur og rithöfundur ræðir hvað gæti gerst á árinu 2025. Þetta eru sannarlega sögulegir tímar.

  32. 34

    Sjálfstæðisflokkurinn þarf núna að uppfæra stýrikerfið sitt

    Nú þegar stjórnarmyndunarviðræður valkyrjanna þriggja standa yfir, fær sjálfstæðisfólk tækifæri til að melta úrslit kosninganna og horfa inn á við. Í Grjótkastinu útiloka hvorki Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir né Guðlaugur Þór Þórðarson framboð til formanns á komandi landsfundi í febrúar og greina möguleika Sjálfstæðisflokksins til framtíðar. Hér kemur ansi margt áhugavert fram, sem vitnað verður til.

  33. 33

    Grjótkastið með alvöru kosningauppgjör: Hver er sætasta stelpan á ballinu?

    Alvöru uppgjör í Grjótkastinu, þar sem Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir úr Viðreisn og Bergþór Ólason úr Miðflokki draga ekkert úr sigrum sinna flokka í samtali við Björn Inga á Viljanum, en setja líka upp hatta álitsgjafanna og greina í smáatriðum nýliðna kosningabaráttu og úrslit kosninganna, auk þess sem rýnt er í möguleikana varðandi nýja ríkisstjórn. Í heimsókn kemur Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, sem kynnir Stefnumálareikni ráðsins, þar sem landsmönnum gefst kostur á að skoða hvaða flokkar og stefnumál passa best inn í nýja ríkisstjórn. Ómissandi konfekt fyrir allt áhugafólk um stjórnmál.

  34. 32

    Grjótkast á útopnu: Hver fær umboðið til stjórnarmyndunar?

    Grjótkastið á mannamáli með tveimur konum sem kalla ekki allt ömmu sína og þora að hafa skoðanir. Ólöf Skaftadóttir og Vigdís Häsler setjast niður með Birni Inga og greina stöðuna fyrir stóra daginn, það er komið að kosningum og allt getur gerst. Þáttur sem enginn ætti að missa af, sem vill vera með á nótunum.

  35. 31

    Grjótkast Bjarna Ben og SDG: 120 mínútur af fyrirsögnum

    Hér koma 120 mínútur af alvöru Grjótkasti, þar sem Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins og fv. Forsætisráðherra, mætast hjá Birni Inga á Viljanum og ræða lokadaga kosningabaráttunnar, hvaða staða sé að teiknast upp og hvernig koma megi í veg fyrir vinstri stjórn sem ætlar í Evrópusambandið. Rætt er og rifist um borgarlínuna og samgöngusáttmálann á höfuðborgarsvæðinu, hælisleitendur og stjórn á landamærunum, skatta og ESB, jafnlaunavottun, innri mál Sjálfstæðisflokksins, orkumál og sókn Viðreisnar og Flokk fólksins og fylgisþróun almennt. Bjarni og Sigmundur vilja báðir borgaralega ríkisstjórn sem lækki skatta og taki til hendinni og segja að staðan í könnunum nú, segi ekkert um það sem kemur upp úr kössunum um næstu helgi. Þáttur sem er fullur af fyrirsögnum!

  36. 30

    Allt að verða vitlaust: Obba og Gulli í spennuþrungnu Grjótkasti

    Spennan var rafmögnuð í hljóðveri Grjótkastsins þegar Guðlaugur Þór Þórðarson (Gulli) umhverfisráðherra og Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir (Obba) þingkona Viðreisnar mættust hjá Birni Inga, enda birtist rosaleg könnun Prósents um fylgi flokkanna fyrir Moggann meðan á upptöku stóð, en þar sýnist Viðreisn vera nánast tvöfalt stærri en Sjálfstæðisflokkurinn. Gulli varar við vinstri slysum, en Obba bendir honum þá að sjálfur sé hann að koma úr sjö ára vinstri stjórnarsamstarfi. Af hverju gengur stjórnarflokkunum svona illa í baráttunni? Hvað gerist á lokasprettinum? Erum við á leið í ESB, er Reykjavíkurmódelið að teiknast upp í landsmálunum og Obba setur fram áskorun á Gulla í borgarmálunum. Eftirminnilegur þáttur!

  37. 29

    Grjótkast á sterum: Eyþór Arnalds og Vigdís Hauks um lokadaga kosningabaráttu sem skipt geta sköpum

    Grjótkastið er á sterum í dag, en Vigdís Hauksdóttir lögmaður og fv. alþingismaður og borgarfulltrúi og Eyþór Arnalds tónlistarmaður og fv. borgarfulltrúi mæta til Björns Inga og tala umbúðalaust um kosningaherferðir flokkanna, hvað er að virka og hvað alls ekki. Spáð er afsögn formanns stjórnmálaflokks á sjálfa kosninganótt, vill þjóðin ESB? Var afleikur hjá Þorgerði Katrínu að segja í Grjótkastinu að Sjálfstæðisflokkurinn sé vart stjórntækur? Rætt er um slaufunarmenningu, Þórðarmál, Klaustur og fyrirgefningu syndanna, svo eitthvað sé nefnt. Klukkutíma sem er vel varið!

