PODCAST · technology
Grænvarpið
by Landsvirkjun
Hlaðvarp Landsvirkjunar um grænar lausnir.
-
44
Kraftur breytinga í orkugeiranum
Selma Svavarsdóttir segir frá þróun KÍO og stöðu kvenna í orkugeiranum. Þar hefur konum fjölgað – sérstaklega í hópi stjórnenda – en enn er langt í land. Selma undirstrikar að fjölbreytileiki, sýnilegar fyrirmyndir og markviss vinna skipti sköpum fyrir betri ákvarðanatöku og framtíð greinarinnar.Þátturinn á YouTube.
-
43
Að borða fíl
Hvernig á að flytja 28 vindmyllur í 400 hlutum eftir íslensku vegakerfi án þess að trufla vegfarendur of mikið? Sigurgeir og Gunnar Aron segja okkur allt um vindmylluflutningana frá Þorlákshöfn í Vaðölduver sem byrja núna í vor.Þátturinn á YouTube
-
42
Í nánum tengslum við nærsamfélagið
Rætt er um mikilvægi opinna og traustra samskipta við nærsamfélagið í kringum aflstöðvar Landsvirkjunar. Hildur Vésteinsdóttir, verkefnisstjóri á deild nærsamfélags og náttúru, fer yfir hvernig reglulegt samtal, fjölbreyttar samskiptaleiðir og gagnsæi stuðla að trausti og jákvæðum tengslum við íbúa og aðra hagsmunaaðila.Þátturinn á YouTube
-
41
Erlend verkefni Landsvirkjunar
Sérþekking Landsvirkjunar í vatnsafli og jarðvarma er eftirsótt víða um heim. Kristján Guðmundsson, forstöðumaður erlendra verkefna, segir okkur frá verkefnum Landsvirkjunar á erlendri grund. Það er nóg af tækifærum en stefna fyrirtækisins er að halda sig við verkefni á norðurslóðum, einkum í Kanada og á Grænlandi.
-
40
Nærsamfélag og vöktun á Austurlandi
Vel hefur verið fylgst með áhrifum Kárahnjúkavirkjunar og Fljótsdalsstöðvar á samfélag og náttúru á Austurlandi í þau tæplega 20 ár sem liðin eru síðan stöðin var gangsett. Árni Óðinsson, verkefnisstjóri á deild nærsamfélags og náttúru, hefur verið potturinn og pannan í þeirri vöktun og samskiptum við samfélagið á svæðinu síðustu 17 ár.Þátturinn á YouTube
-
39
Lengi má gott bæta
Hildigunnur Jónsdóttir er forstöðumaður endurbótadeildar, sem hefur viðamikil verkefni með höndum innan Landsvirkjunar og sér til þess að aflstöðvarnar séu í toppstandi, auk þess að bregðast við ófyrirsjáanlegum bilunum og atburðum í rekstri. Endurbætur eru mikilvægur þáttur í því að nýta auðlindirnar sem best og tryggja að rekstur orkufyrirtækis þjóðarinnar sé eins áreiðanlegur og hægt er.Þátturinn á YouTube
-
38
Vatnsbúskapurinn skiptir sköpum
Staðan í lónunum okkar er heldur betur mikilvæg fyrir Landsvirkjun og þjóðina alla. Ívar Baldvinsson, forstöðumaður vinnsluáætlana, fer yfir allt sem lýtur að vatnsbúskapnum, hverju við getum stjórnað og hvað er alveg undir náttúruöflunum komið.Þátturinn á YouTube
-
37
Endurnýjanleg orkuvinnsla og umhverfismál
Hvernig tengist orkuvinnsla Landsvirkjunar markmiðum heims um að sporna við hlýnun jarðar og hvernig tengjast þau markmið öðrum umhverfismálum? Jóhanna Hlín Auðunsdóttir, forstöðumaður loftslags og sjálfbærni, spjallaði við Ívar Pál um umhverfis- og loftslagsmál.Þátturinn á YouTube
-
36
Hvernig er að vera ung kona í Landsvirkjun?
