Skip to content
Heimabíó podcast artwork

PODCAST · tv

Heimabíó

by Sigurjón og Tryggvi

Sigurjón og Tryggvi horfa vikulega á kvikmynd sem að annar hvor þeirra hefur ekki séð en það verkefni er einfalt þar sem Tryggvi hefur varla séð eina einustu bíómynd. Þeir leggja af stað í leiðangur til að upplýsa Tryggva betur um heim kvikmynda og horfa á allt frá algjöru rusli yfir í íkoniskar kvikmyndir sem allir hafa séð og elska (nema hann)

Publisher-supplied feed metadata · PodParley refreshed Feb 28, 2025 · Source feed

Episodes

  1. Þú vilt ekki missa af þessum

    Það er engin mynd í þessari viku, við erum bara að ræða svona hitt og þetta eins og niðurgang, raunveruleikasjónvarp og giffla magnið sem Tryggvi át sem unglingur. Við pitchum líka okkar eigin Love Island þáttum. Frí í næstu viku

  2. Tropa De Elite 2

    Afhverju fara gamlir menn ekki í nærbuxur þegar þeir eru búnir í sundi? Svona í alvörunni? Já svo ræðum við myndina auðvitað líka þarna í lokin.

  3. Tropa De Elite

    Í þessari viku förum við til BRAZIIIIIL og fylgjumst með spilltum löggum, dópsölum sem þykjast vera góðir gæjar og ríkum háskólakrökkum sem halda að þeir séu saklausir. Í næstu viku : Tropa De Elite 2

  4. Sicario

    Franskur leikstjóri, íslenskt tónskald, bresk leikkona og leikari frá puerto rico gera saman kvikmynd um stríð gegn eiturlyfjum í Bandaríkjunum. Meikar sense er það ekki? Næst tökum við TROPA DE ELITE

  5. The Girl With The Dragon Tattoo

    Eruð þið tilbúin í eina þunga og erfiða? Ekki við heldur en hér erum við ! Woooohooo!!! Næst er Sicario

  6. Legally Blonde

    Við horfðum á eina pjúra klassiska grínmynd frá 2001 sem inniheldur eiginlega allar þær skemmtilegu klisjur sem einkenndi grínmyndir á þessum tíma. Í næstu viku förum við í aðra átt. Menn sem hata konur (við eigum eftir að ákveða hvora útgáfuna)

  7. Paddington

    Krúttlegi litli bangsinn/björninn er mættur til leiks í kvikmynd sem hlýjar hjartaræturnar. Ef þú hefur ekki séð þessa, gerðu þér þá greiða og horfðu á hana. Næst er Legally Blonde

  8. The Machinist

    Þetta er cult mynd, margir þekkja hana en held að færri hafi séð hana. Tryggvi vildi allavega koma því á framfæri að ég er óhæfur um að velja myndir í janúar sem láta mann ekki hata sjálfan sig þannig að í næstu viku tökum við Paddington.

  9. Áramótauppgjör 2024 (BESTI þáttur ársins)

    ÞAÐ ER KOMIÐ AÐ ÞVÍ! LADIES AND GENTLEMEN! Verið hjartanlega velkomin í uppgjör ársins þar sem við förum yfir allar þær myndir sem við horfðum á á árinu og gefum ímynduð verðlaun fyrir rosalega heimskulega flokka. Það er vín, það er grátur, hlátur, öskur og allt þar á milli.

  10. Endurútgáfa : It's A Wonderful Life

    Við erum í jólafríi þangað til að við gerum upp árið um áramótin en þangað til bjóðum við upp á endurútgáfu af It's A Wonderful Life. Jólaklassíker sem allur ættu að sjá

  11. Hallmark : The Christmas Quest

    Það þurfa allir að sjá eina Hallmark jólamynd og það vildi svo heppilega til að þeir voru að gefa út mynd sem gerist á Íslandi. Þannig að hvernig gátum við sleppt því að horfa á hana og læra um týnda fjarsjóð jólasveinanna?

  12. Jólaþáttur : Klaus

    Það eru að koma jól! Einstöku sinnum mætir mynd sem engin býst við og heillar mann upp úr skónum, Klaus er ein af þessum myndum. Í næstu viku tökum við The Christmas Quest

  13. O brother, where art thou?

    Síðasta myndin fyrir desember þegar við byrjun jólaveisluna okkar, jól jól jól jól jól jól! Við ætlum að byrja á Klaus, frábær fyrsta í aðventu mynd.