  38. 28

    Grjótkast Kristrúnar og Þorgerðar: Hvor verður forsætisráðherra? Þjóðaratkvæði um ESB, skattar og vandræði frambjóðenda

    Hér koma 72 mínútur af pólitískri þungavigt: Er Sjálfstæðisflokkurinn orðinn óstjórntækur? Hvernig finnst Kristrúnu Þórðarmál vera fyrir Samfylkinguna. Alma Möller og Jón Gnarr eru ráðherrakandídatar. Heilbrigðismál í ólestri, rifist um skattastefnu og bankasölu, af hverju er Viðreisn hætt að vera leiðinleg og orðin skemmtileg? Skiptir máli að kynna útfærða stefnu, eða er það hættulegt? Og margt fleira í þætti sem vitnað verður til.

  39. 27

    Grjótkastið: Tilfinningaþrungið uppgjör borgaralega þenkjandi fólks og ný könnun

    Í eftirminnilegu Grjótkasti mætast þau Brynjar Níelsson og Sigríður Á. Andersen og ræða erfiða stöðu ríkisstjórnarflokkanna og Sjálfstæðisflokksins sérstaklega, ruglið með borgarlínuna, skattamál og vandræði Samfylkingarinnar, ris Viðreisnar, möguleikann á borgaralegri ríkisstjórn og útþenslu báknsins á öllum sviðum. Kynnt er ný könnun Maskínu fyrir Viljann um viðhorf til hægri/vinstri ríkisstjórnar.

  40. 26

    Grjótkastið: Svandís og Þórdís á trúnó um lok stjórnarsamstarfsins, furðulega kosningabaráttu og heiminn eftir risasigur Trumps

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir varaformaður Sjálfstæðisflokksins og utanríkisráðherra og Svandís Svavarsdóttir formaður VG og fv. ráðherra í stórmerkilegu Grjótkastsspjalli við Björn Inga á Viljanum. Hér er farið á trúnó um hin furðulegu lok stjórnarsamstarfsins, hvort mistök voru gerð fyrir þremur árum um að endurnýja samstarfið, erfiða stöðu allra stjórnarflokkanna í kosningabaráttunni nú, hræðsluna við að toppa of snemma, átökin um vinstri og hægri, skattamál og baráttu VG fyrir lífinu hvorki meira né minna. Trúnó og greiningar á dýptina sem áhugafólk um stjórnmál ætti ekki að missa af.

  41. 25

    Grjótkastið: Örlagarík heimsókn til Kristrúnar, Gnarr-áhrifin, sigur Trumps og galdurinn að toppa á réttum tíma

    Lilja Alfreðsdóttir menningarmálaráðherra og Jóhann Páll Jóhannsson alþingismaður í stórskemmtilegu spjalli um spennandi tíma! Örlagarík heimsókn til Kristrúnar Frostadóttur. Hverju breytir það í kosningabaráttunni hér að Donald Trump hafi sigrað í Bandaríkjunum? Er varnarsamningi okkar ógnað? Kemst ESB-aðild þá á dagskrá? Er Jón Gnarr hvalreki Viðreisnar? Hvernig toppar maður akkúrat á réttum tíma og hvað gerir Framsókn á lokasprettinum?

  42. 24

    Grjótkast Dags og Áslaugar: 113 mínútur af alvöru pólitík

    Engu skiptir hvort reynt er að stilla þeim Degi B. Eggertssyni og Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur upp sem aðal- eða aukaleikurum, pólitíkin þeirra nær alltaf máli og þetta 112 mínútna langa Grjótkast hjá Birni Inga sætir miklum tíðindum. Hvaða ríkisstjórn fáum við Íslendingar fyrir jól? Verður kosið um Reykjavíkurmódelið? Á að hækka eða lækka skatta? Borgarlínan, Sundabraut, samgöngusáttmálinn, verkfall kennara, staðan í heilbrigðiskerfinu, skólamálin, ríkisstjórnin og kosningarnar - allt er hér undir.

  43. 23

    Grjótkastið: Víðir kvíðir ekki pólitík og Bergþór tæklar Kragann

    Björn Ingi með Grjótkast af dýrari gerðinni: Víðir Reynisson er hættur að halda upplýsingafundi og kominn í pólitík, hvernig kom það til og við hverja ræddi hann í aðdragandanum? Þarf að gera Covid-tímabilið upp? Hvernig sér hann deilur Kristrúnar og Dags? Miðflokkur mælist með hörkufylgi í Norðvestur, en samt flytur Bergþór Ólason sig um set. Hvers vegna? Skipta upprifjanir á Klaustursmálum máli í þessari kosningabaráttu? Eru sjálfstæðismenn pirraðir á Miðflokknum? Hvernig þróast kosningabaráttan? Og hvaða ríkisstjórn fáum við?