Hvernig vinnustaður er Landsvirkjun – fyrir ungar konur? Á hverju vori kemur stór hópur háskólanema til sumarstarfa hjá Landsvirkjun. Sumir ílengjast svo í alls konar verkefnum sem tengjast náminu. Ívar Páll ræðir hér annars vegar við Öldu Ægisdóttur, sem sér meðal annars um gestastofur Landsvirkjunar og Bryndísi Brynjúlfsdóttur, sem starfaði framan af fyrir samskiptadeildina en er nú útskrifuð úr verkfræði og komin á bólakaf í verkefnastjórnun fyrir Vaðölduver. Þátturinn á YouTube
-
35
Orkan í Ástralíu - Einar Erlingsson
Einar Erlingsson, verkefnastjóri í erlendum verkefnum, segir frá lífi sínu og starfi í Ástralíu, en hann dvaldi þar um tæplega sex ára skeið sem ráðgjafi við stærsta vatnsaflsverkefni í sögu landsins, í Snowy-fjöllum.Þátturinn á YouTube
-
34
Orkan í orkuskiptunum - Sigríður Mogensen og Haukur Ásberg Hilmarsson
Þóra ræðir við Sigríði Mogensen hjá Samtökum iðnaðarins og Hauk Ásberg Hilmarsson hjá Landsvirkjun um vefinn orkuskipti.is, sem fjallar um það hvernig Íslendingar geta skipt út milljón tonnum af olíu á ári fyrir loftslagsmarkmið, orkuöryggi, hreinna loft og orkusjálfstæði.Þátturinn á YouTube
-
33
Jöklarnir og orkan - Magnús Tumi Guðmundsson
Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði og formaður Jöklarannsóknafélags Íslands til 24 ára, ræðir við Ívar Pál um íslenskar jöklarannsóknir og gæfuríkt samstarf við Landsvirkjun.Þátturinn á YouTube
-
32
Samkjaftað um Samorku - Finnur Beck
Finnur Beck, framkvæmdastjóri Samorku, segir okkur frá því helsta sem er að gerast hjá þessum þrítugu samtökum orku- og veitufyrirtækja á Íslandi – og það er ekki lítið. Fram undan eru framkvæmdir fyrir hundruð milljarða króna til að viðhalda þessum grundvallarkerfum sem enginn vill vera án en fæstir vilja þurfa að hugsa um.Þátturinn á YouTube
-
31
Farið yfir fjármálin - Rafnar Lárusson
Rafnar Lárusson, framkvæmdastjóri Fjármála og upplýsingatækni, fór yfir fjármál Landsvirkjunar í þessum nýjasta þætti Grænvarpsins. Þátturinn á YouTube
-
30
Rabbað um rafmagnsreikninginn - Tinna Traustadóttir
Tinna Traustadóttir, framkvæmdastjóri Sölu og þjónustu, skýrir fyrir okkur þetta flókna skjal sem við fáum í hverjum mánuði: rafmagnsreikninginn. Hún fer líka yfir stöðu Íslands í alþjóðlegum samanburði og ýmislegt fleira.Þátturinn á YouTube
-
29
Jarðvarmi frá A-Ö - Bjarni Pálsson
Bjarni Pálsson er nýráðinn framkvæmdastjóri Vinds og jarðvarma. Í þessum þætti segir hann okkur frá ýmsum spennandi verkefnum sem framundan eru.Þátturinn á YouTube
-
28
Með doktorspróf í laxi – Sigurður Guðjónsson
Sigurður Guðjónsson, fiskifræðingur, segir okkur hvernig seiðafleyta virkar, hver áhrif virkjaðra vatnsfalla á fiskistofna og veiði eru ásamt ýmsu fleiru.Þátturinn á YouTube
-
27
Hringrásarhagkerfið - Ívar Kristinn Jasonarson
Ívar Kristinn Jasonarson, sérfræðingur hjá Loftslagi og grænum lausnum, segir okkur frá hringrásarhagkerfinu. Hvernig fellur starfsemi Landsvirkjunar að því?Þátturinn á YouTube
-
26
Viljum vera góðir grannar - Guðmundur Finnbogason
Guðmundur Finnbogason, verkefnisstjóri Nærsamfélags og náttúru er fyrrum heimilisfræðikennari og skáti. Sú reynsla hefur nýst honum vel í vinnu með nærsamfélagi aflstöðva Landsvirkjunar. Guðmundur ræðir einmitt mikilvægi þess að vera góður granni, segir frá hundraðasta frisbígolfvelli landsins við Ljósafossstöð, Orkuslóðinni sem er að verða til á Þjórsársvæði - og hvernig sé best að elda nýveiddan silung undir berum himni.Þátturinn á YouTube
