PODCAST · society
Heimsborgarar
by Hljóðkirkjan
Við ferðumst mikið.Stundum stígum við upp í flugvél og förum út í heim. Upplifum framandi menningu og víkkum þannig sjóndeildarhringinn.En stundum leyfum við heiminum einfaldlega að koma til okkar.Við höfum burrito í matinn. Borðum franska súkkulaðiköku í eftirrétt.Horfum síðan á margverðlaunaða búlgarska bíómynd fyrir svefninn.Samt erum við líkamlega bara í Kópavogi.Þetta hlaðvarp er því ferðaþáttur, en í mjög víðum skilningi. Baldur og Haukur skoða allt það sem tengist öðrum löndum, ferðalögum, menningu, sögu, mat og því sem þeim dettur í hug.
-
2
#8 Rassinn á Stjána
Heimsborgarar etja saman 20 þjóðfánum í nýjum leik, svara nokkrum spurningum úr sal og tækla gríðarlegt hitamál: ferðalög innanlands. Eru þau algjör snilld eða ömurlegt drasl? Takið þátt í umræðunni á Heimsborgarar - Umræðuhópur.
-
1
#7 Vængjaðar vítisvélar
Okkur er talin trú um það að flug sé öruggasti ferðamátinn. Staðreyndin er hins vegar sú að það er stórhættulegt að fljúga og hvert skipti sem þú gengur ólaskaður frá borði flugvélar er í rauninni algjört kraftaverk. Spennið sætisólarnar, signið ykkur og takið þátt í umræðunni á Heimsborgarar - Umræðuhópur.
-
0
#6 Þrjár ferðir til fjár
Heimsborgarar flugu út í heim — og svo aftur til baka með öll koffort stútfull af góssi og góðum minningum. Einnig er kynntur til sögunnar nýr dagskrárliður: Útsláttarkeppni þjóðsöngva! Takið þátt í umræðunni á Heimsborgarar - Umræðuhópur.
-
-1
#5 Biðin langa
Á eldfjallaeyjunni Tanna í Suður-Kyrrahafi hefur hópur fólks beðið í næstum heila öld eftir heimsókn frá dularfullum dáta að nafni John Frum. Eða var það Broom?
-
-2
#4 Ófreskjan og einræðisherrann
Hvað gerir vitfirrtur þjóðarleiðtogi þegar kvikmyndaiðnaðurinn í ríki hans er í niðursveiflu? Jú, hann auðvitað rænir kvikmyndaleikstjóra frá nágrannaríkinu og pínir hann til að leikstýra sjö kvikmyndum í fullri lengd á tveimur árum. Heimsborgarar fjalla um þetta glórulausa plan, sem þér er að sjálfsögðu meira en velkomið að tjá þig um í Heimsborgarar - Umræðuhópur.
We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
No topics indexed yet for this podcast.
Loading reviews...
ABOUT THIS SHOW
Við ferðumst mikið.Stundum stígum við upp í flugvél og förum út í heim. Upplifum framandi menningu og víkkum þannig sjóndeildarhringinn.En stundum leyfum við heiminum einfaldlega að koma til okkar.Við höfum burrito í matinn. Borðum franska súkkulaðiköku í eftirrétt.Horfum síðan á margverðlaunaða búlgarska bíómynd fyrir svefninn.Samt erum við líkamlega bara í Kópavogi.Þetta hlaðvarp er því ferðaþáttur, en í mjög víðum skilningi. Baldur og Haukur skoða allt það sem tengist öðrum löndum, ferðalögum, menningu, sögu, mat og því sem þeim dettur í hug.
HOSTED BY
Hljóðkirkjan
Loading similar podcasts...