  14. Versta mynd allra tíma? The island of dr. Moreau

    Hvernig stendur á því að svona high budget mynd með Val Kilmer og Marlon Brando endi sem eitt stærsta lestarslys sem hefur verið fest á filmu? Í næstu viku er Brother where art thou

  15. Memories of Murder

    Við ákváðum að kíkja á eina af fyrstu myndunum hans Bong Joon Ho sem leikstýrði og vann óskarinn fyrir Parasite. Hér höfum við glæpathriller í anda Zodiac og Seven sem er alls ekki að valda vonbrigðum. Í næstu viku tökum við fræga lestarslysið The Island of Dr Moreau með Val Kilmer og Marlon Brando

  16. The Jerk

    Við horfum á myndina sem gerði Steve Martin að kvikmyndastjörnu. Spurningin er þó, hefur svona gömul grínmynd elst vel og afhverju er Al Pacino að sms-ast við 6 mánaða gamalt barnið sitt? Næst er Memories of Murder

  17. Þjáningarmánuðurinn : Gonjiam : Haunted Asylum

    Asian horror, bring it. Gerum þetta bara. Kveiktu á myndinni og keyrum þessa veislu í gang, við munum alveg sofa. Vona ég. Næst er The Jerk með Steve Martin

  18. Þjáningarmánuðurinn : The Babadook

    Kona missir manninn sinn, sonur missir föður, grámygla allstaðar og allir eru í geðrofi. Good times! Næst er....því miður....Gonjinam : Haunted Asylum

  19. Þjáningarmánuðurinn : Paranormal Activity

    HERE WE GO AGAIN! Annað ár, annar þjáningarmánuður. Þvílík veisla, fyrir ykkur það er að segja ekki okkur. Við gjörsamlega hötum þetta. Ég myndi meira að segja halda því fram að þetta sé versti mánuðurinn fyrir okkur en mögulega besti fyrir ykkur. Við viðurkennum hvað við erum litlir í okkur…

    more
  20. Steve Jobs (2015)

    Ekki myndin með Asthton Kutcher heldur myndin með Seth Rogen, bara svo það sé á hreinu fyrir alla Þjáningamánuðurinn er að byrja í næstu viku og Paranormal Activity 1 verður fyrir valinu

  21. Stanley Kubrick : Dr Strangelove - #75 Top250 IMDB

    Eina grínmyndin hans Kubrick er tekin fyrir í þessari viku, þetta er fjórða svarthvíta myndin sem við tökum fyrir og eins og Tryggvi getur vottað þá hafa þær ekki valdið vonbrigðum hingað til Í næstu viku tökum við Steve Jobs eftir Danny Boyle og Aaron Sorkin, eftir það förum við í hryllingsmyndir

  22. Mission Impossible : Dead Reckoning

    Það er komið að lokum í þessu Ethan Hunt ævintýri okkar, er þetta besta myndin í seríunni þrátt fyrir að vera sjöunda? Kannski Næst er : Dr. Strangelove

  23. Mission Impossible : Fallout

    Mmmmmmm Henry Cavill.... Er þetta Mission Impossible mynd? Við tókum nú eiginlega ekkert eftir því þar sem hönkið Henry Cavill tók alla athygli með þessu magnaða yfirvaraskeggi sínu. Hvernig er það, er einhver sem getur plöggað Cavill til okkar sem gest? Væri best ef hann gæti komið til landsins,...

  24. Mission Impossible : Rogue Nation

    Ethan Hunt neyðist til að "go rogue" í enn eitt skiptið nema nú er hann alveg einn á báti þar sem CIA andar ofan í hnakkann á liðsfélögum hans. Hunt eltir The Syndicate, SAD eltir IMF, CIA fylgist með og MI6 bætist þarna einhverstaðar við.

  25. Mission Impossible : Ghost Protocol

    WE'RE BACK BABY!!! Við tókum kannski aðeins lengra sumarfrí en það er allt í góðu, við höldum áfram með Mission Impossible seríuna og horfum á Cruise hægt og rólega missa vitið.

  26. Mission Impossible 3

    Síðasta ómögulega verkefnið með númer í titlinum er tekið fyrir áður en við förum í sumarfrí. Sjáumst aftur í ágúst með Mission Impossible : Ghost Protocol

  27. Mission : Impossible 2

    Tryggvi er veikur þannig að það er styttri þáttur en vanalega, Sigurjón tekur á sig að fara yfir lestarslysið sem er Mission : Impossible 2 en gengur þó ekkert brjálæðislega vel að halda sig við efnið enda engin til að minna hann á að halda sér á réttri braut. Njótið.