-
25
Þróun raforkumarkaða - Úlfar Linnet
Úlfar Linnet, forstöðumaður Viðskiptaþjónustu ræðir við Þóru Arnórsdóttur um raforkumarkaðinn og þær breytingar sem eru að verða á honum með innkomu skipulegra raforkumarkaða. Hvernig virka þeir? Hvaða áhrif hafa þeir á verð til neytenda og raforkuöryggi? Þátturinn á YouTube
-
24
Konur í orkumálum - Hildur Harðardóttir og Selma Svavarsdóttir
Selma Svavarsdóttir, nýkjörinn formaður Kvenna í orkumálum, og Hildur Harðardóttir, fráfarandi formaður, segja okkur frá starfi félagsins og mikilvægi kvenna í orkugeiranum.Þátturinn á Youtube
-
23
Annasamt starf stöðvarstjóra - Georg Þór Pálsson
Georg Þór Pálsson, stöðvarstjóri Þjórsársvæðis, segir okkur frá starfi sínu þar sem engir tveir dagar eru eins. Þátturinn á YouTube
-
22
Orkunýtni og orkuþörf - Jóna Bjarnadóttir
Jóna Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri Samfélags og umhverfis, fer yfir þá möguleika sem felast í bættri orkunýtni í þessum nýjasta þætti Grænvarpsins.Þátturinn á YouTube
-
21
Vindorka - Unnur María Þorvaldsdóttir
Unnur María Þorvaldsdóttir, forstöðumaður þróunar vindorku, segir okkur frá áformum Landsvirkjunar um að reisa vindorkuver og öllu sem því fylgir.Þátturinn á YouTube
-
20
Hvammsvirkjun - Ólöf Rós Káradóttir
Ólöf Rós Káradóttir er verkefnisstjóri Hvammsvirkjunar, þess virkjunarkostar Landsvirkjunar sem er einna lengst kominn í undirbúningi. Hún segir okkur frá verkefninu í nýjasta þætti Grænvarpsins.Þátturinn á YouTube
-
19
Nýsköpun - Dóra Björk Þrándardóttir
Dóra Björk Þrándardóttir, nýsköpunarstjóri hjá Landsvirkjun segir okkur frá samstarfsverkefnum Landsvirkjunar á sviði nýsköpunar.Þátturinn á YouTube
-
18
Vatnafarsrannsóknir - Andri Gunnarsson
Andri Gunnarsson, verkefnisstjóri vatnafars segist vera í skemmtilegasta starfi landsins. Það hefur til að mynda leitt hann á staði á hálendinu sem nærri enginn fer á og sér. Andri fer yfir hvað er gert í jöklamælingaferðum og ýmislegt fleira.Þátturinn á YouTube
-
17
Upprunaábyrgðir - Stefán Gíslason
Þóra Arnórsdóttir ræðir við Stefán Gíslason, umhverfisstjórnunarfræðing um eðli og tilgang upprunaábyrgða. Til hvers var kerfið búið til og hver er ávinningurinn af því fyrir íslensk orkufyrirtæki og almenning? Hverjir kaupa þessi grænu skírteini og hvers vegna? Virkar kerfið eins og lagt var upp með? Getur Ísland sleppt því að taka þátt? Hvaða áhrif hefði það? Þátturinn á YouTube
-
16
Raforkuöryggi – Tinna Traustadóttir og Gunnar Guðni Tómasson
Tinna Traustadóttir, framkvæmdastjóri Sölu og þjónustu og Gunnar Guðni Tómasson, framkvæmdastjóri Vatnsafls, ræða um raforkuöryggi frá ýmsum hliðum. Þau útskýra m.a. muninn á afli og orku, hættuna á því að stærri fyrirtæki yfirbjóði heimili og smærri fyrirtæki í kaupum á rafmagni og hvað gerist þegar keypt rafmagn fer yfir tiltækt afl í raforkukerfinu.Þátturinn á YouTube
-
15
Úrgangsmál – Ragnheiður Ólafsdóttir og Laufey Lilja Ágústsdóttir
Ragnheiður Ólafsdóttir umhverfisstjóri hjá Landsvirkjun og Laufey Lilja Ágústsdóttir, sérfræðingur hjá Loftslagi og umhverfi hjá Landsvirkjun, segja okkur frá fyrirkomulagi úrgangsmála hjá fyrirtækinu.