  44. 22

    Grjótkastið: Miskunnarlausir strigakjaftar

    Hérna eru 80 mínútur sem þú vilt alls ekki missa af. Ólöf Skaftadóttir og Stefán Einar Stefánsson fara á kostum í Grjótkastinu með Birni Inga þar sem rætt er um komandi kosningar, innanflokksmein í Valhöll þar sem forystan hefur gert ítrekuð mistök, þríeykið, vanda vinstri flokkanna, framboð lukkuriddara og mögulega ríkisstjórn. Hverjir fara á þing og hverjir verða fyrir vonbrigðum?

  45. 21

    Nú þarf meirihlutinn að ráða

    Guðmundur Fertram Sigurjónsson frumkvöðull á Ísafirði, hefur tekið forystu um Vestfjarðalínuna, verkefni sem byggir á efnahagsundrinu sem orðið hefur til á Vestfjörðunum undanfarin ár, en kallar eftir stórauknum innviðum og meiri uppbyggingu. Hann gagnrýnir í spjalli við Björn Inga boðaðar breytingar á rekstrarumhverfi nýsköpunarfyrirtækja sem boðaðar eru í fjárlögunum sem nú liggja fyrir þinginu, talar upp sjávarútveginn og eldisiðnaðinn og talar um komandi þingkosningar, borgarlínuna sem þenst út í áætlunum meðan tækniþróun bendir í aðra átt og leggur áherslu á að meirihluti þjóðarinnar vilji sjálfbæra nýtingu auðlinda og verðmætasköpun, en aðeins lítill minnihluti ekki. Meirihlutinn verði nú að fá að ráða för.

  46. 20

    Kosningar draga úr óvissu

    Heiðrún Lind Marteinsdóttir framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi og Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins ræða komandi kosningar, helstu verkefni næstu ríkisstjórnar og áskoranir atvinnulífsins eftir langvarandi pólitíska óvissu. Hefur þróun mála áhrif á vaxtalækkunarferlið? Hver eru stærstu verkefnin? Hvað er framundan?

  47. 19

    Grjótkastið v. Össur og Þorsteinn ræða ótrúlega stöðu

    Þorsteinn Pálsson fv. forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins og Össur Skarphéðinsson fv. utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar ræða við Björn Inga um hina ótrúlegu stöðu sem komin er upp í íslenskum stjórnmálum og einnig nýútkomnar dagbókarfærslur Ólafs Ragnars Grímssonar fv. forseta.

  48. 18

    Grjótkastið iv. þáttur: Þorbjörg ætlar sér stóra hluti

    Þorbjörg Gunnlaugsdóttir og Ólöf Skaftadóttir ræða við Björn Inga um stöðuna í stjórnmálunum eftir landsfund VG, kosningabaráttu sem er hafin, aukna stemningu í Viðreisn með innkomu Jóns Gnarr, vandræði Sjálfstæðisflokks og Framsóknar, sókn Samfylkingarinnar og Miðflokks og fl. Þorbjörg lýsir yfir framboði til oddvita Viðreisnar í Reykjavík í þættinum, svo þar er útlit fyrir spennandi prófkjör.

  49. 17

    Grjótkastið iii. þáttur: Bjarni Benediktsson tekur mjög mikla áhættu

    Ólöf Skaftadóttir og Brynjar Níelsson ræða við Björn Inga um nýja ríkisstjórn undir forsæti Bjarna Ben, áhættuna sem hann tekur með Sjálfstæðisflokkinn, hvers vegna Sigmundur Davíð og Kristrún eru núna kampakát, hvort erindi Viðreisnar er horfið og kannski Pírata líka, komandi forsetakosningar og æluna sem margir þurfa nú að kyngja (enn einn ganginn).

  50. 16

    Grjótkastið ii. þáttur

    Hvað gerist eiginlega nú? Ólöf Skaftadóttir og Bergþór Ólason.

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

TOPICS IN THIS SHOW

Click any topic to search every transcript on PodParley for moments someone mentioned it.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Grjótkastið. Fréttaskýringar, pistlar og viðtöl um málefni líðandi stundar. Dagbókarbrot.

HOSTED BY

Björn Ingi Hrafnsson

CATEGORIES

Frequently Asked Questions

How many episodes does Grjótkastið have?

Grjótkastið currently has 50 episodes available on PodParley. New episodes are automatically indexed when they're published to the podcast feed.

What is Grjótkastið about?

Grjótkastið. Fréttaskýringar, pistlar og viðtöl um málefni líðandi stundar. Dagbókarbrot.

How often does Grjótkastið release new episodes?

Grjótkastið has 50 episodes. Check the episode list to see recent publication dates and frequency.

Where can I listen to Grjótkastið?

You can listen to Grjótkastið on PodParley by clicking any episode. We provide an embedded audio player for direct listening, and you can also subscribe via your preferred podcast app using the RSS feed.

Who hosts Grjótkastið?

Grjótkastið is created and hosted by Björn Ingi Hrafnsson.
URL copied to clipboard!