  28. Mission : Impossible

    Við ætlum í algjörlega ómögulegt verkefni! Næstu þættir verða tileinkaðir Mission Impossible seríunni er við horfum á þær allar í röð á meðan að brjálæðin á skjánum stigmagnast með hverju eintaki.

  29. X-Men : Days of Future Past

    JÆJA!!! Þá er það síðasta X-Men myndin í upphituninni fyrir Deadpool, vonandi verður hún góð annars var þetta allt gagnslaust. Þessi er allavega dúndur góð mynd en hlustið og sjáum hvort allir séu á sama máli. Næst ætlum við að taka Mission : Impossible

  30. X-Men : First Class

    Prequel-reboot time! Við fylgjumst með exx mönnunum þegar kalda stríðið er að valda veseni og illir erfðabreyttir menn reyna að sprengja veröldina Days of Future Past er næst

  31. X-Men 2

    Næsta stopp í xellent ferðinni okkar er X-Men 2. Töluvert gæðastökk átti sér stað á milli mynda og lestin er svo sannarlega byrjuð að ná almennilegum hraða Í næstu viku tökum við X-Men : First Class

  32. X-Men

    Byrjum þessa Deadpool upphitun! X-men here we come. Hvað gerist annars þegar froskur fær eldingu í sig? Í næstu viku er X-2

  33. Logan - #215 IMDB Top 250

    Við hefjum upphitun fyrir Deadpool & Wolverine (Deadpool 3) sem kemur í sumar. Byrjum á því þegar að Hugh Jackman kvaddi karakterinn í fyrsta skipti í þessari geggjuðu mynd. Við ætlum svo að halda áfram að hita upp næstu vikur með X-Men, X-men 2, X-men First Class og X-Men Days of Future Past.

  34. Sherlock Holmes

    Robert Downey Sherlock og Benedict CumberHolmes verða ræddir í þessum þætti. Við ræðum myndina vs þættina og hvaða útgáfu af Sherlock við fýlum betur Næsta vika er Logan

  35. Memento - #56 IMDB Top 250

    Er þetta besta myndin eftir Christopher Nolan? Jafn vel betri en Inception eða Interstellar? Kannski, kannski ekki... Kemur í ljós.

  36. Prisoners

    Frá manninum sem færði ykkur Dune 2 og Blade Runner 2 kemur Prisoners með Huge Jacked Man í leit að dóttir sinni sem hefur verið rænd. Það er spenna, það er hasar, það er sorg. Njótið Næsta mynd er Memento eftir Christopher Nolan

  37. Beetlejuice

    Ekki segja það þrisvar, svo mikið er víst. Þessi klassíska gamanmynd eftir Tim Burton er svo brjálæðislega mikil skemmtun að hún getur ekki annað en dreift henni til allra sem sitja við skjáinn En talandi um skemmtun þá erum við að horfa á Prisoners í næstu viku, það er skemmtun fyrir masokista.

  38. Heat

    Nú snúast hlutverkin við, mynd sem Sigurjón hefur aldrei séð en Tryggvi hefur horft á nokkrum sinnum. How the turntables have turned! Í næstu viku tökum við BEETLEJUICE

  39. Fargo

    Coen bræða klassíkin Fargo er tekin fyrir í þessari viku, yah! Ferðumst til smábæjarins í Minnesota þar sem öll plön virðast fara til fjandans sama hver tekur þátt í þeim Í næstu snúum við hlutverkunum við þar sem Sigurjón hefur aldrei séð Heat en Tryggvi hefur séð hana 2var.

  40. Reservoir Dogs

    Fyrsta myndin hans Tarantino er tekin fyrir í þessari viku en í næstu viku tökum við Fargo

  41. Charlie Chaplin / The Great Dicator

    “I'm sorry, but I don't want to be an emperor. That's not my business. I don't want to rule or conquer anyone" Þessi fleygu orð heyrðust í kvikmynd Charlie Chaplin, The Great Dictator, árið 1940. Í þessari viku er aðeins öðruvísi þáttur þar sem við fjöllum vissulega um myndina en tímanum er þó...