-
14
Plastlaus september – Þórdís Þórhallsdóttir
Þórdís Þórhallsdóttir fræðir okkur um Plastlausan september, en átakið leit fyrst dagsins ljós árið 2017.
-
13
Algalíf – Orri Björnsson
Í þættinum er rætt við Orra Björnsson, framkvæmdastjóra Algalífs, en Algalíf framleiðir fæðubótarefni úr örþörungum. Framleiðsla fyrirtækisins er kolefnisneikvæð, þ.e. hún bindur meira kolefni en hún losar.
-
12
Pure North Recycling – Sigurður Halldórsson
Sigurður Halldórsson er framkvæmdastjóri plastendurvinnslufyrirtækisins Pure North Recycling. Við spjöllum við hann um starfsemi fyrirtækisins og þann vanda sem felst í plastmengun í heiminum.
-
11
Orkuskipti – Sigurður Friðleifsson
Sigurður Friðleifsson hjá Orkusetri fræðir okkur um orkuskipti: hvar við Íslendingar stöndum í þeim efnum og hvaða vörður eru á leiðinni að kolefnishlutlausu Íslandi.
-
10
Sjálfbærnisjóður hjá Eyri Venture Management – Stefanía Guðrún Halldórsdóttir
Í þessum þætti Grænvarpsins segir Stefanía Guðrún Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Eyri Venture Management, frá sjálfbærnisjóð sem hún stýrir.
-
9
Grænvangur – Eggert Benedikt Guðmundsson
Eggert Benedikt Guðmundsson, forstöðumaður Grænvangs, samstarfsvettvangs stjórnvalda og atvinnulífs um loftslagsmál og grænar lausnir, mætir í Grænvarpið. Hann leiðir okkur í allan sannleika um samstarfsvettvanginn, hlutverk hans og starfsemi.
-
8
Kolefnishlutleysi 2025 – Jóhanna Hlín Auðunsdóttir
Jóhanna Hlín Auðunsdóttir, verkefnisstjóri aðgerðaáætlunar í loftslagsmálum, segir okkur frá áætluninni, sem gerir ráð fyrir að Landsvirkjun verði kolefnishlutlaus árið 2025.
-
7
Græn fjármögnun – Signý Sif Sigurðardóttir
Signý Sif Sigurðardóttir, forstöðumaður fjárstýringar, segir okkur frá grænni fjármögnun Landsvirkjunar undanfarin ár.
-
6
Votlendissjóður – Einar Bárðarson
Einar Bárðarson, framkvæmdastjóri Votlendissjóðs, fræðir okkur um starfsemi sjóðsins.
-
5
Loftslagsmál og orkumál – Hörður Arnarson
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, ræðir um hvernig orkumál gegna lykilhlutverki í baráttunni við loftslagsbreytingar.
-
4
Sjálfbær þróun – Kristín Linda Árnadóttir
Kristín Linda Árnadóttir aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar spjallar við okkur um hugtakið sjálfbæra þróun.
-
3
Fjölnýting í Mývatnssveit – Bjarni Pálsson
Bjarni Pálsson segir okkur frá fjölnýtingu í Mývatnssveit, en fjölnýting er nýting á þeim efnum og varmaorku sem falla til við raforkuvinnslu úr jarðvarma.
-
2
Orkídea – Sigurður H. Markússon
Sigurður H. Markússon fræðir okkur um Orkídeu, nýsköpunarverkefni sem snýst um uppbyggingu orkutengdra tækifæra framtíðarinnar á Suðurlandi, til dæmis við matvælaframleiðslu og líftækni, sjálfbæra nýtingu auðlinda og sprotastarfsemi.
-
1
Grænt vetni – Auður Nanna Baldvinsdóttir
Auður Nanna Baldvinsdóttir viðskiptaþróunarstjóri ræðir fyrirætlanir Landsvirkjunar um að hefja framleiðslu á grænu vetni við Ljósafossstöð, en grænt vetni er talið munu leika lykilhlutverk í orkuskiptum í Evrópu og víðar.
We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
ABOUT THIS SHOW
Hlaðvarp Landsvirkjunar um grænar lausnir.
HOSTED BY
Landsvirkjun
CATEGORIES
Loading similar podcasts...