  42. Glengarry Glen Ross

    A ! ALWAYS ! B ! BE ! C ! CLOSING! Það hafa eflaust allir heyrt þessa setningu frá Alec Baldwin en í þessari viku horfðum við á myndina sjálfa og hvernig tímarnir hafa breyst

  43. The A Team

    Sigurjón valdi mynd og sjáðu til hann var nú búinn að gleyma því að hún er ekkert voðalega góð en hey þátturinn er það!

  44. I Love You, Man

    Við heimsækjum Jason Segel og Paul Rudd aftur þessa vikuna í myndinni I Love you, Man. Paul Rudd leikur vinalausan mann sem þarf að finna sér svaramann fyrir brúðkaupið sitt og hilarity ensues. Í næstu vikum tökum við A Team frá 2010

  45. Endurútgáfa : When Harry Met Sally

    Vegna veikinda endurútgefum við einn af uppáhalds þáttunum okkar sem passar fullkomlega inn í þennan feel good febrúar okkar. Við snúum hinsvegar aftur í næstu viku með I Love You, Man

  46. Forgetting Sarah Marshall

    Þessi breakup mynd frá 2008 með Jason Segel, Kristen Bell, Russel Brand og Mila Kunis sló í gegn á sínum tíma og skaut Segel á toppinn. Hvað myndirðu gera ef þú ert fastur á Hawaii með fyrrverandi kærustunni og nýja manninum hennar? Í næstu viku tökum við bromance myndina I Love You, Man

  47. Mean Girls 2004

    Þessi þáttur er so fetch! Við tökum töluvert rómantískari febrúar mánuð og horfum á nokkrar rómantískar gamanmyndir Í næstu viku tökum við Forgetting Sarah Marshall

  48. The Lighthouse

    Við ljúkum þessum geðveika mánuð með ferðalagi í einangrun með Willem Dafoe og Robert Pattinson er þeir leika tvo vitaverði sem hægt og rólega missa vitið. Það er þó eintóm gleði í næstu viku þegar við tökum fyrir Mean Girls frá 2004

  49. La Haine #226 - IMDB Top 250

    Hvað geta tveir hvítir forrétindapésar sagt um kvikmynd sem fjallar um kúgun á frönskum jaðarhópum? Ekkert voðalega snjallt eða gagnlegt en við allavega reynum. Í næstu viku tökum við The Lighthouse

  50. Apocalypse Now

    "My film is not a movie. My film is not about Vietnam. It is Vietnam" sagði Francis Ford Coppola þegar hann var að kynna myndina 1979. Við strákarnir förum yfir trufluðu söguna á bakvið myndina og ræðum hvort að þessi kynning hans hafi verið rétt lýsing á myndinni.

Type above to search every episode's transcript for a word or phrase. Matches are scoped to this podcast.

Searching…

We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.

No matches for "" in this podcast's transcripts.

Showing of matches

No topics indexed yet for this podcast.

Loading reviews...

ABOUT THIS SHOW

Sigurjón og Tryggvi horfa vikulega á kvikmynd sem að annar hvor þeirra hefur ekki séð en það verkefni er einfalt þar sem Tryggvi hefur varla séð eina einustu bíómynd. Þeir leggja af stað í leiðangur til að upplýsa Tryggva betur um heim kvikmynda og horfa á allt frá algjöru rusli yfir í íkoniskar kvikmyndir sem allir hafa séð og elska (nema hann)

HOSTED BY

Sigurjón og Tryggvi

CATEGORIES

Frequently Asked Questions

How many episodes does Heimabíó have?

Heimabíó currently has 136 episodes available on PodParley. New episodes are automatically indexed when they're published to the podcast feed.

What is Heimabíó about?

Sigurjón og Tryggvi horfa vikulega á kvikmynd sem að annar hvor þeirra hefur ekki séð en það verkefni er einfalt þar sem Tryggvi hefur varla séð eina einustu bíómynd. Þeir leggja af stað í leiðangur til að upplýsa Tryggva betur um heim kvikmynda og horfa á allt frá algjöru rusli yfir í íkoniskar...

How often does Heimabíó release new episodes?

Heimabíó publishes regularly with 136 episodes available. Check the episode list for the typical release schedule.

Where can I listen to Heimabíó?

You can listen to Heimabíó on PodParley by clicking any episode. We provide an embedded audio player for direct listening, and you can also subscribe via your preferred podcast app using the RSS feed.

Who hosts Heimabíó?

Heimabíó is created and hosted by Sigurjón og Tryggvi.
URL copied to clipboard!